Dagur - 05.12.1986, Blaðsíða 5
5: desember 1986 - DAGUR - 5
,Börn geta verið illa
haldin af liðagigt"
- segir Þorbjörg Ingvadóttir sjúkraliði
ein þeirra sem standa fyrir kynningarfundi
um gigtveiki á mánudagskvöldið
Næstkomandi mánudagskvöld
mun hópur áhugamanna um
gigtveiki standa fyrir kynning-
■arfundi, á Hótel KEA, um
þennan margslungna sjúkdóm
sem fylgt hefur mannkyninu frá
upphafi vega að því að talið er.
Til þess að fræðast nánar um
fundinn og tilganginn með hon-
um var haft samband við Þor-
björgu Ingvadóttur en hún er
ein þeirra sem að fundinum
standa.
- Komdu blessuð Þorbjörg.
Hver er tilgangurinn með þess-
um fundi á mánudagskvöldið?
- Þessi fundur verður haldinn
á vegum áhugahóps um máleini
gigtveikra. Hann er fyrst og
fremst hugsaður sem kynningar-
fundur og þarna munu verða
haldin ýmis fræðsluerindi. Við
viljum reyna að vekja fólk til
umhugsunar og viljum hvetja
alla sjúklinga, aðstandendur og
aðra áhugamenn um þessi mál
að mæta á fundinn og kynna sér
betur um hvað þetta snýst.
I framhaldi af þessum kynn-
ingarfundi má svo búast við að
haldinn verði stofnfundur gigt-
arfélags. En auðvitað fer það
allt eftir áhuga fólks.
- Er mikil þörf á þessari
fræðslu?
- Já við teljum að svo sé. Það
er nú svo að gigt er ekki endi-
lega það sama og gigt. Þetta er
margsiunginn sjúkdómur og af
honum eru mörg afbrigði. Það
má nefna þvagsýrugigt, tauga-
gigt, vöðvagigt, og liðagigt auk
slitgigtar sem hrjáir ekki aðeins
gamalt fólk heldur einnig fólk á
miðjurn aldri. Við teljum að
menn geti komið í veg fyrir
óþarfa þjáningar ef þeir vita
meira um sinn sjúkdóm. Gigt
hefur gjarnan verið nefnd sjálfs-
ofnæmissjúkdómur því í mörg-
um tilfellum veit enginn hvað
veldur henni.
Meðal þeirra sem koma til
með að halda erindi á fundinum
er Baldur Jónsson barnalæknir.
Hann mun segja nokkur orð um
liðagigt í börnum. Börn geta
verið mjög illa haldin af liðagigt
fram eftir aldri og ef ekki er
brugðist rétt við getur þetta
valdið ævilangri bæklun þó svo
að þau komist í rauninni yfir
sjúkdóminn sjálfan. Það er mik-
ið atriði að foreldrar viti að
börnin þurfa meðferð og í flest-
um tilfellum er hægt að halda
sjúkdómnum niðri með lyfjum.
Ég er hrædd um að foreldrar
geri sér ekki alltaf grein fyrir því
að um gigt sé að ræða. En ef
foreldrar hafa minnsta grun um
að barnið þeirra sé með gigt þá
vil ég hvetja þá til að koma á
fundinn.
Auk aukinnar frræðslu teljum
við að margt þurfi að bæta í
sambandi við endurhæfingu og
lækningar á gigtveiki. Það er að
vísu endurhæfingarstöð á Bjargi
en þetta þarf að vera miklu
meira.
Það er því miður svo að
óhemju margir eiga við þennan
sjúkdóm að stríða í einhverri
mynd og hér á Akureyri er til
dæmis talið að um 1400 manns
séu með slæma gigt.
- Hvaða aðstaða er það þá
sem ykkur finnst vanta?
- Það má til dæmis nefna það
að hér er engin sundlaug fyrir
gigtveika eða fatlaða. Ef nú á að
fara að koma á fót endurhæf-
ingardeild við Kristnesspítala þá
viljum við gjarnan fá að vera
með í þeirri uppbyggingu, með
sundlaug í huga. Það er að vísu
svo einkennilegt að í áætlunum
um þessa deild er ekki gert ráð
fyrir sundlaug þó svo að hún sé
mjög stór þáttur í allri endur-
hæfingu. Við erum ekki að fara
fram á að byggð verði sérstök
sundlaug fyrir gigtveika heldur
að fá að koma inn í það dæmi
með öðrum.
Það er líka mjög slæmt að hér
á Fjórðungssjúkrahúsinu skuli
ekki vera neinn gigtarsér-
fræðingur. Á sjúkrahúsinu eru
nú þrír beinasérfræðingar en til
þeirra kasta kemur í rauninni
ekki fyrr en skaðinn er skeður.
Þeir koma ekki til sögunnar fyrr
en menn eru svo illa haldnir að
þeir þurfa að gangast undir skurð-
aðgerðir til að láta skipta um
liði. Við viljum helst ná til sér-
fræðinganna áður en það er
komið svo langt. Við erum fyrst
og fremst að hugsa um forvarn-
arstarfið þannig að fólk verði
helst ekki slæmt af sjúkdómn-
um.
- Hvert yrði hlutverk fyrir-
hugaðs gigtarfélags?
- Hlutverk gigtarfélags hér,
yrði fyrst og fremst kynningar-
starf til að fyrirbyggja óþarfar
þjáningar vegna gigtar. Á veg-
um Gigtarfélags íslands er gefið
út blað fjórum sinnum á ári en
við viljum reyna að sinna betur
þessu svæði en gert hefur verið.
Hugmynd okkar sem að fundin-
um stöndum er að gera þetta
með útgáfu bæklinga unt hina
ýmsu þætti sjúkdómsins en
einnig með því að halda kynn-
ingarfundi þar sem tekin yrðu
fyrir ýmis atriði með hjálp
sérfræðinga á þessu sviði. Við
viljum líka reyna að beita okkur
fyrir úrbótum á þeim atriðum
sem ég nefndi áðan þannig að
við þurfum ekki að sækja allt
suður.
- A hvaða svæði mun þetta
félag starfa?
- Það er náttúrlega ekkert
fastákveðið en við teljum heppi-
legast að félagssvæðið miðist við
Norðurland eystra. Þ.e.a.s.
sama svæði og svæðisstjórn í
málefnum fatlaðra starfar á.
Þetta teljum við æskilegt vegna
ýmissa sameiginlegra hags-
munamála þessara aðila.
- Eitthvað að lokum?
- Ekki nema það að ég vona
að sem flestir láti sjá sig á Hótel
KEA á mánudagskvöldið klukk-
an 20.30.
- Þakka þér fyrir og gangi
ykkur vel.
- Þakka þér sömuleiðis.
- Blessuð.
- Blessaður. ET
Pylsuvagn (söiuskáK).
Til sölu stór pylsuvagn með góðum tækjum. Laus nú
þegar. Góð kjör
Uppl. í síma 91-54898.
Dansleikur
laugardagskvöld
Hljómsveitin Casablanca
leikur fyrir dansi til kl. 03.
Ingimar Eydal
leikur fyrir matargesti.
Ath! Síðasti dansleikur á Hótel KEA fyrir jól.
Snyrtilegur klæðnaður.
Frá Strætisvögnum
Akureyrar
Eftirtalda laugardaga verður ekið sem hér segir:
Laugardaginn 6. desember frá kl. 9.35-16.40.
Laugardaginn 13. desember frá kl. 9.35-18.40.
Laugardaginn 20. desember frá kl. 9.35-22.40.
Ekið verður samkvæmt Leiðabók.
Forstöðumaður.
Toyota
alltaf spori á undan
Unnur Ólafsdóttir kynnir Toyota saumavél-
ar í Bílvirkja, Fjölnisgötu 6.
Föstudag 13-18. Laugardag 10-16.
Toyota varahlutaumboðið.