Dagur - 05.12.1986, Blaðsíða 7
*»de«e«te40B6-dPA!iiUR-í7
-bækuc
Enga stæla!
- eftir Andrés Indriðason
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu unglingabókin Enga stæla!
eftir Andrés Indriðason. Petta er
sjálfstætt framhald af bók Andr-
ésar Bara stælar! sem kom út í
fyrrahaust.
Enga stæla! gerist í unglinga-
vinnunni sumarið eftir 8. bekk.
Þar púla þau í sólskininu Jón
Agnar, Lilli himnastigi og Ragn-
hildur (þessi sem slagar hátt upp í
Ungfrú heim). Jón Agnar og
Ragnhildur fá það verkefni að
mála yfir ósóma sem Lilli hefur
skrifað á skólavegginn meðan
verkstjórinn var að horfa annað,
og þá verða þau af tilviljun vitni
að því að brotist er inn í skólann
þeirra. í kjölfarið fylgir æsi-
spennandi eltingaleikur sem þó
verður stundum gráthlægilegur,
því krakkarnir eiga ekki ein-
göngu í höggi við þjófa heldur
leynifélagið Svörtu hauskúpuna
líka.
Enga stæla! er 140 bls., unnin
að öllu leyti í Prentsmiðjunni
Odda hf. Brian Pilkington gerði
kápumynd.
Harmaminning
Leonóru
Kristínar
í Blátumi
Mál og menning hefur sent frá
sér Harmaminningu Leonóru
Kristínar í Bláturni í þýðingu
Björns Th. Björnssonar. Þessi
„endurminningabók“ danskrar
prinsessu frá 17. öld er eitt af
höfuðverkum danskra bók-
mennta.
Leonóra Kristín var dóttir
Kristjáns IV. Danakonungs og
eiginkona Korfitz Ulféldt greifa.
Hún var dæmd til fangavistar í
Bláturni, þeirri illræmdu prísund
í miðri konungshöllinni í Kaup-
mannahöfn sem margir íslend-
ingar urðu líka að gista, fyrir
drottinssvik og sat þar í meira en
tvo áratugi. Meðan hún dvaldi í
fangelsinu ritaði hún Harma-
minningu, þar sem hún segir frá
meinlegum örlögum sínum, jafn-
framt því sem hún lýsir á áhrifa-
mikinn hátt lífi sínu í fangelsinu,
meðföngum sínum og samskipt-
um við yfirvöld. 1685 veitti
Kristján V henni loks frelsi, og
hún auk ævi sinni í Maribo-
klaustri 13 árum síðar. Handrit
hennar að Harmaminningu var
gleymt og grafið í hartnær tvær
aldir, en eftir að það fannst aftur
og var gefið út í Danmörku 1869,
hefur það komið út æ ofan í æ og
verið þýtt á fjölmörg tungumál!
Auk þess að þýða verkið ritar
Björn Th. Björnsson að því ítar-
legan sögulegan inngang og hann
hefur einnig útbúið skýringar
sem verkinu fylgja. í bókinni eru
jafnframt hartnær fjörutíu mynd-
ir frá samtíma höfundar, sem
fengnar eru að láni úr dönskum
söfnum.
Harmaminning Leonóru Krist-
ínar er 340 bls. að stærð, unnin í
Prentsmiðjunni Odda hf; Hilmar
Þ. Helgason gerði kápu.
Saman í hring
- eftir Guðrúnu Helga-
dóttur
Komin er út ný bók eftir Guð-
rúnu Helgadóttur rithöfund og
alþingismann. Guðrún er lesend-
um íslenskra barnabóka löngu
góðkunn og er þetta tíunda bók
hennar. Nefnist hún Saman í
hríng og er sjálfstætt framhald
bókarinnar Sitji guðs englar, sem
út kom fyrir þremur árum.
Við endurnýjum hér kynnin af
fjölskyldunni í þeirri sögu og
fylgjumst með næstelstu systur-
inni, Lóu-Lóu, - og öllum hinum
krökkunum í amstri, gleði og
sorg á umrótatímum, reynslu
þeirra og upplifun af umhverfi
sínu, lífsbaráttu og furðuheimi
fullorðinna!
Rík kímnigáfa og næmur skiln-
ingur höfundar á viðfangsefni
sínu nýtur sín hér til fulls.
Bókin er gefin út hjá Bókaút-
gáfunni Iðunni.
Sigrún Eldjárn gerði myndirn-
ar.
Fasteignasala - Sími 26441
Hafnarstræti 108.
Sölumaður: Páll Halldórsson,
helmasími: 22697.
Lögmaður: Björn Jósef Arnviðarson.
Skarðshlíð: 6 herb. íbúð e.h. í tvíbýlis-
húsi.
Hafnarstræti: Eldri húseign 3 hæðir og
ris. Geta verið 2-3 íbúðir.
Aðalstræti: 2ja herb íbúð ca. 40 fm,
ódýr, laus strax.
Austurbyggð: Einbýlishús 2 hæðir og
kjallari.
Alfabyggð: Einbýlishús á 2 hæðum.
Innbyggður bílskúr. 228 fm.
Eiðsvallagata: 3ja herb. íbúð á 2. hæð
ca. 60 fm.
Gránufélagsgata: 5 herb. ca. 150 fm.
Allt sér.
Hafnarstræti: 3ja herb. íbúð á 4. hæð
ca. 75 fm.
Hólabraut: 4ra herb. risíbúð ca. 77 fm.
Hólabraut: 4ra herb. íbúð á 2. hæð ca.
114 fm.
Norðurgata: Efri hæð í tvíbýlishúsi,
150 fm + bílskúr. Skipti á raðhúsi á
Brekkunni.
Verkstæðishús: 250 fm. Selst í einu
lagi eða hlutum.
Steinahlíð: Raðhús, 6 herbergi +
bílskúr. Skipti á minna.
Vantar:
Okkur vantar í raun og veru
allar stærðir og gerðir eigna
á söluskrá.
Ef þú bara
vissir
- Ný unglingabók eftir
Helgu Ágústsdóttur
Komin er út ný bók eftir höfund
metsölubókarinnar Ekki kjafta
frá, Helgu Ágústsdóttur.
Nýja bókin nefnist Ef þú bara
vissir og fjallar um lífið og tilver-
una frá sjónarhóli unglingsstúlk-
unnar Sigrúnar, sem á ýmislegt
sameiginlegt með jafnöldrum
stnum: Það er ekki sérstaklega
gaman að eiga foreldra sem eru
tímaskekkja, og lítið fjör þegar
vinirnir eru byrjaðir með ein-
hverjum og hafa engan tíma
lengur.
Ætli það auðveldi ekki tilver-
una að fara í vinnu til Mallorca?
Lendir maður þá í tómri vit-
leysu. . .
Söguhetjan í Ef þú bara vissir
stígur aftur fótum á gamla föður-
landið eftir viðburðaríkt sumar
við Miðjarðarhaf, sumar sem fór
öðruvísi en nokkurn óraði fyrir.
Bókaútgáfan Iðunn gefur út.
í greipum
elds og
ótta
Þetta er fjórða skáldsaga Birgittu
H. Halldórsdóttur. Fyrri bækur
hennar eru: Inga, Háski á Hvera-
völlum og Gættu þín Helga.
Öllum hefur bókum hennar
verið vel tekið og ljóst, að þær
njóta vaxandi vinsælda, enda hef-
ur Birgitta haslað sér völl á sviði
spennuskáldsagna, en það hafa
fáir íslenskir rithöfundar reynt.
Sögusvið þessarar bókar er við
Eyjafjörð. Margar helstu persón-
urnar eru kennarar við skóla í
nágrenni Akureyrar, þar á meðal
Rósa, sem ung að árum hafði
fellt ástir til Halldórs skólabróður
síns og átt með honum soninn
Óskar. En þau fengu ekki lengi
að njóta ástar sinnar. Síðar áttu
þó örlögin eftir að leiða þau
saman, en áður hafði mikið vatn
runnið til sjávar og atburðarásin í
BIRGITTA H.HALLDÓRSDÓTTIR
í greipum
eids og ótta
lífi Rósu var bæði hröð og fjöl-
breytileg.
Hugkvæmni og fjörugt ímynd-
unarafl höfundar nýtur sín með
ágætum í þessari þók. Ólíkleg-
ustu atburðir verða hver af öör-
um og frásögnin er þrungin sívax-
andi spennu. Þetta er íslensk ást-
arsaga og afbrotasaga, en
umfram allt íslensk nútímasaga.
Káputeikningu gerði Auglýs-
ingastofan Delfi (Bernharð
Steingrímsson).
Útgefandi er Skjaldborg.
Hvað Heldurðu
að sé að gerast á
Sólstofu Dúfu?
Veit það ekki.
Flott jólatilboð í desember.
En gaman, við skulum hringja í síma
23717 og kanna málið.
SóLSTOFA DúFU KOTÁRGERÐI
HYLDYPI
eftir Stuart Woods
Kafbátanjósnir við
strendur Svíþjóðar.
Ein mest spennandi
njósnasaga seinni ára
Verðkr. 1.125,00