Dagur - 15.12.1986, Qupperneq 3
15. desember 1986 - DAGUR - 3
Húsvíkingar nýta
heita vatnið illa
Sjónvarp
Akureyri
Dagskrá
næstu viku
Segja má að vatn Hitaveitu
Húsavíkur sé fullnýtt á álags-
tíma og miðað við óbreytt
ástand hvað söluna varðar
mun betri nýting þýða að
seinka má borunum eftir meiru
af heitu vatni.
Á fundi orku- og veitunefndar 7.
nóv. fól nefndin veitustjóra að
taka saman yfirlit um hitastig á
afrennslisvatni í húsum og yfirlit
um orkunotkun heimila miðað
við stærð húsa í rúmmetrum og
er hugmyndin að vinna heildarút-
tekt á því hvernig auka megi nýt-
ingu á heita vatninu og draga úr
hita á afrennslisvatninu.
Víglundur Porsteinsson veitu-
stjóri sagði í samtali við Dag að á
Akureyri:
„Ekki sjálfgefið að
það þurfi að byggja
nýjan kastala"
- segir Gunnar Ragnars
formaður menningarmálanefndar
„Það hefur ýmislegt komið inn
í myndina sem ekki hefur verið
bent á. Það er til dæmis spurn-
ing um það hvernig Glerár-
kirkjan verður, hvort þar verði
góður hljómburður. Er ekki
hugsanlegt að þarna sé að
koma tónleikahöll um leið?
Það eru ýmsir kostir sem þarf
að kanna,“ sagði Gunnar
Ragnars, formaður menning-
armálanefndar, er hann var
spurður um möguleika á hús-
næði fyrir lista- og menningar-
líf í bænum.
Á málþingi um menningarmál
sem haldið var fyrir skömmu
gerðu flestir talsmenn lista- og
menningarlífs húsnæðisskort að
umtalsefni og ýmsum hugmynd-
um var varpað fram þar að lút-
andi. Skorað var á menningar-
málanefnd að taka forystu varð-
andi úrbætur í þessum málum.
„Það er ekki endilega sjálfgef-
ið að það þurfi að byggja nýjan
kastala,“ sagði Gunnar Ragnars
og benti á að það þyrfti að athuga
hvernig hægt væri að nýta
húsnæði sem er fyrir hendi, svo
og það sem er í byggingu. „Svo
er það þessi nýi Verkmennta-
skóli. Við sáum það vel þegar við
héldum þetta málþing þar, að
þetta er nú bara hálfgerð menn-
ingarmiðstöð að verða. En varð-
andi Amtsbókasafnið þá þarf að
gera þar einhverjar aðgerðir á
næstu árum og það er spurning
hvort við getum ekki nýtt þar sal
fyrir málverkasýningar, minni
tónleika og fleira um leið og við
myndum auka við húsnæði þess,“
sagði Gunnar.
Hann sagði að bæjaryfirvöld
hefðu ákveðið að gera fjögurra
ára áætlun í sambandi við fram-
kvæmdir og skipuleggja þær
þannig að færri járn yrðu í eldin-
um en þess í stað yrði kappkost-
að að ljúka við það sem væri í
gangi. Inn í það dæmi kæmu auð-
vitað möguleikar varðandi hús-
næði fyrir menningar- og listalíf.
Hann sagði ýmsa kosti koma til
greina en það þyrfti að athuga á
raunsæjan hátt hvað væri
skynsamlegast að gera. SS
Veitumál á Daivík:
Vatnsveitan
hefur forgang
- „Dæmi upp á tugi milljóna“
segir Kristján Júlíusson bæjarstjóri
„Ef á að gera eitthvað varð-
andi kalda vatnið hér, er það
dæmi upp á tugi milljóna,“
sagði Kristján Júlíusson bæjar-
stjóri á Dalvík um fram-
kvæmdir við veitur bæjarins á
næstu árum.
Ástand í kaldavatnsmálum
Dalvíkinga hefur verið mjög bág-
borið undanfarin ár og lítill
árangur náðst, varðandi úrbætur.
Unnið hefur verið nokkuð vel að
rannsóknum á köldu vatni og eru
málin enn á frumvinnslustigi,
eins og Kristján sagði.
í Karlsárdal hefur verið unnið
að vatnstöku og virðist rennsli
fara þar minnkandi. „Þess vegna
erum við farnir að líta í kringum
okkur og kemur svæði fram í
Svarfaðardal helst til greina, en
það þarf að koma vatninu í bæinn
og er það mikið dæmi,“ sagði
Kristján.
Nú er verið að vinna áætlun
um veitumál á Dalvík. Slíkt er
gert samkvæmt reglum um að all-
ar sveitarstjórnir eiga að gera sér 3
ára framkvæmdaáætlun samhliða
fjárhagsáætlun. í minni sveitar-
félögum hefur slík áætlun ekki
verið gerð og er svo á Dalvík.
í fundargerð veitunefndar
kemur fram að vatnsveitan mun
hafa forgang varðandi fram-
kvæmdir og eins lítið verður unn-
ið við hitaveitu og hægt er á
næsta ári. Einnig var samþykkt
að hitaveitan styddi vatnsveituna
hvað varðar fjármagn. gej-
hverju ári væru gerðar mælingar
á hita afrennslisvatns í húsum.
Mikið væri um að afrennslisvatn-
ið væri of heitt og orsökin væri sú
að kerfin væru alls ekki með
þeim búnaði sem á þeim þyrfti að
vera og þetta yki notkun heita
vatnsins.
Fyrir tveim árum var gefinn út
bæklingur um notkun og nýtingu
hitakerfa, er hann handhægur til
að koma sér niður á hvernig
þjóna á þessum kerfum og sagði
Víglundur að gott væri að fólk
kynnti sér efni bæklingsins sem
dreift var í öll hús.
Ef til vill má rekja orsakir fyrir
slæmri nýtingu vatnsins til verðs
þess, fastagjald Hitaveitu Húsa-
víkur er 140 kr. á mánuði, hver
mínútulítri af vatni kostar 319
kr., þannig að það kostar um 13
þúsund krónur á ári að hita upp
einbýlishús af venjulegri stærð.
IM
MÁNUDAGUR
15. DESEMBER.
20:30 Myndrokk.
21:00 Bjargvætturinn (Equa-
lizer).
21:50 Dallas.
22:45 48 stundir - Kvikmynd.
00:15 Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGIJR
16. DESEMBER.
20:30 Gúmmíbirnirnir -
Teiknimynd.
20:55 Morögáta (Murder She
Wrote).
21:40 Dynasty - 2. þáttur.
22.25 Foul play - Kvikmynd.
00.20 Dagskárlok.
MIÐVIKUDAGUR
17. DESEMBER.
20:30 Glæframúsin - Teikni-
mynd.
20:50 Myndrokk.
21:20 Þorparar (Minder).
22:10 He is not your son -
Kvikmynd.
23:40 Dagskárlok.
FIMMTUDAGUR
18. DESEMBER.
19:30 Furðubirnir - Teikni-
mynd.
19:55 íþróttir.
20:45 Matreiðsluþáttur - Ari
Garðar Georgsson.
21:10 í návígi - Umsjón Páll
Magnússon.
21:55 My wicked, wicked ways.
1. Þáttur af þremur um líf
Hollywood-stjörnunnar Errol
Flynn.
23:00 Threesome - Kvikmynd.
00:30 Dagskrárlok.
góðum stað
Okkar hús er enginn stökkpallur á milli íbúða, þetta eru
varanlegar íbúðir. Helstu nýjungar eru:
• Með lyftum (lyftur úr bílageymslu og upp á þína haeð).
• Húsvarðaríbúð (hann mun sjá um sameign og lóð).
• Bílageymslur (með fjarstýrðum opnara).
Otisvaeði fullfrágengið (með trjám, runnum og leiktaekj-
um barna ásamt útigrilli).
Dæmi um greiðslukjör 4ra herbergja íbúða:
Við undirritun kaupsamnings kr. 350.000.-
Með tilkomu húsn. láns kr. 2300.000.-
Með 12 jöfnum mán. gr. (12x44.100) kr. 530.000,-
kr3.180.000,-
Dæmi um greiðslukjör 2ja herbergja íbúða:
Við undirritun kaupsamnings kr. 250.000.-
Með tiikomu húsn. láns kr. 1.650.000,-
kr. 1.900.000,-
Komið og kynnið ykkur verð og teikningar á skrifstofu okkar,
Sunnuhlíð 10, alla virka daga milli kl. 13.00 og 1 7.00, sími 26277.
Eða hringið í síma 26172 (vinna), 24719 (Sigurður-heima),
23956 (Heimir-heima).
byggir sf.
byggir sf.