Dagur - 15.12.1986, Blaðsíða 7

Dagur - 15.12.1986, Blaðsíða 7
15. desember 1986 - DAGUR - 7 einfaldasta lausnin, að það sé ekki tekist á við vandamálin. En þetta er alls ekki okkar reynsla. Skilnaður er mikið tilfinningamál og það hefur oft tekið fólk fleiri ár að gera hann endanlega upp við sig. Það er okkar reynsla í gegnum margra ára starf, að skilnaður er alvarleg tilfinninga- kreppa fyrir þá sem í honum standa og fólk tekur ekki þessa lausn af því hún sé svo einföld. Skilnaður hefur alltaf djúp og mikil áhrif, oft þarf fólk að byrja aftur alveg frá grunni, endurmeta sjálft sig.“ „Konur og karlar bregðast mis- jafnlega við skilnaði,“ segja Álf- heiður og Guðfinna. „Konur gera yfirleitt meiri kröfur til þess að málin séu rædd á tilfinninga- grundvelli. Þær eiga erfitt með að sætta sig við það að málin séu ekki rædd. Karlmenn aftur á móti eiga erfiðara með að tjá sig tilfinningalega. Þeir hafa oft minni orðaforða á tilfinninga- sviðinu. Þeir grípa frekar til ákveðinna aðgerða - vilja gera eitthvað. Fara í frí, skipta um húsnæði, eða gera eitthvað áþreifanlegt. Þetta verður oft til þess að fólk talar framhjá hvert öðru. Vandinn safnast upp og verður verri viðureignar. Ef átök koma upp á heimilinu á sama tíma og miklar kröfur eru gerðar til fólks í starfi, fjárhagur- inn er bágborinn og fólk hefur fjarlægst hvort annað, þá er oft ekki önnur leið fær en skilnað- ur.“ í kaflanum um skilnaðinn er fjallað um viðbrögð barná, forsjá og umgengni, þarfir foreldra og barna. „Við bendum á leiðir þar sem börnin eru undirbúin stig af stigi en það gerir þeim skilnaðinn léttbærari. Foreldrar vita í mörgum tilfellum ekki hvað börnunum er fyrir bestu og á hverju þau þurfa helst að halda. Það er til dæmis gífurlega mikil- vægt fyrir börnin að hafa ein- hvern fullorðinn sem þau geta talað við og þá eigum við við aðila sem ekki er eins ástatt fyrir og foreldrarnir. Það er ómetan- legt fyrir börnin að upplifa það að geta talað við einhvern í trún- aði á þessu erfiðleikatímabili.“ Andleg heilsa og hvaða áhættuþættir ógna henni helst fá sína umfjöllun í bók Guðfinnu og Álfheiðar, auk þess sem sálræn- um einkennum ýmiss konar er lýst. Þar má finna kafla um taugaveiklun og orsakir hennar, þráhyggju, þunglyndi, geðveiki og geðklofa. Þá er fjallað um sál- fræðilega meðferð sem til boða stendur. „Það er nauðsynlegt að þekkja þá áhættuþætti seem hafa áhrif á líðan okkar. Hvernig áföll ýmiss konar eða langvarandi álag getur farið með okkur. Hvað tímamót í lífinu varðar tökum við m.a.fyrir þrítugs- og fertugs- aldurinn, en við þennan aldur eru margir á krossgötum í lífinu, þá þurfum við oft að gera eitt og annað upp við okkur. Það hefur til dæmis sýnt sig að við þrítugs- aldurinn tekur fólk oft mikilvæg- ar ákvarðanir um líf sitt, ákveður að fara í nám, eignast barn eða flytja til útlanda. Fólk er fullt af krafti á þessum aldri og vill ekki hjakka í sama farinu. Við fer- tugsaldurinn er enn meira knýj- andi að taka ákvarðanir ef menn eru ekki ánægðir með þá stefnu sém líf þeirra hefur tekið. Þá er líka oft sú hugsun ráðandi að ekki sé eftir neinu að bíða, það er annað hvort núna eða aldrei.“ Síðasti kafli bókarinnar ber heiti hennar, Nútímafólk og þar er fjallað um einkalíf, félagslíf og starf. „í öllum rannsóknum sem gerðar hafa verið hefur það kom- ið fram að það eru sömu hlutirnir sem gera fólk hamingjusamt, en það er annars vegar einkalífið og hins vegar starfið. Það er okkur mjög mikilvægt að standa okkur vel í starfi og líða vel í vinnunni, en það er einnig mikilvægt að njóta, sín vel í einkalífi. Það er þetta tvennt sem brennur á okkur, nútímafólki. En að koma þessu heim og saman getur verið býsna erfitt. í dag er fólk mjög upptekið af sínu starfi, það tekur mikinn tíma og miklar kröfur eru gerðar til þess að fólk standi sig vel í starfi sínu. í starfi eru gerðar kröfur til okkar sem einstaklinga. Þörfin fyrir djúpt og náið einkalíf hefur þó ekkert minnkað þó auknar kröfur hafi verið gerðar til okkar í starfi. Fólk er upptekið við að upp- fylla kröfur sem gerðar eru til þess á öllum sviðum, í einkalífi, starfi og félagslífi. Allir vilja standa sig vel í starfi, það er ætl- ast til þess að við séum virk í félagsstarfi og að við rækjum kunningsskapinn við vini og ætt- ingja og allir vilja lifa í hamingju- sömu hjónabandi þar sem allt er í himnalagi. Á milli þessara þriggja sviða getur oft skapast misvægi. Sumir leggja alla sína krafta í starfið og uppfylla þá ekki þær kröfur sem til þeirra eru gerðar á hinum sviðunum. í kjölfar þessa getur oft skapast togstreita og fólk veit ekki hvern- ig það á að leysa málin. Við bendum á ákveðna línu sem hægt er að vinna eftir þar sem fólk get- ur gert sér grein fyrir stöðu sinni, hvar það stendur og hvað það geti gert til að bæta sig. Við erum ekki endilega með lausnina, en leggjum það upp í hendurnar á hverjum og einum hvort og hvernig hann endurmetur líf sitt.“ -mþþ Lomber á Blönduósi Flestir hafa heyrt minnst á spilakvöld þar sem fólk kemur saman og styttir sér stundir viö að spila framsóknarvist, eða þá bridgeklúbba þar sem keppnir af ýmsum gerðum fara fram. Þeir eru aftur á móti trúlega færri sem vita að til eru lomberklúbbar. Einn slíkur hefur verið starfandi á Blöndu- ósi í tæpt ár og var trúlegast eini klúbburinn þar til að stofnaður var lomberklúbbur á Hvammstanga fyrir skömmu. Tilurð Lomberklúbbsins á Blönduósi er sú að nokkrir áhugamenn um þetta ágæta spil höfðu hist og iðkað spila- mennsku um nokkurra ára skeið, en fengu svo þá hugmynd að stofna klúbb. Þeir auglýstu stofn- un klúbbsins og áhugi fólks virtist vera mikill því að fljótlega voru félagar orðnir 35. Að sögn Jak- obs Jónssonar, eins af upphafs- mönnunum, er lomber nokkuð flókið spil og reglur mjög frá- brugðnar því sem gerist í öðrum spilum. Þar sem lomber er kannski aðallega þekktur sem peningaspil, var Jakob spurður hvort þeir á Blönduósi spiluðu upp á peninga. „Nei við notum spilapeninga, sérstaka lomber-peninga.“ Lomber er spilaður annan hvern fimmtudag á Hótel Blönduósi og klúbburinn er öllum opinn, af báðum kynjum. G.Kr. ARU PINISSAN Vetrarskoðun sem framkvæmd skal á þjónustuverkstæðum Nissan og Subaru í desember. 1. Rafgeymasambönd athuguð. 2. Viflureim athuguö. 3. Rafgeymir og hleðsla mæld. 4. Vél þjöppumæld. 5. Skipt um platínur. 6. Skipt um kerti. 7. Skipt um bensíndælu. 8. Vél stillt (kveikja, blöndungur, ventlar). Verð: Kr. 2.900.- Innifalið í verði: Kerti, platínur, bensínsía, frostvari á rúðuspraut- ur. Bifreiðav. Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 a • S. 22520 9. Frostþol vélar mælt. 10. Kúpling yfirfarin. 11. Ljósabúnaður yfirfarinn. 12. Loftsía athuguð. 13. Bremsuvökvi athugaður. 14. Hemlar reyndir. 15. Rúðuþurrkur athugaðar. 16. Frostvari á rúðusprautur. Dagana 15.-24. des. verður 10% kynningaratsláttur veittur á ORIENT QUARTZ. Alhugið að við sendum í póstkröfu. au eru sterk og falleg, ORIENT QUARTZ úrin, enda japönsk gæðaframleiðsla. Pú þarft ekki að leita lengur að góðri gjöf, það er nánast öruggt að þú finnur það sem þú hefur í huga meðal þeirra 150 tegunda ORIENT QUARTZ úra sem um er að velja. ORIENT QUARTZfœrðu hjá flestum úrsmiðum, enda eru þau einhver mest seldu úr á íslandi um þessar mundir. ÚrsmíðaversJun Halldórs Ólafssonar Hafnarstræti 83, Akureyri, sími 22509

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.