Dagur - 15.12.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 15.12.1986, Blaðsíða 5
15. desember 1986 - DAGUR - 5 Það sem við höfum orðið að þola fellur í skuggann fyrir gleðinni vegna barnsins. Að lokum þoldu þau þetta ekki lengur og fóru til blaðanna með alla söguna. Þar sögðu þau frá njósnum og ofsóknum frá hendi yfirvaldanna. Refsingin lét ekki á sér standa. Svend var boð- aður í yfirheyrslu hjá lögreglunni og þar var hann handtekinn. Honum var sleppt eftir að hann hafði verið formlega kærður fyrir að misnota Winnie og sagt að allt að fjögurra ára fangelsi lægi við því að tæla yngri stúlkur en 18 ára til fylgilags við sig. Það var bara eitt vandamál sem yfirvöldin réðu ekki við: Winnie stóð fast á því að Svend hefði ekki tælt hana eða vélað á nokkurn hátt. Lögreglan var ekki lengi ráðþrota. Nú var Svend kærður fyrir að hafa sængað hjá stúlku undir 15 ára aldri. En það var ekki svo létt að sanna þetta og málið var því lengi í biðstöðu. Svend og Winnie ætluðu sér ekki að bíða eftir þvf að yfirvöldunum hugkvæmdust nýjar ráðagerðir svo þau fluttu í annan bæ í Dan- mörku. Nú búa þau í lítilli ris- íbúð og það eina sem þau óska sér er að fá að lifa lífinu eins og eðlileg fjölskylda í framtíðinni. Þann 11. september ól Winnie sveinbarn á sjúkrahúsinu í Holbæk. Barnið var 3300 grömm og 54 cm langt. Faðirinn var við- staddur fæðinguna og hann segir: „Ekkert sem ég hef upplifað hef- ur fengið eins mikið á mig. Ég hélt í höndina á Winnie meðan hún fæddi. Það leið næstum yfir mig þegar hún æpti.“ Þau eru bæði mjög stolt af barninu. Faðir Winniar vill hvorki heyra né sjá dóttur sína eða tengdason. Hann vill ekki heldur sjá barna- barnið. Móðir hennar kemur aft- ur á móti reglulega í heimsókn til dóttur sinnar og fyrrverandi fjöl- skylduvinar. „Við höfum ákveðið að barnið á að heita Nikki,“ segja þau. Nikki var ekki nein tilviljun. „Þegar við fundum að við áttum saman ákváðum við að eignast barn. Þannig gátum við innsiglað ást okkar. Þannig getum við líka sýnt umheiminum að okkur er alvara,“ sögðu þau að lokum. Stólpi, félag landsbyggðarmanna: Stöpull kominn út Stólpi, félag landsbyggðar- manna í Menntaskólanum á Akureyri hefur gefið út blaðið Stöpul. Þetta er í þriðja sinn sem blaðið kemur út og í ann- að sinn á þessu ári. Stólpi, félag landsbyggðar- manna í MA var stofnað árið 1984. Markmið félagsins er að kynna og bæta stöðu landsbyggð- arinnar sem átt hefur mjög í vök að verjast. Blaðið er 40 síður að stærð og í því er að finna greinar um málcfni landsbyggðarinnar en auk þess viðtöl og annað létt- meti. Meðal greina í blaðinu má nefna Hugrenningar um milli- stjórnstig eftir Þórð Ægi Óskars- son stjórnmálafræðing. Blaðinu er dreift meðal nem- enda í Menntaskólanum, Verk- menntaskólanum og einnig í Fjölbrautaskólanum á Sauðár- króki. Þeir sem hafa hug á að eignast eintak af þessu ágæta blaði geta sett sig í samband við ritstjórana Þórgný Dýrfjörð og Trausta Þórisson í mennta- skólanum. ET Leiðrétting í viðtali við Sævar Einarsson, trillukarl á Sauðárkróki er birt símanúmer á skrifstofu Lands- sambands smábátaeigenda og er það sagt vera 91-12796, en hið rétta er 12797. Jesendahornið__________________ Lítil athugasemd til formanns ferðamálaráðs Ólafsfjarðar Síðla sumars barst mér í hendur Morgunblað, hverju í var ferða- pistill um Héðinsfjörð og Hvannadali. Leiðsögumenn virð- ast hafa verið Sigmundur Jónsson og Gunnlaugur J. Magnússon. Ekki vissi ég um þessa ferð, fyrr en ég sá greinina, sem var vel og skemmtilega skrifuð - svo sem vænta mátti af Haraldi Matthías- syni. Hvað Hvannadölum viðkemur eru að vísu missagnir og villur, en þær skrifast á reikning „leið- sögumanna", einfaldlega vegna fáfræði þeirra um staðinn. í annan stað kemur hvergi fram annað en að þetta sé „einskis- mannsland" eða „almenningur" - ef þeir þá ekki eiga það sjálfir!!! í nýlega útkomnu blaðinu „Ólafsfirðingi" skrifar Gunnlaug- ur, annars hressi- og bjartsýnis- lega grein, þar sem hann hugleið- ir möguleika okkar Ólafsfirðinga í ferðamannaþjónustu - sem samþykkt skal að eru margir —, og skipulagningu ferða, þar á meðal á áminnsta Hvannadali. Ekki er nú frekar en fyrr annað að sjá, en hann telji sér frjálsa umferð og umráð á staðnum. En - telur G.J.M. sig mann til að skipuleggja og bera ábyrgð á ferðum fólks á þennan stað - jafnvel einn dag fram í tímann, - þar sem sjór getur vaxið svo, að lending verði ófær á færri mínút- um en hann hefir nokkra hug- mynd um? (Þess má geta að nú munu um þrír mánuðir, síðan fært hefur verið sjóleiðis á Hvannadali og lágdeyðudagar þar í sumar telj- andi á fingrum.) Já - og mikil ósköp held ég smábátaeigendur verði hrifnir af sínu Karons-hlutverki. Ég vil svo að lokum benda G.J.M. á, áður en hann fer að fjárfesta í ferðamannaaðstöðu á Hvannadölum og skipuleggja ferðir þangað, að þeir eru ekki almenningur og eigendur hafa ekki veitt honum eða nokkrum öðrum heimild til að ráðstafa þeim á einn eða annan hátt. F.h. landeigenda, Jón Arnason. Dynheimar: Þolir forstööumaöurinn ekki álit unglinganna? Þorgerður Þorgilsdóttir, móðir þriggja unglinga á Akureyri hafði samband við Lesendahornið og vildi koma eftirfarandi á fram- færi: „Ég get ekki stillt mig um að Kona á Brekkunni hringdi og vildi koma þeirri spurningu á framfæri við bæjaryfirvöld hvort þeir gætu ekki verið svo vænir að skafa Víðimýri, Kambsmýri og Löngumýri. Þar er allt sundur- grafið og bílar sitja iðulega fastir. „Þrjá daga í röð höfum við syst- urnar ekki komist á réttum tíma til vinnu því bíllinn hefur staðið taka mér penna í hönd, eftir að hafa lesið í Degi þann 11.12. að þremur plötusnúðum í Dynheim- um hafi verið sagt upp störfum. Mér skilst að aðalástæðan hafi verið ummæli er þau létu falla í fastur. Þegar maður borgar sína skatta samviskusamlega þá vill maður fá eitthvað í staðinn. Víði- mýrin er til dæmis aldrei skafin og ástandið er alveg hræðilegt. Ég veit ekki hvað fólk á að gera.“ Fleiri kvartanir hafa borist vegna sundurgrafinna gatna á Brekkunni og óska menn eftir skjótum úrbótum. útvarpinu, þess eðlis að það þyrfti að rífa staðinn upp. Mér er spurn: Þolir forstöðu- maður Dynheima ekki álit sam- starfsmanna sinna, þ.e. ungling- anna? Þetta er jú þeirra staður. Sigurður Þorsteinsson, sem er einn þeirra sem sagt var upp störfum, hefur starfað í Dyn- heimum í um 4 ár og verið sam- kvæmt þeim upplýsingum sem ég hef aflað mér verið mjög ötull og áhugasamur í starfi. Síðast en ekki síst hefur hann verið vel þokkaður af þeim sem hafa sótt Dynheima. Því er það stóra spurningin hvort forstöðumaðurinn metur meira að gera staðinn vinsælan meðal unglinganna, eða láta sín markmið ráða, hvort sem ungl- ingunum líkar það betur eða verr. Hví er ekki rutt? Framsóknarflokkurinn 70 ára 16. desember. ✓ I tilefni afmælisins hafa framsóknarfé- lögin á Akureyri opið hús 16. desember í sal starfsmannafélags KEA, Sunnuhlíð kl. 20.30. Jóladrykkir og létt spjall. Ingimar Eydal leikur jólalög. Allt framsóknarfólk velkomið. Framsóknarfélögin Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.