Dagur - 15.12.1986, Qupperneq 16
Akureyri, mánudagur 15. desember 1986
CHICOGO
Nýtt merki í snyrtivörum
gott og ódýrt
SIMI
(96)21400
Snyrtivörudfeild
Argvítug háls-
bólga í gangi
- Flensufaraldur hugsanlegur
„Ef þessi Singapore stofn
kemur þá má búast við því að
hann dreifist hratt út og leggi
heilu fjölskyldurnar og vinnu-
staðina í rúinið, eins og oftast
þegar um nýjan stofn er að
ræða,“ sagði Hjálmar Frey-
steinsson yfírlæknir. Heilsa
Akureyringa er frekar bágbor-
in um þessar mundir og flensu-
faraldur gæti dunið yfír í
þokkabót.
Jólaflug Flugleiða:
Yfir 50
aukaferðir
innanlands
Flugleiðir ráðgera að fara rúm-
lega 50 aukaferðir í innan-
landsflugi í kringum jól og ára-
mót að þessu sinni til viðbótar
venjulegri áætlun. Þessi jóla-
áætlun hefst þriðjudaginn 16.
desember og lýkur sunnudag-
inn 4. janúar. Flestar auka-
ferðir verða til Akureyrar,
ísafjarðar, Vestmannaeyja og
Egilsstaöa. Að vanda verður
ekkert innanlandsflug á vegum
Flugleiða á jóladag og nýárs-
dag.
Mikill viðbúnaður er hjá
innanlandsdeild Flugleiða vegna
þessarar auknu áætlunar. Vegna
þess hversu margir frídagar
tengjast jólahátíðinni að þessu
sinni er reiknað mcð miklum
ferðalögum fólks, og verður allt
gert til að tryggja að farþegar
félagsins nái til ákvörðunarstaðar
í tæka tíð fyrir hátíðina. Flugleið-
ir beina því til farþega að þeir
bóki far tímanlega. Slíkt auð-
veldar alla framkvæmd flutning-
anna og er til hagsbóta fyrir bæði
farþega og starfsfólk félagsins.
Einnig eru farþegar vinsamlega
beðnir að láta vita tímanlega ef
þeir hyggjast ekki nota far sem
áður hefur verið pantað.
Að sögn Hjálmars er ansi mik-
ið um vírusa núna sem valda
slæmri hálsbólgu og einnig barka-
bólgu hjá börnum. Flensan hefur
ekki stungið sér niður á Akureyri
en einhverjir A-stofnar eru í
gangi og verulegar líkur eru á því
að Singapore stofninn sé væntan-
legur. Bólusetningar voru aug-
lýstar í haust og hefur margt
eldra fólk og sjúklingar fengið
bólusetningu. Hins vegar er
bóluefni gegn Singapore stofnin-
um ekki komið ennþá.
Aðspurður kvaðst Hjálmar
ekki geta, heilsufarslega séð, ráð-
lagt neinum nema öldruðum og
sjúkum að fara í bólusetningu.
Hins vegar gætu forráðamenn
fyrirtækja beðið starfsmenn sína
að láta bólusetja sig með hag-
kvæmnissjónarmið að leiðarljósi.
Ef Singapore stofninn kæmi þá
gæti hann gert mikinn usla.
Bragi Stefánsson, héraðslæknir
á Dalvík, sagði að dæmi væru fyr-
ir því að starfsfólk fyrirtækja væri
bólusett gegn inflúensu. Hann
sagðist ekki hafa orðið var við
flensu á Dalvík núna, en aftur á
móti væri argvítug hálsbólga í
gangi. SS
Bráðum koma blessuö jólin. Þessi snáði var einn af mörgum á jólaballi sem
dagmömmur héldu í síðustu viku. Mynd: ri>h
Ólafsfjörður:
Eitt tilboð
barst
- í smíði flotholta
fyrir smábátahöfn
í síðustu viku rann út tilboðs-
frestur í smíði tveggja flotholta
fyrir smábátahöfn á Ólafsfirði.
Aðeins eitt tilboð barst og var
það frá Tréveri hf. á Ólafsfirði.
Á fundi hafnarstjórnar síðast-
liðinn fimmtudag var ákveðið
að taka tilboðinu.
Tilboð Trévers hf. var upp á
397 þúsund krónur og er það
örlítið hærra en áætlun gerði ráð
fyrir.
Flotholtin tvö verða um 7
metra löng úr gagnvörðum viði.
Fyrst um sinn verða tvö látin
nægja. Smíði flotholtanna er síð-
ari hluti fyrsta áfanga við höfn-
ina. Fyrri hlutinn felst í dýpkun
hafnarinnar og er það verk langt
komið.
„Það kom okkur injög á óvart
að aðeins skuli hafa borist eitt
tilboð. Þetta er tiltölulega einfalt
verk sem margir hefðu getað ráð-
íð við. Eri þetta bendir til þess að
atvinnuástand sé alveg þokka-
legt,“ sagði Óskar Þór Sigur-
björnsson formaður hafnar-
nefndar Ólafsfjarðar í samtali við
blaðið. ET
Iðnaðardeild SlS:
Stórauknu fé varið til
kynningar á framleiðslunni
- „Söluaukning um 20% á þessu ári,“ segir Ármann Sverrisson
Það hefur verið sett stóraukið
55
fé í kynningarstarfsemi á
mörkuðum erlendis og hér
heima,“ sagði Ármann Sverr-
isson markaðsstjóri ullarvöru
hjá Iðnaðardeild Sambandsins
á Akureyri, en nú stendur yfir
mikil herferð til að kynna
framleiðslu deildarinnar.
Eftir því sem forráðamenn
Iðnaðardeildar segja-virðist sem
þessi aukna kynning sé að skila
sér í aukinni eftirspurn eftir
framleiðsluvörum deildarinnar.
Breytingar hafa átt sér stað í þá
átt að aðlaga framleiðsluna betur
eftir þörfun og óskum viðskipta-
vina. Nú er unnið að útgáfu á 4
kynningarbæklingum í stað eins
áður. I þessum nýju bæklingum
er vöruflokkum skipt upp í hefð-
bundna íslenska framleiðslu og
Áhrif breytinganna á Stakfellinu:
„Við segjum ekki upp fólki,“
- segir Gunnar Jónasson verkstjóri hjá Jökli hf. á Raufarhöfn
„Við segjum ekki upp fólki.
Það hefur vissulega áhrif ef afli
Stakfellsins dettur út en ekki
neitt afgerandi. Við erum
alveg sérstaklega bjartsýnir og
höldum okkar striki og flytjum
í nýtt og stærra frystihús á
næstunni,“ sagði Gunnar Jón-
asson verkstjóri í hraðfrysti-
húsi Jökuls hf. á Raufarhöfn
aðspurður um það hvaða áhrif
breyting Stakfellsins í frysti-
skip hefði á reksturinn.
Fyrir helgina var sagt frá því
að gífurlegt atvinnuleysi blasti við
fiskvinnslufólki á Þórshöfn vegna
breytinganna. Þar hefur 70
manns verið sagt upp.
Kaupfélag Langnesinga keypti
fyrir skömmu hlut Jökuls hf. á
Raufarhöfn í Utgerðarfélagi
Norður-Þingeyinga sem gerir út
Stakfellið. Hlutur kaupfélagsins
er nú 52%. Við kaupin var gerð-
ur samningur milli Jökuls og
stjórnar útgerðarfélagsins um að
Jökull fengi næstu 3 árin 25% af
öllum ísfiskafla togarans og 15%
í 2 ár. Þetta var gert til að fyrir-
tækið gæti betur aðlagast þessari
breytingu í hráefnisstreymi.
Að sögn Gunnars er nú verið
að leita að skipi í stað Stakfellsins
enda var að því stefnt með söl-
unni. Annað hvort verður þá
keypt gamalt skip með kvóta
sem verður gert út eða sótt verð-
ur um leyfi til nýsmíði á skipi sem
nota myndi þennan kvóta.
Hlutur Stakfellsins í hráefnis-
öflun Jökuls hf. er um 10%.
Stærstan hluta hráefnisins leggur
Rauðinúpur til, um 80%, en bát-
ar leggja til um 10%. Rauðinúp-
ur er nú í slipp í Reykjavík vegna
viðhalds og endurnýjunar. ET
framleiðslu á fatnaði sem fylgir
frekar tískusveiflum á alþjóða-
markaði.
A þessu ári er varið um 28
milljónum í þessa kynningar-
starfsemi sem felst í söluferðum,
sýningum, auglýsingum og öðru
sem tilheyrir slíku starfi. Iðnað-
ardeildin einbeitir sér að kynn-
ingu á 3 mörkuðum, auk hins
íslenska. Það eru markaðir í
Bandaríkjunum, Englandi og
Noregi. Stærsti hluti fjárins fer í
kynningar á þessum mörkuðum í
stað margra smærri áður. Mikil
áhersla er lögð á Bandaríkja-
markaðinn og er Sambandið með
söluskrifstofu þar og er nokkur
hópur starfsmanna sem sinnir
þessu verkefni. „Bandaríkja-
markaðurinn hefir strax tekið við
sér og hefur sala aukist um 20% á
þessu ári. Hins vegar er ekki að
marka þetta fyrr en á næsta ári og
gerum við okkur góðar vonir
um verulega aukningu þar,“
sagði Ármann.
Auk framleiðslu og sölu á fatn-
aði er hafin framleiðsla á nýrri
gerð ullarteppa sem hafa fengið
mjög góðar viðtökur á mörk-
uðunum erlendis og gera Sam-
bandsmenn sér miklar vonir um
sölu á þeim. „Á undanförnum
vikum höfum við unnið að
kynningum á þessum stóru
mörkuðum og er óhætt að segja
að viðtökurnar hafi verið mjög
góðar,“ sagði Ármann Sverris-
son. gej-
Kelduhverfi:
Dræm
rjúpna-
veiði
„Þeir veiða nánast ekki neitt.
Það er hörmungar rjúpna-
veiði,“ sagði Sigurgeir ísaks-
son, verslunarstjóri hjá KNÞ
í Ásbyrgi. Aðspurður kvaðst
hann ekki vera með rjúpur á
hoöstólum hjá sér, menn
veiddu bara fyrir sig og sína
en gengi illa.
„Fyrir snjóinn, rétt fyrir
rjúpnatímann, þá var töluvert
mikið af rjúpu hérna. Síðan
kom snjór í byrjun rjúpnatím-
ans og hún dreifðist um allt eða
hvarf. Hún er komin niður í
skógana núna, en hún er óvenju
stygg og veiðimenn ná henni
ekki,“ sagði Sigurgeir.
Að sögn Sigurgeirs eru vegir í
Kelduhverfi snjólausir, en svell-
aðir og ansi mikil hálka. SS