Dagur - 30.12.1986, Síða 2
2 - DAGUR - 30. desember 1986
Hvað er þér minnisstæðast á árinu sem eraðlíða?
Elín Kristjánsdóttir
forstöðumaður Bóka-
safns S.-Þingeyinga:
Chernobyl-
slysið efst
í huga
„Hvað heimsmálin varðar kom
fyrst upp í huga minn Chernobyl-
slysið, þetta er neikvæður við-
burður en það sér ekki fyrir end-
ann á því hvaða afleiðingar þetta
á eftir að hafa. Af öðrum heims-
viðburðum mundi ég nefna leið-
togafundinn sem er náttúrlega
bæði innlend og erlend frétt.
Af innlendum vettfangi er af
nægu að taka t.d. voru kosningar
til bæjar- og sveitarstjórna. Einn-
ig má nefna mál Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar sem eflaust mun
draga dilk á eftir sér. Hafskips-
málið er auðvitað stórviðburður
sem lítið er hægt að segja um á
þessu stigi þar sem ekki er komin
nein niðurstaða í málinu.
En það hafa líka gerst ýmsir
jákvæðir hlutir. íþróttir eru oft
ofarlega í mínum huga og mér
dettur í hug ágætur árangur
íslenskra íþróttamnna á árinu,
t.d. árangur skáksveitarinnar á
Ólimpíumótinu, árangur hand-
knattleiksliðsins á heimsmeist-
aramótinu og frammistaða ís-
lenska landsliðsins í knattspyrnu.
Ýmislegt hefur gerst hér á
Húsavík en mér detta í hug tvö
atriði sem eru jákvæð og standa
uppúr. Það er þegar Húsvíkingar
endurheimtu Kolbeinsey og einn-
ig má nefna árangur Völsunga
þegar þeir komust upp í fyrstu
deild í knattspyrnu en það var
mjög mikill viðburður hér í bæ.
IM
Páll Pétursson:
Viðburða-
ríkt ár
Petta hefur verið viðburðaríkt
ár, maður hefur verið að sýsla við
margvísleg viðfangsefni í pólitík-
inni og þar af leiðir að hugurinn
hvarflar til margra atburða af
þeim vettvangi, og samskipta
bæði við samherja og andstæð-
inga. Fjárlagagerð og gerð láns-
fjárlaga buðu upp á mörg minn-
isverð atvik, bæði sigra og ósigra.
Einn af sigrunum var, að það
tókst að varðveita jafnrétti
sveitakrakkanna til náms, með
því að halda óbreyttum hlut
ríkisins í rekstri grunnskóla. Þá
urðu átök út af Borgarspítalan-
um og hörð átök um bankamál
sem ekki er ennþá séð fyrir end-
ann á. Ég hef haft á árinu stór-
felldar áhyggjur af þróun land-
búnaðarmála, en ég vona þó að
augu æ fleiri séu að opnast fyrir
því að við erum þar ekki á réttri
leið. Ég tók þátt í skoðana-
könnun og prófkjöri til undirbún-
ings næstu kosningum, og það er
mér að sjálfsögðu minnisstætt og
ég er þeim mjög þakklátur sem
sýndu mér vinsemd og traust. Ég
minnist margs úr Norðurlanda-
samstarfi á árinu. Á þingi
Norðurlandaráðs í Kaupmanna-
höfn Iét ég af starfi forseta og er
nú einn af varaforsetum ráðsins.
Það örðugasta sem bar að hönd-
um á meðan ég var forseti
ráðsins, var þegar ég þurfti fyrir-
varalítið að stjórna minningar-
athöfn og flytja minningarræðu
um Olof Palme en hann var myrt-
ur kvöldið áður en við komum til
Kaupmannahafnar. Ég var einnig
við útför hans og er það mjög
minnisstætt. Þá tók ég þátt í að
undirbúa ráðstefnu um mengun-
armál, sem ég síðan sat,
mannkynið er á góðri leið með að
gera jörðina óbyggilega. Svona
mætti lengi telja, en efst eru mér
þó í huga samskipti við mikinn
fjölda manna bæði hérlendis og
erlendis. G.Kr.
Jóhannes Kristjánsson
bifvélavirkjameistari:
Fundur
Reagans
og Gorba-
chevs
„Mér finnst fundur Gorbachevs
og Reagans eftirminnilegastur þó
svo að ég hafi aldrei verið mjög
trúaður á að samkomulag myndi
nást. En þessi atburður stendur
upp úr. Hér á heimaslóðum tel ég
opnun á veginum yfir Leirurnar
eitt stærsta atriðið. Við erum
búnir að bíða eftir þessu í 10 ár
vegna átaka við friðunarmenn og
fleiri. Þessi vegur er mjög mikil-
vægur því við gömlu brýrnar hafa
orðið mörg slys á síðustu árum og
einnig munu sparast ófáir kíló-
metrarnir með tilkomu þessa
vegar. Svo er líka skemmtilegt
hvað þeir eru duglegir að auka
útgerð frá Akureyri. Það er
geysilega áhugavert."
Kristján frá Djúpalæk:
Afmæli
mitt
„Úr persónulegu lífi er mér
minnisstæðast afmæli mitt og
vikuboð Jóns Sigurgeirssonar á
Varmalandi í sambandi við það.
Einnig útkoma bókarinnar Dreif-
ar af dagsláttu og einstakar mót-
tökur á samnefndri dagskrá sem
hópur frá leikfélaginu hefur verið
að flytja. Af öðrum tíðindum
snertir mig dýpst þetta síðasta
sjóslys fyrir vestan og óvenju
mörg önnur sjóslys, bátur frá
Grindavík og mörg einstök slys á
skipum og bátum. Þá gleymir
maður ekki morðinu á Olof
Palme, hinum sænska friðarvini.“
Snorri Björn Sigurðs-
son Sauðárkróki
„Stórkostleg
lok handrita-
málsins“
„Ég tel að Tchernobylslysið sé
efst í huga af erlendum atburðum
ársins sem er að líða. Af atburð-
um almennt er það eflaust leið-
togafundurinn í Reykjavík. Af
atburðum ársins 1986 sem ég tel
að verði eftirminnilegastir héðan
af íslandi er hversu vel hefur tek-
ist að ná verðbólgunni niður.
Einnig verður þess minnst hversu
almennt góðæri hefur verið fyrir
okkur efnahagslega. Ég hugsa að
það séu fá ár sem hafa verið okk-
ur íslendingum jafn góð, þegar á
heildina er litið. Á það bæði við
verðlag á innflutningi og útflutn-
ingi og hversu vel hefur gengið í
þessu tilliti.
Annar atburður er sá sem ég
tel að verði lengi minnst frá þessu
ári eru lyktir handritamálsins.
Mér finnst handritamálið allt
vera stórkostlegt mál. Auðvitað
teljum við okkur eiga þessi
handrit. En það hefur ekki verið
vaninn að aflienda slíka dýrgripi
til þjóða sem á einhvern hátt hafa
misst þá frá sér. Þess vegna tel ég
það mjög merkilegt og reyndar
stórkostlegt að Danir skyldu
bregðast svo við sem þeir hafa
gert.
Af atburðum sem snerta mig
persónulega er margs að
minnast. Ég hef verið að störfum
bæði á Blönduósi og hér á Sauð-
árkróki. Frá Blönduósi er mér
það minnistæðast að við síðustu
sveitastjórnakosningar munaði
örfðáum atkvæðum að Fram-
sóknarflokkurinn fengi hreinan
meirihluta í sveitastjórninni.
Einnig er það athyglisvert hversu
Sjálfstæðisflokkurinn fór illa út
úr kosningunum. Þessi úrslit
þóttu mér merkileg. Samningarn-
ir um raðsmíðaskipið standa upp
úr hvað atburði varðar er snerta
Blönduós og líka það að nýja
kirkjan varð fokheld. Rækju-
togarinn á eftir að verða Blöndu-
ósingum geysileg lyftistöng ef vel
tekst til. Ég held að kirkjan eigi
eftir að verða það líka, að vísu í
öðru tilliti. Þetta er gullfalleg
bygging og ég gæti trúað að hún
eigi eftir að verða merki, eða
tákn fyrir Blönduós.
Héðan frá Sauðárkróki eru
tveri atburðir ársins merkilegastir
að mínu viti. Það er vígslan á
nýja íþróttahúsinu og vígslan á
nýja öldrunarheimilinu.“
Jóhannes Sigurjónsson
ritstjóri Víkurblaðsins
Húsavík:
Blaðið
skrifaði
sig sjálft
„Það sem er eftirminnilegt og
snertir starfið eru bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor, það var mikið
um að vera. Þær eru kannski ekki
síst eftirminnilegar vegna þess að
blaðið skrifaði sig eiginlega sjálft,
eða réttara sagt að frambjóðend-
ur skrifuðu það og ég þurfti lítið
að skrifa á meðan.
Sem gömlum fótboltamanni er
mér minnisstætt fyrstu deildar
sæti Völsungs sem við Húsvíking-
ar erum búnir að bíða eftir í ára-
tugi.
Hvað varðar fjölmiðla og
stjórnmál er það umræðan sem
kom upp um ábyrgð og ábyrgðar-
leysi fjölmiðla og ritskoðunartil-
hneyging hjá ráðamönnum. Ég
held einmitt að uppsögn Ingólfs
Margeirssonar á Helgarpóstinum
hafi svarað því hverjir eru ábyrg-
ir gerða sinna. Það hefur enginn
stjórnmálamaður sagt upp stöðu
sinni á árinu en aftur á móti hefur
fulltrúi blaðamanna gert það.
Sem landsbyggðamanni er mér
mjög minnisstætt 200 ára afmæli
Grundarfjarðar og maður fagn-
aði með Grundfirðingum í hjarta
sínu á þessum tímamótum.
Fleira mætti nefna en ég ætla
ekki að vera að því.“ IM
Pétur Þórarinsson
Möðruvöllum:
„Morðið á
Olof Palme“
„Af erlendum vetvangi ársins
1986 er efsti í huga mér sá sorg-
legi atburður í Stokkhólmi í lok
febrúar, er forsætisráðherra Svía
Olof Palme var skotinn til bana.
Sá atburður sýnir okkur það, -
samanber Kennedy og Gandi, -
að heimurinn á erfitt með að þola
þá menn sem vilja berjast fyrir
auknu frelsi og réttlæti. Hið
mikla mengunarslys í kjarnorku-
verinu í Tchernobyl og afleiðing-
ar þess verður vafalaust lengi í
minnum haft og ætti að ýta við
! vitund okkar íslendinga um
mikilvægi þess að verja landið
okkar hvers konar mengun. Eftir
nokkur ár verður hreint loft og
tært vatn ómetanlegar auðlindir.
Af innlendum vetvangi kemur
mér fyrst í huga sú stórkostlega
í stund er Hallgrímskirkja á Skóla-
j vörðuhæð var vígð nú í haust. Sú
! athöfn var í alla staði áhrifamikil
og hrífandi. Á móti þessum
gleðilega atburði í kirkjunni,
kemur svo í hugann umfjöllun
Helgarpóstsins, - og niðurrif, - á
hjálparstofnun kirkjunnar, þar
sem að mínu mati var ómaklega á
ýmsu tekið og meira ógagn gert
em menn grunar.
Af íþróttasviðinu minnist ég
helst hvað knattspyrnuliðin hér
norðanlands stóðu sig vel síðast-
liðið sumar, þar sem KA og Völs-
ungur komust upp í 1. deild og
Ólafsfirðingar í þá 2. Hins vegar
hefði ég kosið að Þórsarar hefðu
staðið sig betur 1. deildinni, en
það kemur vonandi síðar.
Hvað varðar persónulega
atburði ársins var ferming eldri
sonar míns síðastliði vor hátíðleg
og minnisstæð. Svo sú ákvörðun
mín að gefa kost á mér í hina
pólitísku baráttu sem er fram-
undan.“
Sigurgeir Aðalgeirs-
son Húsavík:
„Skemmdar-
verkin hjá
Hval h.f.“
„Mér er minnisstæðast starf mitt
sem svæðisstjóri Kiwanis á
Óðinssvæði síðastliðið starfsár og
söfnun sú sem Kiwanismenn á
Norðurlandi stóðu að til kaupa á
tækjum til styrktar bæklunardeild
FSÁ og afhending þeirra. Úrslit
sveitastjórnakosninganna í vor
komu mér mjög á óvart og sár
vonbrigði urðu vegna fylgistaps
Framsóknarflokksins. Einnig
aukakjördæmisþing Framsókn-
armanna í Norðurlandi eystra og
átökin sem þar urðu. Ofarlega í
huga mínum eru skemmdarverk-