Dagur - 30.12.1986, Síða 9
30. desember 1986 - DAGUR - 9
Ólafur Laufdal keypti Sjallann á Akureyri síðla árs og er myndin tekin er
hann var að ráðgast við samstarfsmenn sína þegar farið var að huga að
endurnýjun á húsakynnum.
unar á rotvarnarefninu Hexa.
Málið þróaðist á þann veg að
Kristjáni Jónssyni var hafnað
sem framleiðslustjóra af Ríkis-
mati sjávarafurða sem kærði mál-
ið til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
13. Verkalýðsfélagið Eining
telur að það eigi að setjast að
kjarasamningaborðinu nú þegar
og leggja höfuðáherslu á hækkun
lægstu launa. Ekki er talið rétt að
bíða fram yfir kosningar.
17. Baldur Hjörleifsson, sjó-
maður úr Hrísey var hætt kominn
er trilla hans fékk á sig brot og
fylltist af sjó. Hann hafðist við á
stefninu í 6 tíma uns honum var
bjargað um borð í Hríseyjarferj-
una.
Siglufjarðarbær óskar eftir 18
milljónum til hafnarfram-
kvæmda. Hafnarmál á Norður-
landi eru víða í ólestri. Dýpkun
hafnarinnar á Ólafsfirði var boð-
in út, en þar var að skapast neyð-
arástand.
19. Iðnaðardeild Sambandsins1
gekk frá samningum um sölu á
mokkaskinnum til Evrópulanda.
Heildarverðmaftið hljóðaði upp á
liðlega 600 milljónir. Aukningin
á milli ára er rúm 30%
20. Slær Lottó í gegn á íslandi?
Þessari spurningu er varpað fram
um það leyti sem miðasalan var
að hefjast. Framhaldið þekkja
flestir.
21. Gífurleg þörf er fyrir leigu-
íbúðir ef marka má könnun
Húsnæðisstofnunar ríkisins. Á
Norðurlandi eystra er talið að
vanti 220-230 íbúðir og 95-110 á
Norðurlandi vestra.
24. Ólafur Laufdal kaupir
Sjallann fyrir 75 milljónir. For-
saga málsins var sú að Iðnaðar-
bankinn keypti hlut Akurs h.f. á
uppboði, en síðan var beðið eftir
kaupendum. Ólafur hyggst reka
Sjallann á hliðstæðan hátt og
Broadway og fá sömu skemmti-
krafta í húsin.
Geysileg þátttaka var í próf-
kjöri framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi vestra.
Páll Pétursson hlaut fyrsta sætið
en Stefán Guðmundsson annað.
Á málþingi um menningarmál
sem haldið var á Akureyri kom í
ljós að flestir forsvarsmenn lista-
og menningarmála töldu hús-
næðisskort standa menningar-
starfsemi fyrir þrifum. Skorað
var á menningarmálanefnd að
taka forystu í þessum málum og
leita úrlausnar.
26. Lokun blasir við Hafra-
lækjarskóla vegna vangoldinna
reikninga. Bílstjórar hafa ekki
fengið greitt fyrir skólaakstur.
Sama vandamál er hjá Þelamerk-
urskóla, en þar var sleginn víxill
fyrir greiðslunum. Hjá mennta-
málaráðuneytinu kemur fram að.
kjördæmið hafið farið 7 milljónir
fram úr áætlun og fái því ekki
meira fé.
Beingreinir var tekinn í notkun
hjá Ú.A. Þetta er eini búnaður-
inn hér á landi sem greinir bein í
fiskflökum og ýtir viðkomandi
flökum til hliðar.
28. Sigurður Arnfinnsson
framkvæmdastjóri Borgarbíós
vonast til að taka nýjan sal í
notkun fyrir jól. Endurbætur og
stækkun á bíóinu munu kosta um
15 milljónir.
Desember
1. Samkvæmt tölum frá Orku-
stofnun er kostnaður við upphit-
un híbýla með heitu vatni mestur
á Blönduósi en minnstur á Húsa-
vík, ef miðað er við Norðurland.
Munurinn er 263% á ársgrund-
velli. Bæjartæknifræðingur á
Blönduósi sagði forsendur Orku-
stofnunar rangar og væri upphit-
unarkostnaður á ári 33.888 kr. á
Blönduósi en ekki 40.932. Á
Akureyri er kostnaðurinn 37.608
kr.
Franz Árnason hjá Norður-
verki var ráðinn hitaveitustjóri á
Akureyri.
Kavíarframleiðsla er að hefjast
hjá Sæveri í Ólafsfirði og er áætl-
að að framleiða 2000 tunnur á
ári.
4. Allir sjómenn Ú.A. skora á
fyrirtækið að taka þátt í þeirri
þróun að flytja hluta af afla
togaranna út í gámum, en það
getur aukið tekjur sjómanna og
útgerðar stórlega. Úndirskrifta-
listar voru látnir ganga meðal
sjómanna og skrifuðu allir á
hann.
í fréttaskýringu er fjallað um
fiskmarkað við Eyjafjörð og er
talið að mikill þrýstingu muni
koma frá sjómönnum um víðtæk-
ari breytingar í sölu á íslenskum
fiski.
Harðbakur er aflahæstur yfir
landið, en Akureyrin er með
mesta aflaverðmætið, 178 millj-
ónir.
8. Samningar VSÍ, ASÍ og
VMSS falla í góðan jarðveg.
Sævar Frímannsson hjá Einingu
og Þóra Hjaltadóttir hjá Alþýðu-
sambandi Norðurlands lýsa bæði
yfir ánægju sinni.
Ólöf Ananíasdóttir fékk 3,2
milljónir í Lottó og voru lands-
menn sammála um að vinningur-
inn hefði komið á réttan stað í
það skiptið.
10. Dalvíkurbær vill hætta
afskiptum af útgerð og fisk-
vinnslu. Hefur þetta valdið mikl-
um deilum sem standa enn.
Fimm ára deilu Hitaveitu
Akureyrar, Hjalta Jósefssonar og
Hrafnagilshrepps um heitavatns-
réttindi á Hrafnagili er lokið.
11. Lausn hefur nú fengist á
greiðslum afurðarlána vegna
sauðfjárafurða og munu bændur
fá sláturinnleggið uppgert þann
15. desember eins og lög kveða á
um.
Sjónvarp Akureyri hóf útsend-
ingar. Sýnt verður efni frá Stöð 2
og verður dagskráin ótrufluð
fyrst um sinn enda skortur á
myndlyklum.
12. Þriðjungur vinnandi fólks á
Þórshöfn fékk uppsagnarbréf í
kjölfar þess að stjórn Útgerðar-
félags Norður-Þingeyinga ákvað
að Stakfellinu yrði brevtt og afl-
inn yrði fullunninn um borð.
Fyrir skömmu höfðu tvö ný
skip bæst í flota Ú.A. Oddeyrin
og Margrét. Margrét bilaði í sinni
fyrstu veiðiferð.
15. Fella þurfti niður flug til
Siglufjarðar í þrígang vegna þess
að mikil hálka var á brautinni og
umdæmisstjóri gerði athugasemd
við sanddreifingu með skóflum.
Lagt var til að nota vörubíl og
hefil við dreifinguna.
18. Refir að verðmæti um 3
milljónir króna lentu með Flug-
leiðaþotu á Akureyrarflugvelli.
Viðtakandinn, Ragnar Sverris-
son að Hyrnu í Skagafirði, sagði
þetta verðmætasta refafarm sem
fluttur hefði verið inn. Dýrasti
refurinn kostaði 70 þúsund.
19. Endanlegar rannsóknir á
rækjustofninum í Húnaflóa stað-
festu að verulegrar skerðingar
væri þörf. Mikið atvinnuleysi og
jafnvel stöðvun reksturs fyrir-
tækja blasir því við á Hvamms-
tanga, Skagaströnd og Blönduósi
ef farið verður að tillögum Haf-
rannsóknastofnunar.
RlKISSKIP
NIJTÍMA FLUTNINGAR
P
mB
LRAMÓTAKVEÐJA
Óskum landsmönnum öllum árs og friðar.
Þökkum samstaríið á liðnum árum og vonum
að árið 1987 verði íarsœlt ílutningaár.
DALVÍK
SIGLUFJÖRÐUR
ÍSAFJÖRÐUR ÓLAFSFJÖRÐUR
SUÐUREYRI SAUÐÁRKRÓKUR
FLATEYRI BOLUNGARVÍK NORÐURFJÖRÐUR
ÞINGEYRI BÍLDUDALUR
TÁLKNAFJÖRÐUR
PATREKSFJÖRÐUR
HRÍSEY
AKUREYRI
GRIMSEY
HÚSAVÍK
ÞÓRSHÖFN VOPNAFJÖRÐUR
RAUFARHÖFN BAKKAFJÖRÐUR BORGARFJÖRÐUR EYSTRI
SEYÐISFJÖRÐUR
MJÓIFJÖRÐUR
NESKAUPSTAÐUR
ÓLAFSVIK
AKRANES
ESKIFJÖRÐUR
REYÐARFJÖRÐUR
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR
TÖÐVARFJÖRÐUR
REYKJAVÍK
HÖFN HORNAFIRÐI