Dagur - 30.12.1986, Side 15
30. desember 1986 - DAGUR - 15
n Minning:
TJón M. Jónsson
Fæddur 30. jum 1926 - Dáinn 23. desember 1986
Hann fæddist inn í sumarið þann
30 dag júnímánaðar árið 1926,
annað barn foreldra sinna, Petru
Jónsdóttur frá Stærra Árskógi og
Jóns Kr. Níelssonar frá Birnunesi
á Árskógströnd. Áður höfðu
Petra og Jón eignast dóttur sem
lést á öðru aldursári, því var
drengurinn sannur sólargeisli og
dauði harminn eftir litlu stúlk-
una.
Systkini Jóns er eftir lifa eru
Elsa Kristín, María, Níels Brim-
ar og Jóhanna Helga. Jón Kr.
Níelsson lést 20 mars 1980 en
Petra lifir mann sinn í hárri elli.
Jón M. Jónsson fór snemma að
vinna fyrir sér. Fyrr á árum var
hann vélstjóri á ýmsum fiskibát-
um, en þegar ég kynntist honum
var hann verkstjóri á síldarplani
Valtýs Þorsteinssonar og þá aðai-
lega á Raufarhöfn. Hann var þá
þegar kvæntur Kristínu Jóhanns-
dóttur frá Sandvík á Hauganesi
og þau höfðu eignast fimm börn.
Elst er Heiða Björk, hennar
maður er Hafþór Jónasson eiga
þau þrjú börn, næst er Óttar
Strand kvæntur Þorbjörgu
Björnsdóttur og eiga þau einn
son, þá er Oðinn Víkingur,
kvæntur Gerði Róbertsdóttur og
eiga þau eina dóttur, þriðji
sonurinn er Pétur Örn kvæntur
Guðrúnu Ragnarsdóttur og eiga
þau eina dóttur, yngstur er Jón
Mar, ókvæntur. Auk þeirra átti
Jón dótturina Vilborgu Hrönn.
Öll eru börn Jóns mannvænleg og
nýtir þjóðfélagsþegnar.
Jón M. var góður heimilisfaðir
og ljúfmenni, en stundum gustaði
af honum á vinnustað. Framan af
árum var hann heilsuhraustur en
átti við vanheilsu að stríða síð-
ustu árin. Samt voru allir hans
nánustu ekki viðbúnir kallinu
sem kom þann 23. desember síð-
astliðinn, þegar dauðinn sótti
hann svo óvænt heim. Hann var
þá önnum kafinn við að undirbúa
jólin, því eins og faðir hans hafði
hann yndi af því að gefa og gleðja
aðra á jólunum og hafa börn og
ættingja í kringum sig.
„Pví hvað er það að deyja ann-
að en að standa nakinn í blænum
og hverfa inn í sólskinið.“
(Spámaðurinn bls. 90)
Vegna fjarlægðar og ótryggrar
veðráttu get ég ekki fylgt mági
mínum til hinstu hvílu, en ég
sendi innilegar samúðarkveðjur
til Kristínar og allra ástvina hans.
Guð geymi Jón M. Jónsson.
Hildur
Skíðaráð Akureyrar efnir til
trimms um áramótin í sam-
vinnu við starfsmenn Kjarna-
skógar og Hlíðarfjalls.
1 Kjarnaskógi
1. janúar. Göngubrautin verð-
ur opnuð kl. 11.00 og er opin allt
til kvölds. Þar mun liggja frammi
gestabók og eru þátttakendur
beðnir að skrifa nafn sitt í bók-
ina. Öllum er frjálst að ganga
eins marga hringi og þeir vilja.
Einnig er boðið upp á heitan djús
við göngubrautina. Milli kl. 14.00
og 16.00 býðst fólki upp á leið-
sögn í að bera undir gönguskíði.
Komið og verið með, þetta er við
allra hæfi.
í Hlíðarfjalli
3. janúar. Við Strýtu verður
boðið upp á ýmislegt skemmti-
legt á svigskíðum á milli kl. 13.00
og 15.00. T.d. hindrunarbraut
viö hæfi allra. Ýmsir leikir á skíð-
um skemmtiferð um fjallið á svig-
skíðum. í Strýtu verður boðið
uðð á heitan drykk. Kl. 15.30
verður skíðað um Hlíðarfjall, þar
sem 10 skíðamenn fara í broddi
fylkingar með logandi blys.
Komið og skemmtið ykkur á
skíðum.
mmmá
X'v-%5
mm 6«iJicuí**áÁiH*.Í-.ÍY'
Við sendum starfsfólki okkar, viðskiptavinum
og landsmönnum ölium óskirum farsælt komandi
ármeð þökk fyrir samstarfið á liðnum árum.
EIMSKIP
Þú Húsvfldngur
Hafirðu skoðun, hertu þig upp í að mæta
á kjörstað 3. janúar 1987.
Sértu í vafa, kynntu þér málin.
Pú skalt vega og meta, líta í eigin barm, líta til
náunga þíns og síðan þora að horfast í augu
við staðreyndir.
Nú skipta öll atkvæði máli,
sérlega þitt atkvæði.
Kjóstu - þín er ábyrgðin
Áfengisvarnarnefnd Húsavíkur
Trimm á
skíðum