Dagur - 04.09.1987, Side 1
70. árgangur
Akureyri, föstudagur 4. september 1987
167. tölublað
Nýgerðir sláturhúsasamningar:
32-40% launahækkanir
frá síðustu sláturtíð
-segir Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna
Snemma í gærmorgun voru
undirritaðir samningar miili
Vinnumáiasambands sam-
vinnufclaganna og verkalýðs-
félaganna á Norður- og Vest-
urlandi um laun starfsfólks
sláturhúsa fyrir komandi slát-
urtíð. Að sögn Hjartar Eiríks-
sonar, framkvæmdastjórá
vinnumálasambandsins, fela
samningarnir í sér 32-40%
launahækkanir frá síðustu slát-
urtíð, en hækkanir voru nokk-
uð misjafnar þar sem grunnur-
inn frá síðustu sláturtíð var
ekki sá sami á öllum stöðum.
Laun starfsfólks í sláturhúsum
á áðurnefndum svæðum verða á
bilinu 27.868 kr. og upp í 38.000
kr. fyrir þá sem búnir eru að
vinna 9 sláturtímabil.
„Þetta er náttúrlega nokkuð
mikil hækkun en menn verða að
taka tillit til þess að þarna er ver-
ið að semja um árshækkanir. í
öðru lagi náði starfsfólk á slátur-
húsum ekki þeim launahækkun-
um sem almennt var samið um í
landinu 1986 og það var tekið til-
lit til þess nú,“ sagði Hjörtur.
Þetta er í fyrsta sinn sem samið
er sameiginjega fyrir öll þessi
sláturhús en hingað til hefur ver-
ið samið sérstaklega fyrir hvert.
Af þeim sökum voru hækkanir
mismunandi eftir húsum nú þar
sem grunnur frá síðustu sláturtfð
var ekki sá sami og samræma
þurfti taxtana. En eru þetta góðir
samningar?
„Við höfum geysilegar áhyggj-
ur af því hve hækkanir hafa orðið
miklar á þessu tímabili.
Afleiðingar af þeim hljóta náttúr-
lega að verða verðbólga,“ sagði
Hjörtur Eiríksson.
Ekki náðist í neinn úr saminga-
nefnd verkalýðsfélaganna í gær.
JHB
... en andinn
er hraustur
þó limimir
funi
- raett við
Óla á SKarði
10-11
„Við emm
háðir hvor
öðmm upp á
lífogdauðaí
orðsins
fyllstu
merhingu"
- frásögn tveggja
þýskra ferðalanga
6-7-8
Virkjunarsvæði
Hitaveitu Akureyrar:
Orkustofnun
vill rann-
sóknir
Fyrr í þessari viku lagði Orku-
stofnun fram hugmyndir um
rannsóknir og tilraunaboranir
á virkjunarsvæðum Hitaveitu
Akureyrar. Samkvæmt hug-
myndunum er hér um fjögurra
til fimm ára rannsóknarverk-
efni að ræða.
Franz Árnason, hitaveitu-
stjóri, sagði að rannsóknir þessar
væru ekki sérlega víðtækar en
sagði þær aftur á móti mjóg
kostnaðarsamar. „Við höfum
ekki tekið neina afstöðu til hug-
myndanna enda hafa þær enn
ekki verið lagðar fyrir stjórn hita-
veitunnar. Það er mikilvægt að
skoða þetta vel svo sjá megi
hvort hægt sé að stýra rannsókn-
unum á þann hátt að þær verði
hitaveitunni til gagns ef í þær
verður ráðist," sagði Franz. Hug-
myndir Orkustofnunar verða
kynntar stjórn hitaveitunnar í
næstu viku.
Pá hefur Orkustofnun nýlega
sent frá sér niðurstöður á rann-
sóknum á efnainnihaldi í vatni
Hitaveitu Akureyrar sem gerðar
voru í október í fyrra. Niður-
stöðurnar benda til þess að mið-
að við núverandi dælingu séu
virkjunarsvæðin í ágætu jafn-
vægi. Ekkert bendir til innrennsl-
is á köldu vatni og efnainnihald
hefur ekkert breyst. JHB
Norðanátt
og skúrir
Helgarveorið verður ekkert sér-
lega spennandi, en vonandi
kemst fólk þó í berjamó og kart-
öfluupptöku. Hjá Veðurstofunni
fengust þær upplýsingar að
norðanáttin og rigningin yrðu
áfram, a.m.k. fram á laugardag.
Þá er möguleiki að stytti upp,
trúlega verða þó einhverjar
skúrir. Hitinn verður á bilinu 5-9
stig og ekki hélt veðurfræðingur
að mikil hætta væri á næturfrosti.
HJS