Dagur - 04.09.1987, Síða 3
YfiR f iflHrnst.nef'
4. september 1
987-ÖÁ&UR-
Iðnsýningin:
„Okkur finnst eðli-
legt að vera með“
- segir Viiborg Harðardóttir
hjá Iðntæknistofnun
Það hefur vakið nokkra athygli
að Iðntæknistofnun skuli vera
með kynningarbás á iðnsýn-
ingunni því ekki er þar um
framleiðslufyrirtæki að ræða.
Hins vegar kom fram í ræðu
Páls Kr. Pálssonar forstjóra
stofnunarinnar á ráðstefnu um
iðnað að stofnunin Ieitast við
að kynna iðnfyrirtækjum á
landsbyggðinni þjónustu sína,
ekki síður en fyrirtækjum á
höfuðborgarsvæðinu.
Vilborg Harðardóttir var beðin
að skýra nánar hlutverk Iðn-
tæknistofnunar á sýningunni og
sagði hún meðal annars: „Við
erum þjónustustofnun fyrir iðn-
aðinn og okkur finnst eðlilegt að
vera með í svona sýningu.
Við erum að kynna starfsemi
stofnunarinnar og áherslusvið,
þau eru vöruþróun, sjálfvirkni og
endurmenntun. Þetta á við allar
framleiðslugreinar í iðnaði.
Stofnunin er deildaskipt, t.d.
efna- og matvælatæknideild,
málmtæknideild o.s.frv. og fólk
frá þessum deildum kynnir síðan
starfsemi þeirra á iðnsýning-
unni.“
Vilborg sagði að fólk úr hinum
mismunandi deildum skiptist á
með kynningarbásinn. Menn frá
fræðsludeildunum hafa verið á
sýningunni svo og vinnuvélaskól-
inn, verkstjórnarfræðslan og
rekstrartæknideild sem kynnti
„Just in time“ kerfið.
„Nú eru menn frá efna- og
matvælatæknideild á sýningunni,
en margir hafa spurst fyrir um
þessa deild, bæði þeir sem hafa
áhuga á matvælatækni og þeir
sem vinna við málningu og
plast,“ sagði Vilborg og bætti því
við að síðustu dagana kæmu
menn frá málmiðnaðardeild,
nýiðnaðardeild og sjálfvirkni-
deild. SS
Siglufjörður:
Kennsla hefst væntan-
lega um miðjan mánuð
- nokkrar umsóknir hafa borist
um stöður leiðbeinenda
„Þetta er bölvaður barningur,
og alls ekki nógu gott,“ sagði
Pétur Garðarsson skólastjóri
Grunnskólans á Siglufirði í
samtali við Dag þegar hann var
spurður hvernig gengi að ráða
þangað kennara. „Mér sýnist
nú sem þetta muni smella sam-
an og að við getum hafið
kennslu um miðjan mánuð, en
það er ekki Ijóst ennþá hvort
við þurfum að fresta kennslu í
einhverjum fögum.“
Pétur sagði að af 13 réttinda-
kennurum við skólann, væru að-
eins þrír í fullu starfi. Hjá honum
liggja nú nokkrar umsóknir frá
leiðbeinendum með litla eða
enga reynslu og eingöngu stúd-
entspróf eða minna. Hjá undan-
þágunefnd liggja nú þrjár
umsóknir frá Grunnskólanum á
Siglufirði. Enn vantar kennara í 5
stöður og er um að ræða öll fög.
Þeir sem sótt hafa um eru bæði
heimamenn og utanbæjarfólk, og
sagði Pétur að hann hefði frekar
hug á að ráða heimamenn, því þá
vissi hann í það minnsta hvað
hann fengi.
„Þetta er að því leyti verra en
það hefur verið undanfarin ár, að
við höfum auglýst eftir kennurum
síðan í maí, en fyrstu fyrirspurnir
bárust ekki fyrr en í ágúst, svo
það er ekki úr mörgum að velja.“
í skólanum verða í vetur 290-
300 nemendur í 0-9. bekk. Eftir
áramót er síðan stefnt að fram-
haldsnámi í trésmíðum. VG
Púlvika!!
5 daga púlvika hefst 7. sept.-ll. sept.
í jazzleikfimi og Aerobic.
5 daga púl!! púl!! púl!!
Kennarar:
Alice Jóhanns. og Asta Sigurðard.
Innritun frá kl. 17-19 í sínia 24979.
Vetrarnámskeið hefjast 21. sept.
Innritun föstudag og laugardag
frá kl. 17-19.
Tryggvabraut 22
Akureyri
J «
pjansstudio.
Sfltli 24979
tt
Kynnum og seljum
saltkjöt
í dag og laugardag
«4r Mikill afsláttur *
^ ■ Kjötiðnaðarstöð
K.IÖTI0NA0ARSTÖ0
A K U R E Y R I
IÐNSÝN/NG1987
í ÍPRÓTTAHÖLUNNIÁ AKUREYRI
28 ÁGÚST - 6. SEPTEMBER
FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER
18.00 HEIMSÓKN í SÚKKULAÐIVERKSMIÐJUNA LINDU.
20.00 STRENGJASVEIT MICHAEL CLARK LEIKUR FYRIR
GESTI.
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER
15.00 SÝNING Á NÝJUSTU SKÓLÍNU FRÁ ACT OG
CLASSICO.
16.00 STÓRSVEIT SÝNINGARINNAR LEIKUR FYRIR GESTI.
17.00 SÝNING Á NÝJUSTU SKÓLÍNU FRÁ ACT OG
CLASSICO.
18.00 HEIMSÓKN í SKÓGERÐ SAMBANDSINS.
20.00 STRENGJASVEIT MICHAEL CLARK LEIKUR FYRIR
GESTI.
SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER
15.00 SÝNING Á NÝJUSTU SKÓLÍNU FRÁ ACT OG
CLASSICO.
16.00 STÓRSVEIT SÝNINGARINNAR LEIKUR FYRIR GESTI.
17.00 SÝNING Á NÝJUSTU SKÓLÍNU FRÁ ACT OG
CLASSICO.
18.00 HEIMSÓKN Á DAG.
20.00 STRENGJASVEIT MICHAEL CLARK LEIKUR FYRIR
a
GESTI.
SYNINGIN ER OPIN:
SUNNUDAG 14-22.