Dagur - 04.09.1987, Page 4
4 - DAGUR - 4. september 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31. PÓSTHÓLF 58,
AKUREYRI, SlMI 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGILL BRAGASON,
EGGERT TRYGGVASON, HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529),
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Framsóknarkonur þinga
gert það að verkum að æ
fleiri konur vilja hasla sér völl
í Framsóknarflokknum og er
það ánægjuleg staðreynd. Sú
tíð er liðin er konur önnuðust
aðeins um kaffiuppáhellingar
og kökubakstur fyrir flokks-
fundi. Hitt er svo aftur annað
mál að enn eru til karlar - og
það nokkuð margir - sem
virðast eiga erfitt með að
skilja þá staðreynd að konur
hafa ekki síður en karlar
áhuga á byggða- eða efna-
hagsmálum.
Dagur hvetur konurnar sem
Skólabúðir
Jeiðari.
Landssamband framsóknar-
kvenna heldur sitt þriðja
landsþing að Varmahlíð í
Skagafirði um þessa helgi.
Eins og fram hefur komið í
fjölmiðlum er aðalmál þings-
ins starf og stefna LFK -
staða framsóknarkvenna inn-
an Framsóknarflokksins og
hvernig hægt er að auka hlut
kvenna í flokknum á næstu
árum. Auk þess munu kon-
urnar ræða ýmis mál svo sem
atvinnumál, umhverfismál
og byggðamál svo eitthvað
sé nefnt.
LFK hefur unnið afar þýð-
ingarmikið starf innan Fram-
sóknarflokksins á undanförn-
um árum. Frá þeim tíma að
LFK fór á skrið fyrir nokkrum
árum hafa konur innan sam-
takanna rutt brautina - sem
svo sannarlega var stórgrýtt.
Nú er svo komið að í þing-
flokki Framsóknar er ein
kona, Valgerður Sverrisdótt-
ir, og var tími til kominn að
kvenmaður sæist í þing-
flokknum. Starf LFK hefur
Það þarf víst ekki að fjöl-
yrða mjög um framtíð hér-
aðsskólanna. Sumir þeirra
hafa verið afar illa nýttir
undanfarin ár og lokun
blasir í sumum tilvikum.
Sigurður Helgason, deildar-
stjóri í menntamálaráðu-
neytinu, kom fram með þá
hugmynd sl. haust að í ein-
um þeirra yrðu settar upp
svonefndar skólabúðir, en í
slíkum búðum eru börn og
unglingar úr þéttbýli við
nám í nokkra daga 1 senn.
En ekki er ætlunin að hafa
þetta fyrirkomulag aðeins á
annan veginn því börn úr
strjálbýli munu geta sótt
sams konar búðir í Reykja-
vík. í blaði sem Bandalag
kennara gefur út segir Sig-
urður Helgason um mark-
miðið með starfinu í skóla-
búðum: „Það er að gefa
nemendum kost á að kynn-
ast öðru umhverfi en þeir
(nemendurnir) hafa alist
upp í, kynnast náttúru
þess, sögu, atvinnu- og lífs-
hittast í Varmahlíð til að
brýna vopnin og koma tví-
efldar af þinginu. Þær verða
að gera sitt til að gróðursetja
enn betur jafnréttishugsjón-
ina í Framsóknarflokknum og
gera hlut kvenna innan hans
meiri og betri.
háttum fólksins í viðkom-
andi héraði. “
Ætlunin er að stofna
skólabúðir í Reykjaskóla í
Hrútafirði og í Reykjavík
eins og fyrr var nefnt og
byrja starfsemina haustið
1988. Sú hugmynd að
stofna skólabúðir er góð.
Skólabúðir munu m.a. stuðla
að auknum skilningi á milli
strjálbýlis og þéttbýlis og
veitir ekki af.
ÁÞ.
Viðskiptavinir
athugið!
Verkstæði okkar að Hvannavöllum 14b
verður lokað vikuna 7.-11. september.
Opnum aftur mánudaginn 14. september.
Hjólbarðaþjónustan
Hvannavöllum 14b, sími 22840.
■Bókabúðin EddaB
■M Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334 ■■É
Hallfríður Einarsdóttir og þrír sýningargestir í bás Valsmíði.
Mynd: JHB
Iðnsýningin:
„Margt hérna í senn forvitni-
legt og skemmtilegt"
- segir Hallfríður Einarsdóttir hjá Valsmíði
„Sýningin hefur gengið mjög
vel og ég heyri ekki annað en
fólk sé ánægt með hana,“
sagði Hallfríður Einarsdóttir,
starfsstúlka í bás Valsmíði á
iðnsýningunni í Iþróttahöll-
inni.
Hallfríður sagðist vera að sýna
eldhúsinnréttingar og bað- og
fataskápa og hefði það gengið vel
og básinn fengið ágæta athygli.
Sagði hún beiðnir um tilboð þeg-l
ar farnar að berast.
. „Það er ekki hægt annað en að
vera ánægður með sýninguna,"
sagði Hallfríður. „Mér finnst
margt hérna í senn forvitnilegt og
skemmtilegt, t.d. básar hitaveit-
unnar og rafveitunnar, þar er
margt sem maður hefur ekki haft
tækifæri á að kynna sér áður. Ég
vissi t.d. ekki fyrr en nú að mað-
ur getur fengið útskrift úr tölvu
.sem sýnir eyðsluna hjá manni yfir
árið. Þannig getur maður séð
hvenær maður eyðir mest og
hvenær minnst. Það er margt
fleira athyglisvert hér, t.d. það
sem Fatalitunin Höfði er að sýna.
Það er sniðugt að sjá hvað þeir
geta gert,“ sagði Hallfríður Ein-
arsdóttir.
Iðnsýningunni lýkur á sunnu-
dagskvöldið þannig að nú fer
hver að verða síðastur. JHB