Dagur - 04.09.1987, Blaðsíða 13
4. september 1987 - DAGUR - 13
TSfit ledmetoeé .L - RUDAG - g
Iðnþingið var fjölsótt og umræður gagnlegar.
Myndir: RÞB
— Sala
til sölu eða
leigu.
★ Tilbúið til afhendingar strax.
★ Húsnæðið er snyrtilegt, fullbúið og nýinnréttað.
★ Húsnæðið er í kjallara Sunnuhlíðar og með mjög
fullkomnu loftræstikerfi.
★ Seljendur eru opnir fyrir ýmsum greiðslu- eða
leigumöguleikum.
★ Húsnæðið er mjög hentugt fyrir þrifalegan iðnað
eða sem geymslustaður (skjalageymsla).
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar.
REKSTRARRÁÐGJÖF
FELLhf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - simi 25455
★ Um 170 m' iðnaðar-geymsluhúsnæði
En þróunin hefur verið þver-
öfug,“ sagði Haraldur.
Hann ræddi einnig um raf-
eindaiðnað og skilningsleysi
stjórnvalda á þróun atvinnulífs-
ins: „Nýjasta dæmið þar er
kannski 25% söluskattur á tölvur
á sama tíma og fyrirtækin eru að
reyna að ná tökum á framleiðslu
sinni. Svona slys mega ekki eiga
sér stað.“
Skortur á markaðs-
tengslum stofnana
Páll Kr. Pálsson forstjóri Iðn-
tæknistofnunar ræddi um tækni-
aðstoð opinberra aðila og þá sér-
staklega Iðntæknistofnunar.
Hann gagnrýndi sjálfan sig og
sína stofnun og það að fjárfram-
lög til rannsóknastarfa í atvinnu-
lífinu væru ekki nógu vel nýtt.
„Árlega er varið umtalsverðu
fjármagni af fjárlögum til að
standa straum af kostnaði við
rekstur tæknistofnana hins opin-
bera. Til rannsóknastofnana
atyinnuveganna renna á þessu ári
um 800 milljónir króna og til ann-
arrar hliðstæðrar starfsemi innan
Háskóla íslands, Tækniskólans,
Rannsóknasjóðs, Rannsóknar-
ráðs ríkisins og fleiri aðila renna
einnig umtalsverðir fjármunir. Þá
er varið miklum fjármunum til
reksturs ráðgjafastarfsemi í land-
búnaði, þjálfunar starfsfólks í
fiskvinnslu og svo mætti lengi
telja.
Mig skyldi ekki undra ef heild-
arupphæðin nálgaðist 1.500-
2.000 milljónir á ári þegar allt er
tínt til. Ég er hins vegar sann-
færður um að hér er ekki um of
mikið fé að ræða. Öflugt atvinnu-
líf er undirstaða góðra lífskjara.
Tækniþekking gegnir sífellt
veigameira hlutverki í verðmæta:
sköpun. Til að tryggja vöxt og
viðgang atvinnulífsins er því eðli-
legt að stjórnvöld tryggi ákveðið
fé til þessarar starfsemi.
Spurningin sem þarf að svara
er hins vegar sú hvort þessu fjár-
magni sé ráðstafað þannig að það
skili besta hugsanlega árangri út í
atvinnulífið á hverjum tíma.
Sjálfur tel ég því miður að svo sé
ekki. Ýinsar ástæður liggja að
baki þessari skoðun minni. Sú
veigamesta er skortur á markaðs-
tengslum stofnanana og takmark-
aður áhugi atvinnulífsins á að
nýta sér þessar stofnanir,“ sagði
Páll.
„Við þekkjum öll þann
darraðardans...“
Jón Sigurðarson framkvæmda-
stjóri Iðnaðardeildar Sambands-
ins hélt næstu tölu og gekk út frá
fjórum áherslupunktum: 1. Kröf-
ur lítils samfélags um stöðugleika
geta leitt af sér skort á sveigjan-
leika fyrirtækjanna. 2. Stöðugur
vinnumarkaður í mörgum hinu
dreifðu byggðum. 3. Fjarlægð frá
stjórnkerfi í Reykjavík. 4. Fjar-
lægð frá markaði og samgöngur.
Jón sagði meðal annars: „Pað
gefur augaleið að nauðsynlegar
breytingar hjá stærri fyrirtækjum
geta á tíðum haft veruleg áhrif á
það samfélag sem hýsir fyrirtækið
og þá sérstaklega ef viðkomandi
fyrirtæki er verulegur hluti af
veltu og vinnumarkaði í sínu
sveitarfélagi. Af þessum ástæð-
um verður oft veruleg andstaða
við það að lagðar séu niður óarð-
bærar einingar eða mannskap
fækkað og er það vissulega
skiljanlegt að hluta.
Við þekkjum öll þann darrað-
ardans sem fjölmiðlar og á tíðum
stjórnmálamenn stíga þegar slíkt
gerist. Af þessu leiðir sú hætta að
þrýstingur á fyrirtækin sé veru-
legur og fyrirtækin láti undan og
haldi áfram óarðbærum rekstri
og þá jafnvel að hluta á hálfopin-
beru eða alopinberu framfæri.
Slíkt er yfirleitt vítahringur. Tími
stjórnenda fer í að viðhalda
rekstri sem á ekki rétt á sér í stað
þess að byggja upp ný og arðbær
fyrirtæki og vinnuafl í landi þar
sem er skortur á vinnuafli er
bundið í fyrirtækjum sem ekki
eiga sér framtíðarvon.“
Síðar sagði Jón: „Undanfarin
ár virðist mér af minni reynslu að
gegnumstreymi fólks í mörgum
iðnfyrirtækjum, svo dæmi sé tek-
ið í Reykjavík, hafi verið mikið
og verulega meira en þar sem ég
þekki best til í dreifbýli. Slíkt
getur haft veruleg og neikvæð
áhrif á reksturinn, erfitt er að
halda uppi vönduðum vinnu-
brögðum og gæðum afurða ef
stöðugt er verið að skipta um
starfsfólk hvort heldur sem er í
framleiðslu eða stjórnun. Mér
virðist sem einstaklingar endist
lengur í starfi víða í dreifðum
byggðum. Fyrir fyrirtækin er
þetta kostur og sérstaklega ef
fyrirtækin nýta þennan mögu-
leika til að mennta og þjálfa
starfsmenn vel. Bæði til að gera
þá að betri starfsmönnum og
einnig til að bæta vellíðan starfs-
fólks í sínu starfi."
„Allt eru þetta
blómleg fyrirtæki“
Síðastur frummælenda var Valtýr
Sigurbjarnarson bæjarstjóri í
Ólafsfirði. Hann ræddi um við-
horf sveitarfélaga til iðnreksturs
og einnig um Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar. Hann taldi að við-
horf sveitarfélaga til iðnaðar væri
yfirleitt jákvætt en hann sagðist
ekki geta mælt með því að sveit-
arfélög byggi iðnaðarhúsnæði til
að leigja út nema nokkuð tryggt
sé að reksturinn standi undir sér.
Um Iðnþróunarfélagið hafði
Valtýr m.a. þetta að segja: „Til-
gangur félagsins er að efla iðnað
og stuðla að iðnþróun í byggðum
Eyjafjarðar en túlkun stjórnar
félagsins á þessu hlutverki hefur
alla tíð verið mjög á þann veg að
flest það sem eflt getur atvinnulíf
á svæðinu teljist falla undir starfs-
vettvang félagsins. Grundvallar-
þáttur í starfinu hefur þó ætíð
verið vöruþróun og nýiðnaður og
lítil áhersla verið lögð á hinn
hefðbundna iðnað.
Iðnþróunarfélagið hefur nú
verið starfrækt í fjögur ár og það
er ljóst af mjög miklum fjölda
erinda sem til þess berst að þörfin
fyrir þessa starfsemi er mikil.
Tími starfsmanna fer mikið í það
að meta raunsæi hugmynda sem
leitað er til félagsins með og mjög
oft reynast þær hugmyndir sem í
fyrstu sýnast ágætar óraunhæfar
eftir nánari skoðun. Hinn sjáan-
legi árangur liggur þó mest i þeim
verkefnum sem tekist hefur að
koma í framkvæmd.
Iðnþróunarfélagið hefur ásamt
öðrum byggt upp nokkur fyrir-
tæki sem þegar hafa sannað sinn
tilverurétt og stunda arðbæran
rekstur. Par má nefna Sæplast á
Dalvík, fyrirtæki í Ólafsfirði sem
stundar matvælaiðnað og Sæver
heitir. Hér á Akureyri má nefna
Gúmmívinnsluna, Hafspil og
ístess. Allt eru þetta blómleg
fyrirtæki sem hafa þegar sannað
sinn tilverurétt og eiga vafalaust
eftir að gera það enn betur.“
Eftir að Valtýr hafði lokið máli
sínu hófust umræður og varpað
fram fyrirspurnum. Þar kom líka
ýmislegt fróðlegt fram sem ekki
verður rakið hér en segja má að
þessi ráðstefna hafi verið gagnleg
um margt og vel til fundið hjá
atvinnumálanefnd að boða til
hennar á þessum tímamótum í
kaupstaðarsögu Akueyrar. SS
ATVENNA
Ullariðnadur
Okkur vantar nú þegar
starfsfólk við ýmiss
framleiðslustörf, m.a. í
Loðbandadeild á dv. og kv. við spuna
og kembingu.
Prjónadeild á kv. og nv. við prjón,
ýfingu og fleira
og svo við ýmislegt annað á öllum vöktum.
Unnið er eftir bónuskerfi
sem gefur góða tekjumöguleika.
Mötuneyti er á staðnum.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
IÐNAÐARDEILD
SAMBANDSINS
GLERÁRGÖTU 28 AKUREYRI SÍMI (96)21900
Ostakarlinn
- besti vinur barnanna kemur á Iðnsýningu
Föstudaginn
Laugardaginn
Sunnudaginn
4. september .... kl.
5. september .... kl.
6. september .... kl.
17.00-19.00
16.00-18.00
16.00-18.00
Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400