Dagur - 16.12.1987, Qupperneq 1
a
Filman þín
á skilið þaö
besta!
I
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 - Sími 27422 - Pósthóif 196
Hrað-
framköllun
Opið á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Hafa tannlæknar yfir
12.000 kr. á tímann?
Flestir telja tannlækna hafa
þokkalegt tímakaup en að þeir
skuli hafa 12.662 krónur á tím-
ann er nokkuð sem fáir hafa
gert sér grein fyrir. I blaðinu í
dag birtist grein eftir Vilhjálm
Inga þar sem hann greinir frá
tekjum tannlækna og víst er að
margir munu hiksta og fölna
við lestur greinarinnar. Vil-
hjálmur byggir á upplýsingum
frá Guðmundi Bjarnasyni heil-
brigðisráðherra og reikningi
frá ónefndum tannlækni.
„Samkvæmt þessu dæmi hefur
Tryggingastofnun fallist á að
tannlækninum beri 12.662 kr. á
klukkustund og fái þar að auki
8.078 kr. til að borga áfallinn
kostnað, þar af vegna launakostn-
aðar 1.737 (21,5%). Aðstoðar-
fólk getur svo sjálft reiknað út
hvað það fær raunverulega á
tímann, en tannlæknafélagið og
Tryggingastofnun virðast hafa
samið um upphæð sem ætti að
Hentu plast-
brúsum
í sjóinn
- þegar „svarta gengið"
kom í kaffi
Þegar tollverðir frá Reykjavík
komu til Sauðárkróks upp úr
hádeginu í gær til að tollskoða
Skafta hittist svo á að Hofsjök-
ull var þar staddur við bryggju.
Brugðu þeir sér um borð til að
fá sér kaffisopa og heilsa upp á
kunningja sína í flutningaskip-
inu, en koma „svarta gengis-
ins“ virtist skapa einhvern
taugatitring meðal skipverja.
Maður sem staddur var á
bryggjunni varð var við að ein-
hverju drasli í poka, sem hann
hélt í fyrstu að væri sorp, var
hent í sjóinn. Þegar skipverjum
var gerð grein fyrir að ekki væri
leyfilegt að henda sorpi í höfnina
og grennslast var frekar fyrir um
þetta, kom í ljós að 2ja lítra
plastbrúsar með einhverjum tor-
kennilegum vökva ilutu á
sjónum. Náði lögreglan 8 þeirra
strax, en björgunarsveitarmenn
voru síðan kallaðir til og náðu
þeir afgangnum, 10 brúsum.
Tollskoðun í Skafta sem hófst
ekki fyrr en um miðjan dag í gær
var ekki lokið um kvöldmatar-
leytið. Þá hafði sitthvað fundist,
en ekki var um mikið magn að
ræða. En Hofsjökull lagði úr
höfn um kl. 18 án þess að leit yrði
gerð í skipinu, enda stóð slíkt
aldrei til. -þá
láta nærri 1.340 kr. eða um 6,0-
9,0% af hverjum reikningi sem
það skrifar, allt eftir því hve
miklu álagi tannlæknirinn lætur
bæta ofan á,“ segir Vilhjálmur.
Tannlæknar hafa gjarnan rétt-
lætt gjaldskrá sína með því að
tala um háan stofnkostnað og
dýran rekstur á stofum sínum.
Aætlaður stofnkostnaður tann-
læknastofu 1. júní 1986 er 1,9
milljónir, auk tækja fyrir 2,7
milljónir. Samkvæmt reikningn-
um sem Vilhjálmur notar í grein
sinni tekur það tannlækni aðeins
um þrjá mánuði að vinna sér inn
fyrir stofnkostnaði stofu sinnar.
Og Vilhjálmur Ingi heldur
áfram: „Þessi margumrædda
gjaldskrá snertir allar launastéttir
beint og óbeint, við verðum að
greiða reikninga sem eru byggðir
á samkomulagi sem Trygginga-
stofnun fyrir hönd ríkisins hefur
gert þannig úr garði, að tann-
læknar hafa hærri tímalaun en
nokkur önnur stétt á íslandi.
Hvernig ætla samningamenn
Tryggingastofnunar að færa rök
fyrir því að tannlæknum beri yfir
12.000 kr. tímalaun? Voru þetta
mistök? Ef ekki, þá er formaður
samninganefndarinnar varla í
vandræðum að koma fram fyrir
skjöldu og gefa skýringar sem
duga.“ SS
Sjá nánar á bls. 5.
Freyja Rögnvaldsdóttir, dreifíngarstjóri Dags, óskar Sævari Árnasyni tii hamingju með hljómtækjasamstæðuna.
Mynd: EHB
„Átti eiginlega alls
ekki von á þessu“
- segir Sævar Árnason, vinningshafi í áskrifendagetraun Dags
Sævar Árnason, 17 ára verk-
menntaskólanemi á Akureyri
hafði heppnina með sér í gær
er dregið var úr réttum lausn-
um í áskrifendagetraun Dags.
Vinningur nóvembermánaðar
er hvorki meira né minna en
Pioneer hljómtækjasamstæða
frá Vöruhúsi KEA að verð-
mæti 98.000 kr. og hlýtur Sæv-
ar hana að launum fyrir að
svara tveimur spurningum
tengdum efni blaðsins rétt.
„Nú....,“ sagði Sævar undr-
andi er við hringdum í hann í gær
og tilkynntum honum um vinn-
inginn. Það skiptust sannarlega á
skin og skúrir í gærmorgun hjá
Sævari. Er við hringdum í hann
var hann nýkominn heim úr prófi
í Verkmenntaskólanum og var
ekkert allt of ánægður með próf-
ið en að sama skapi ánægður með
nýju hljómflutningstækin.
„Ég átti nú eiginlega alls ekki
von á þessu,“ sagði Sævar.
- Hvernig gekk þér að leysa
getraunina?
„Hún var a.m.k. ekki erfið.
Það var nóg fyrir mann að lesa
blaðið til að finna svörin við
spurningunum.“
Sævar segist vera ákveðinn í að
taka áfram þátt í getrauninni
enda borgar það sig greinilega.
Þetta er í fyrsta skipti sem hann
tekur þátt í verðlaunagetraun.
„Ég hef bara spilað í happdrætt-
um en þetta er í fyrsta skipti sem
ég fæ vinning," segir vinningshaf-
inn. JÓH
Loðnuveiðar:
Jólafrí hefst
um helgina
- margir bátar þegar
hættir veiðum
Loðnuveiðar ganga nú ágæt-
lega en í lok vikunnar búast við
að skipin verði flest komin til
hafnar og liggi þar fram yfir
hátíðar. I gær voru a.m.k 13
skip hætt veiðum en sam-
kvæmt kjarasamningum sjó-
manna skulu þeir hafa frí frá
20. desember til 2. janúar.
Um helgina var veiði með
rólegra móti. Á laugardag var
heildaraflinn á vertíðinni orðinn
281.355 lestir.
Á mánudag veiddu 12 skip
8.700 tonn og um miðjan dag í
gær höfðu 10 skip tilkynnt um
8.500 lestir.
Eins og komið hefur fram hef-
ur sjávarútvegsráðuneytið fellt úr
gildi bann sem gilt hefur við
loðnuveiðum undanfarin ár, eftir
17. eða 18. desember. Þetta er
gert vegna þess hve mikið er
óveitt af úthlutuðum kvóta.
Veiðar liggja hins vegar niðri
frá og með helginni og þá hætta
flestar verksmiðjur að taka við
afla. ET
8
dagar til jóla