Dagur - 16.12.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 16. desember 1987
Þrautgóðir á
raunastund
Út er komið hjá Erni og Örlygi
18. bindi bókaflokksins Þraut-
góðir á raunastund eftir Steinar
J. Lúðvíksson. Bókin er helguð
minningu Þórðar Jónssonar á
Látrum og öllum þeim sem tóku
þátt í björgunarafrekinu við
Látrabjarg í desember 1947, en
um þessar mundir eru 40 ár liðin
frá þeim atburði.
í hinni nýju bók er fjallað um
atburði áranna 1969, 1970 og
1971, en áður hafa atburðir frá
aldamótum og fram til ársins
1969 verið raktir auk þess sem
ein bókin í flokknum, er Loftur
heitinn Guðmundsson ritaði,
fjaliaði um brautryðjendur slysa-
varnastarfsins á íslandi.
Höfundur hinnar nýju bókar
segir í formála að er síðasta bók
kom út árið 1985 hafi það verið
ætlun hans að láta þar staðar
numið enda hafi hann talið að
bókaflokkurinn væri þá þegar
orðinn mun viðameiri en upphaf-
lega var ætlað og einnig kominn
full nærri samtímanum til þess að
fjalla í bók um svo viðkvæma
atburði sem slys jafnan eru. Fjöl-
margir hafi hins vegar sett sig í
samband við hann og hvatt hann
til þess að sagan yrði rakin eitt-
hvað áfram. Vitnað hafi verið til
þess sem skrifað hafi verið í for-
mála fyrri bók að ætlunin væri
með bókaflokknum að geyma á
einum stað þá hrikalegu atburði
sem þessi hluti sögu okkar
íslendinga hefur að geyma og
halda til haga frækilegum afrek-
um þeirra manna sem unnið hafa
að björgunarmálum hérlendis
bæði með beinni þátttöku í þeim
og eins óbeint svo og að geyma
nöfn þeirra er urðu að lúta í
lægra haldi í baráttunni við óblíð-
ar höfuðskepnurnar. Því varð úr
segir höfundur, að lagt var út að
nýju.
Sturla frá
Stekkjarflötum
Þetta er sagan af Sturlu, ungum
bóndasyni, sem er vart kominn af
barnsaldri, er hann missir föður
sinn, verður sjálfur að fara að
sækja sjóinn til að vinna fyrir
heimili móður sinnar og verður
um leið að svæfa ágenga drauma
um menntun og störf á listabraut-
um. En öll él birtir upp um síðir.
I sögulok er hann víðfrægur og
viðurkenndur listamaður.
Þetta er sagan af Matthildi,
móður Sturlu, sem ekki á sjö
dagana sæla við búskaparhokur í
sveitinni eftir að bóndinn er horf-
inn úr lifenda tölu. Það er henni
ekki létt að senda soninn á
sjóinn. Sjálf flytur hún svo í
þorpið á sjávarbakkanum til að
fjölskyldan geti haldið hópinn.
Og það koma betri tímar.
Þetta er sagan af Ögmundi,
i útgerðarmanninum, sem býr yfir
meira göfuglyndi en flestum er
gefið og reynist öllum vel. En
einnig hann verður margt mótlæti
að þola. En hann lætur ekki bug-
ast og hlýtur að uppskera, eins og
hanr. hefur sáð til og öðlast því
hamingjuna á nýjan leik.
Þetta er sagan af Sólrúnu,
stúlkunni fögru, sem hreif hugi
piltanna og allir vildu eignast. En
gott innræti og ytri fegurð nægir
ekki alltaf til að höndla hamingj-
una, en góðir vinir geta komið til
hjálpar, þegar verst stendur, og
þá birtir upp.
Höfundur er Aðalheiður
Karlsdóttir frá Garði en útgef-
andi er Skjaldborg.
k ~w~ yxiv
ALllINIK
HAFA
ý.ebn V
Aldnir hafa orðið
- Erlingur Davíðsson
skráði
Bókaflokkurinn Aldnir hafa orð-
ið varðveitir hinar merkilegustu
frásagnir eldra fólks af atburðum
löngu liðinna ára og um það
sjálft, atvinnuhæftina, siðvenjur
og bregður upp mýndum af þjóð-
lífinu, örum breytingum og stór-
stígum framförum, þótt ekki sé
um samfelldar myndir að ræða.
Fólk það, sem segir frá í þess-
ari bók og fyrri bókum í þessum
bókarflokki, er úr ólíkum jarð-
vegi sprottið og starfsvettvangur
þess fjölbreyttur.
Þeir sem segja frá í þessari bók
eru: Gerður Magnúsdóttir, Hall-
dór Sigurðssón, Kjartan
Ragnars, Kristinn Jónasson, Sig-
ríður Helgadóttir, Stefán Val-
geirsson og Þorsteinn Steingríms-
son.
Bókáflokkurinn aldnir hafa
orðið hefur hlotið frábærar við-
tökur um allt land.
Útgefandi er Skjaldborg.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Árni Tryggvason í Atómstöðinni sem verður á dagskrá Sjónvarps 2. dag jóla.
Jóladagskrá Sjónvarpsins:
efni af ýmsu tagi
íslenskt
Að vanda ber mikið á íslensku
efni í Sjónvarpinu í kringum
jólin. íslensk leikrit, tónlist,
kvikmyndir, fræðsluefni og
skemmtiþættir. Við skulum
líta á það helsta sem Sjónvarp-
ið býður upp á af innlendri
dagskrárgerð yfir jólahátíðina
og byrjum á Þorláksntessu.
Þá verður tónlistin í hávegum
höfð. Sýnt verður frá söng-
skemmtun sem haldin var í
íslensku óperunni er kór Vestur-
íslendinga skemmti og einnig
verður sýnd upptaka af tónleik-
um með hljómsveitinni Brimkló
á Hótel Borg sl. sumar.
Á aðfangadag verður sýnd
íslenska fjölskyldumyndin Veiði-
ferðin, eftir Andrés Indriðason.
Aftansöngur jóla verður frá
Dómkirkjunni í Reykjavík,
Helgi Skúlason les íslensk jóla-
ljóð og Sigríður Ella Magnúsdóttir
syngur ásamt kór Öldutúnsskóla
í dagskrárlok.
Á jóladag verður m.a. sýnd
mynd um leyndardóma Vatna-
jökuls, Jólastundin okkar verður
á dagskrá svo og kvikmyndin
Punktur, punktur, komma, strik
sem gerð er eftir sögu Péturs
Gunnarssonar. Þá verður sýndur
þáttur er nefnist Ljós í lofti
glæðast, í umsjón Sigrúnar Stef-
ánsdóttur.
Á öðrum degi jóla má nefna
sjónvarpsmynd frá 1976, Saga úr
stríðinu heitir hún og er eftir
Stefán Júlíusson. Leikstjóri er
Ágúst Guðmundsson. Þá verður
Atómstöðin á dagskrá, kvikmynd
gerð eftir skáldsögu Halldórs
Laxness. Leikstjóri er Þorsteinn
Jónsson.
Mánudaginn 28. desember
verða tvær myndir á dagskrá.
Annars vegar Tilbury, ný mynd
sem Sjónvarpið hefur gert eftir
samnefndri smásögu Þórarins
Eldjárn. Hins vegar Ást og
stríð, mynd gerð af Önnu Björns-
dóttur um íslenskar konur sem
giftust bandarískum hermönnum
í stríðinu.
Á þriðjudaginn 29. verður
Geysisslysið á dagskrá. Þátturinn
er byggður á kvikmynd Eðvarðs
Sigurgeirssonar um Geysisslysið
á Vatnajökli árið 1950.
Á gamlársdag má nefna
íþrótta- og fréttaannála, Stuð-
menn í Kína, mynd frá tónleika-
ferð Stuðmanna til Kína 1986,
Áramótaskaup í umsjón Sveins
Einarssonar og á nýársdag verður
m.a. óperan AIDA á dagskrá,
upptaka Sjónvarpsins í íslensku
óperunni. SS
Reglur um vamir gegn
loftmengun við málmsuðu
Nýjar reglur um varnir gegn
loftmengun við málmsuðu
ganga í gildi 1. janúar nk. Þar
eru ákvæði um hvernig verjast
skuli mengun við málmsuðu.
Hér verður greint frá fáeinum
efnisatriðum í þessum nýju
reglum.
I reglunum er málmsuða skil-
greind sem hvers kyns rafsuða,
rafskurður, logsuða, logskurður,
plasmasuða, plasmaskurður eða
lóðning.
Atvinnurekanda er lögð sú
skylda á herðar að veita starfs-
mönnum upplýsingar um hættu á
heilsutjóni sem er samfara vinnu
við málmsuðu og um rétta notk-
un á tiheyrandi búnaði sem hann
leggur til. Hann skal og sjá um að
afla nauðsynlegra upplýsinga um
þann rafsuðuvír, sem notaður er.
(Sérstök ákvæði eru um flokkun
hans miðað við loftræstiþörf.)
Það verður einnig hlutverk
atvinnurekanda að fullnægja
þeim kröfum sem gerðar eru um
loftræstingu í reglunum. Þær eru
allítarlegar og miðast við að fjar-
lægja loftmengun frá málmsuðu
áður en hún nær vitum starfs-
manna. Meginreglan er sú að
setja ska! upp staðbundið afsog
ásamt almennri loftræstingu þeg-
ar unnið er við málmsuðu innan-
dyra.
Starfsmönnum er gert að
skyldu að fara eftir leiðbeining-
um um rétta notkun á tilheyrandi
suðubúnaði og nota nauðsynleg-
an öryggisbúnað. Það hlýtur
einnig að hvíla á þeim og verk-
stjóra að „...velja suðuaðferð,
hreinsiefni o.s.frv., sem valda
sem minnstri loftmengun við
suðuvinnuna." Á báðum þessum
aðilum hvílir sú skylda að notað-
ar séu viðeigandi öndunargrímur
þar sem ekki er hægt að verja
starfsmenn á tryggan hátt gegn
loftmengun. Atvinnurekandi læt-
ur þær í té.
Framléiðendur oe/eöa innflytj-
endur skulu flokka og meikj.t
rafsuðuvír samkvæmt þein-i skil-
greiningu sem sett er íram í regl-
unum.
Aðilar, sem þessar nýju reglur
varða, skulu hvattir til að kynna
sér þær sem best. Að lokum skal
þess getið að Vinnueftirlitið hef-
ur til dreifingar bráðabirgðaút-
gáfu af leiðbeiningabæklingi um
öryggi við málmsuðu og hefur til
útlána danskt myndband um
öryggi við rafsuðu.
*