Dagur - 16.12.1987, Page 19

Dagur - 16.12.1987, Page 19
,1fr,desemþer„,1987 - P4.GUB - ,1? Kennarasamband íslands: Starfskjaranefnd hefur lokið störfum í síðustu kjarasamningum Kennarasambands Islands og fjármálaráðuneytisins var í sérstakri grein gert samkomu- lag um endurskoðun á vinnu- tilhögun og launakerfi kenn- ara. Starfskjaranefnd skipuð þrem- ur fulltrúum KÍ, tveimur fulltrú- um menntamálaráðuneytis og einum fulltrúa fjármálaráðuneyt- is var falið að taka vinnutilhögun og launakerfi kennara tii gagn- gerrar endurskoðunar. Meðal þeirra atriða sem sér- stök áhersla var lögð á að endur- skoða eru: Endurmat á kennslu- skyldu með tilliti til undirbúnings og úrvinnslu verkefna, fjölda nemenda í bekkjardeildum og umsjón með námshópum. Einnig átti nefndin að meta aukið upp- eldishlutverk skóia vegna breyttra þjóðfélagshátta og gera tillögur í samræmi við það. Starfskjaranefndin hefur nú lokið störfum. Hún hefur sent frá sér skýrslu um vinnutíma kennara bæði hér á landi og á hinum Norðurlöndunum, vinnu- tímarannsóknir og einkenni kennarastarfsins. Einnig hefur nefndin orðið sammála um heild- artillögur, sem lagðar verða til grundvallar í viðræðum KÍ við ríkisvaldið um nýjan kjarasamn- ing. í tillögunum leggur starfskjara- nefnd m.a. áherslu á: ★ Hækkun launa frá því sem nú er. ★ Bætta vinnuaðstöðu í skólum. ★ Málefni skóla í dreifbýli. ★ Starfsaldurshækkanir komi fyrr en nú er og að fullum starfsaldri verði náð eftir 10 ár. ★ Jöfnun vinnuálags kennara með því að kennsluskylda verði mismunandi. ★ Fjölgun námsorlofa. Starfskjaranefnd telur að ef stjórnvöld brygðust við sam- kvæmt tillögum hennar skapaðist grundvöllur til að bæta skólastarf í landinu og möguleikar á nýbreytni og sveigjanleika ykjust. Ef kennarastarfið verður metið að verðleikum má ætla að það verði eftirsóknarverðara en nú er. A næstu dögum mun kjararáð KÍ vinna að kröfugerð á grund- velli tillagna nefndarinnar. Samningaviðræður munu hefjast strax upp úr áramótum. Náist Vistheimilið Sólborg verður með sölutjald í göngugötunni 19. og 20. desember nk. Einnig verður sölutjaldið opið á Þor- láksmessu. Opnunartími er frá kl. 09.30 til kl. 18.00. Á Sólborg hófst í september starfsemi vinnustofu fyrir þá íbúa sem ekki geta leitað vinnu á verndaða vinnustaðnum Iðju- lundi. Þó slík starfsemi hafi verið stunduð á heimilinu áður (fyrir ca. 6 árum) erum við nú að byrja samningar hins vegar ekki verður gildandi samningi sagt upp með 15 daga fyrirvara. Kennarasamband íslands fagn- ar þeim skilningi sem fram hefur komið í starfskjaranefnd að auka þurfi til muna fjármagn til skóla- starfs, bæta kjör félagsmanna KÍ og hækka föst laun þeirra. alveg frá byrjun. Ýmislegt skortir á að sú vinnuaðstaða sem nú er fyrir hendi sé fullnægjandi, en fé skortir til að framkvæma þá upp- byggingu sem æskileg væri. Við höfum því leitað þess ráðs að efna til jólabasars og selja þar ýmsan jólavarning sem íbúar og starfsfólk hafa unnið í samein- ingu. Markmiðið er að afla fjár til verkfærakaupa í vinnustofurnar en þar eru efst á óskalistanum leirbrennsluofn, vefstóll og skápar. Sýnishorn af föndri. Sólborg með sölutjald í göngugötunni Námskeið um fjármálastjórn á Bifröst Námskeið um gerð milliuppgjöra fyrir stjórnendur fjármála í frystihúsum var nýlcga haldið í Samvinnuskólanum á Bifröst. A myndinni sjást, frá vinstri: Einar Sveinn Ingólfsson viðskiptafræðingur KASK og Vésteinn Benediktsson viðskiptafræðingur á Bifröst en þeir voru umsjónarmenn námskeiðsins, Magnús Guðjónsson Meitlinum í Þorláks- höfn, Þórður Viðarsson Sæfangi í Grundarfirði, Þórarinn Pálmason Búlandstindi á Djúpavogi, Rannver Eðvarðs- son Útvegsfélagi samvinnumanna, Hermann Larsen Fiskiðjusamlagi Húsavíkur og Kristján Guðmundsson Hrað- frystihúsi Grundarfjarðar. Siemens heimilistæki Eigum fyrirliggjandi nokkrar þvottavélar af gerðinni Siwamat WV 276. Verð kr: 36.643,00 staðgreitt. Vestur-Þýsk gæðavara -k Sjón er sögu ríkari. SÍR HF. Reynishúsinu ■ Furuvöllum 1 ■ 600Akureyri ■ Sími 27788 Lokað Vegna jarðarfarar Hannesar Sigurðssonar verður Mjólkursamlag KEA lokað eftir hádegi miðvikudaginn 16. desember. Mjólkursamlag KEA. Úrval nytsamra jólagjafa Indverskir dúkar, 5 stærðir með serviettum. Kvilteraðir indverskir púðar. Blúndur og silkipúðar. Pottalappar, svuntur og diskamottur. Bróderaðar diskamottur og glasabakkar. sokkabuxur. íemman f Skipagötu 13, sími 23504. ^— Afgreiðslustjóri Flugleiðir óska eftir að ráða til starfa afgreiðslustjóra vöruafgreiðslu félagsins á Akureyrarflugvelli. Starfið fellst í daglegri umsjón með móttöku og afhendingu flugfraktar, svo og nauðsynlegu uppgjöri þar að lútandi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Flugleiða á Akureyrarflugvelli. FLUGLEIDIR fií Verkstjóri Óskum eftir verkstjóra til starfa sem fyrst. Starfssvið: Yfirumsjón með vinnuvélum, malarflutningum og efnisvinnslu hjá fyrir- tækinu. Framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki. MÖL&SANDUR HP. v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.