Dagur - 16.12.1987, Síða 8
8 - DAGUR - 16. desember 1987
Afinælistónleikar
I tilefni 15 ára afmælis Passíukórsins verða tón-
leikar í kvöld í Akureyrarkirkju kl. 20.30.
Efnisskrá:
1. Jólaoratoría eftir Camille Saint-Saéns.
2. A Ceremony of Carols eftir Benjamín Britten.
Flytjendur:
Passíukórinn á Akureyri,
Margrét Bóasdóttir sópran,
Elín Sigurvinsdóttir sópran,
Þuríður Baldursdóttir alt,
Miðaverð 600 kr. Skólafólk fær 50% afslátt
PASSÍUKÓRINN.
Páll Jóhannesson tenór,
Michael Jón Clarke bariton,
Monika Abendroth harpa,
Björn Steinar Sólbergss. orgel
og strengjasveit.
Stjórnmálaályktun
- kjördæmisþings framsóknarmanna á Norðurlandi vestra
Kjördæmisþing framsóknar-
manna á Norðurlandi vestra
fagnar þeim árangri sem náðist í
efnahagsmálum undir stjórn
framsóknarmanna á síðasta
kjörtímabili. Böndum var komið
á óðaverðbólgu, atvinnuöryggi
skapaðist. Innlendur sparnaður
jókst og erlendar skuldir lækk-
uðu. Kaupmáttur ráðstöfunar-
tekna varð meiri en nokkru sinni
fyrr. Framsóknarmenn á Nl.
vestra gera þá kröfu til ríkis-
stjórnarinnar að hún standi vörð
um þann mikla árangur sem náð-
ist á síðasta kjörtímabili.
Þingið telur framsóknarmönn-
um ekki sæmandi að sitja í ríkis-
stjórn sem sleppir verðbólgunni
lausri.
Framsóknarflokkurinn setur
manngildi ofar auðgildi og berst
fyrir hugsjónum samhjálpar og
samvinnu.
Kjördæmisþingið varar við
aðferðum frjálshyggjunnar við
skiptingu þjóðarauðs. Undir-
staða mannlífs á íslandi er það
sem landið og hafið umhverfis
það gefa af sér. Þess vegna er
mikilvægt að nýta land og haf af
fyrirhyggju og framsýni. Flokk-
urinn á enn sem fyrr að hafa for-
ystu um umhverfisvernd.
Þingið leggur ríka áherslu á að
íslendingar verði að hafa full og
óskoruð yfirráð yfir gögnum
landsins og gæðum.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna á Norðurlandi vestra
treystir því að Framsóknarflokk-
urinn standi áfram sem hingað til
einarðan vörð um byggðastefn-
una. Til þess að auðlindir lands
og sjávar, verði skynsamlega
nýttar verður byggðin að vera
dreifð um landið. Tryggja þarf
sem jafnasta lífsaðstöðu þegn-
anna þannig að hvarvetna sé
eftirsóknarvert að búa. Fjöl-
breytt og öflugt atvinnulíf er
undirstaða traustrar búsetu. Jafn-
rétti til náms er mikilvægt
byggðamál og því er flokknum
skylt að efla Lánasjóð íslenskra
námsmanna svo honum verði
kleift að mæta þörfum þeirra sem
sækja þurfa nám fjarri heima-
byggð.
Fiskveiðistefna sú sem fylgt
hefur verið undanfarin ár hefur
reynst vel, treyst landsbyggðina
og ber okkur því að halda áfram
á sömu braut. Landbúnaði verð-
ur að skapa skilyrði til eðlilegrar
þróunar. Sporna verður við
NorðlentHngar
ysko ik
jarðarberjasúpa bláberjasúpa
Nú eru nýju Vilkósúpurnar komnar í verslanir.
Súpurnar eru í fernum tilbúnar
til neyslu, heitar sem kaldar.
Ný jarðarberjasúpa
og gamla góða bláberjasúpan
|
■
Umboðsaðilar:
Mjólkursamlag K.P. Húsavík
Mjólkursamlag KEA Akureyri
Mjólkursamlag K.S. Sauðárkróki
Mjólkursamlag K.V.H. Hvammstanga
Mjólkursamlag S.A.H. Blönduósi.
byggðaröskun með eflingu nýrra
búgreina og fjölbreyttra atvinnu-
tækifæra í sveitum og byggða-
kjörnum. Stórauka þarf vöru-
þróun og markaðssetningu land-
búnaðarafurða.
Þingið fagnar breyttum áhersl-
um í íslenskri utanríkisstefnu og
telur að okkur beri að leggjast
gegn hernaðarhyggju og vígbún-
aðarkapphlaupi.
Kjördæmisþing framsóknar-
manna á Norðurlandi vestra heit-
ir á forystumenn flokksins að
standa traustan vörð um þær hug-
sjónir sem flokkurinn hefur ætíð
haft að leiðarljósi, samvinnu,
samhjálp og jafnrétti. Flokkn-
um ber að standa áfram vörð um
velferðarríkið og að sjá til þess
að þegnarnir búi við félagslegt
öryggi og sem jafnasta lífsað-
stöðu, vel sé séð fyrir þeim sem
eru sjúkir og aldraðir eða standa
höllum fæti.
Þjóðmenning okkar greinir
okkur frá öðrum þjóðum, á þeim
grunni eigum við að byggja.
Beta og villti
fjallafolinn
Út er komin hjá Korninu Heimil-
isútgáfu ný bók eftir Vigfús
Björnsson, sem ber nafnið Beta
og villti fjallafolinn. Bók þessi
fjallar um hest sem lokast inni í
dalverpi þegar mikil grjótskriða
fellur í haustrigningum. Þegar
folinn lokast þarna inni er hann
veturgamall. Þarna gengur hann
einn í 3 ár en tekst þá að brjótast
yfir urðina og birtist í „Fjallinu"
eitt vorkvöld - og þá sem full-
þroska stóðhestur. Sagan segir
frá örlögum þessa hests og ör-
lagavaldi hans, að verulegu leyti,
Betu, ungri stúlku sem við höfum
áður kynnst í bókinni Beta,
heimsmeistarinn - og þá sem
lítilli stúlku. í þessari bók stend-
ur Beta fyrir sínu, eins og fyrri
daginn, og nær hún ótrúlegu
sambandi við hinn glæsta villifola
sem ríkir nú í fjallinu. Hún forð-
ar honum frá því að vera skotinn
á færi - og stefnir í lokin með
hann á Landsmót hestamanna,
að rétta hlut hans og heiður gagn-
vart óvildarmönnum hans. Sagan
gerist á bænum Hlíð, hjá afa,
sem einnig leggur nokkuð til mál-
anna í þessari sögu. Þarna bregð-
ur fyrir ráðunautum, tamninga-
mönnum og raunar hvers kyns
fólki. - Þetta er hugnæm saga og
lifandi frásögn - íslensk út í fing-
urgóma.
Bókin er 106 bls. með nokkr-
um teikningum eftir dóttur
höfundar. Hún hefur einnig gert
bókarkápuna, sem verður að telj-
ast í fallegra lagi.