Dagur - 16.12.1987, Blaðsíða 13
16. desember 1987 - DAGUR - 13
Landssamband iðnaðarmanna:
Um breytingar á tekju-
öflun hins opinbera
Breytingar þær á tekjuöflun hins opinbera, sem ríkisstjórnin hef-
ur ákveðið að gera, hafa í för með sér verulega jöfnun á starf-
skilyrðum atvinnuveganna hér á landi. ToIIar, sem voru smám
saman afnumdir af aðföngum til samkeppnis- og útflutningsiðn-
aðar við inngönguna í EFTA, verða nú einnig að langmestu leyti
afnumdir af aðföngum til viðgerðar og þjónustuiðnaðar, svo og
byggingariönaðar, landbúnaðar og annarrar starfsemi, sem ekki
hefur flokkast undir samkeppnisatvinnuvegi. Á móti gæti komið
óhagræði vegna lækkunar tolla á innfluttum samkeppnisvörum,
aðallega frá löndum utan EFTA og Evrópubandalagsins, en
lækkun tolla á hráefnum frá sömu löndum verka að sama skapi til
hagræðis. Þannig geta iðnfyrirtæki hugsanlega farið að beina
hráefniskaupum sínum í auknum mæli til annarra landa en Evr-
ópu
Landssamband iðnaðarmanna
hefur jafnan lagt áherslu á, að
það sé rangt að aðskilja atvinnu-
greinar, eins og gert hefur verið í
samkeppnisgreinar annars vegar
og aðrar atvinnugreinar hins veg-
ar og að hinar fyrrnefndu búi við
betri rekstrarskilyrði en hinar
síðarnefndu. Samkeppnishæfni
þjóðfélagsins hlýtur að byggjast á
sameiginlegum árangri allra
atvinnugreinanna. Rekstrarskil-
yrði atvinnulífsins ættu því að
vera hin sömu í öllum greinum.
Með stefnumörkun þeirri, sem
nú hefur verið tekin, er stigið rétt
spor í jafnræðisátt að þessu leyti.
Hins vegar ber að leggja áherslu
á, að til þess að um fullt jafnræði
verði að ræða, þarf einnig að fella
niður önnur aðflutningsgjöld til
viðkomandi starfsemi, s.s. sölu-
skatt. Landssambandið treystir
því að ríkisstjórnin og Alþingi
muni stíga þetta skref til fulls og
fella niður söiuskatt á aðföngum
allra atvinnugreina.
Landssamband iðnaðarmanna
hefur lengi óskað eftir stefnu-
mörkun eins og þeirri, sem hér að
framan er lýst. Mál þetta hefur
jafnan strandað á því að lækkun
og afnám tolla og annarra
aðflutningsgjalda hefur óhjá-
kvæmilega í för með sér svo
mikla skerðingu á tekjum ríkis-
sjóðs, að erfitt hefur reynst að
finna leiðir, sem flestir geta sætt
sig við, til þess að bæta hana upp.
Hugmyndir fjármálaráðuneytis-
ins hafa jafnan verið að leggja á
mjög víðtækt vörugjald. Lands-
samband iðnaðarmanna hefur
barist gegn þeirri aðferð. Sú leið,
sem ríkisstjórnin hefur nú ákveð-
ið að fara, þ.e. að hækka sölu-
skatt frá því sem ákveðið hafði
verið og einfalda vörugjaldið og
halda því á nokkrum skýrt
afmörkuðum vöruflokkum, er að
dómi Landssambandsins mun
betri, en vörugjaldsaðferðin, sem
fyrirhuguð var. Fjölmörg rök má
færa fyrir því, að þegar vörugjald
er lagt á í greinum, þar sem fram-
leiðsla er mjög fjölbreytt, seríur
mjög smáar og ýmist framleiddar
skattskyldar eða ekki skattskyld-
ar vörur, er vörugjaldið mjög
slæmt skattform og alls ekki
hlutlaust gagnvart samkeppni,
eins og haldið hefur verið fram.
Það er því fagnaðarefni að ríkis-
stjórnin skyldi hætta við að leggja
17% vörugjald á fjölmarga vöru-
flokka, sem haft hefði í för með
sér verulega íþyngingu fyrir iðn-
aðinn. Hins vegar verður að hafa
í huga, að söluskattur leggst með
fullum þunga á allar matvörur í
landinu. Að lina þessa aðgerð
með gífurlegum niðurgreiðslum
eins og gert er ráð fyrir hefur í för
með sér meiri neyslustýringu en
dæmi eru til um og við verður
unað. Þótt það sé röng og villandi
fullyrðing fjármálaráðherra að
hollustufæða eins og brauð muni
hækka um 25% vegna þessara
aðgerða, er ljóst að á hlut þessar-
ar nauðsynjavöru verður mjög
gengið með niðurgreiðslum á
landbúnaðarvörum. Eðlilegra
hefði verið að hækka niðurgreiðsl-
urnar minna og stórauka fjöl-
skyldubætur og bætur lífeyris-
trygginga. í þessu sambandi
mætti minnast þess, að tollalækk-
anir á aðföng landbúnaðar ættu
að gera að verkum, að minni þörf
er á verðhækkunum vegna sölu-
skattsins en verið hefði að öðrum
kosti. Ennfremur hefði mátt
draga úr þörf fyrir söluskatts-
hækkun með því að lækka tolla á
hátollavörum í áföngum í stað
þess að stíga svo stórt skref í
þeim efnum, sem raun ber vitni.
Landssamband iðnaðarmanna
vill benda Alþingi og ríkisstjórn á
tvennt sem taka þyrfti tillit til við
endanlega lagasetningu:
1. Sama stefnumörkun og nú
hefur verið gerð varðandi
niðurfellingu á tollum af
aðföngunt fyrirtækja verði
einnig gerð varðandi niður-
fellingu söluskatts af aðföng-
um alis iðnaðar.
2. Dregið verði verulega úr
áformum um niðurgreiðslur á
landbúnaðarvörunt og fjöl-
skyldubætur og bætur lífeyris-
trygginga hækkaðar á móti.
Vélsleðagallar
3 gerðir.
Verð frá kr. 10.950.-
Tilvalin jólagjöf.
+ 10% jólaafsláttur k
IIIEYFJÖRÐ
Hialteyrargötu 4 • Simi 22275
LYFTARAR
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval notaðra rafmagns-
og diesellyftara, ennfremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum lyftara, flytjum lyft-
ara.
Varahluta- og viðgerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð. ■ /> /
Tökum lyftara í umboössölu. J ■
LYFTARASALAN HF.
Símar 82770 og 82655.
•~38B8Bar
Sjónvarp
Akureyri
Myndlykillinn
Jólagjöf fjölskyldunnar
Nú er frábær jóladagskrá framundan og ókeypis
áskriftarmánuður fyrir nýja áskrifendur.
Vildarkjör bjóðast á myndlyklum í Akurvík.
Jólagetraun áskrifenda
Á hvaða dögum er þetta efni sýnt:
1. Sjtortpakki Heimis Karlssonar.
2. A heimaslóðum.
3. Hasarleikur (Moonlighting).
Hringdu í síma 27400 og láttu skrá þig.
Dregið í beinni útsendingu 7. janúar.
Mallorca - Mallorca - Mallorca - Mallorca
Jóla- og áramótakveðjur
Tekið er á móti jóla- og áramótakveðjum í síma 27400
og þær birtast á skjánum á aðfanga- og gamlársdag.
Tilvalið og þægilegt.
Gleðileg jól - Góia skemmtun