Dagur - 16.12.1987, Síða 20
Akureyri, miðvikudagur 16. desember 1987
Tvær nætur með
morgunverði á
kr. 1.920
Helgargisting á Hótel Húsavík
Hötel__________
Hiasavik sími 41220.
The Midnightion
Hotel
Gaffa 1 bitafyrirtæki stofnað á Siglufirði:
Slagurinn stendur um
framleiðsluleyfið
- byggja þarf 600 fermetra húsnæði fyrir starfsemina
í dag verður að öllum líkindum
stofnað hlutafélag um rekstur
gaffalbitaverksmiðju á Siglu-
firði. Fimm aðilar verða skráð-
ir fyrir hlutafé sem fyrst um
sinn verður aðeins 50 þúsund
krónur. Ef stjórn Sölustofnun-
ar lagmctis afgreiðir umsókn
fyrirtækisins um framleiðslu-
leyfi jákvætt verður hlutafé
aukið í 5 milljónir.
Aðilarnir fímm eru Siglufjarð-
arbær, Verkalýðsfélagið Vaka á
Siglufirði, K. Jónsson á Akureyri
og tveir af starfsmönnum í gaffal-
bitaverksmiðju Sigló hf. í dag er
eingöngu um að ræða formlega
stofnun og ljóst er að þegar
hlutafé verður aukið munu eig-
endur fyrirtækisins verða allt aðr-
ir og fleiri aðilar. Stjórnarfundur
Akureyri:
Gífurleg hækkun
fasteignagjalda
Meirihluti bæjarstjórnar
Akureyrar ákvað í gær að
leggja sama álag á fasteigna-
skatt íbúðar- og atvinnuhús-
næðis og var gert á síðasta ári,
þrátt fyrir mikla hækkun fast-
eignamats á Akureyri umfram
hækkun á landsvísu. Meðal-
talshækkun matsins utan
Reykjavíkur var 34% en
hækkunin á Akureyri var
hærri eða 44%.
Bæjarstjóri, Sigfús Jónsson,
upplýsti á bæjarstjórnarfundi í
gær að tekjur bæjarins af fast-
eignagjöldum hefðu verið 97,5
milljónir króna á þessu ári. Á
næsta ári munu tekjur bæjarins af
gjöldunum nema 132 milljónum
króna, eftir að tillit hefur verið
tekið til niðurfellingar gjalda til
Oddeyri hf.
kaupir
Súluna
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær kom fram að Odd-
eyri hf. hefur lýst áhuga sínum
á að kaupa Súluna EA 300.
Stjórnarformaður Krossanes-
verksmiðjunnar, Sigfús Jóns-
son bæjarstjóri, upplýsti í
stjórn verksmiðjunnar í fyrra-
dag að hann hefði átt viðræður
við Oddeyri hf. um þátttöku á
kaupum í skipinu.
Bæjarstjórn frestaði staðfest-
ingu á kaupsamningi við Leó Sig-
urðsson vegna Súlunnar EA 300
til 15. desember á fundi sínum 1.
desember. Eftir að forráðamenn
Oddeyrar lýstu áhuga sínum á að
kaupa skipið telur stjórn Krossa-
nesverksmiðjunnar eðlilegt að
óskað verði eftir því við Súlur hf.
að fallið verði frá fyrri samningi
frá 24. nóv. og jafnframt teknar
upp viðræður milli Súlna hf. og
Oddeyrar hf. um nýjan kaup-
samning, enda tryggi eignaraðild
bæjarins að Oddeyri hf. aðgang
að hráefni frá Súlunni. EHB
aldraðra og öryrkja. Hækkun
skattsins milli ára er um 34,5%,
meðan vísitala framfærslu hækk-
ar aðeins um rúmlega 20 prósent
á sama tíma.
Nokkrar umræður urðu um
þetta á fundinum og viðurkenndu
sjálfstæðismenn að óbreytt álag
samrýmdist illa stefnu þeirra, en
væri tilkomið vegna óska sam-
starfsflokks þeirra í bæjarstjórn.
EHB
átti að vera í SL í dag en honum
hefur verið frestað fram yfir ára-
mót. Ef ekki fæst leyfið verður
fyrirtækið lagt niður.
Almennt er svo litið á að Fiski-
mjölsverksmiðjan á Hornafirði
hafi með kaupunum á vélunum
frá Sigló, um leið keypt leyfi til
framleiðslu á gaffalbitum. Kaup-
verðið var 21 milljón. Ef hið nýja
fyrirtæki fær leyfið mun það
reyna að semja um kaup á vélun-
um til Siglufjarðar á ný.
„Við erum nokkuð bjartsýnir á
að fá leyfið, enda höfum við það
góðan málstað. Eigum við ekki
að segja að líkurnar séu 50%,“
sagði Skarphéðinn Guðmunds-
son bæjarfulltrúi á Siglufirði og
einn þeira sem staðið hafa að
stofnun hins nýja fyrirtækis.
Flosi Jakobsson verksmiðju-
stjóri FH á Höfn sagði hins
vegar: „Ég trúi því aldrei að
þetta leyfi verði af okkur tekið.“
Um það hvort vélarnar væru falar
vildi hann ekki ræða.
Hið nýja fyrirtæki mun líklega
þyrfa að byggja húsnæði yfir
starfsemina, sennilega um 600
fermetra til að byrja með. Kostn-
aður við það er áætlaður um 10
milljónir. Stofnkostnaður hins
nýja fyrirtækis er því a.m.k. 31
milljón. ET
Þeir voru að setja Ijósaseríu á tré í Miðbænum.
Mynd: TLV
Fastgengisstefnan:
„Stjórn efnahagsmála í
landinu hefur brugðist"
segir Jón Sigurðarson forstjóri Alafoss hf.
„Á þessum mánuðum er gífur-
legur fjármagnsflótti frá iands-
byggðinni til Reykjavíkur
vegna þess hversu lágt gengið
er. Við erum í upphafi nýrrar
landsbyggðarkreppu að mínu
mati og allir undirstöðuat-
vinnuvegirnir úti á landi eru
reknir með tapi. Eini hagnað-
urinn sem ég veit af í þessu
landi núna er innflutningurinn
sem byggir á niðurgreiddum
erlendum gjaldeyri,“ sagði Jón
Sigurðarson forstjóri Álafoss
hf.
Mikið hefur verið rætt um það
að fastgengisstefna ríkisstjórnar-
innar sé að sliga útflutninginn og
menn eru farnir að hrópa á
gengisfellingu. Jón Sigurðarson
segir að fastgengisstefnan sé hin
ágætasta stefna en bráðnauðsyn-
legur fylgifiskur hennar sé fast-
kostnaðarstefna.
„Þannig tel ég að fastgengis-
stefnán í sjálfu sér hafi ekki
brugðist heldur hafi stjórn efna-
hagsmála í landinu brugðist
þannig að kostnaður hefur farið
Jón Sigurðarson segir vonlaust að reka útflutningsfyrirtæki við ríkjandi
aðstæður í efnahags- og peningamálum.
úr öllum böndum á sama tíma og
tekjumöguleikarnir hafa ekki
verið leiðréttir í gegnum gengið.
Nú er svo komið að það er von-
laust að reka útflutningsfyrirtæki
við þessar aðstæður," sagði Jón.
Hann telur að kostnaðarhækk-
anir hafi hrundið fastgengisstefn-
unni og stjórnvöld verði að grípa
inn í þessa þróun með aðgerðum
sem bæta hag útflutningsatvinnu-
veganna og í því sambandi sagð-
ist Jón ekki koma auga á aðra
leið en gengisfellingu. „En kunni
menn einhver önnur ráð er ég
manna fegnastur,“ sagði Jón.
Hann sagði að það væri stjórn-
leysið í efnahagsmálum sem
hrópaði á gengisfellingu, ekki
atvinnurekendurnir. Fulltrúar
Seðlabanka og ráðgjafar ríkis-
stjórnarinnar hafa sagt að það sé
ekki þörf fyrir gengisfellingu en
Jón sagði að þessir menn hefðu
ekki komið með önnur ráð til að
koma fótunum aftur undir
útflutningsatvinnuvegina og á
meðan þeir gerðu það ekki væri
þetta marklaust hjal. SS