Dagur - 24.03.1988, Page 1
71. árgangur Akureyri, fimmtudagur 24. mars 1988 59. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKNR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Yfirvinnubannið:
Ahrífanna gætir
í frystihúsum
- „Hreinlegra að boða verkfall,“
segir Gunnar Aðaibjörnsson
Ahrifa yfirvinnubanns og
banns á afkastahvetjandi
launakerfi gætir eins og við var
að búast aðallega í fiskvinnslu,
þar sem afkastahvetjandi
Íaunakerfi eru alls ráðandi.
Marinó Jónsson hjá meistara-
félagi byggingamanna sagðist
ekki telja að bannið hefði mik-
il áhrif í byggingariðnaði.
„Þetta er búið að vera mjög
rólegt hér í morgun," sagði
Ullarsamningarnir:
„Ekkert sér-
lega ánægður“
—segir Aðalsteinn Helgason
„Ég er ekkert sérlega ánægður
með þessa samninga, hvorki
verðið eða magnið. Verðið er
ekkert til að hrópa húrra fyrir
og magnið er langt frá því sem
við stefnum að,“ sagði Aðal-
steinn Helgason, aðstoðarfor-
stjóri Alafoss hf.
Álafossmenn hafa nú samið
um sölu á 30 þúsund peysum og
500 þúsund treflum, samtals að
verðmæti um 2 milljónir dollara,
til sovéska ríkisfyrirtækisins
Razno. Þá var einnig samið um
sölu á 150 þúsund treflum til
Sojuz, sovéska Samvinnusam-
bandsins, fyrir u.þ.b. hálfa millj-
ón dollara.
„Verðmæti varanna til Razno
er ekki nema um 2 milljónir doll-
ara, og það viljum við auka um 3-
4 milljónir í viðbót," sagði Aðal-
steinn.
Samningum um verð er lokið,
að sögn Aðalsteins, en viðræður
um sölu á meira magni halda
áfram. Þeim verður að vera lokið
innan næstu sex vikna, til að hægt
sé að afgreiða ullarvörurnar á
þessu ári. Hvað endurskipulagn-
ingu fyrirtækisins varðar þá er
hún vel á veg komin, en band-
framleiðslan fer nú öll fram í
Mosfellsbæ. EHB
KS vsiiir hsimiid
til veik-
fallsboðunar
Félagar í Kennarafélagi
Islands hafa í atkvæðagreiðslu
samþykkt að veita stjórn
félagsins heimild til verkfalls-
boðunar.
Alls greiddu 91% félagsmanna
atkvæði og féllu þau þannig að
60,8% sögðu já, 33,6% nei, og
5,6% seðla voru auð eða ógild. A
föstudag verður endanlega tekin
ákvörðun um verkfall og þá verð-
ur sömuleiðis gerð kunn niður-
staða úr atkvæðagreiðslu HÍK.
VG
Gunnar Lórenzson verkstjóri á
frystihúsi Útgerðarfélags Akur-
eyringa í samtali við Dag. Gunn-
ar sagði að þetta kæmi sér auðvit-
að mjög illa, því nóg væri af fiski.
Hann giskaði á að í frystihúsinu
væru hálf afköst miðað við eðli-
legt ástand.
Yfirvinnubannið hefur þau
áhrif að ekki er hægt að láta
ákveðna hópa byrja fyrr á
morgnana eins og víða tíðkast og
eins þarf að stöðva vélar fyrr
þannig að hægt sé að þrífa í
vinnutímanum. Þannig verður
vinnudagurinn mun ódrýgri en
ella.
Gunnar Aðalbjörnsson frysti-
hússtjóri á Dalvík tók í sama
streng. Þar höfðu menn þó búið
sig undir bannið á þann hátt að
láta vinna alla síðustu helgi.
„Þetta kemur sér illa fyrir alla
aðila, fólkið, vinnsluna og
útgerðina. Ef þetta skýrist ekki
núna fyrir helgina þá finnst mér
miklu hreinlegra að boða bara
verkfall. Þetta er ekki hagur
neins, hvernig sem á það er
litið,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að ef ekki rættist úr
fyrir helgi þá væri fyrirsjáanlegt
að hægja þyrfti á togurunum og
kalla þá inn fyrr en ætlað var.
Á Norðurlandi vestra er áhrifa
bannsins lítið farið að gæta þar
sem Iítið hráefni liggur fyrir.
ET/fh
Fylgst með framkvœmdum.
Mvnd: GB
Samningar fyrir helgi?
„Eg ætlast til þess, enda er
ekki eftir neinu að bíða“
Um miðjan dag í gær boðaði
Guðlaugur Þorvaldsson sátta-
semjari fulltrúa vinnuveitenda
og launþega til sameiginlegs
fundar, þar sem skoðaður var
árangur þeirra nefnda sem
starfað höfðu frá því í fyrra-
dag. Niðurstaðan varð sú að
sett var á fót 14 manna nefnd
fulltrúa frá öllum samningsað-
ilum, til þess að fjalla um
helstu ágreiningsmál sem upp
komu í nefndunum, önnur en
laun. Deiluaðilar og sáttasemj-
ari leggia áherslu á að íjúlca
samningum fyrir helgi, m.a.
vegna þess að eftir föstudaginn
er ekkert hótelpláss að fá í
bænum.
Guðlaugur Þorvaldsson sátta-
semjari sagðist í gær eiga von á
næturfundi síðustu nótt eða þá
segir Þórarinn V. Þórarinsson
næstu, enda væri æskilegt að
ljúka samningum fyrir helgi.
„Það er eðlilegur gangur á
þessu. Það er búið að ræða öll
þessi mál í mánuð í Verka-
mannasambandinu og við erum
að fara yfir þetta á mettíma,"
sagði Þóra Hjaltadóttir formaður
Alþýðusambands Norðurlands í
samtali við Dag. Þóra sagði að
vilji væri fyrir því hjá báðum aðil-
um að ljúka samningum fyrir
helgi.
„Ég ætlast til þess að niður-
stöður liggi fyrir, fyrir helgi enda
er ekki eftir neinu að bíða. Það
gengur hins vegar alveg hroða-
lega hægt vinnulagið hérna,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson
framkvæmdastjóri VSÍ í gær. Um
ástæðuna fyrir þessum seinagangi
sagði hann að svo virtist sem „hin
samhenta forysta almennra
verkalýðsfélaga" ætti erfitt með
að ná sáttum innbyrðis. „Mjög
mismunandi sjónarmið í þeirra
hópum, í mikilvægum atriðum,
hafa tafið framgang mála hér
meira en ég átti von á,“ sagði
Þórarinn.
Fundur fjórtán manna nefnd-
arinnar hófst að afloknu matar-
hléi í gærkvöld, og stóð enn þeg-
ar blaðið fór í prentun. Nefndin
mun m.a. fjalla um sveigjanlegan
vinnutíma og starfsaldurshækk-
anir. ET
Neðri deild:
Bjórinn samþykktur
Neðri deild Alþingis sam-
þykkti í gær bjórfrumvarpið
svokallaða með 21 atkvæði
gegn 17. Málið fer nú til þriðju
umræðu og þaðan til efri deild-
ar eftir páska.
Atkvæðagreiðslan var ótvíræð-
ur sigur fyrir bjórsinna og er nú
líklegra en oft áður að bjórinn
verði leyfður hér á landi. Frum-
varpið á að vísu eftir að fara í
þrjár umræður í efri deild en
miðað við skoðanakannanir er
stuðningur við bjórinn eindregn-
ari í efri en þeirri neðri.
Enn er þó of snemmt að spá
um endanleg örlög þessa frum-
varps því líklegt má telja að bjór-
andstæðingar reyni að tefja málið
sem mest í meðförum efri deild-
ar. AP