Dagur - 24.03.1988, Page 2
2 - DAGUR - 24. mars 1988
Ferðamál:
Auglýsinga-
herferð fyrir
Tröllaskaga
Ferðamálanefndir Siglufjarð-
ar-, Ólafsfjarðar- og Dalvíkur-
bæjar ásamt Hríseyjarhreppi
og hagsmunaaðilum á þessum
stöðum ætla í sumar að gera
sameiginlegt átak til að fá
ferðafólk til að fara fyrir
Tröllaskagann. Þessir aðilar
munu leggja saman fjármuni
til að greiða auglýsingaherferð
en ætlunin er að auglýsingar
verði birtar í blöðum, útvarpi
og ferðamannabæklingum.
„Við ræddum þessi mál í fyrra
og við erum óánægðir með hve
fólk fer lítið út af hringveginum
þ.e. fyrir Tröllaskagann. Með
auglýsingaherferð sem er að fara
í gang ætlum við að benda fólki á
þessa leið og þá fjölmörgu staði
sem hún hefur upp á að bjóða,“
segir Birgir Steindórsson formað-
ur ferðamálanefndar Siglufjarð-
ar.
Birgir segir að þeir aðilar á
Siglufirði sem haft hafi verið
samband við vegna þessa hafi
tekið mjög vel í þessa hugmynd
enda hafi viðhorf manna til
ferðamannaþjónustu verið mun
jákvæðari á seinni árum en áður.
Aðstaða fyrir ferðamenn fer
stöðugt batnandi á staðnum og í
sumar verður tekið í notkun stórt
og glæsilegt tjald- og tjaldvagna-
stæði þar sem aðstaða er eins og
best verður á kosið. JÓH
Frá opnun hins nýja fyrirtækis. Frá vinstri: Benedikt Sveinbjörnsson starfsmaður Fells, Hallgrímur Einarsson
frá DNG, Kristján Jóhannsson framkvæmdastjóri DNG og Valtýr Hreiðarsson starfsmaður Fells hf. Mynd: tlv
Trón hf:
Nýtt hugbúnaðarfyrirtækl
Nýlega tók til starfa nýtt
fyrirtæki á sviði hugbúnaðar
og tölvutækni á Akureyri.
Fyrirtækið heitir Trón hf. og
að því standa fyrirtækin Fell
hf. og DNG.
Hið nýja fyrirtæki er til húsa
að Tryggvabraut 22, en á sama
stað flutti Fell hf. fyrir skömmu.
Markmiðið með rekstri fyrir-
tækisins er að veita norðlensk-
um fyrirtækjum þjónustu á sviði
tölvumála og rekstrarráðgjafar.
Með samstarfi fyrirtækjanna
tveggja, DNG og Fells hf, er að
sögn forráðamanna fyrirtækj-
anna stefnt að því að nýta þekk-
ingu þeirra til að mæta ört vax-
andi þörf smárra og meðal-
stórra fyrirtækja fyrir einfaldar
lausnir í tölvuvinnslu.
Karlakórinn Heimir:
Syngurá
listahátíð
í Israel
Karlakórinn Heimir í Skaga-
firði hefur ákveðið að taka
boði sem hann fékk frá mennta-
málaráðuneyti ísraels um að
syngja á listahátíð landsins í
vor. Hátíðin mun standa í
mánuð frá miðjum maí til miðs
júní. Þar munu koma fram
listamenn frá öllum heimsálf-
um, þ.á m. mun Verónaóperan
flytja óperu Verdis Nabucco
úti á múrum Jerúsalemborgar.
Kórinn mun syngja í fjórum
borgum í ísrael; Jerúsalem,
Askelon, Haifa og Tíberias við
Galileuvatn. Þá er í deiglunni að
kórinn syngi kirkjuiega tónlist á
Betlehemsvöllum í Nazaret, við
Galileuvatnið og í Jerúsalem,
vegna gerðar kvikmyndar um
Landið helga sem íslenska sjón-
varpið áformar að gera.
„Þetta verður mikil ævintýra-
ferð og allir að sjálfsögðu tilbúnir
að gera sitt besta,“ sagði Þorvald-
ur G. Óskarsson formaður Heim-
is. Haldið verður í ferðina 6. júní
og komið aftur 21. júní. Mennta-
málaráðuneyti ísraels tekur þátt í
ferðakostnaði og uppihaldi kór-
fólksins. Þátttaka í ferðina er
góð, en hafi einhverjir velunnara
kórsins hug á að fara með, eru
enn nokkur sæti laus. Stjórnandi
Heimis er Stefán R. Gíslason og
undirleikari Catharine Louise
Sídeell. -þá
Lóð Malar- og steypustöðvarinnar:
Gamla malarharpan rifin
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
framvkæmdastjóri Malar og
sands hf. á Akureyri, hefur
sent bygginganefnd erindi þar
sem hann fer fram á aö fá til 4
ára afnot af lóð þeirri sem áöur
tilheyröi Malar og steypustöð-
inni hf. norðan Þingvallastræt-
is. í erindinu greinir Hólm-
steinn frá því að ætlunin sé að
Akureyrarbær:
Nýir fram-
kvæmdastjórar
frá 1. apríl
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum á þriðju-
dag að staðfestar verði breyt-
ingar á starfssviði þriggja
yfirmanna hjá Akureyrarbæ,
en bæjarráð samþykkti tillögur
í þessu efni á fundi sínum 10.
mars. Breytingarnar taka gildi
þann 1. apríl n.k.
Breytingarnar, sem eru í sam-
ræmi við tillögur stjórnkerfis-
nefndar sem samþykktar voru í
bæjarstjórn 12. janúar s.l., eru
eftirfarandi:
Valgarður Baldvinsson, núver-
andi bæjarritari, verður fram-
kvæmdastjóri fjármála- og
stjórnsýslusviðs.
Stefán Stefánsson, núverandi
bæjarverkfræðingur, verður
framkvæmdastjóri tæknisviðs.
Jón Björnsson, sem nú gegnir
embætti félagsmálastjóra, verður
framkvæmdastjóri félags- og
fræðslusviðs.
Ennfremur kom fram, að
starfssvið annarra yfirmanna
verði óbreytt fyrst um sinn.
Bæjarstjóra var falið að gera nýj-
ar starfslýsingar fyrir hina nýju
yfirmenn sviðanna þriggja. EHB
rífa gömlu malarhörpuna efst á
lóðinni, og jafnframt að sá
hluti lóðarinnar sem liggur
meðfram Glerá verði girtur
með bárustáli.
Bæjarstjórn samþykkti að
verða við þessu erindi að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum, en
þau eru að Möl og sandur hf. sjái
til þess að öll mannvirki á lóð-
inni, sem áðurtilheyrðu Malar og
steypustöðinni, verði fjarlægð
hið fyrsta á kostnað Malar og
sands hf. Gengið verði frá sárum
í landslagi þannig að sem minnst
ummerki sjáist, og að lóðin verði
girt í samráði við byggingafull-
trúa. Garðyrkjustjóri skal hafður
með í ráðum varðandi lóðarfrá-
gang.
Möl og sandur hf. hefur haft
afnot af þessari lóð allt frá því að
fyrirtækið eignaðist Malar og
steypustöðina á uppboði árið
1981. Möl og sandi hf. var veitt
bráðabirgðaleyfi fyrir lóðinni, en
að sögn Hólmsteins var það
útrunnið og þurfti því að sækja
um á nýjan leik. Möl og sandur
hf. mun ekki hafa afnot nema af
neðri hluta lóðarinnar næstu 4
árin.
Malar og steypustöðin hf. var
stofnuð árið 1961, og fram-
kvæmdastjóri hennar til 1973 var
Magnús Oddsson á Glerá. Stofn-
endur og meðeigendur auk
Magnúsar voru Gunnar og
Hreinn Óskarssynir, Tryggvi
Sæmundsson, Sverrir og Guð-
mundur Georgssynir og Sigurður
Hannesson, allir búsettir á Akur-
eyri. Eigendaskipti urðu að fyrir-
tækinu um áramótin 1973-74, og
var Pálmi Geir Jónsson fram-
kvæmdastjóri frá þeim tíma til
1976. Tryggvi Pálsson var stjórn-
arformaður síðustu árin, en
skiptalok í búinu fóru fram árið
1982. EHB
Gamla malarharpan við Glerá.
Húsavík:
gL'L'É moA
MICU
Félagsmálaráð mælir ekki
að dagheimilið verði opið allt sumarið
Lilja Skarphéðinsdóttir, vara-
bæjarfulltrúi lagði nýlega fram
tillögu í bæjarstjórn þess efnis
að dagheimilinu Bestabæ verði
ekki lokað vegna sumarleyfa
nk. sumar og framvegis. Tillög-
unni var vísað til félagsmálaráðs
sem nú hefur fjallað um málið.
Það varð samdóma álit félags-
málaráðs að ekki væri hægt að
framkvæmda þennan lið tillög-
unnar í andstöðu við forstöðu-
mann og fóstrur.
Hins vegar sá félagsmálaráð
ekkert því til fyrirstöðu að opn-
unartíma dagheimilisins yrði
breytt en Liija gerði það eir.nig
að tillögu sinni að opnað yrði kl.
7.15 á morgnana.
Helga Stefánsdóttir, forstöðu-
maður Bestabæjar og Jóna Freys-
dóttir, fóstra mættu á fundinn að
beiðni félagsmálaráðs. Fram kom
í máli Lilju að hún hafi hugsað
sér að hægt mundi vera að skipta
börnunum niður á sumarleyfis-
tíma, þannig að ákveðinn fjöldi
barna yrði í fríi í einu í samráði
við foreldra og jafnvel að einni
deild í einu yrði lokað.
Fram kom hjá forstöðumanni
og fóstru að margoft væri búið
að skoða þessi mál og niðurstað-
an hefði ávallt orðið sú sama, að
útilokað væri að hafa heimilið
opið allt sumarið. Þá þyrfti m.a.
að ráða 5-6 afleysingakonur í
þrjá mánuði og svo mikil manna-
skipti væru mjög óheppileg fyrir
börnin. í vor og sumar verða
óvenjulega mikil skipti á börnum
þar sem 6 ára börn fara af heimil-
inu en ný koma í þeirra stað.
Einnig kom fram að fyrir nokkr-
um árum hefði lokunartíminn
verið styttur í þrjár vikur og verið
þannig í tvö sumur, það hefði
gengið mjög illa og því hefði lok-
unartímanum aftur verið breytt í
fjórar vikur. Frekar væri verið að
lengja lokunartíma dagheimila í
nágrannasveitarfélögum.
Niðurstöðum félagsmálaráðs
hefur nú verið vísað til bæjar-
ráðs. IM