Dagur - 24.03.1988, Side 3
24. mars 1988 - DAGUR - 3
Blönduós:
Verkamannaíbúðir
dýrarí en annars staðar
Gífurlegur vcrðmunur er nú á
nýbyggðu íbúðarhúsnæði sem
nú er á markaðinum á þéttbýl-
isstöðunum í Húnavatnssýsl-
um. Ibúðir sem byggðar hafa
verið á Blönduósi á vegum
félagslega húsnæðiskerfisins
virðast mun dýrari en sam-
bærilegt húsnæði á Hvamms-
tanga og Skagaströnd.
Eðvarð Hallgrímsson, húsa-
smíðameistri á Skagaströnd
byggði á sl. ári fjórar íbúðir í ’
svokölluðum keöjuhúsum, sem
tengd eru saman með bílskúrum.
Grunnflötur húsanna er 80 fm
og þau eru byggð á tveimur hæð-
um svo íbúðirnar eru um 160 fm
að viðbættum 34 fm bílskúr.
Þessi hús seldi Eðvarð í nóv. á
síðastliðnu ári á 2,9 milljónir.
Húsin voru þá fullfrágengin að
utan, með frágenginni lóð og til-
búin undir einangrun að innan. í
húsunum eru steyptar loftplötur.
Að sögn Eðvarðs ættu þessi
hús ekki að geta farið yfir 5,5
milljónir króna fullfrágengin að
öllu leyti.
Eðvarð sagði að mikill skortur
væri á húsnæði á Skagaströnd, og
kvaðst hann stefna að því að
halda áfram íbúðarbyggingum, ef
hann fengi til þess nauðsynlegt
fjármagn.
Á árinu 1985 hóf Byggingarfé-
lagið Starri á Hvammstanga
byggingu á átta íbúða blokk á
þremur hæðum.
Umferðarsektir:
Tvö þúsund
krónur ef
belti og Ijós
gleymast
Kíkissaksóknari hefur gefið út
skrá yfír meginflokka brota,
sem sektarheimild lögreglu-
stjóra nær til og leiðbeiningar
um upphæðir sekta. Fljótlega
mega ökumenn og farþegar
þeirra eiga von á að sektum
verði beitt vegna vanrækslu á
notkun öryggisbelta.
Upphæð sú sem greiða þarf
fyrir brot gegn reglum um notkun
öryggisbeltis er 1000 krónur. Ef
aðalljós eru eigi tendruð eða ekið
með háum ljósgeisla í stað þess
lága ber viðkomandi að greiða
1000 krónur í sekt.
Hæstu sektir á lista ríkissak-
sóknara er t.d. ef öxulþungi er
30% umfram leyft hámark eða
krónur 12000. Þá skal greiða
6000 krónur ef ekið er 31-40
kílómetrum hraðar en leyfilegt
er, en sektin er hlutfallslega lægri
ef munurinn er minni. Ef ekið er
gegn rauðu ljósi og ef ekki er
stöðvað við stöðvunarmerki er
sektin 4000 krónur.
Þeir sem aka fram úr þar sem
bannað er, t.d. við gangbraut og
vegamót, brjóta almennan
umferðarrétt og virða ekki
umferðarrétt eða brjóta á skyld-
um gagnvart gangandi vegfarend-
um, aka bifreiðum eða bifhjóli án
réttinda eða vanrækja að fara
með ökutæki til aðalskoðunar,
greiða 3000 krónur. VG
í blokkinni eru fjórar þriggja
herbergja íbúðir 94 fm að stærð
og fjórar þriggja herbergja íbúðir
76 og 72 fm. Húsið var gert fok-
helt á árinu 1985 og var í fyrstu
fyrirhugað að selja íbúðirnar á
frjálsum markaði en þar sem ekki
fékkst fjármagn til að halda
áfram við bygginguna stóð húsið
fokhelt til vorsins 1987. Þá keypti
stjórn verkamannabústaða stærri
íbúðirnar og hefur verið unnið í
þeim síðan og er áætlað að þeim
verði skilað fullbúnum í maí.
Verð þeirra mun vera liðlega 3,4
milljónir.
Blokkin er byggð samkvæmt
teikningu frá Húsnæðismála-
stofnun og samkvæmt kostnaðar-
áætlun þaðan, virðist húsið vera
byggt fyrir 92% af áætluðu verði.
Hvammstangahreppur hefur
sótt um leyfi til að kaupa fleiri
íbúðir í blokkinni inn í verka-
mannabústaðakerfið.
í okt. sl. hóf Stígandi hf. á
Blönduósi byggingu tveggja
íbúða parhúss, á vegum verka-
mannabústaðakerfisins. Þetta
eru 93 fm íbúðir og er verið að
skila þeim fullbúnum. Verð
þeirra er 4,7 milljónir og þykir
mörgum þær nokkuð dýrar.
Innifalin í þessu verði er
algjörlega fullfrágengin lóð.
Áð sögn Hilmars Kristjánsson-
ar, framkvæmdastjóra Stíganda,
byggði fyrirtækið báðar íbúðirnar
fyrir 7,5 milljónir króna. Mis-
munurinn, 1,9 milljónir hefðu
farið í annan kostnað, svo sem,
fjármagnskostnað, gatnagerðar-
gjöld, heimtaugagjöld og þóknun
til húsnæðismálastjórnar. fh
Verðhrun
á vinnufatnaði
Okkar litla króna er verðmeiri, en álitið er
Vinnubuxur
St. 48-60. Mittismál 86-114 cm. 2 litir.
Verð aðeins kr. 783.-
Vinnujakkar
Stærðir 48-60. Verð kr. 783.-
Vinnusamfestingar
Stærðir 48-60. Verð kr. 1.404 og 1701.-
★ Dúndurgóð vara ★
Hvar gerast kaupin betri á Eyrinni?
1|1 EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
WS4
í/ir/M-Á/rr
bílskúrshurðaopnarinn
sparar tíma og fyrirtiöfn
Allt streð við bílskúrshurðina í misjöfnun veðrum er úr sögunni.
Pú þrýstir á einn Imapp og Ultra-lift opnarinn vinnur verkið fljótt og örugglega
ULTRA-UFT
★ er áreiðanlegur
★ er aflmikill '
★ er al-sjálfvirkur
★ er háþróuð gæðavara
★ er þægilegur í uppsetningu
★ er fyrirferðarlítill
★ lýsir upp bílskúrinn og aðkeyrsluna
★ lokar og læsir hurðinni
Ultra-lift er nú til afgreiðslu á AKUREYRI með 2ja ára ábyrgð og 2ja vikna skilafresti
Greiðsiukjör við allra hæfi. Staðgreiðsluverð kr. 19.625.-
Leitið frekari upplýsinga og gerið pantanir strax í síma 22557 frá kl. 10-12 og 2-4
ULm-UFT
er lausnin
TRANSIT HF.