Dagur - 24.03.1988, Síða 4
4 - ÐAGUR - 24. mars 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 60 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960),
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÓGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Samvinnuhreyfing
á tímamótum
Málefni samvinnuhreyfingarinnar á íslandi hafa verið
mjög í brennidepli að undanförnu. Engum þarf að koma
það á óvart miðað við hin miklu ítök hennar í íslensku
atvinnulífi.
Samvinnuhreyfingin er stofnuð af bláfátækri alþýðu
þessa lands í lok síðustu aldar. Erlendir kaupmenn lögðu
afar mikið á vöru sína og því tókst frumherjunum að
byggja upp eigið fjármagn með tilkomu stofnsjóðanna,
sem urðu að veruleika upp úr síðustu aldamótum. Á til
þess að gera skömmum tíma tókst samvinnumönnum að
koma upp öflugum atvinnurekstri á ýmsum sviðum hins
íslenska atvinnulífs. Alla tíð síðan hefur brotið á sam-
vinnuhreyfingunni í þjóðlífinu. Hún hefur verið það afl
sem staðið hefur í vegi fyrir alræði stóreignarmanna í
íslensku atvinnulífi.
Vísir menn hafa stundum sagt að við þekkjum ekki
hugsjónir okkar þegar þær eru komnar í vinnufötin og
farnar að starfa fyrir okkur. Þetta á vissulega við um sam-
vinnuhreyfinguna, sem og aðra starfsemi sem byggir á
félagslegum grunni. Þar eru kröfurnar líka oft mestar. Þar
vænta margir mikils. Það er alveg ljóst að þörfin fyrir
öflugan atvinnurekstur í höndum almannasamtaka er
jafn brýn nú og í árdaga samvinnuhreyfingarinnar. Það
væri jafn slæmt fyrir íslenskt atvinnulíf nú og fyrir 100
árum að það færðist á hendur tiltölulega fárra efnamanna.
En hvers vegna þessar hugleiðingar nú? Standa sam-
vinnufélögin ekki á traustum grunni nú sem áður, tilbúin
til áframhaldandi þátttöku í þjóðlífinu? Til þess að meta
það verðum við að horfa til þeirra breytinga sem orðið
hafa í þjóðfélaginu frá því að rekstur samvinnufélaga í
núverandi formi hófst upp úr síðustu aldamótum. Þar
hafa þær breytingar orðið að íslenskt atvinnulíf hefur
smám saman breyst úr bláfátæku bændasamfélagi, til
handa hverju samþykktir samvinnufélaganna voru samd-
ar í upphafi, í þróað iðnaðarsamfélag þar sem tekjur á
hvern íbúa eru með þeim hæstu sem þekkjast. Rekstur
samvinnufélaganna hefur verið að aðlaga sig þessum
breyttu aðstæðum á undanförnum árum og áratugum -
innan þess ramma sem starfsreglur samvinnufélaganna
segja til um. Þann ramma verður nú að fella að breyttum
þjóðfélagsháttum.
í atvinnulífi sem að miklu leyti byggist á greiðum
aðgangi að fjármagni gengur ekki að eigendur fyrirtækj-
anna, félagsmennirnir í samvinnufélögunum, geti ekki
lagt þeim til eigið fé við uppbyggingu eða þegar illa árar.
Gæta verður þess þó að halda áfram hinu lýðræðislega
formi þar sem hver félagsmaður hefur eitt atkvæði. Það
væri andstætt grundvallarhugmyndum samvinnumanna
að láta fjármagnið ráða alfarið í atvinnurekstri sínum.
Takist ekki að aðlaga samvinnureksturinn betur
breyttum rekstraraðstæðum er vaxandi hætta á að honum
verði skákað rit úr íslensku atvinnulífi með ófyrirsjáanleg-
um afleiðingum fyrir það fólk og þau byggðarlög sem
hafa reitt sig á hann. Eitt er víst að þeir menn sem nú fara
mestan í íslensku fjármálalífi munu ekki spyrja að leiks-
lokum um þær hugsjónir sem samvinnumenn hafa frá
upphafi viljað setja í öndvegi. JGS.
Þrengir mjög að grásleppu-
hrognamarkaðinum
- Halldór Asgrímsson svarar fyrirspurn frá
Valgerði Sverrisdóttur um grásleppuveiðar
Haildór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra svaraði á Alþingi
fyrirspurn frá Valgerði Sverris-
dóttur um grásleppuveiðar og
söluhorfur á grásleppuhrogn-
um á komandi vertíð. I svari
ráðherra kom fram að sölu-
horfurnar eru ekki bjartar
vegna mikilli birgða í landinu
frá síðustu vertíð og vegna
aukinnar samkeppni frá öðrum
framleiðslulöndum.
Halldór gerði grein fyrir þeim
breytingum sem verða á lögum
um grásleppuveiðar í ár. Þær eru
helstar að veiðarnar eru nú aftur
leyfisbundnar og er það gert til
þess að fá nákvæmari skýrslur
um veiðarnar og til að tryggja
greiðslur í greiðslumiðunarkerf-
ið.
Veiðitímabilin eru ákveðin að
mestu eins og fyrir 1986 og er
veiðitíminn því í raun þrengdur
frá síðustu tveimur árum. Einnig
er ákveðinn hámarksnetafjöldi á
bát og felast í því takmarkanir á
veiðunum.
í svari ráðherra kom fram að
Landssamband smábátaeigenda
hefur beint þeim tilmælum til
grásleppuveiðimanna, að þeir
hefji ekki veiðar á komandi ver-
tíð fyrr en þeir hafa tryggt sér
sölu á þeim hrognum sem þeir
koma til með að afla.
Nú eru til 9000 tunnur af grá-
sleppuhrognum í landinu og ekki
má búast við því að verksmiðjur
hér innanlands kaupi mikið af
hrognum á komandi vertíð.
Utanlands lítur ekki mjög vel út
með sölu vegna aukinnar sam-
keppni frá Norðmönnum og
Kanadamönnum. Kaupendur og
Fyrir milligöngu Skífunnar hf.
hafa tekist samningar við
bresku hljómsveitirnar The
BIow Monkeys og The Christi-
ans, um að þær spili hér á
Listahátíð, 16.-18. júní í
sumar. Báðar þessar hljóm-
sveitir hafa staðið í fylkingar-
brjósti breskrar popptónlistar
síðustu ár og eru íslenskum
tónlistaráhugamönnum að
góðu kunnar.
The Blow Monkeys var stofn-
uð 1984. Forsprakki hennar er
söngvarinn og gítarleikarinn Dr.
Robert Howard. Auk hans eru í
sveitinni Neville Henry saxafón-
leikari, Tony Kiley trommari og
bassaleikarinn Mick Anker.
Hljómsveitin hefur gefið út
þrjár breiðskífur - Limping for a
umboðsmenn telja raunhæft að
hægt verði að tryggja sölu á um
það bil 12.000 tunna veiði á
næstu vertíð miðað við 1100 þýsk
mörk á tunnu. Verði veiðin meiri
mun það óhjákvæmilega hafa
áhrif á markaði. AP
Geraration (1984) - Animal
Magic (1986) og She was only a
Grocer’s Daughter (1987).
The Blow Monkeys eru um
þessar mundir að vinna að nýrri
breiðskífu sem lítur einmitt dags-
ins ljós í sumar.
The Chrístians var stofnuð í
Liverpool 1985 af Christians
bræðrunum þrem. Síðar bættist
svo Henry Priestman í hópinn og
einn bræðranna hætti. The
Christians er nú þannig skipuð:
Garry A. Christian söngvari,
Russel Christian saxafónleikari
og Henry Priestman hljómborðs-
og gítarleikari.
Meðal laga The Christians sem
notið hafa mikilla vinsælda má
nefna Forgotten Town, When
the Fingers point, Hooverville og
Ideal World.
Listahátíð 1988:
The Blow Monkeys
mæta til leiks
viðtal dagsins
„Stefnt að sjáif-
stæði íbúanna
- segir Lilja Sæmundsdóttir
um væntanlegt sambýii fatlaðra á Húsavík
Sambýli fyrir fatlaða að Sól-
brekku 28 á Húsavík mun taka
til starfa á næstunni. Lilja
Sæmundsdóttir hefur verið
ráðin forstöðumaður sambýlis-
ins. Lilja er fædd og uppalin á
Patreksfirði, hún er sérkennari
og hefur mikla reynslu af að
vinna með fötluðum. Dagur
ræddi við Lilju og bað hana að
fræða lesendur um rekstur
sambýlisins og fyrirhugað form
á heimilishaldi í húsinu.
„Sambýlisformið er í þá áttina
að fötluðum sé gert kleyft að vera
sem virkastir þegnar í þjóðfélag-
inu. Húsið er eign ríkisins en
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á
Norðurlandi eystra sá um að
velja heppilegt hús og ganga frá
kaupum. Heimilistæki og hús-
gögn í sameign eru eign hússins
en íbúarnir leggja til húsgögn og
annað í sín eigin herbergi. Laun
starfsmanna greiðast úr ríkis-
sjóði. Vinnutími starfsfólksins
markast algjörlega af íbúunum
sjálfum, hvort þeir stunda vinnu
eða hvort þeir verða að vera
heima og hvort það þurfi að
skapa þeim meiri afþreyingu
heima en vinnan gerir úti á
almennum vinnumarkaði. íbú-
arnir greiða leigu og í heimilis-
sjóð."
- Hvað verða margir íbúar á
sambýlinu?
„Áætlað er að efri hæð hússins
nýtist fimm íbúum, það verða
íbúar sem að öllum líkindum
geta stundað vinnu úti í samfé-
laginu. í minn hlut kemur m.a.
að kanna möguleika á að fá vinnu
fyrir íbúana. Það er óskandi að
við getum komið þeim öllum í
vinnu, annað hvort allan eða
hálfan daginn. Þó verður ekki
unnt að setja það sem algjört
Sólbrekka 28 á Húsavík. Sambýli fyrir fatlaða.