Dagur - 24.03.1988, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 24. mars 1988
24. mars 1988 - DAGUR - 9
Bamajmðsla
í Gleráiþorpi 80 ára
- Vilberg Alexandersson, skólastjóri, tekinn tali
brúks af héraðslækni, en kalt
þótti í þeirri einu skólastofu sem
í húsinu var. Þremur árum síðar,
1919, var sett trégólf í húsið og
keyptur í það nýr ofn. Engin
kcnnsla var í húsinu milli 1916 og
1919, en kostnaður við breyting-
arnar var 750 krónur. Hreppur-
inn greiddi 12% af honum. Eftir
þetta var kennt samfleytt í húsinu
til ársins 1937.
Margir kennarar kenndu í
gamla skólahúsinu í Bótinni frá
1908 til 1938, eins og von cr til
þegar um þrjátíu ára skólastarf er
að ræða. Fyrsti kennari skólans
var Halldór Friðjónsson frá
Sandi, frá og með 1. nóvember,
og sinnti hann því starfi í þá fjóra
mánuði sem skólinn starfaöi. í
samantekt sinni á starfsemi
barnaskólanna á Akureyri í 100
ára afmælisritinu segir Eiríkur
Sigurðsson að næsti kennari við
skólann hafi verið Ingibjörg
Jóhannesdóttir frá Árnesi, en
kaup kennara var á þessum tíma
6 krónur á viku auk kr. 4,50 í
fæðispeninga ásamt húsnæði og
þjónustu fyrir hverja viku.
Margir fleiri kenndu við skól-
ann eftir þetta, en þegar Jóhann
Jóhannesson Scheving frá Ytra-
Hvarfi í Svarfaðardal réðst að
skólanum árið 1920 má telja
þáttaskil í sögu barnafræðslu í
Glerárhverfi. Jóhann hafði kenn-
arapróf og kenndi samfleytt við
þennan skóla í sautján á^, og í
tólf ár við Glerárskóla, alls 29 ár.
Jóhann var vinsæll kennari og
farsæll í sínu starfi, og hann gerð-
ist brautryðjandi í því að koma á
fót íþróttakennslu og kennslu í
handavinnu þegar hann réðst að
skólanum. I ritgerð Guðrúnar
Sigurðardóttur, sem birtist í
Súlum, segir svo um Jóhann
Scheving: „Pað var eins og hann
hefði alls staðar verið og vissi
bókstaflega allt þegar hann var
að kenna landafræði og sögu.
Hann sagði svo lifandi frá að allir
urðu að hlusta, og eitt er víst að
börnin sem erfiðara áttu meö
nám lærðu ekki síður en hin.“
Yerkalýðsfélagið barðist
fyrir nýjum skóla 1934
Næstu straumhvörf í sögu barna-
fræðslu í Glerárhverfi urðu árið
1934, en það ár barst hrepps-
nefnd Glæsibæjarhrepps erindi
frá Verkalýðsfélagi Glerárþorps
um nauðsyn þess að byggja nýtt
skólahús í Glerárþorpi, því börn-
um hefði fjölgað mikið í Porpinu
á umliðnum árum og gamla
skólahúsið í Sandgerðisbótinni
væri orðið allt of lítið og ófull-
komið. Hreppsnefndin vísaði
málinu til skólanefndar.
Skólanefnd fjallaði um þetta
mál, og 30. desember 1934 vai
ákveðið að ráðast í byggingu
skólahúss í landi Bandagerðis, á
ásenda sunnan Grímsstaða. Ekk-
ert varð þó úr framkvæmdum
næstu árin en árið 1937 féllst
skólanefndin á að hefja skyldi
byggingu skólahússins, en Snorri
Sigfússon, hinn þekkti skóla-
frömuður, hafði þá l.vatt til þess
að framkvæmdir hæfust sem
fyrst. Öruggt má telja, að
fræðslulögin frá 1936 hafi verkað
sem mikil hvatning á byggingu
nýs skóla í Þorpinu, því þá urðu
átta ára börn fyrst skólaskyld hér
á landi, en áður var skólaskylda
miðuð við 10 ára aldur.
„Þegar ég sé glöð andlit bamanna
gleymi ég öllum áhyggjum og amstri“
- Hvernig voru aðstæður skól-
ans þegar þú komst hingað fyrst?
„Húsakynni voru heidur frum-
stæð á þeim tíma. í Árholti voru
tvær sæmilegar kennslustofur, og
hægt var að opna á milli þeirra.
Sá galli var á þessu fyrirkomulagi
að mjög hljóðbært var, en þó var
kennt samtímis í báðum stofun-
um. Þá var ein lítil kennslustofa í
húsinu í viðbót, hún var upphaf-
lega notuð til smíðakennslu og
annarrar handavinnukennslu, en
þessa stofu notuðum við einnig til
almennrar kennslu, því þremur
deildum var kennt fyrir hádegi,
þ.e. 4., 5. og 6. bekk, en eftir
hádegi vorum við með 1., 2. og3.
bekk. Þarna var þröngt, og varla
var hægt að snúa sér við í kenn-
arastofunni, og engin aðstaða var
í skólanum til að tala sérstaklega
við foreldra o.s.frv.
Þó verð ég að segja að nem-
endafjöldinn hæfði þessu hús-
næði og þetta gekk mjög vel,
fannst mér. Árin sem við áttum í
Árholti voru um margt yndisleg.
Maður hugsaði stundum til þess
raðhús í miklum mæli.
Menn höfðu rætt um þörfina á
nýjum Glerárskóla um nokkurra
ára skeið, og til þess var veitt ein-
hverju fé á fjárhagsáætlun, en
framkvæmdir drógust alltaf úr
hömlu. Þó kom þar að ekki var
hægt að bíða lengur, og í ágúst
1971 tók Sigurður Óli Brynjólfs-
son, þáverandi formaður skóla-
nefndar, fyrstu skóflustunguna
hér, og eftir þetta var byrjað að
grafa grunninn að þessu húsi. Við
fluttum inn í A-álmu hússins og
hófum kennslu í henni 12. októ-
ber árið eftir.
Mér er það minnisstætt hversu
erfið skilyrði voru í nýja skólan-
um fyrsta haustið og reyndar all-
an þennan fyrsta vetur, 1972-’73.
Hér var þá engin almennileg
miðstöð, ekkert heitt vatn var í
krönum, loftræsting var nær eng-
in og mikið ryk í andrúmsloftinu,
sem var þungt. Þá vantaði betri
lýsingu í gangana og hljóðein-
angrun var engin þannig að það
buldi í göngunum eins og í tómri
tunnu.“
verður fyrst hægt að fara að nota
skólann eins og upphafleg hönn-
un jgerði ráð fyrir.
Eg segi stundum sem svo að
skólastarf gangi ágætlega héma
en þó er sitthvað umhendis,
bókasafn er niðri í kjallara og
fleira þar fram eftir götunum.
Þetta hefst með góðu starfsliði en
vinnuaðstaða er ekki sérlega
skemmtileg."
íþróttahús og sundlaug
- Hvernig hafa málin þróast með
tilliti til íþróttakennslu við
skólann?
„Fyrstu árin, sem ég var hérna,
fór sú kennsla fram í íþróttahús-
inu við Laugargötu, og síðar, eft-
ir að íþróttaskemman var tekin í
notkun, sóttu nemendur slíka
kennslu þangað. Nýtt íþróttahús
var vígt og tekið í notkun 11.
mars árið 1977, og það var stór-
kostlegur munur að geta haft
Sjá næstu síðu
Nemendur í Glerárskóla æfa leikrit fyrir skólasýninguna. Mikil undirbúningsvinna liggur að baki sýningunum hvert
ár.
Haustið 1937 var hafist handa
um bygginguna og jafnframt var
ákveðið að breyta skólanum úr
farskóla í fastan skóla. Skóla-
nefndarmenn á þessum tíma voru
þeir Guðmundur Kristjánsson,
Glæsibæ, Stefán Sigurjónsson,
Blómsturvöllum, og Þorsteinn
Hörgdal, Glerárþorpi.
Rétt eftir áramótin 1937-’38
flutti skólinn í nýja skólahúsið,
og þá fyrst var farið að tala um
skólann undir nafninu Glerár-
skóli. Fyrsti skólastjóri Glerár-
skóla var Pétur Finnbogason frá
Hítardal. Hans naut þó stutt við,
því hann veiktist af berklum síð-
ar um veturinn og andaðist á-
Kristneshæli 17. júní 1939.
Næstu 22 árin var skólinn til
húsa í þessu skólahúsi, og var
byggingin ekki stækkuð neitt fyrr
en árið 1960. Það ár var byggt við
skólann, enda hafði nemendum
fjölgað töluvert, og aðstaða ekki
nægilega góð að sumu leyti.
Nýbyggingin rúmaði eina litla
kennslustofu, kennarastofu,
geymslu og snyrtingar. Þrátt fyrir
þessar endurbætur varð fljótlega
mjög þröngt um skólann og þörf
á nýrri byggingu brýn.
Glerárþorp sameinast
Akureyri árið 1955
Skólastjórar við Glerárskóla, eft-
ir Pétur Finnbogason, hafa þessir
verið: Haraldur Vilhjálmsson,
1938-1946, Hjörtur L. Jónsson
frá Broddadaísá í Strandasýslu,
1946-1967 og núverandi skóla-
stjóri, Vilberg Alexandersson,
frá 1967.
Eins og kemur fram hér að
framan var Glerárskóli ekki í
landi Akureyrarbæjar heldur í
landi Glæsibæjarhrepps Iengi
framan af. Það er ekki fyrr en
árið 1955 að Glerárþorp verður
hverfi á Akureyri, en það ár sam-
einaðist Þorpið bænunt. Frá þeim
tíma hefur Glerárskóli verið tal-
inn einn af barnaskólunum á
Akureyri. Flestum mun nú þykja
þetta augljós staðreynd á okkar
tímum, en frá sjónarmiði
byggðasögu tilheyrðu hvorki
þessi skóli né skólinn í Sandgerð-
isbót lögsagnarumdæmi Ákur-
eyrar fyrstu 50 starfsár sín.
Árið 1971 voru 120 börn í
Glerárskóla, og var skólahúsið
þá orðið allt of lítið fyrir öll þau
börn, sem skólaskyld voru í Gler-
árhverfi. Þá var hafin bygging
nýtískulegs skólahúss fyrir Gler-
árskóla, vestan og norðan gamla
skólans. Gert var ráð fyrir því á
þeim tíma að nýi skólinn rúmaði
600 börn og spannaði kennslu-
skyldu allra árganga skyldunáms-
ins.
Gamla skólaluísið við Sandgerðisbót var lítið en þjónaði sínuin tilgangi vel í mörg ár.
Vilberg Alexandersson, skóla-
stjóri Glerárskóla, hefur starf-
að við skólann í meira en tvo
áratugi, en hann kom fyrst að
skólanum haustið 1967. Vil-
berg man tímana tvenna í sögu
skólans, því árið 1967 var enn
kennt í gamla skólahúsinu,
Árholti, en í dag er Glerárskóli
í nýtískulegu húsnæði. Þó
vantar nokkuð á, að skólinn
hafi verið fullbyggður sam-
kvæmt þeim hugmyndum, sem
upphaflega voru gerðar um
hönnun hússins. Blaðamaður
ræddi við Vilberg um starfsemi
skólans og ytri og innri aðstæð-
ur stofnunarinnar í tilefni af 80
ára afmæli barnafræðslu í
Glerárhverfi.
- Þú hófst störf við Glerár-
skóla árið 1967.'
„Já, það er rétt, ég kom fyrst
hingað það ár, um haustið. Þá
höfðum við hjónin verið eitt ár í
Ólafsfirði, og það var ákveðin
lífsreynsla fyrir mig að vera
búsettur þar. Þessi vetur, 1966-
’67, var mikill snjóavetur, og
þetta var í fyrsta skipti sem ég sá
svona mikinn snjó. Ég hélt, satt
að segja, að svona mikill snjór
væri ekki til.
í Ólafsfirði leysti ég Björn
Stefánsson, skólastjóra, af þenn-
an vetur, því hann fór í orlof.
Um vorið sá ég stöðu skólastjóra
við Glerárskóla auglýsta, og ég
sótti um starfið, en þá var Hjört-
ur L. Jónsson að hætta. Þetta ár,
1967, hættu tveir heiðursmenn í
stétt skólamanna á Akureyri
störfum, þeir Hjörtur og Eiríkur
Sigurðsson."
Þrjár kennslustofur
í gamla skólanum
- Ætlaðirðu þér að setjast að á
Akureyri til langframa?
„Ekki get ég sagt að það hafi
beinlínis verið ætlunin. En það
æxlaðist nú samt þannig. Konan
mín er Akureyringur, og flestallt
hennar skyldfólk búsett hérna.
Það er indælt fólk og mér þótti
ekki í kot vísað að setjast hér að.
Þetta er 21. árið sem við búum
hérna, og ég kann vel við mig á
Akureyri."
Vilberg Alexandersson hefur gegnt starfl skólastjóra við Glerárskóla frá árinu 1967.
þegar við vorunt 4-5 kennarar í
þessum litla skóla, að þegar við
fengjum stórt og rúmgott hús-
næði þá myndu verkin skiptast á
marga og verða léttari. Þó vill
það verða svo að í stórri stofnun
þarf miklu meiri verkaskiptingu
og hlutirnir vilja verða þungir í
vöfum. Það mætti orða þetta svo,
að vegalengdirnar hér innan
hússins geta verið býsna miklar.“
- Hvað voru margir nentendur
við gamla Glerárskólann á þess-
um tíma?
„Þau ár, sem við vorum í
gamla skólanum eftir að ég tók
við starfi, var fjöldi nemenda um
100, en flestir urðu þeir 120.
Yngri deildirnar voru fjöl-
mennastar. Á þessum árum, um
1970, var verið að byggja við
Áshlíð, Skarðshlíð og á fleiri
stöðum í kringum okkur þannig
að ekki var annað hægt en að
taka þau börn í skólann sem næst
honum bjuggu.
Skólinn var alltaf tvísetinn á
þessum tíma, eins og ég gat um
áðan. Við kenndum allar bókleg-
ar greinar auk sauma í gamla
skólanum, en smíðar voru
kenndar við Oddeyrarskólann,
sund var kennt í Sundlaug Akur-
eyrar en leikfimi var kennd í
íþróttahúsinu við Laugargötu."
- Var ekki mjög langur vegur
frá því að hægt væri að kenna öll-
um skólaskyldum börnum í Gler-
árhverfi í gamla skólanum?
„Jú, það var engan veginn
hægt. Þriðja kennslustofan var
t.d. það lítil að þar var ekki hægt
að kenna heilli deild. Auk þess
var skólinn erfið eining frá
rekstrarlegu sjónarmiði, því það
voru færri nemendur á hvern
kennara en í stóru skólunum.“
Nýr Glerárskóli byggður
- Hvert var upphaf þeirrar hug-
inyndar að byggja nýjan Glerár-
skóla?
„Hvatinn að því var einfald-
lega geysileg fólksfjölgun og
fjölgun skólaskyldra barna í
hverfinu. í Glerárhverfi voru
ntargar ungar og barnmargar
fjölskyldur að koma sér upp
húsnæði á þessum tíma, og hér
voru byggð bæði fjölbýlishús og
- Hvernig gengu bygginga-
framkvæmdir fyrir sig eftir þetta?
„Árið eftir, 1973, tókum við B-
álmuna í notkun, og þann vetur.
1973-’74, var húsrýmið mjög ríflegt
fyrir okkur. Þennan vetur gátum
við tekið heilan bekk úr Barna-
skóla Akureyrar, sem þá var
mjög þröngt setinn, en þetta var í
fyrsta skipti á Akureyri sem bekk
var ekið á milli skólahverfa.
Börnin, sem voru 7 ára, söfnuð-
ust saman á lóð Barnaskólans,
settust upp í rútu og var ekið
beina leið hingað. Þetta gekk allt
saman snurðulaust fyrir sig,
börnin komu og fóru öll á
nákvæmlega sama tíma.
Eftir þetta fór heldur að halla
undan fæti í húsnæðismálum á
nýjan leik, ef svo mætti segja, því
börnum og unglingunt fjölgaði
mjög mikið í hverfinu. Árið 1980
var ég farinn að senda frá mér
bekki, bæði í Oddeyrarskóla og
Barnaskóla Akureyrar. Þetta
haust, 1980, var níundi bekkur í
fyrsta skipti hér í skólanum, en
nokkrum árum áður hafði for-
skólakennsla verið tekin upp hér
í bænum. Húsnæðiö var því alveg
gjörsantlega sprungið utan af
okkur, og veturinn 1983-’84 var
svo komið að kennt var í hverri
einustu kompu í húsinu og við lá,
að taka yrði hópa til kennslu á
kennarastofu skólans. Ég hef
aldrei vitað annað eins, mikill
fjöldi nemenda var hér frá kl. 8 á
morgnana og langt fram á dag,
alla daga."
- Hvernig leystist þetta vanda-
mál?
„Þetta leystist með tilkomu
Síðuskóla. Þegar hann tók til
starfa fóru heilu bekkjardeildirn-
ar frá okkur í þann skóla, og eftir
það rýmkaðist aftur verulega um
okkar starf hérna niður frá. í dag
eru um 580 nemendur í Glerár-
skóla, og fjöldi nemenda í deild-
unum er orðinn mjög viðráðan-
legur, þetta um 20 nentendur í
deild og jafnvel færri. Þetta er
ljómandi gott út af fyrir sig. Þó er
ennþá heldur margt hérna, og
fyrst og fremst vantar okkur
stjórnunarálmu. Þar á að vera
bókasafn, kennarastofa og vinnu-
aðstaða kennara. Þegar stjórnun-
arálman verður komin í gagnið
Nemendur mála leiktjöld.
Xw'tTÍNMÆáoU/i.NSS'iofi t<í>i