Dagur - 24.03.1988, Side 11
íþróffir
.24„mars 1988- X>AGJL|fl -,11
Knattspyrna:
,UMF. Framtíð og
Arroðinn sameinast
Ungmennafélögin Framtíð og
Árroðinn í Eyjafirði ætla að
leika saman undir merki
íslandsmótið
í bekkpressu
íslandsmótið í bekkpressu fer
fram í Æfingastöðinni í Engi-
hjalla í Kópavogi á laugardag
og hefst kl. 16.
Þrír Akureyringar taka þátt í
mótinu, þeir Kári Elíson, Krist-
ján Falsson og Rúnar Friðriks-
son. Allir bestu kraftlyftinga-
menn landsins verða með í mót-
inu og því má búast við hörku-
keppni.
Kári Elíson er núverandi hand-
hafi íslandmeistaratitilsins í
bekkpressu en ljóst er að það
verður erfitt fyrir hann að halda
titlinum.
UMSE-b í 4. deildinni í knatt-
spyrnu í sumar. Árroðinn hef-
ur leikið í 4. deildinni undan-
farin ár en UMF. Framtíð hef-
ur ekki tekið þátt í deilda-
keppninni.
UMSE-b leitar nú logandi ljósi
að þjálfara fyrir komandi keppn-
istímabil en það hefur ekki geng-
ið allt of vel til þessa. En vel
kemur til greina að ráða þjálfara
sem einnig leiki með liðinu.
Félagið hefur ekki enn hafið
æfingar að neinu marki en um
leið og gengið hefur verið frá
ráðningu þjálfara, verður byrjað
af fullum krafti.
UMSE-b leikur í D-riðli 4.
deildar í sumar ásamt HSÞ-b í
Mývatnssveit, Æskunni á Sval-
barðsströnd, Eflingu í Reykja-
dal, Vask á Akureyri, íþróttafé-
laginu Neista á Hofsósi og Kor-
máki á Hvammstanga. Keppni í
deildinni hefst 28. maí og þá
mætast í 1. umferð Æskan og
Vaskur, UMSE-b og Neisti og
HSÞ-b og Kormákur.
Tckst Kára Maríssyni þjálfara Tindastúls aú leiða lið sitt til sigurs í 1. deild-
inni?
Annar
ráðinn
David Barnwell golfkennari
GA hefur ráðið sér til aðstoöar
enskan golfkennara og mun
hann hefja störf hjá GA um
miðjan næsta mánuð. Sá heitir
Peter Stacey og þykir nokkuð
snjall í sínu fagi.
Kylfingai í GA æfa af fullum
krafti í Stefnishúsinu að Óseyri 2
en þar fékk Barnwell inni.
þjálfari
til GA
Nokkrar breytingar hafa orðið á
æfingatímum yngstu kylfinganna
og eru þær þessar:
Á mánudögum á milli kl. 16-17
eru æfingar fyrir 12 ára og yngri.
Á sama tíma á miðvikudögum
æfa byrjendur 12 ára óg eldri og á
sama tíma á föstudögum er æfing
fyrir þá sem lengra eru komnir í
n
Bikarmót SKÍ:
Keppt á Dalvík
og Siglufirði
- í alpagreinum, göngu og stökki
Um helgina fer fram á Dalvík,
Visa-bikármót SKÍ í flokki
fullorðinna. Keppt verður
bæði í svigi og stórsvigi og er
þetta jafnframt síðasta bikar-
mót fyrir sjálft landsmótið.
Guðmundur Björnsson og félagar í Þór sækja Keflvíkinga heim á sunnudag.
Keppni í ún/alsdeild lýkur á sunnnudag:
Þór sækir ÍBK heim
Daníel Hilmarsson keppir á hcima-
velli um helgina.
Tindastóll frá Sauðárkróki get-
ur tryggt sér sigurinn í 1. deild
Islandsmótsins í körfuknattleik
annað kvöld og um leið unnið
sér sæti í úrvalsdeild að ári. En
þá fær liðið UIA í heimsókn í
síðasta leik liðanna.
Keppni í 1. deildinni lýkur um
helgina með fjórum leikjum.
Tveir þeirra fara fram annað
kvöld, Tindastóll og UÍA leika á
Króknum og ÍA og HSK á Akra-
nesi. Báðir leikirnir hefjast kl.
20. Á laugardaginn leika síðan
Mjög gott skíðafæri hefur ver-
ið í Böggvisstaðafjalli að undan-
förnu og hafa Dalvíkingar kunn-
að vel að meta það og fjölmennt
í fjallið. Allir bestu skíðamenn
landsins mæta til leiks á Dalvík
og verður fróðlegt að fylgjast
með þeim Daníel Hilmarssyni og
Ingigerði Júlíusdóttur á heima-
velli.
Það verður einnig mikið um að
vera á Siglufirði um helgina en
þar fer fram bikarmót í göngu og
stökki um helgina. f flokki full-
orðinna verður keppt í 15 km
göngu með frjálsri aðferð og 10
km göngu með hefðbundinni
aðferð. Þá verður einnig keppt í
göngu með hefðbundinni aðferð í
flokki unglinga. Og samkvæmt
mótaskrá SKÍ verður einnig
keppt í stökki á Siglufirði.
UMFS og ÍS í Borgarnesi og
Léttir og Reynir í Reykjavík.
Tindastóll þarf að vinna leik-
inn annað kvöld og ef það tekst
ekki, þarf liðið að leika aukaleiki
gegn Þór um sæti í úrvalsdeild,
svo framarlega sem ÍS vinni
Skallagrím. ÍS hefur bestu stöð-
una úr innbyrðisleikjunum við
Tindastól og UÍA og þó svo að
UÍA vinni Tindastól, lendir það
engu að síður í þriðja sæti, svo
framarlega sem IS vinni Skalla-
grím.
Keppni í úrvalsdeildinni í
körfubolta lýkur á sunnudag-
inn en þá fara fram fjórir síð-
ustu leikirnir. Framundan er
síðan úrslitakeppni fjögurra
efstu iiðanna. Njarðvíkingar
Stólarnir ætla sér ekkert annað
en sigur í leiknum annað kvöld
og eru bæjarbúar hvattir til þess
að mæta í höllina á Króknum og
hvetja þá til dáða.
hafa þegar tryggt sér ú'rvals-
deildartitilinn.
Auk Njarðvíkinga, leika Kefl-
víkingar, Valsmenn og að öllum
Haukar í úrslitakeppninni.
Haukar hafa hlotið 18 stig og eiga
eftir að leika gegn UBK en KR-
ingar sem hafa 16 stig mæta Vals-
mönnum í síðasta leiknum.
Haukar þurfa að vinna UBK til
þess að vera öruggir í úrslita-
keppnina, svo framarlega sem
KR-ingar vinni Valsmenn.
Þórsarar sækja Keflvíkinga
heim á sunnudagskvöld og
Grindvíkingar fá ÍR-inga í heim-
sókn. Allir leikirnir hefjast kl.
20. Þórsarar hafa þegar tryggt sér
aukaleik um sæti í úrvalsdeild að
ári og leika að öllum líkindum
gegn Stúdentum.
Körfubolti 1. deild:
Tekst Tindastól að
vinna deildina?
Knattspyrna:
Efling fær
liðsstyrk
Eflingu í Reykjadal sem leikur
í 4. deildinni í knattspyrnu í
sumar, hefur bæst góður liðs-
auki fyrir komandi keppnis-
tímabil. Þeir Elvar Grétarsson
og Jens Sigvarðarson frá Reyni
í Sandgerði hafa gengið til liðs
við félagið.
Elvar lék í marki Reynis í 3.
deildinni síðastliðið sumar og
Jens sem er einn efnilegasti
leikmaður liðsins, fékk að
spreyta sig í einum deildarleik.
Þá hefur Vilhjálmur Sigmunds-
son skipt yfir í Eflingu en hann
kemur frá Völsungi.
Loks má geta þess að Sigurgeir
Stefánsson leikmaður Völsungs,
hefur verið orðaður við Eflingu
samkvæmt heimildum blaðsins.
Hann er mjög sterkur leikmaður
og lék m.a. 4 leiki með Völsungi
í 1. deildinni á síðasta keppnis-
tímabili.
Akureyri:
Fimleika-
sýning
- í Höllinni
Fimleikaráð Akureyrar gengst
fyrir hcljarmikilli timleikasýn-
ingu í Iþróttahöllinni á Akur-
eyri á laugardag kl. 15. Um
240 börn og unglingar á aldrin-
um 5-20 ára munu sýna listir
sínar á öllum áhöldum.
Einnig murju fimleikastúlkur
frá Egilsstöðum koma í heim-
sókn og sýna listir sínar í Höll-
inni. Miðverö er kr. 200 fyrir full-
orðna en kr. 100 fyrir börn.
Bæjarbúar eru hvattir til þess að
mæta í Höllina og fylgjast með
fimleikafólkinu sýna hvað í því
býr.
Úrslitakeppni
yngri flokka:
Leikið um
heigina
Úrslitakeppni yngri flokka á
íslandsmótinu í handknattleik
verður fram haldið um helg-
ina. Þá verður leikið í 3. og 5.
flokki pilta og 3. og 5. flokki
stúlkna. Þór á lið í úrslitum í 3.
og 5. flokki pilta og 3. flokki
stúlkna.
Þórsstelpurnar þurfa að fara
alla leið til Vestmannaeyja en
úrslitakeppni þeirra fer þar fram.
Keppni hefst á morgun föstudag
og henni lýkur með úrslita-
leikjunum á sunnudag. Strákarn-
ir í 3. flokki leika í Digranesi í
Kópavogi og í Seljaskóla.
Keppni hefst annað kvöld en úr-
slitaleikirnir fara fram í Digra-
nesi á sunnudag.
Úrslitakeppni 5. flokks pilta
fer fram í KR-heimilinu og að
Varmá í Mosfellssveit. Keppni
hefst annað kvöld en sjálfir úr-
slitaleikirnir fara fram í Selja-
skóla á sunnudag.
Þá tekur 5. flokkur KA þátt í
B-úrslitakeppni um helgina og
fer hún fram að Varmá í Mos-
fellssveit og stendur fram á
sunnudag.