Dagur - 24.03.1988, Síða 15
24. mars 1988 - DAGUR - 15
t
Minning:
Jón Jónsson
Fæddur 25. maí 1905 - dáinn 21. febrúar 1988
Nú er horfinn mér að eilífu ást-
sæll móðurafi minn, Jón Jónsson.
Missir minn er mikill, svo og ann-
arra er hann þekktu. Afi skipaði
stóran sess í lífi mínu. Ekki
aðeins sem faðir móður minnar,
heldur sem maður er ég bæði virti
og dáði. Hann hafði marga þá
eiginleika til að bera, sem sjaldan
láta annað fólk ósnortið.
Það sem einkenndi afa öðru
fremur og setti svip á allt hans líf,
var lífskraftur hans og vilji. Allt
sem hann tók sér fyrir hendur var
unnið með vilja og sannfæringu.
Heiðarleikinn var og ávallt í
fyrirrúmi hjá honum. Hann stóð
fastur á skoðunum sínum og lét
þær óhikað í ljós.
Starf sitt sem kennari, tók afi
mjög alvarlega og þrátt fyrir að
hann þætti of strangur á
stundum, vann hann hylli og
virðingu flestra þeirra er hann
kenndi.
Þegar ég kynntist afa var hann
kominn á efri ár. Hann hafði hætt
störfum vegna heilsubrests en í
kjölfarið fylgdu róleg ár í ellinni.
Hann var þó ekki einsamall, því
við hlið hans sat kona hans,
Anna Arnfríður Arngrímsdóttir,
sem átti með honum níu börn. Á
undan starfinu var fjölskyldan
það mikilvægasta sem afi átti. En
þrátt fyrir að hvort tveggja tæki
mikinn hluta tíma hans, sló afi*
ekki slöku við í félagsmálum.
Hann átti sæti í hinum ýmsu
stjórnum og ráðum til fjölda ára.
Hann var oddviti hreppsins og
varaþingmaður Framsóknar-
flokksins, svo eitthvað sé nefnt.
Afi var mjög félagslyndur að
eðlisfari, enda gestagangur ávallt
mikill á heimili þeirra hjóna.
Það hryggir mig að ég skuli
ekki hafa þekkt afa minn lengur.
Að sama skapi gleður það mig aö
vita að afi kvaddi þennan heim
eftir langa og hamingjusama ævi.
Blessuð sé minning þín, afi
minn.
Helga Björk Eiríksdóttir.
Blótnabúðin
Laufás
auglýsir
Munið okkar mil
úrval
af fermingargjöfunuÍ^
M.a. lampar,
skartgripaskrín, styttur og
margt fleira.
Fermingarkerti og
kertastjakar.
Servéttur, kerti og
kertahringir allt í stíl
Afskorin blóm og
blómaskreytingar í úrvali.
ATH.
Höfum opið
fermingardagana.
Laugard. 26. mars kl. 9-16.
Sunnud. 27. mars kl. 9-16.
Skírdag kl. 9-16.
Laugard. fyrir páska
kl. 9-16.
Munið!
Opið í Sunnuhlíð
laugardaga frá kl. 10-16.
Blómabúðin Laufás
Hafnarstræti 96, sími 24250
Sunnuhlíð, sími 26250.
Skólastjóri
Staða skólastjóra við grunnskólann
á Hólmavík er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 8. apríl 1988.
Nánari upplýsingar gefa Þorkell Jóhannsson skóla-
stjóri í síma 95-3129 og 95-3123 og Stefán Gísla-
son, sveitarstjóri í síma 95-3193 og 95-3112.
Skólanefnd Hólmavíkurskóla.
AKUREYRARBÆR
Starfsfólk óskast
Dvaiarheimiliö í Skjaldarvík auglýsir eftir starfs-
manni til ræstinga, 70% vinna.
Vegna veikinda vantar einnig í afleysingar í borð-
stofu, vinnutími frá kl. 16-21.
Upplýsingar um störfin gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 23174 eöa 21640.
Upplýsingar um kaup og kjör gefur starfsmanna-
stjóri Akureyrarbæjar í síma 21000.
BILASYNING
X NÝIR FRÁ ISUZU
Isuzu WFR Sendibfll
Isuzu NPRVörubifreið
ISUZU
Fyrir sendibilstjóra, fyrirtæki og jeppaáhugamenn
Isuzu WFS 4x4 Sendibfll
með aldrifi.Bensín - dísil
Isuzu WFR7 sæta
Lúxusvagn með dísilvé
Isuzu TrooperS dyra LS
með nýrri aflmikilli 2,6 ltr. bensínvél
Váladeild KEA
Óseyri 2 Akureyri • Símar 21400 og 22997.
Verið velkomin og
kynnist frábærum bílum
frálsuzu kl.13 til 17
laugardag og sunnudag
Isuzu Trooper 3ja dyra
Ifjpl ö) -w.
m \\
CFTIR flRTHUR ÍTIILLGR
Leikstjóri: Theodór Júlíusson.
Leikmynd: Hallmundur Kristinsson.
Lýsing: Ingvar Björnsson.
Föstud. 25. mars kl. 20.30.
Laugard. 26. mars kl. 20.30.
MIÐASALA
SlMI
96-24073
l£IKF€LAG AKURGYRAR
Borgarbíó
Alltaf
nýjar
myndir
Slys gera ekki££>
boo a undan serlu-