Dagur - 24.03.1988, Blaðsíða 16
ONY-FLEX
Akureyri, fímmtudagur 24. mars 1988
íþróttahöllin:
Skósyllan er
ekki notuð
- segir Ágúst Berg, húsameistari
VATNS-
KASSA-
HOSUR
þÓRSHAMAR HF.
Varahlutaverslun
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
,Iþróttahöllin var hönnuð og
byggð þannig að í svokölluðum
„óhreina“-gangi á neðri hæð-
inni, sem liggur eftir endilöngu
húsinu, er upphækkuð sylla.
Ætlast var til þess að þeir sem
ganga um búningsklefa hússins
noti þessa syllu fyrir skóna
sína,“ sagði Ágúst G. Berg,
húsameistari Akureyrarbæjar
og einn af hönnuðum íþrótta-
hallarinnar í bænum, en und-
anfarið hefur Iþróttahöllin og
umgengni um hana verið
nokkuð til umræðu.
Ágúst sagði, að beiðni hefði
borist frá íþróttaráði um að láta
sotja upp 3 skóhillur í forstofu
hússins, en hingað til hefðu
starfsmenn íþróttahallarinnar
fylgt þeirri reglu að láta nemend-
ur og íþróttafólk klæða sig úr
skónum í forstofunni, en þar er
stundum aragrúi skópara og
umgengni því erfið.
Pessi regla hefur verið í gildi
Fyrsta
Akureyri:
kúluhús-
ið væntanlegt?
Bygginganefnd Akureyrar hef-
ur borist umsókn um lóðina
Einholt 26, til að byggja á kúlu-
hús. Það er Oli Þorsteinsson,
búsettur í Reykjavík, sem sæk-
ir um leyfi fyrir þessu fyrsta
kúluhúsi á Akureyri. Bygginga-
nefnd frestaði afgreiðslu um-
sóknarinnar.
Óli óskar eftir að byggingar-
reitur ióðarinnar verði 22x22
metrar, fyrir kúluhús sem yrði 22
metrar í þvermál. Gert er ráð fyr-
ir að hæð hússins verði 6-8 metrar
en þó verði það aðeins á einni
hæð. Þessuin atriðum var vísað
til skipulagsnefndar sem sam-
þykkti byggingu hússins fyrir sitt
leyti.
Óli sagði í samtali við Dag að
teikning hússins myndi fara af
stað strax ef umsóknin yrði
afgreidd jákvætt. „Þetta eru mun
„praktískari" hús en önnur,“
sagði Óli um ástæðuna fyrir því
að hann vildi byggja hús af þess-
ari gerð. Ef ekki fæst leyfið þá
hyggst Óli reisa sér hús í Reykja-
vík. . ET
árum saman þrátt fyrir skósyll-
una í ganginum, að sögn Ágúst-
ar. Hann sagðist hafa spurst fyrir
um hverju það sætti að syllan
væri ekki notuð og hefði fengið
þau svör að slíkt hefði verið reynt
í fyrstunni en hætt var við það
vegna örtraðar í dyrum í norður-
enda gangsins. „Ég vil benda á að
forsendur hafa breyst eftir að
malbikað plan og stéttar komu á
lóðina, þá ætti minna að berast
inn. Mörg niðurföll eru í óhreina
ganginum og auðvelt er að spúla
hann eða hreinsa á annan hátt,“
sagði Ágúst.
Húsameistari sagði að lokum
að menn þyrftu að kynna sér
þetta og fleiri hluti áður en þeir
dæmdu um hönnun slíkra mann-
virkja. „Skóhillur voru á áætlun
hjá okkur í fyrra en þá var ákveð-
ið að fara í framkvæmdir við
kjallara hússins sem reyndust
kostnaðarsamar, og því sátu
skóhillur og margt annað á hak-
anum svo framúrkeyrsla yrði
ekki meiri en hún varð,“ sagði
Ágúst.
Aðalsteinn Sigurgeirsson,
starfsmaður Hallarinnar, sagði
sitt álit vera að óheppilegt væri
að nota sylluna fyrir skó, því fólk
myndi í mörgum tilvikum ekki
fara eftir umgengnisreglum og
fara inn í húsið á skónum.
Óhreinindi myndu berast inn í
búningsklefa vegna nálægðar við
ganginn, „en við leggjum mikla
áherslu á þrifnað. Skóhillur í for-
stofu hafa verið á dagskrá í lang-
an tíma“. EHB
Þarna á að geyma skóna, segir húsameistari.
Mynd: TLV
Þingeyjarsýslur:
Verða þrjú
kaupfélög
sameinuð?
„Eg hef sagt að menn kunni að
sjá ákveðna hagkvæmni í sam-
starfi eða jafnvel sameiningu
þessara þriggja kaupfélaga,
bæði hagkvæmni í versluninni
og ekki síst í sláturhúsa-
rekstri,“ sagði Hreiðar Karls-
son, kaupfélagsstjóri á Húsa-
vík, en undanfarið hefur heyrst
að verið væri að kanna mögu-
leika á sameiningu eða nánu
samstarfi þriggja kaupfélaga í
Þingeyjarsýslum.
Kaupfélögin, sem hér um
ræðir, eru Kaupfélag Þingeyinga
á Húsavík, Kaupfélag Langnes-
inga á Þórshöfn og Kaupfélag
Norður-Þingeyinga, sem hefur
aðsetur á Kópaskeri og Raufar-
höfn.
„Menn ætla sér að skoða þessi
mál í fullri alvöru, en sú skoðun
er öll á frumstigi og ekki mikið
um hana að segja,“ sagði Hreið-
ar. Þórólfur Gíslason, núverandi
kaupfélagsstjóri á Þórshöfn, mun
taka við kaupfélagsstjórastöðu
Kaupfélags Skagfirðinga innan
skamms, en Ólafur Friðriksson
kaupfélagsstjóri KS mun veita
verslunardeild SÍS forstöðu.
En er rekstrarstaða Kaupfélags
Þingeyinga erfið um þessar
mundir? „Auðvitað er það vitað
mál að rekstrarstaða dreifbýl-
isverslunar og sláturleyfishafa er
erfið í dag, og að meðaltali er
rekstrarstaða KÞ erfiðari en
undanfarin ár. Ég þykist sjá fram
á verulegan hallarekstur fyrir síð-
asta ár,“ sagði Hreiðar, en árs-
reikningar KÞ munu liggja fyrir
snemma í vor eða í byrjun maí-
mánaðar. EHB
Nær aldargamalt grunnskólahús:
Viðhaldsfrekt og illnotandi
segir formaöur skólanefndar Siglufjarðar
„Húsnæðisvandi grunnskólans
er mál sem búið er að brenna á
okkur nokkuð iengi. Við erum
með hús sem byggt er fyrir
aldamót og er auðvitað orðið
viðhaldsfrekt og illnotandi,“
sagði Einar M. Albertsson for-
maður skólanefndar Siglu-
fjarðarbæjar er hann var innt-
ur eftir húsnæðismálum grunn-
skólans á Siglufirði.
Fyrir skömmu var haldinn
fundur skólanefndar með bæjar-
ráðsmönnum, fulltrúum Kenn-
arafélags grunnskólans, fulltrú-
um foreldrafélags grunnskólans,
fulltrúum kennara í skólanefnd,
bæjarstjóra og fleirum. Rætt var
um húsnæðismál grunnskólans og
kom fram á fundinum að núver-
Húsavík:
fyrir
VerkaSýðsíáSagiö spyreí
um lóðir í miðbænum
Verkalýðsfélag Húsavíkur hef-
ur sent bygginganefnd bréf þar
sem spurt er um hugsanlegar
lóðir til að byggja á skrifstofu-
hús fyrir félagið. Fram kemur
að félagið hefur hug á lóð sem
næst „miðju“ bæjarins. Sér-
staklega var spurt um lóð milli
aðalbyggingar Kaupfélags
Þingeyinga og Olíusölu KÞ.
Fyrirspurn verkalýðsfélagsins
var tekin fyrir á fundi bygginga-
nefndar í síðustu viku. Bygginga-
nefnd vísar verkalýðsfélaginu á
lóðir á nýja miðbæjarsvæðinu
milli Útgarðs og Pálsgarðs. í svari
nefndarinnar kemur fram að ekki
er um að ræða að úthluta lóð
milli Olíusölu KÞ og aðalversl-
unarhúss KÞ, nema að endur-
skoða skipulag í miöbænum og
lóðamál Kaupfélags Þingeyinga.
Á fundi bygginganefndar var
samþykkt að setja lóðarhöfum
við Héðinsbraut, Garðarsbraut
og Mararbraut tímamörk um að
ganga frá lóðum sínum við þessar
götur, að öðrum kosti missi lóð-
arhafar þær. IM
andi húsnæði væri orðið svo
gjörsamlega ónýtt að börnin
væru ísköld og gluggarnir héldu
hvorki vatni né vindi. Húsgögnin
væru auk þess ekki til að bjóða
nemendum.
Hluti húsnæðis grunnskólans
var byggður fyrir síðustu aldamót
og ljóst að slíkt hús getur ekki
staðist kröfur nútímans. Nú eru
um 300 nemendur í grunnskóla
Siglufjarðar og eru neðri deildir
skólans í gamla hásnsðir.u.
„Árgangarnir eru svo smáir
núna að þess vegna hefur ekki
verið þröngt á nemendum. Húsið
er á þremur hæðum og stigar
þröngir og það sem verst er að
kennarar og nemendur standa
bókstaflega í vindgusti þegar
hvasst er sökum þess hve slæmt
húsið er,“ sagði Einar.
í haust þegar breytingar á
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga komust í hámæli ýtti skóla-
nefnd á eftir að bygging skólahússi
kæmist inn á áætlanir ríkisins
áður en breytingarnar kæmust í
framkvæmd. Ekkert varð þó úr
því og var fundurinn með aðilum
á Siglufirði hugsaður til þess að
ýta á eftir gangi málsins.
Einar sagðist eiga von á að
næsta skref verði að skólanefnd
leggi ákveðnar tillögur um bygg-
ingu skólahúss fyrir bæjarstjórn.
Skólanefnd kemur saman til
fundar á ný í vikunni og verða
þessi mál þar rædd. JÓH
ÖSaísfjarðarmúii:
Grjót féll á bíl
Við lá að slys hlytist af, þegar
grjótskriða féll á bíl sem var á
leið frá Ólafsfirði um Ólafs-
fjarðarmúlann. Miklar leysing-
ar eru nú í Múlanum og því á
ýmsu von.
Stór grjóthnullungur féll á
framrúðu bílsins og mun það
hafa orðið ökumanni til happs að
rúðan er úr tvöföldu öryggisgleri
en ekki svokölluðu perlugleri.
Talsvert féll á bílinn af smærri
steinum og skemmdist hann
nokkuð. ET