Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 12
SVONA CERUM VIÐ HLUTAFLLAG SÍA
12 - DAGUR - 25. mars 1988
♦»<.' I ♦*>>'*H • <*> •
25. mars 1988 - DAGUR - 13
Auglýsingastofur eru
svifaseinar, dýrar,
frumkvæðislausar, óþarfa
millilióir, skuldseigar,
skilningslausar á þarfir
vióskiptavinarins, illa reknar,
óprúttnar, hanna auglýsingar til
þess að ganga í augun á öðrum
auglýsingastofum, gera
óraunhæfar áætlanir, taka útlit
fram yfir upplýsingagildi,
óupplýstar í markaðsfræðum,
skilja ekki orðið tímamörk og
raka saman auðfengnum gróða.
SvV-'
Þessar fullyrðingar hljóma kunnuglega í eyrum íslenskra
auglýsingamanna. Þótt aðeins helmingur þeirra ætti við rök að
styðjast er það umhugsunarefni hvers vegna mikill meirihluti allra
stórra og vel rekinna fyrirtækja á íslandi telur auglýsinga- og
kynningarmálum sínum best borgið í höndum auglýsingastofa
innan SÍA.
Auglýsingastofurnar í SÍA eru ólíkar að stærð og gerð.
Uppbygging þeirra, stefna og stíll er með ýmsu móti og þess vegna
henta þær ólíkum viðskiptavinum misjafnlega vel. Þær eru líka
misjafnlega góðar. En þær eiga samleið í faglegum metnaði á öllum
sviðum auglýsingastarfsins. Þess vegna eru þær í SÍA.
Viðskiptavinir auglýsingastofa vilja geta gert ýmsar kröfur til
auglýsingastofunnar sinnar. Meðal annars um nákvæma
áætlanagerð; um nýjustu og bestu upplýsingar varðandi útbreiðslu
og notkun fjölmiðla; um hagstæða birtingasamninga við fjölmiðla;
um virka umsjón með auglýsingamálum og ráðstöfun
auglýsingafjár; um trúnað og nákvæmni í meðferð
markaðsupplýsinga; um greið og hagkvæm tengsl við prentiðnað
og aðra verktaka; um ábyrg og fagleg vinnubrögð og um
sanngjarna verðlagningu á verkum og þjónustu stofunnar. Þess
vegna skipta langflestir stórir auglýsendur við auglýsingastofur
innan SÍA.
Tilgangurinn með þessari auglýsingu er að vekja athygli á
hlutverki og starfsháttum auglýsingastofa, - í tilefni af 10 ára
afmæli Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA.
SIA
-m
'
\Mð VAm BE7J1RV
Eftirtaldar 19 auglýsingastofur, sem veita fulla þjónustu, eiga aðild að Sambandi íslenskra auglýsingastofa - SÍA:
Þessi auglýsing birtist eingöngu í þeim dagblöðum sem taka þátt í upplagseftirliti Verslunarráðs íslands, þ.e. Degi og Morgunblaðinu.
Almenna auglýsingastofan
Síðumúla 27
sími 39040
Auglýsingastofa Ernst Backman
Klapparstíg 27
sími 621010
Auglýsingastofa Gunnars Gunnarssonar Auglýsingastofa Þórhildar
Súðarvogi 7 Skólavörðustíg 14
sími 84473 sími 22722
Auglýsingastofa P & Ó
Þórsgötu 24
sími 622999
Auglýsingastofan Argus
Síðumúla 2
sími 685566
Auglýsingastofan Gott fólk
Ármúla 15
sími 39600
Auglýsingastofan Gylmir
Bergstaðastræti 36
sími 29777
Auglýsingastofan Octavo
Bræðraborgarstíg 7
sími 18220
Auglýsingastofan Strik
Laugavegi 18a
sími 25370
Auglýsingastofan Örkin
Síðumúla 31
sími 687117
AUK hf., Auglýsingastofa Kristínar
Skipholti 50c
sími 688600
Bjarni Dagur Auglýsingastofa
Síðumúla 23
sími 686641
GBB Auglýsingaþjónustan
Brautarholti 8
sími 621177
Kynningarþjónustan
Hafnarstræti 19
sími 623200
ÓSA, Auglýsingastofa Ólafs Stephensen
Skeifunni 7
sími 685466
SM Auglýsingar/Markaðsráðgjöf
Þórsgötu 26
sími 622270-
Ydda hf.
Grjótagötu 7
sími 622992
Svona gerum við -
Hafnarstræti 20
sími 621711
Hlutafélag