Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 15
25. mars 1988 - DAGUR - 15
Erla Harðardóttir og Þráinn Karlsson í hlutverkum sínum.
Mynd: TLV
Leikfélag Akureyrar:
Horft af brúnni
Anna Guðrún Torfadóttir við eitt verka sinna. Mynd: tlv
MENOR og Alþýðubankinn:
Kynning á verkum
Önnu Guðrúnar Torfadóttur
Leikfélag Akureyrar sýnir
leikritið „Horft af brúnni"
föstudags- og laugardags-
kvöld kl. 20.30. Næstu sýn-
ingar verða miðvikudaginn
30. mars, fimmtudaginn 31.
mars og mánudaginn 4.
apríl og hefjast þær allar kl.
20.30. Sýningum fer nú
óðum að fækka.
Að sögn Péturs Einars-
sonar leikhússtjóra hafa
áhorfendur tekið „Horft af
brúnni“ mjög vel, enda verk
sem lætur engan ósnortinn.
Gert er ráð fyrir að síðasta
sýning á verkinu verði föstu-
daginn 8. apríl því Leikfé-
Kristján
Steingrímur
í Glugganum
Föstudagskvöldið 25. mars
kl. 21 opnar Kristján Stein-
grímur Jónsson málverka-
sýningu í Glugganum Gler-
árgötu 34. Kristján Stein-
grímur er fæddur á Akur-
eyri 1957. Hann útskrifaðist
úr Nýlistadeild Myndlista-
og handíðaskóla íslands
1981 og stundaði síðan
framhaldsnám við Ríkis-
listaháskólann í Hamborg
frá 1983 til 1987 undir leið-
sögn Bernd Koberlings.
Sýningin verður opnuð
föstudagskvöldið 25. mars
kl. 21 og stendur til mánu-
dagsins 4. apríl. Glugginn er
opinn daglega frá kl. 14 til
18, en lokað er á mánudög-
um, nema annan dag páska
þá verður opið eins og aðra
daga.
Opnunarkvöldið kl. 21.30
mun Jón L. Halldórsson
fara með fáein kvæði við
lágværan undirleik nokk-
urra félaga sinna sýningar-
gestum til gamans.
Kökubasar
Kökubasar verður haldinn í
Miðbænum fljótlega upp úr
hádegi í dag, föstudaginn
25. mars. Ágóðinn rennur í
ferðasjóð 3. bekkjar
Menntaskólans á Akureyri.
Komið öll og styrkið gott
málefni. Kökurnar eru
gómsætar! Sjáumst.
3. bekkur MA
lagi Akureyrar liggur á að
koma leikmynd „Fiðlarans á
þakinu“ upp á sviðinu.
Leikstjóri uppfærslu LA á
„Horft af brúnni“ er Theo-
dór Júlíusson, en með aðal-
hlutverk fara þau Þráinn
Karlsson, Sunna Borg, Erla
Ruth Harðardóttir, Skúli
Gautason, Jón Benónýsson
og Marinó Þorsteinsson.
Leikmynd hannaði Hall-
mundur Kristinsson og
Ingvar Björnsson hannaði
og stjórnar lýsingu.
Hjálpræðisherinn:
Æskulýðs-
námskeið
Æskulýðsstarfsmenn
Hjálpræðishersins frá Nor-
egi, majórarnir Reidun og
Gilbert Ellis, heimsækja
Akureyri um helgina. Þau
verða með æskulýðsnám-
skeið á laugardaginn og með
almenna samkomu sama
kvöld kl. 20.00, þar sem ný
16 mm. kynningarmynd um
sögu, starfsemi og markmið
Hjálpræðishersins á Norð-
urlöndum verður sýnd.
Einnig Verður almenn
samkoma á sunnudaginn kl.
17.00 þar sem ungt fólk er í
fararbroddi.
Allir eru hjartanlega vel-
komnir á samkomurnar.
Hjálpræðisherinn, Hvanna-
völlum 10, sími 24406.
Menningarsamtök Norð-
lendinga MENOR og
Alþýðubankinn, kynna að
þessu sinni ungan lista-
'mann, Önnu Guðrúnu
Torfadóttur.
Anna Guðrún fæddist 13.
08. 1954 í Stykkishólmi.
Hún var við nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla
íslands í Reykjavík árið
1971 til 1975 í vefnaðar-
kennaradeild. í nokkur ár
hvarf Anna Guðrún frá
námi, en árið 1981 var hún
við nám við Myndlistaskól-
ann í Reykjavík.
Skólaárið 1982 til 1983
starfaði Anna Guðrún sem
kennari við Myndlistaskól-
ann á Akureyri.
Árið 1984 settist Anna
Guðrún aftur í Myndlista-
og handíðaskóla íslands, í
grafíkdeild skólans og lauk
prófi þaðan árið 1987.
Haustið 1987 réðist Anna
Guðrún á ný aö Myndlista-
skólanum á Akureyri, en
jafnframt starfar hún við
Auglýsingastofuna Auglit á
Akureyri.
Anna Guðrún hefur tekið
þátt í nokkrum samsýning-
um hér á landi, hún sýnir nú
fimm æting/akvatintu verk á
kynningunni, sem lýkur 29.
apríl.
Yerk Kristjáns Steingríms eru mörg hver nokkuð nýstárleg.
Mynd: TLV
Ijósvokorýni
Svavar Gests er alltaf frábær
Með tilkomu allra þeirra útvarps-
og sjónvarpsstöðva sem nú eru í
gangi ættu landsmenn að fá
nægan skammt, afþreyingar,
fróðleiks og skemmtiefnis.
Hjá Ríkissjónvarpinu bera tveir
íslenskir skemmtiþættir hæst,
það er þáttur Hermanns Gunn-
arssonar, Á tali hjá Hemma, og
Spurt úr spjörunum, þáttur Ómars
Ragnarssonar. Hermann er vax-
andi sjónvarpsmaður og mikil
undur hvað hann er fundvís á að
töfra fram góða skemmtikrafta í
þáttinn. Þar hafa oft komið fram
lítt þekktir, en mjög góðir lista-
menn. Má þar nefna söngkonuna
Önnu Margréti Kaldaíóns, sem
kom fram í síðasta þætti
Hermanns. Hermann kvaðst
hafa hlotið gagnrýni fyrir hvað
hann notaði sterk lýsingarorð, við
að lýsa ágæti þess fólks sem
fram kemur í þáttum hans. Hann
sagði þessa söngkonu frábæra
og það var alla vega ekki ofmælt.
Ekki þarf að fjölyrða um þætti
Ómars Ragnarssonar. Þeir eru
fróðlegir og skemmtilegir, eins og
aðrir þættir sem hann hefur
unnið. Hitt er svo annað mál að í
þessum þáttum hafa orðið leiðin-
leg mistök, eins og þegar kirkja
var byggð á Bergþórshvoli, í ein-
um þættinum, en hún hefur víst
ekki sést þar síðan.
Sennilega ætti Ómar að gefa
Baldri Hermannssyni frí og ráða
sér annan dómgæslumann, áöur
en hann leggur upp með annan
þátt í sviðuðu formi. '
Ekki hef ég enn fjárfest í
myndlykli til að geta horft á Stöð
2, svo ekki get ég borið hana á
neinn hátt saman við Ríkissjón-
varpið. Þó hef ég horft þar á frétt-
ir því til þess þarf ekki neina sér-
tækni. Fréttatímar Stöðvar 2,
finnst mér vera mun lakari en
fréttatímar Ríkissjónvarpsins,
enda er samkeppnin hörð á þeim
vettvangi, þar sem Ríkissjón-
varpið hefur á að skipa frábærum
fréttamönnum.
Rásin flytur ágætt afþreyingar-
efni, alla daga, sem er mjög gott
að stilla lágt og hlýða á meðan
maður er að vinna. Þó tónlistin
sem þar er flutt sé góð er hún of
mikið sundur slitin af tilgangs-
lausu málæði þeirra sem þáttun-
um stjórna. Svavar Gests er allt-
af frábær og þættirnir hans yngja
mann upp um nokkur ár þegar
hann er að leika gömlu og góöu
lögin, sem reyndar virðast vera
að komast aftur í tísku, sem bet-
ur fer Frímann Hilmarsson.
KFUM og K:
Miðnætur-
samkoma í
Sunnuhlíð
Laugardaginn 26. mars
verður haldin miðnætursam-
koma í félagsheimili KFUM
og K í Sunnuhlíð. Samkom-
an byrjar kl. 11.30 og mun
standa eitthvað frameftir.
Boðið verður upp á fjöl-
breytta dagskrá, vitnisburði,
fjölbreytilega kristilega
tónlist og glens og grín.
Ungt fólk á öllum aldri er
velkomið að koma og kynna
sér efni sem á erindi til allra.
- Lifandi trú.
íþróttir
helgarinnar
Mikil fimleikasýning fer
fram á laugardag í íþrótta-
höllinni á Akureyri. Um 240
börn og unglingar á aldrin-
um 5-20 ára munu sýna listir
sínar þar.
Á Dalvík og á Siglufirði
fara fram skíðamót. Á Dal-
vík fer fram VISA-bikarmót
SKÍ í flokki fullorðinna. Á
Siglufirði ter fram bikarmót
í göngu og stökki. Keppt
verður í 10 og 15 km göngu
og göngu unglinga.
Urslit í yngri flokkunum í
handbolta fara fram sunnan
heiða nú um helgina. Þórs-
stelpurnar í 3. flokki keppa í
Vestmannaeyjum, Þórs-
strákarnir í 3. flokki leika í
Kópavogi, 5. flokkur Þórs
keppir í Mosfellssveit og í
KR-heimilinu, 5. flokkur
KA keppir í B úrslitum að
Varmá í Mosfellssveit.
íslandsmótið í bekk-
pressu fer fram í Æfinga-
stöðinni í Engihjalla, Kópa-
vogi. Þar munu þrír Akur-
eyringar, Kári Elíson,
Kristján Falsson og Rúnar
Friðriksson, vera meðal
keppenda.
Tindastóll keppir úrslita-
leikinn um sæti í úrvals-
deildinni í körfuknattleik að
ári í kvöld föstudag. Ands-
tæðingarnir eru Egilsstað-
abúarnir í UÍA. Þórsararnir
leika sinn síðasta leik í
úrvalsdeildinni í ár á sunnu-
daginn í Keflavík gegn
heimamönnum.
Norðurnetið
heldur fund
Laugardaginn 26. mars
heldur Norðurnetið, sam-
skiptanet kvenna á Norður-
landi. fund í Zontahúsinu,
Aðalstræti 54, á Akureyri.
Fundurinn hefst kl. 14.00.
Aðalefnið á dagskrá fundar-
ins er kynning á hinni ótrú-
lega fjölhæfu listakonu
Elísabet Geirmundsdóttur.
Fjölmennið-Norðurnetið.
Tölvutæki-Bókval:
Við erum
á uppleið
Tölvutæki - Bókval hf.
heldur sýningu laugardaginn
26. mars í nýstandsettu
verslunarhúsnæði á 2. hæð
að Kaupvangsstræti 4. Þar
verður staðsett tölvu- og
skrifstofutækjadeild fyrir-
tækisins í framtíðinni. Á
sýninguna mæta sérfræðing-
ar Skrifstofuvéla hf. á sviði
OMRON afgreiðslukassa,
sem sýna munu ýmsar
nýjungar í OMRON
afgreiðslukössum og
afgreiðslukassakerfum fyrir
veitingahús og stærri versl-
anir, auk þess verður til sýn-
is tölvubúnaður, skrifstofu-
tæki og skrifstofuhúsgögn
fyrir fyrirtæki og einstakl-
inga.
Á sýningunni verður
veittur sérstakur sýningar-
afsláttur á KONICA U-BIX
ljósritunarvélum.
Sýningin verður opin frá
kl. 10 til 16 og eru allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.