Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 24
Akureyri, föstudagur 25. mars 1988
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★ Fermingarveislu
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Akureyri:
Harðbak-
urtók
niðri á
sandrifi
- 80 metra frá
löndunarkanti
Um klukkan 14.00 í gær tók
Harðbakur niðri á sandrifi 80-
90 metra austan við löndunar-
kant frystihúss Útgerðarfélags
Akureyringa. Togarinn var að
leggja af stað á veiðar eftir
langa landlegu vegna yfirvinnu-
banns í landi. Engar skemmdir
urðu á skipinu og greiðlega
gekk að losa það eftir að rétt
aðferð var fundin.
Vegna sandrifsins, sem liggur
um 90 metra frá landi, beint aust-
an við löndunarkantinn, er sá
háttur hafður á að skipin nota
togspil sín til að snúa stefninu til
austurs áður en lagt er frá. Þess-
ari taug var sleppt of snemma,
skipið sett á fulla ferð áfram og
því fór sem fór. Harðbakur sigldi
beint upp á sandrifið og stöðvað-
ist snögglega. Stefni skipsins rist-
ir aðeins um 12 fet en dýpið
þarna er allt niður í tvo metra.
Pegar var hafist handa við að
losa skipið. Fyrst var reynt að
draga skipið sömu leið til baka
með eigin togspili, en ekkert
gekk.
Kaldbakur, sem lá við norður-
kantinn, var fluttur til og honum
lagt við hafskipabryggjuna. Vír
var festur milli skipanna og annar
úr Harðbak og í land og með
sameiginlegu átaki aðalvélar
Kaldbaks og togspils Harðbaks,
tókst að snúa skipinu og losa það
á um það bil tíu mínútum. Smiðs-
höggið rak svo hinn snaggaralegi
hafnsögubátur, Mjölnir, þegar
hann ýtti skipinu til þannig að
sandrifið yrði örugglega ekki til
frekari trafala.
Rúm klukkustund leið frá
óhappinu og þangað til skipið
hélt á veiðar. Meðan á aðgerðum
stóð fjaraði stöðugt frá og reið
því á að hafa hraðan á. ET
Harðbakur á „strandstað“ í höfn Útgerðarfélagsins.
Kaldbakur liggur austan á hafskipabryggjunni til vinstri á
myndinni. Atökin voru mikil og fáum mínútum síðar var
skipið laust af „hólnum“. Á minni myndinni sést hvar
hafnsögubáturinn Mjölnir ýtir Harðbak til eftir að skipið
losnaði. Nokkur fjöldi starfsmanna ÚA og annarra fylgd-
ist mcð aðgerðunum sem Vilhelm Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri félagsins stjórnaði. Myndir gb og ehb
Akureyrarsamningarnir:
Stærsta málið í
Reiknað var með fundi í alla nótt
„Það er búið að afgreiða öll
mál sem þurfti að afgreiða
áður en farið er að ræða launa-
liðinn. Þetta hefur verið mjög
erfitt og kostað mikil átök,“
sagði Þóra Hjaltadóttir for-
maður AN í samtali við Dag
rétt áður en Alþýðuhúsinu við
Skipagötu á Akureyri var Iok-
að öllum óviðkomandi fyrir
kjarasamningaviðræðum
verkafólks og vinnuveitenda í
gær. Sáttasemjari ríkisins,
Guðlaugur Þorvaldsson sagði í
samtali við Dag, að hann bygg-
ist jafnvel við að fundir stæðu
fram eftir degi í dag. Nokkuð
hafði þokast í samkomulagsátt
þegar Dagur fór í prentun og
voru flestir samningamenn
sem haft var tal af, sammála
um að nú væri stærsta málið í
höfn, þ.e. vinnutímamálið.
Ljóst er, að það var aðallega
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
„Rekstrarhalli“ 1987 36,6 milljónir
- stafar aðallega af vanmati á launakostnaði
Heildarútgjöld Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri á
árinu 1987 voru 661,8 milljón-
ir. Inni í þeirri tölu eru 20
milljónir sem varið var til
nýbygginga. Tekjur sjúkra-
hússins, sem samanstanda af
framlagi ríkis og tekjum af
seldri þjónustu, námu 625,2
milljónum. „Rekstrarhalli“
sjúkrahússins var því á síðasta
ári 36,6 milljónir eða 5,5% af
gjöldum.
„Þessi niðurstaða er ekki slæm
útaf fyrir sig. Hins vegar er ég
aldrei ánægður á meðan við erum
neðan við núllpunktinn. Ef áætl-
anir eru réttar þá á rekstrarnið-
urstaða stofnunarinnar allt eins
að geta verið ofan við núllið,"
sagði Halldór Jónsson fram-
kvæmdastjóri FSA í samtali við
Dag.
Halldór sagði að mikil áhersla
væri lögð á að vanda til áætlana-
gerðar enda væri mikið tillit tek-
ið til áætlana við gerð fjárlaga.
Þó hefur ekki tekist að fá viður-
kennt hærra álag en annars
staðar, ofan á föst laun, vegna
mikillar aukavinnu og er það
helsta ástæðan fyrir framúr-
keyrslu síðustu ára.
Við gerð fjárlaga er þetta álag
vegna launa umfram föst laun,
metið 69% ofan á föst laun.
Vegna þess að á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri er rekin
bráðaþjónusta á öllum deildum,
er þetta hlutfall of lágt. Að sögn
Halldórs þyrfti það að vera 70-
75%.
Þessi munur hefur að hluta til
fengist viðurkenndur þegar veitt-
ar hafa verið aukafjárveitingar og
nú hefur verið sótt um eina slíka
vegna síðasta árs. ET
vegna ákvæðis um vinnutíma sem
kjarasamningur VMSÍ var felldur
á dögunum. Það samkomulag
sem nú hefur verið gert felur í
sér, að yfirvinnuálag helst og
verður 80%. Um verður að ræða
einhvern sveigjanleika í vinnu-
tíma, með samþykki starfsfólks á
vinnustað.
Umræður í hópum voru langt
komnar. Um mörg atriði hafði
þegar verið samið, en t.d. hafði
ekki verið samið fyrir bensínaf-
greiðslumenn, bifreiðastjóra og
hafnarverkamenn. Réttinda- og
orlofsmálum var lokið svo og
hvernig persónuuppbót verður
greidd, en það verður með svip-
uðum hætti og hjá verslunar-
mönnum. Búið var að ákveða
þrep í starfsaldurshækkunum en
ekki hafði samist um launalið
þeirra. Beinar launahækkanir átti
að ræða síðast mála.
Gífurleg spenna ríkti á fund-
arstað í allan gærdag. Nóttina
áður hafði litlu munað að uppúr
viðræðum slitnaði, en eftir 5
stunda hlé, rofaði til á ný.
Eftir hádegi var loftið raf-
magnað, á meðan beðið var svars
frá vinnuveitendum við hug-
myndum um vinnutíma. Þegar
ljóst var að það mál væri í höfn,
léttist brúnin á ntönnum og þótt-
ust margir sjá fyrir endann á
höfn
samningunum. Þó var ljóst, að
þar sem enn hafði ekkert verið
rætt um launaliðinn, gæti allt
gerst, sérstaklega livað varðaði
starfsaldursþrepin. Ríkissátta-
semjari taldi það mál t.d. ekki
síður stórt en vinnutímann.
Mikið var um það rætt að
skortur á hótelrými knýði á um
samkomulag fyrir helgi. Um
þetta sagði Þórarinn V. Þórarins-
son: „Það er ljóst að við höldum
ekki áfram á götunni. En ef ekki
verður kominn samningur þegar
við stöndum upp úr þessari lotu,
verður það ekki vegna þess að
vanti tíma eða húsnæði. Þá ein-
faldlega hefur of mikið borið á
milli.“ Sævar Frímannsson for-
maður Einingar sagði, að ekki
væri hægt annað en vera ánægður
með framgang viðræðna. „Hér
eru það margir aðilar sem standa
að samningunum, allir með mis-
munandi kröfugerðir og tekur
ákveðinn tíma að samræma þess-
ar kröfur. Þetta hefur tekist von-
um framar.
Svo er mikið fagnaðarefni fyrir
okkur Norðlendinga og Akureyr-
inga að fá þessa samninga hingað
með öllu sem þeim fylgir. Þetta
er nánast einstakt í sögunni og
megum við vera stolt ef samning-
ar takast og þeir verða samþykkt-
ir í félögunum," sagði Sævar að
lokum. VG