Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 20
20 - DAGUR - 25. mars 1988
Húsasmiðir
Kristnesspítali óskar eftir að ráða húsasmiði til starfa
í sumar. Mikil vinna og góð aðstaða.
Upplýsingar gefur Þorsteinn Eiríksson, verkstjóri í
síma 31100.
Kristnesspítali.
ROQOF OC fmMNQNR
Öflugt fyrirtæki í matvælaiðnaði óskar að ráða
starfsmann á aldrinum 35-45 ára í sérhæft starf.
Þarf að vera reglusamur, þrifinn, samviskusamur
og áreiðanlegur og geta byrjað sem fyrst. Mikil
vinna.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni að Brekkugötu 1.
Sími 27577. Opið kl. 13 til 17.
Stefanía Arnórsdóttir Valgerður Magnúsdóttir
Knattspyrnuþjálfari
óskast
Okkur vantar þjálfara og íslandsmótið
hefst innan skamms.
Liðið heitir U.M.S.E.-b og er með heimavöll að
Laugalandi.
Ef þú hefur áhuga hafðu þá samband við Sigurð í
síma 96-31129 milli kl. 8 og 17.
Starfskraftur óskast
til skrifstofustarfa 8-10 tíma á viku.
Vinnutími getur verið nokkuð frjáls.
Góð laun í boði.
Upplýsingar veitir Stefán Sigtryggsson á skrifstof-
unni.
Óseyri 2 ■ Simi 96-26122
600 Akureyri
Mjólkurfræðingar
Mjólkursamlag á landsbyggðinni óskar að ráða
mjólkurfræðing til verkstjórastarfa. Vinsamlegast
sendið inn nafn og aðrar upplýsingar til skrifstofu
Mjólkurfræðingafélags íslands, Skólavörðustíg 16,
Reykjavík fyrir 8. apríl nk. merkt „Verkstjóri".
Deildarstjóri
Starf deildarstjóra í hljómdeild Vöruhúss
KEA er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
21400.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra við útibú Kaupfélags
Eyfirðinga á Dalvík er laust til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Upplýsingar veitir Rögnvaldur Friðbjörnsson útibús-
stjóri í síma 96-61200 og heimasími 96-61415.
Kaupfélag Eyfirðinga.
H
erlend fréffaskýring
Heimsmet í
hugmyndaflugi
- Umsóknum um birtingu í
Heimsmetabók Guinness
fer stöðugt fjölgandi
Hugmyndirnar eru óþrjótandi.
Henri La Mothe, 75 ára, stekkur
ofan af 8'/i m háum palli og
magalendir í 30 cm djúpri barna-
laug. Paul M. Kimelman er
fljótastur aö leggja af - úr 216
kíióum niður í 59.
Snjöllustu hugmyndina af öll-
um fékk þó líklega Sir Hugh
Beaver þegar honum datt í hug
að gefa út bók með heimsmetun-
um! Fyrsta útgáfan kom út í
ágúst 1955. Sir Hugh lét selja
hana á öllum krám í Bretlandi
Hávaxnasti og
gildasti maðurinn.
Þyngsta gúrkan.
og í írlandi 81.400 talsins.
Gagnstætt því sem hann hafði
búist við vildu bóksalar líka fá
hana til sölu. Ein verslun í
London pantaði fyrst 10 eintök til
reynslu, en um miðjan sama dag
10.000 til viðbótar!
Heimsmetabókin er síðan ein
söluhæsta bók. Hún hefur verið
þýdd á 35 tungumál, gefin út í 28
löndum, og af henni hafa selst 58
milljónir eintaka. „Það samsvar-
ar 163 stöflum jafnháum og
Mount Everest og er heimsmet!“
segir forseti Guinness-forlagsins,
jarlinn af Iveagh. Að vísu hafa
verið prentuð nokkur hundruð
milljónir eintaka af Biblíunni,
Kóraninum og spakmælum
Maós. „En ekki af bók með
vernduðum höfundarrétti, sem
eingöngu er seld á frjálsum mark-
aði,“ útskýrir jarlinn.
í nýjustu útgáfunni af Heims-
metabókinni eru skráð 15.000
Betra hús en fyrir
brunann
- Litið inn á opnunarhátíðina að Jáðri
Sl. laugardag héldu félagar í
Golfklúbbi Akureyrar hátíð til
að fagna því að endurbyggingu
golfskálans að Jaðri er nú að
mestu lokið en eins og flestum
er í fersku minni, skemmdist
skálinn verulega í eldi þann
24. janúar sl. Það er með ólík-
indum hversu skamman tíma
endurbyggingin hefur tekið og
það má með sanni segja að
kylfingar hafi þar farið „holu í
höggi“. Og það sem meira er:
Við uppbygginguna nú hefur
verið leitast við að samræma
yfirbragð yngsta og eldri hluta
hússins enn frekar en áður
með hreint ágætum árangri.
Óhætt er að fullyrða að Jaðar
er nú mun glæsilegra hús en
fyrir brunann.
Sem fyrr segir héldu kylfing-
Þessi mynd þarfnast
ekki útskýringa...
ar opnunarhátíðina sl. laugar-
dag. Þótt þorrinn sé liðinn
samkvæmt dagatalinu, var
engu að síður boðið upp á
þorramat, enda má segja að
forlögin hafi séð til þess að
kylfingar gátu ekki haldið
þorrablót að Jaðri á tilsettum
tíma. Að loknu borðhaldi
skemmti Sólveig Birgisdóttir
gestum með léttum söng, við
undirleik Ingimars Eydal. Þá
stjórnaði Gísli Jónsson mál-
verkauppboði á eftirminnileg-
an hátt og beitti við það all-
nýstárlegum aðferðum, sem
Sólveig Birgisdóttir skemmti með söng
og stóð sig vel að venju.