Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 13

Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 13
SVONA CERUM VIÐ HLUTAFLLAG SÍA 12 - DAGUR - 25. mars 1988 ♦»<.' I ♦*>>'*H • <*> • 25. mars 1988 - DAGUR - 13 Auglýsingastofur eru svifaseinar, dýrar, frumkvæðislausar, óþarfa millilióir, skuldseigar, skilningslausar á þarfir vióskiptavinarins, illa reknar, óprúttnar, hanna auglýsingar til þess að ganga í augun á öðrum auglýsingastofum, gera óraunhæfar áætlanir, taka útlit fram yfir upplýsingagildi, óupplýstar í markaðsfræðum, skilja ekki orðið tímamörk og raka saman auðfengnum gróða. SvV-' Þessar fullyrðingar hljóma kunnuglega í eyrum íslenskra auglýsingamanna. Þótt aðeins helmingur þeirra ætti við rök að styðjast er það umhugsunarefni hvers vegna mikill meirihluti allra stórra og vel rekinna fyrirtækja á íslandi telur auglýsinga- og kynningarmálum sínum best borgið í höndum auglýsingastofa innan SÍA. Auglýsingastofurnar í SÍA eru ólíkar að stærð og gerð. Uppbygging þeirra, stefna og stíll er með ýmsu móti og þess vegna henta þær ólíkum viðskiptavinum misjafnlega vel. Þær eru líka misjafnlega góðar. En þær eiga samleið í faglegum metnaði á öllum sviðum auglýsingastarfsins. Þess vegna eru þær í SÍA. Viðskiptavinir auglýsingastofa vilja geta gert ýmsar kröfur til auglýsingastofunnar sinnar. Meðal annars um nákvæma áætlanagerð; um nýjustu og bestu upplýsingar varðandi útbreiðslu og notkun fjölmiðla; um hagstæða birtingasamninga við fjölmiðla; um virka umsjón með auglýsingamálum og ráðstöfun auglýsingafjár; um trúnað og nákvæmni í meðferð markaðsupplýsinga; um greið og hagkvæm tengsl við prentiðnað og aðra verktaka; um ábyrg og fagleg vinnubrögð og um sanngjarna verðlagningu á verkum og þjónustu stofunnar. Þess vegna skipta langflestir stórir auglýsendur við auglýsingastofur innan SÍA. Tilgangurinn með þessari auglýsingu er að vekja athygli á hlutverki og starfsháttum auglýsingastofa, - í tilefni af 10 ára afmæli Sambands íslenskra auglýsingastofa, SÍA. SIA -m ' \Mð VAm BE7J1RV Eftirtaldar 19 auglýsingastofur, sem veita fulla þjónustu, eiga aðild að Sambandi íslenskra auglýsingastofa - SÍA: Þessi auglýsing birtist eingöngu í þeim dagblöðum sem taka þátt í upplagseftirliti Verslunarráðs íslands, þ.e. Degi og Morgunblaðinu. Almenna auglýsingastofan Síðumúla 27 sími 39040 Auglýsingastofa Ernst Backman Klapparstíg 27 sími 621010 Auglýsingastofa Gunnars Gunnarssonar Auglýsingastofa Þórhildar Súðarvogi 7 Skólavörðustíg 14 sími 84473 sími 22722 Auglýsingastofa P & Ó Þórsgötu 24 sími 622999 Auglýsingastofan Argus Síðumúla 2 sími 685566 Auglýsingastofan Gott fólk Ármúla 15 sími 39600 Auglýsingastofan Gylmir Bergstaðastræti 36 sími 29777 Auglýsingastofan Octavo Bræðraborgarstíg 7 sími 18220 Auglýsingastofan Strik Laugavegi 18a sími 25370 Auglýsingastofan Örkin Síðumúla 31 sími 687117 AUK hf., Auglýsingastofa Kristínar Skipholti 50c sími 688600 Bjarni Dagur Auglýsingastofa Síðumúla 23 sími 686641 GBB Auglýsingaþjónustan Brautarholti 8 sími 621177 Kynningarþjónustan Hafnarstræti 19 sími 623200 ÓSA, Auglýsingastofa Ólafs Stephensen Skeifunni 7 sími 685466 SM Auglýsingar/Markaðsráðgjöf Þórsgötu 26 sími 622270- Ydda hf. Grjótagötu 7 sími 622992 Svona gerum við - Hafnarstræti 20 sími 621711 Hlutafélag

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.