Dagur - 25.03.1988, Blaðsíða 11
25. mars 1988 - DAGUR - 11
Slysavarnafélag íslands og ABC:
Ritgerða- og teiknisamkeppni
fyrir börn og unglinga
- Utanlandsferðir, bækur og reiðhjól í verðlaun
I tilefni 60 ára afmælis Slysa-
varnafélags íslands þann 29.
janúar sl., efnir Barnablaðið
ABC og Slysavarnafélagið til
ritgerða- og teiknisamkeppni
fyrir börn á aldrinum 6-15 ára.
Verkefnið er að sjálfsögðu:
Slysavarnafélag Islands.
Öllum börnum á aldrinum 6-15
ára er heimil þátttaka í sam-
keppninni, sem skiptist þannig að
börn á aldrinum 6-10 ára senda
inn teikningar en 10 ára börn og
eldri senda inn ritgerðir. Ritgerð-
irnar skulu vera um það bil 1000
orð. Skilafrestur er til 15. apríl og
skal umslagið merkt á eftirfar-
andi hátt:
Ritgerða- og teiknisamkeppni
Slysavarnafélags íslands og
ABC, Ármúla 18, 108 Reykja-
vík.
Sævar Lárus (8 ára) og Monika Margrét (9 ára) eru meðal þeirra fjölmörgu
sem ætla að taka þátt í samkeppninni, enda er til mikils að vinna.
Mynd: G.B.
Pað er svo sannarlega til mikils
að vinna því veitt verða 15 vegleg
verðlaun og skiptast þau þannig:
1. Ferð til Englands fyrir fimm
börn á vegum Flugleiða.
2. Bókaverðlaun.
a) „Fuglar í náttúru
íslands“, frá Máli og menn-
ingu.
b) „íslandseldar", frá
Vöku-Helgafelli.
c) „íslendingasögurnar",
frá Bókaútgáfunni Svart á
hvítu.
d) „Landið þitt“, frá Emi
og Örlygi.
e) „Stóra Atlasbókin", frá
Almenna bókafélaginu.
3. Þrjú reiðhjól af gerðinni
DINO BMX 20 tommu frá Tóm-
stundahúsinu.
4. Tveir stórir kassar af Lego-
kubbum frá Reykjalundi.
Jæja krakkar. Þá er bara að
nýta tímann vel og taka þátt í
samkeppninni. Það gæti t.d. ver-
ið upplagt að teikna eða skrifa í
páskafríinu. Eina skilyrðið er að
viðfangsefnið tengist starfsemi
Slysavarnafélags íslands. Munið
svo að póstleggja verkefnið
tímanlega ásamt nafni, heimili og
síma. Skilafrestur er sem fyrr
segir til 15. apríl nk.
Nýja-Filmuhúsið
Fermingartilboð
Kodak IF. Innbyggöur 'ljósmælir,, auðveld filmuísetning.
Gullfilma og rafhlööur fylgja.
5 ára ábyrgö.
Tilboðsverð kr. 3.300.-
Kodak MD. Sjálfvirk filmufærsla og ASA-stilling. Gullfilma
og rafhlöður fylgja. ^
5 ára ábyrgð. pp \\^ A°
Tilboðsverð kr. 4.800.-
300-'
n\ ^o° a0xN
Videotökuvélar
kr. 49.900.-
Nýja-Filmuhúsið
Hafnarstræti 106. Sími 96-27422. Akureyri.
VISA
sýnumvið 1
tölvubúnað,
skrifstofutæki
°g
skrifstofu-
húsgögn,
í nýju
verslunarsvæði
á annarri hæð.
hugsa um
endurbætur
í fyrirtækinu?
Líttu þá við
og kynntu þér
bestu lausnina
Kaupvangsstræti 4
Akureyri