Dagur - 11.05.1988, Blaðsíða 1
71. árgangur Akureyri, miðvikudagur 11. maí 1988 89. tölublað
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 • Sími 27422 • Pósthólf 196
Hrað-
framköllun
Opiö á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Leikfélag Akureyrar:
Valgerður
Bjarnadóttir
formaður
leikhúsráðs
Valgerður Bjarnadóttir var
kosin formaður leikhúsráðs
Leikfélags Akureyrar á aðal-
fundi félagsins. Theodór
Júlíusson gaf ekki kost á sér til
endurkjörs og mælti hann með
Valgerði í stöðuna. Theodór
sagði að ástæðan fyrir því að
hann gaf ekki kost á sér væri sú
að hann vildi fá einhvern sem
ekki væri í beinum tengslum
við starfsemi leikfélagsins inn í
stjórnina og víkka þannig
sjóndeildarhring hennar.
„Þessi uppástunga var sam-
þykkt og allir voru ánægðir með
hinn nýja formann. Við væntum
mikils af starfi Valgerðar í fram-
tíðinni,“ sagði Theodór, en aðrir
fulltrúar í leikhúsráði voru
endurkjörnir á aðalfundinum.
Þrír fastráðnir leikarar hjá LA
sögðu upp samningum sínum,
þær Sunna Borg, Erla Ruth
Harðardóttir og Arnheiður Ingi-
mundardóttir. Ekki hafa verið
ráðnir nýir leikarar í þeirra stað
en Theodór sagði að Sunna
myndi halda áfram að starfa með
leikfélaginu þótt ekki væri hún
fastráðin lengur.
Aðspurður sagðist Theodór
kveðja formannsembættið með
töluverðu stolti. Þetta hefði verið
átakatímabil, skuldahalinn 8
milljónir, en með þríhliða samn-
ingi leikfélagsins, ríkisins og
Akureyrarbæjar í fyrra hefði það
mál verið leyst.
„Þetta leikár hefur gengið
mjög vel. Ég cy síöitur af þessum
verkcfVium okkar og ég get því
verið þokkalega ánægður þegar
ég kveð formannsstarfið," sagði
Theodór. SS
Steinullarverksmiðjan:
Mikil söluaukning
fyrstu 3 mánuðina
Sala á framleiðslu Steinullar-
verksmiðjunnar á Sauðárkróki
3 fyrstu mánuði þessa árs var
um 30% meiri en á sama tíma í
fyrra. Þar af 21% meiri á
innanlandsmarkaðinum. Nokk-
uð dró síðan úr í síðasta mán-
uði vegna verkfalls verslun-
armanna.
Þrátt fyrir þessa ágætu sölu á
fyrstu mánuðunum eru talsverðar
blikur á lofti hjá fyrirtækinu, að
sögn Þórðar Hilmarssonar fram-
kvæmdastjóra. Það er hin ótrygga
gengisstaða sem menn hafa
áhyggjur af, því gengisfelling
mundi hafa verulega slæm áhrif á
rekstrarstöðu fyirtækisins þar
sem skuldir þess eru að miklu
leyti í erlendri mynt. -þá
Baldvin Valdemarssun framkvæmdastjóri með Thule og Viking bjór en þær tegundir eru framleiddar á Akureyri.
Mynd: GB
íþróttahöllin Akureyri:
Stærsta
bílasýning
- sem haldin hefur verið
á Norðurlandi
Um næstu helgi verður á
Akureyri stærsta bflasýning
sem haldin hefur verið á
Norðurlandi. Sýningin verður í
íþróttahöllinni á Akureyri og
munu helstu bifreiðaumboð
landsins sýna það nýjasta sem
þau hafa fram að bjóða.
Það er Knattspyrnufélag Akur-
eyrar, sem stendur fyrir þessari
glæsilegu sýningu og verður
margt á boðstólum. Lúðrasveit
Akureyrar og harmónikufélag-
ið munu leika af fingrum fram
fyrir sýningargesti og á laugar-
daginn kl. 15.00 verður hluta-
velta þar sem yfir 1000 vinningar
eru í boði. Blöndukarlinn verður
á staðnum fyrir börnin og kaffi-
veitingar á boðstólum. Þá gefst
gestum kostur á að berja augum
nýtt tæki, sem er körfulyfta sú
stærsta sem Akureyringar hafa
eignast.
Sýningin verður opin frá kl.
13.00-18.00 á laugardag og 10.00-
17.00 á sunnudag. Hér er kær-
komið tækifæri til að sjá fulla
íþróttahöll af nýjurn bílum,
gengisfelling er yfirvofandi og
hver fer að verða síðastur. VG
Sterki bjórinn kemur:
Arsneyslan er talin sjö
tií tíu milljónir lítra
- bjórinn verður seldur í 6,12 eða 24 stykkja einingum
„Við hjá Sanitas rekum
stærstu ölgerð landsins og ætl-
um að reyna að vera stærstir
áfram. Það veltur þó á því í
hvers konar samkeppnisað-
stöðu við lendum gagnvart inn-
flutningnum. Verksmiðjan
verður væntanlega stækkuð og
starfsfólki bætt við, auk þess
sem öflugt vöruþróunarstarf
fer nú í gang,“ sagði Baldvin
Valdemarsson hjá Sana á
Akureyri í tilefni af samþykkt
bjórfrum varpsins.
Baldvin sagði að út frá sann-
girnissjónarmiði væri ekki van-
þörf á t.d. eins til tveggja ára
aðlögunartíma íslenskra ölgerða.
„Við erum ekki að biðja um
neina vernd gagnvart innflutn-
ingi, slíkt er fjarri okkur. Við
viljum sanngjarnt start, það er
allt og sumt. Við höfum ráðið
tæknimenntað starfsfólk, m.a.
skoskan bruggmeistara, og mun-
um gera það sem við getum til að
vinna upp 200 ára forskot
erlendra framleiðenda á þessum
11 mánuðum sem við höfum. Við
þurfum að finna þá vöru sem
Islendingum líkar vel og þjóna
þannig þessum nýja markaði eins
vel og við getum.
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, sagði að ekki þyrfti að
stækka útsölu „Ríkisins“ á Akur-
eyri vegna bjórsölunnar. „Akur-
eyrarverslunin hefur gott rými,
og verulegur hluti af efri hæðinni
var tekinn undir lager þegar
versluninni var breytt fyrir 2
árum. Við reynum að komast hjá
því að byggja við en vel getur
verið að versluninni eða skipulagi
hennar verði breytt.“
En í hvers konar einingum
verður bjórinn seldur? „Ég get
ekki sagt um það nema þá að
skoðun mín er sú að ekki eigi að
selja einn og einn bjór í einu, en
hvort hann verður seldur í sex,
tólf eða tuttugu og fjögurra dósa
eða flösku pakkningum veit ég
ekki,“ sagði Höskuldur.
í samtalinu við forstjóra
ÁTVR kom fram að reiknað er
með að ÁTVR dreifi 7-10 millj-
ónum lítra af bjór árlega, og því
verði að fjölga starfsmönnum.
Refsivert væri að afhenda eða
selja fólki innan við 20 ára aldur
áfengt öl. EHB
Efri deild samþykkti 13:8
Bjórinn var samþykktur í efri
deild Alþingis aðfaranótt
þriðjudagsins. Þar með er
bjórinn aftur orðinn löglegur
hér á landi eftir 74 ára hlé.
Að vísu má ekki byrja að
selja hann fyrr en 1. mars á
næsta ári en frumvarpið er nú
orðið að lögum.
Bjórfrumvarpið var sam-
þykkt með 13 atkvæðum gegn
8. Tvær breytingartillögur voru
fluttar við frumvarpið en þær
voru báðar felldar. Áfengislög-
in gera ráð fyrir því að dóms-
málaráðherra setji reglugerð
um sölu áfengis og þarf sj álfsagt
að endurskoða þá reglugerð
ineð tilliti til þessarar nýju sam-
þykktar.
Ákvæði til bráðabirgða um
að ráðherra skuli skipa fimm
manna nefnd til að gera tillögur
er stuðlað gætu að minni neyslu
áfengis var samþykkt. Þessi
nefnd á m.a. að fjalla um verð-
lagningu áfengis og leiðir til að
vara við hættum sem fylgja
neyslu þess.
Þeir þingmenn sem greiddu
atkvæði með frumvarpinu voru;
Danfríður Skarphéðinsdóttir,
Eiður Guðnason, Jón Magnús-
son, Guðmundur Ágústsson,
Guðmundur H. Garðarsson,
Halldór Ásgrfmsson, Halldór
Blöndal, Jóhann Einvarðsson,
Júlíus Sólnes, Karvel Pálma-
son, Salóme Þorkelsdóttir, Stef-
án Guðmundsson og Valgerður
Sverrisdóttir.
Á móti greiddu atkvæði þeir
Karl Steinar Guðnason, Egill
Jónsson, Guðrún Agnarsdóttir,
Jón Helgason, Margrét Frí-
mannsdóttir, Skúli Alexanders-
son, Svavar Gestsson og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson.
AP