Dagur - 11.05.1988, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 11. maí 1988
Frá Hrafnagilsskóla
Sýning á teikningum, handavinnumunum og vinnu
nemenda verður haldin í skólanum fimmtudaginn
12. maí nk. kl. 14-18.
Selt verður kaffi.
Skólastjóri.
Æskulýðskór frá Stavangri í
Noregi heimsækir Akureyri
12. og 13. maí.
TONLEIKAR
fimmtudaginn 12. maí kl. 20.30 í sal Hjálpræðishers-
ins að Hvannavöllum 10.
Söng- og hljómleikasamkoma
föstudaginn 13. maí kl. 20.30 á sama stað.
Fjölbreytt dagskrá.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn.
AKUREYRAR&ÆR
Félagsmálastofnun Akureyrar
Garðaþjónusta fyrir aldraða
hefst miðvikudaginn 11. maí.
Aldraðir sem óska eftir hreinsun á garði og
síðar slætti eru beðnir að hringja í síma
21281 frá kl. 10.30-12.00 alla virka daga.
Greiðsla fyrir garðaþjónustu í sumar verður
kr. 65 á mann á klst. en mest kr. 4.000 yfir
sumarið.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
r
Útboð
Siglufjarðarvegur um Gljúfurá,
1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
ofangreint verk.
Lengd vegarkafla 2,4 km.
Efnismagn 23.000 m3.
Verki skal lokið 1. júlí 1989.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðal-
gjaldkera) frá og með 9. maí sl. Skila skal til-
boðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann
24. maí 1988.
Vegamálastjóri.
r----------------------------------------------\
Útboð
Hvammstangavegur, Norður-
landsvegur-Hvammstangi, 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
ofangreint verk.
Lengd vegarkafla 4,5 km.
Efnismagn 63.000 m3.
Verki skal lokið 15. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð
ríkisins á Sauðárkróki og í Reykjavík (aðal-
gjaldkera) frá og með 9. maí sl. Skila skal til-
boðunum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 24. maí 1988.
Vegamálastjóri.
V______________________________________________y
VEGAGERDIN
Við þvottavélarnar í Mjallhvíti. Frá vinstri: Einar Ólafsson, Baldvin Ásgeirsson fyrrverandi eigandi, og Björgvin
Yngvason. Mynd: GB
Þvottahúsið Mjallhvít:
Eigendaskipti um mánaðamótin
Um síðustu mánaðamót urðu
eigendaskipti á Þvottahúsinu
Mjallhvíti á Akureyri. Baldvin
Asgeirsson, sem rekið hefur
þvottahúsið frá því 1960, seldi
Björgvin Yngvasyni og Einari
Ólafssyni fyrirtækið og hafa
þeir þegar tekið við rekstrin-
um.
Einar og Björgvin eru nokkuð
kunnugir rekstri af þessu tagi því
þeir eru einnig eigendur Fatalit-
unarinnar Höfða á Akureyri.
Bæði þessi fyrirtæki verða rekin
með sama sniði áfram.
„Við erum eiginlega að koma
undir okkur fleiri fótum með
þessu. Hins vegar getum við ekki
sameinað þessi fyrirtæki vegna
húsnæðisleysis en vonandi kemur
að því að við getum byggt yfir
þessi fyrirtæki og sameinað þau,“
segir Einar Ólafsson, annar nýju
eigendanna.
Einar og Björgvin segja að
verkefni fyrir þvottahús séu næg í
bænum, mest sé unnið fyrir veit-
ingahús og hótel. Nú eru tvö
þvottahús starfandi í bænum,
Þvottahúsið Mjöll og Þvottahúsið
Mjallhvít. Starfsmenn hjá
Þvottahúsinu Mjallhvíti verða
4-6.
„Því er ekki að neita að maður
hefur blendnar tilfinningar við
þessi tímamót,“ segir Baldvin
Ásgeirsson fyrrverandi eigandi
Mjallhvítar. „Ég vil þakka mfnu
starfsfólki og mörgum viðskipta-
vinum ánægjuleg samskipti á
liðnum árúm og jafnframt er það
ósk mín að hinir nýju eigendur
Mjallhvítar megi njóta viðskipta
þeirra hér eftir sem hingað til.
JÓH
Hótel Blönduós:
Ungmenni í starfs-
fræðslu ía greidd laun
í síðustu viku voru nemendur
8. bekkjar grunnskólans á
Blönduósi í starfsfræðslu hjá
ýmsum fyrirtækjum í bænum.
Krakkarnir í bekknum eru
ekki nema 18 að tölu en þar af
voru 7 á hótelinu. Blaðamaður
Dags kom þar við og hafði tal af
krökkunum og Bessa Þor-
steinssyni hótelstjóra.
Krakkarnir sögðust hafa unnið
þarna alla vikuna á þrískiptum
fimm tíma vöktum. Þau sögðust
hafa unnið flest þau störf sem til
féllu á hóteli og það hefði verið
mikið að gera. Fjölmennir fundir
hefðu verið, bæði á mánudaginn
og miðvikudaginn, fyrir utan
smærri fundi aðra daga. Talsvert
hefði verið af gestum bæði í mat
og gistingu.
Þau sögðu að engin meirihátt-
ar slys hefðu orðið vegna veru
þeirra á hótelinu og leirtauið
hefði ekki ódrýgst neitt að ráði af
þeirra völdum.
Öll voru þau sammála um að
það hefði verið gaman að vinna
þarna og þau gætu vel hugsað sér
þetta sem framtíðarstarf.
Að sögn krakkanna, mun þó
staða hótelstjóra vera vinsælasta
starfið, að öðrum störfum
ólöstuðum.
Bessi Þorsteinsson, hótelstjóri,
sagði að krökkunum hefðu verið
sýnd öll fyrirtæki SAH og KH.
Hótelið hefði á undanförnum
árum verið vinsæll vettvangur í
starfsfræðslu hjá krökkunum, og
hópurinn sem væri á hótelinu að
þessu sinni væri álíka fjölmenn-
ur, og hann hefði verið á síðasta
ári. Hann sagði að krakkarnir
hefðu staðið sig alveg frábærlega
vel.
Þau væru komin þarna til að
vinna og það hefðu þau gert án
þess að draga af sér. Það hefði
verið gaman að vinna með
krökkunum. Þau væru svo viljug
að vinná 2ð Það Þyrfti ekki nema
rétt að lyfta fingri' íil að þau væru
komin á fulla ferð. Hjá þeiií?væri
ekkert til sem héti að röfla yfir
því sem þau væru beðin að gera.
Bessi sagði að krökkunum yrði
greidd einhver þóknun fyrir þann
tíma sem þau hefðu starfað á
hótelinu og það ættu þau sannar-
lega skilið.
„Unglingar eru ekki vandamál.
Við eigum dugmikla æsku sem á
mikla framtíð fyrir sér,“ sagði
Bessi Þorsteinsson, hótelstjóri á
Hótel Blönduósi. fh
Krakkamir ásamt Bessa hótelstjóra. Frá vinstri: Sólveig, María, Hildur,
Hilmar, Sigurjón, Þórður, Ragnar og Bessi. Mynd: fh