Dagur - 11.05.1988, Side 3
11. maí 1988 - DAGUR - 3
„Fundurinn beinir því til
stjórnvalda að þegar verði hafnar
aðgerðir til þess að snúa þessari
öfugþróun við. Margháttaðra
aðgerða er þörf á sviði fram-
leiðslu, þjónustu og stjórnsýslu.
Brýnasta aðgerðin er efling
grundvallar atvinnuveganna, sem
eru kjarninn í atvinnulífi lands-
byggðarinnar og í efnahagslífi
landsins alls. Fundurinn skorar
því á stjórnvöld að gera nú þegar
nauðsynlegar ráðstafanir til þess
að tryggja rekstursgrundvöll
þessara atvinnugreina. Jafnframt
verði hafist handa um víðtækar
langtímaaðgerðir til eflingar
byggðar í öllum landshlutum
með sterkum byggðakjörnum,
sem stuðlað geti að byggðafestu,
m.a. með víðtækri þjónustu á
sviði stjórnsýslu og efnahags- og
menningarmála.
Fundurinn leggur jafnframt
áherslu á að íbúar dreifbýlisins
sjálfir sýni öflugt framtak og sam-
stöðu í viðhaldi og eflingu byggð-
ar og geri sér og þjóðinni allri
sem ljósasta grein fyrir miklum
og margvíslegum kostum þess að
búa í dreifbýli.“
Ályktun á aðalfundi KEA:
Skorað á stjómvöld
að efla grundvallar
atvinnuvegina
-Núverandi byggðaþróun hefur félagslegan
og efnahagslegan ójöfnuð í för með sér
„Fundurinn varar mjög ein-
dregið við þeirri byggðaþróun,
sem átt hefur sér stað á síðustu
árum með sívaxandi hlutfalls-
legri fjölgun fólks á suðvestur-
horni landsins og samsvarandi
fækkun í öðrum landshlutum.
Slík þróun hefur óhjákvæmi-
lega í för með sér margháttað-
an félagslegan og efnahagsleg-
an ójöfnuð, sem ekki verður
unað við. Eignir falla í verði í
dreifbýlinu en hækka að sama
skapi í ofþenslu á höfuð-
borgarsvæðinu, sem með öðru
stuðlar að misvægi í efnahags-
kerfinu öllu,“ segir í upphafi
ályktunar sem samþykkt var á
aðalfundi KEA.
Gjaldtaka
búfjárhalds
og jarðaleiga
Umhverfisnefnd Akureyrar-
bæjar hefur lagt fram tillögu
um gjaldtöku vegna búfjár-
halds og jarðaleigu fyrir yfir-
standandi ár.
Fundaherferð fulltrúa Fjórðungssambands Norðlendinga:
Leikfélag Akureyrar:
Böðvar
semur
jólaleikrit
Á aðalfundi Leikfélags Akur-
eyrar var næsta jólaverkefni
félagsins gert opinbert. Þar er
um að ræða leikgerð Böðvars
Guðmundssonar eftir tveimur
sögum Tryggva Emilssonar,
„Fátækt fólk“ og „Baráttan
um brauðið", en leikfélagið
réði Böðvar til þessa verks á
síðasta leikári.
Böðvar skilaði fyrsta handriti
leikgerðarinnar af sér í byrjun
þessa mánaðar en verkalýðsfé-
lögin Eining og Dagsbrún hafa
stutt þetta verkefni fjárhagslega
og er það eflaust nýmæli að
atvinnuleikhús skuli leita eftir
samvinnu við verkalýðsfélög.
Leikgerð Böðvars verður
frumsýnd í desember og verður
spennandi að sjá útkomuna.
Leikfélag Akureyrar hefur góða
reynslu af starfi Böðvars Guð-
mundssonar og er skemmst að
minnast einþáttunga hans sem
Práinn Karlsson flutti undir yfir-
skriftinni „Er það einleikið-' í
upphafi þessa leikárs. SS
Iðnþróunarfélagið:
Leiðrétting
í blaðinu í gær sagði í frétt á bak-
síðu að aðalfundur Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðar hf., sem hald-
inn er í dag, yrði á Hótel KEA.
Hið rétta er að fundurinn verður
haldinn í veitingahúsnæði Svart-
fugls sf. að Skipagötu 14. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðingar.
Rækjuskipið Hersir frá Hafnarfirði tók niðri snemma í gærmorgun þegar
það var að leggjast að Torfunefsbryggju. Að sögn hafnarvarða sigldi báturinn
heldur norðarlega að bryggjunni og settist fastur á sandbotni. Dráttarbátur-
inn Mjölnir ýtti Hersi af strandstað. Báturinn er óskemmdur. Mynd: áþ
Skiptar skoðanir um framtíðar-
skipulag sambandsins
- áhugi á Norðvesturlandi fyrir stofnun kjördæmasambanda
Leyfisgjald fyrir hest hefur
hækkað um 25% frá síðasta ári
eða í 250 kr. Gjald fyrir kind hef-
ur sömuleiðis hækkað um 25%
eða í 25 kr. Handsömunargjald
fyrir hest verður í ár kr. 600 sem
er 20% hækkun frá því í fyrra en
handsömunargjald fyrir kind er í
ár kr. 250, hefur hækkað um 25%
frá þvf í fyrra.
Leiga fyrir ræktað land verður
í ár kr. 1600 á hektara, hækkar
um 28%. Fyrir óræktað land þarf
að greiða 450 kr. pr. ha. Leiga
fyrir óræktað land hefur hækkað
um 28,6% milli ára. Lágmarks-
gjald fyrir hektara lands verður
625 kr.
Bætur fyrir landupptöku verða f
ár 6,50 kr. fyrir fermetra. Hækk-
un frá síðasta ári er samkvæmt
hækkun jarðræktarvísitölu,
23,6%. JÓH
I lok apríl tók útgeröarfyrir-
tækið Höfði hf. á Húsavík nýtt
skrifstofuhúsnæði í notkun.
Fyrir nokkrum vikum flutti
netagerð fyrirtækisins í neðri
hæð nýbyggingar sem stendur
á uppfyllingu sunnan við
Suðurgarðinn en skrifstofurnar
eru á efri hæð hússins.
Vígsluhátíð var haldin þegar
húsnæðið var tekið í notkun,
starfsfólki Höfða og þeim sem
unnu við byggingu hússins var
boðið ásamt fleirum. Skrifstofu-
húsnæðið er hið vistlegasta og
sérlega skemmtilegt útsýni úr
skrifstofugluggunum yfir Húsa-
víkurhöfn.
Aðalverktaki við byggingu
hússins var Húsiðn hf. og hófust
Formaður stjórnar Fjórðungs-
sambands Norðlendinga, fram-
kvæmdastjóri sambandsins og
starfsmaður hafa fyrir stuttu
lokið fundaferð um Norður-
land þar sem m.a. var rætt um
skipulag og framtíð sambands-
ins á fundum með sveitar-
stjórnarmönnum. Boðað var
til fundar á 6 stöðum á
framkvæmdir í fyrravor. Húsið er
reist úr steyptum einingum.
Framkvæmdastjóri Höfða hf.
Norðurlandi og mættu til fund-
ar 99 fulltrúar frá 54 af 64
sveitarfélögum sem boðuð
voru til fundar.
„Ég held að flestum þyki gott
að svona fundaferð sé farin.
Stjórn sambandsins gefst færi á
að kynna hvað verið er að gera á
vettvangi sambandsins og líka
heyra hljóðið í sveitarstjórnar-
I er Kristján Ásgeirsson en auk
hans vinna þrír starfsmenn í nýja
I skrifstofuhúsnæðinu. IM
mönnum,“ segir Valtýr Sigur-
bjarnarson formaður stjórnar
Fjórðungssambands Norðlend-
inga.
Á fundunum komu fram skipt-
ar skoðanir um hvort reka eigi
Fjórðungssamband Norðlend-
inga í heild eða hvort eigi að
skipta því upp í tvö kjördæma-
sambönd. Fjórðungssambandið
hefur sætt nokkurri gagnrýni frá
aðilum á Norðvesturlandi sem
telja hagsmunum sínum betur
borgið í kjördæmissambandi fyrir
Norðvesturland. „Jú, vissulega
komu fram ákveðnar skoðanir
sumra sveitarstjórnarmanna á
vestanverðu Norðurlandi í þessa
veru. Ég tel alveg víst að þessi
mál verði rædd á fjórðungsþingi í
haust og tel einnig skynsamlegt
að skipuð verði nefnd á slíku
þingi sem hafi það hlutverk að
skoða þessi mál ofan í kjölinn,“
segir Valtýr.
Valtýr benti á að nauðsynlegt
sé að menn velti hlutunum vel
fyrir sér áður en þeir segja sig úr
samstarfi sem Fjórðungssambandi
Norðlendinga. „Slíkt getur ekki
verið sveitarfélögum almennt til
góða. Meginniðurstaða þessara
funda er sú að rétt væri að athuga
málin og kanna hvort og hvernig
best væri að breyta samstarfi
sveitarfélaga hér á Norðurlandi
en ekki að segja sig úr þeint sam-
tökum sem nú cru fyrr en að
slíkri athugun lokinni.
Mér finnst skynsamlegast og
líklegast ef menn ætla út í
aðgerðir að þeir búi sér til 2-3 ára
áætlun. Svona breytingar eru
ekki gerðar í neinum flýti,“ segir
Valtýr Sigurbjarnarson. JOH
Unglingavinnan:
Ingibjörg
Jóhannesdóttir
- ráðin verkstjóri
Á fundi Umhverfismálanefndar
Akureyrar 3. maí var gengið
frá ráðningu verkstjóra og
Ijórtán flokksstjóra unglinga-
vinnunnar. Ingibjörg Jóhannes-
dóttir var ráðin verkstjóri í
sumar, en sex umsóknir bárust
um starfið.
Átján umsóknir bárust um
störf flokksstjóra, en þeir fjórtán
sem voru ráðnir heita: Ármann
S. Gylfason, Arnar Þorsteinsson,
Ágústa Björnsdóttir, Ólöf Inga
Andrésdóttir, Kristín Lind Birg-
isdóttir, Sveinn Jónsson, Björg
Eiríksdóttir, Sóley Einarsdóttir,
Sigríður Valdimarsdóttir, Sólveig
Hrafnsdóttir, Þráinn Karlsson,
Hilma Sveinsdóttir, Sigurður
Magnason og Helgi Þórsson.
Unglingavinnan hefst mánu-
daginn 6. júní, en formlegur
umsóknarfrestur um störf í ungl-
ingavinnu rennur út föstudaginn
13. maí. EHB
Kristján situr, en starfsfólk skrifstofunnar stcndur bak við hann.
Húsavík"
Höfði hf. flytur í nýtt húsnæði