Dagur - 11.05.1988, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 11. maí 1988
viðtal dagsins
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SfMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 660 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 60 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 465 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL PÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉSPÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
FRlMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN JÓSTEINSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Að þjóðinni forspurðri
Það fór svo sem marga grunaði að bjórfrumvarpið svo-
nefnda var samþykkt sem lög frá Alþingi í fyrrinótt. Áður
höfðu verið gerðar a.m.k. fjórar tilraunir á rúmlega 50
árum til að koma bjórnum í gegnum þingið, án árangurs.
Allt frá því fyrsta eiginlega bjórfrumvarpið leit dagsins
ljós árið 1932, hefur verið hart deilt um þetta mál og ef-
laust er leitun að lagafrumvarpi sem hefur hlotið jafn-
mikla og langvarandi umræðu og þetta. Það er í sjálfu sér
ofur eðlilegt - svo mikið er í húfi.
Nú sem fyrr sögðu flutningsmenn tilganginn með
frumvarpinu um að leyfa sölu og bruggun áfengs öls hér
á landi fjórþættan: í fyrsta lagi að draga úr neyslu sterkra
drykkja, í öðru lagi að breyta drykkjusiðum þjóðarinnar til
batnaðar, í þriðja lagi að afla ríkissjóði tekna og efla inn-
lendan öl- og gosdrykkjaiðnað, og síðast en ekki síst að
„skapa samræmi í áfengislöggjöfinni", með því að gefa
öllum landsmönnum kost á því að sitja við sama borð
hvað varðar bjórneyslu.
Andstæðingar bjórsins hafa frá upphafi haldið því fram
að rökin sem mæla gegn frumvarpinu séu margfalt sterk-
ari en rökin með. Þeir hafa bent á að rannsóknir Alþjóða
heilbrigðisstofnunarinnar svo og reynsla annarra þjóða,
sýni svo ekki verður um villst, að bjórneysla hefur aukist
verulega í öllum heimshlutum hin síðari ár, og kemur alls
staðar sem viðbót við aðra áfengisneyslu. Fyrsta rök-
semd flutningsmanna frumvarpsins hljóti því að teljast
haldlaus. Hvort bjórinn kemur til með að breyta drykkju-
siðum þjóðarinnar til batnaðar, skal ósagt látið. Reynslan
mun leiða það í ljós. En hafa skal í huga, að ef sú verður
ekki raunin, er of seint að byrgja brunninn. Hvað þriðju
röksemdina varðar, mun sala og bruggun áfengs öls hér
á landi vafalaust verða til þess að efla innlendan öl- og
gosdrykkjaiðnað. Hins vegar verður að telja fráleitt að
bjórsala komi til með að afla ríkissjóði aukinna tekna;
þ.e.a.s. ef heildarneysla áfengis kemur til með að standa
í stað eða minnka, sem hlýtur að vera höfuðmarkmið
þeirra þingmanna sem samþykktu frumvarpið. Þá er rétt
að vekja athygli á því að enn hefur enginn treyst sér til
þess að reikna út þann kostnað sem ríkið ber vegna
áfengisneyslu landsmanna. Sá kostnaður gerir líklega
meira en að éta upp tekjur ríkisins af áfengissölunni, þeg-
ar allt er talið. Hvað varðar fjórðu og síðustu röksemdina
með bjórnum, hefði allt eins mátt „skapa fullkomið sam-
ræmi“ í áfengislöggjöfinni með því að banna með öllu
innflutning og sölu áfengs öls hér á landi og láta alla
landsmenn sitja við sama borð með þeim hætti.
En bjórfrumvarpið hefur verið samþykkt sem lög frá
Alþingi og því verður ekki breytt. Frá og með 1. mars á
næsta ári verður áfengt öl því selt í útsölum ÁTVR og vín-
veitingahúsum um land allt. Eftir stendur að þjóðin fékk
ekki að segja álit sitt á þessu viðkvæma máli í þjóðarat-
kvæðagreiðslu, sem þó var tvímælalaust eina rétta
aðferðin við afgreiðslu þessa máls. Áfengisneysla er
nefnilega aldrei einkamál hvers og eins þegar öllu er á
botninn hvolft. Hún snertir hvern einasta landsmann
með einum eða öðrum hætti, fjölskyldur pg heimili, heil-
brigðisþjónustuna, löggæsiuna, dómskerá$ ffg svo maetti
lengi telja. Þar sem sá moguleiki er vissulega fyrir héhdi
meirihlúta Álþingis að sú leið var ekki farin. BB.
F
Ægir situr Hcklu, góðhryssu Ragnars Inga Tómassonar.
Árangur næst ekki í hrossarækt
á meðan ótamdar hryssur em notaðar
- segir Ægir Sigurgeirsson, formaður Hrossaræktarsambands
A.-Hún. í viðtali dagsins
Ægir Sigurgcirsson, bóndi í
Stekkjardal, hefur um áraraðir
stundað tamningar með bú-
skapnum og er mikiil fjöldi
hesta búinn að fara í gegnum
hendur hans í gegnum árin.
Hann er einnig hrossaræktar-
maður og á síðasta aðalfundi
Hrossaræktarsambands Aust-
ur-HúnavatnssýsIu var Ægir
kjörinn formaður þeirra sam-
taka. Hann hefur sýnt fjölda
góðhrossa á mótum, sérstak-
lega hér heima fyrir en annir
búskaparins hafa, að nokkru,
hamlað því að hann hefði þau
tækifæri sem hann vildi, til að
stunda hestamót í fjariægum
héruðum. Dagur heimsótti
Ægi til að fá fréttir af hesta-
mennskunni.
- Hvað er langt síðan þú fórst
að stunda tamningar?
„Ég byrjaði á þessu eftir að ég
var á Hvanneyri veturinn 1976-
1977. Hafði þó verið mikið á
hestbaki frá því að ég var smá-
polli. Ég tem mest yfir vetrar-
mánuðina og fram að sauðburði á
vorin. Þó er ég oft lengur fram
eftir vorinu með trippi sem eiga
að fara á sýningar."
- Finnst þér hrossin ekki hafa
breyst til hins betra á þessum
árum?
„Notkun kynbótahesta er farin
að skila sér í ræktuninni og svo
eru menn farnir að koma með
hrossin yngri í tamninguna en
áður var, og algengara að þau
komi bandvön. Þá eru þau auð-
veldari, en það þarf að fara var-
lega með trippi á fjórða vetri.
Hrekkjahrossunum hefur fækkað
og svo lærist kannski með reynsl-
unni að komast hjá hrekkjun-
um.
- Veistu tölu þeirra hesta sem
þú hefur tamið?
„Það hef ég ekki hugmynd um,
en ég hef oft verið með svona 25
trippi á ári. Nú á síðustu árum
hef ég reynt að halda skrá yfir
þau hross sem ég hef tamið. Þar
kemur fram umsögn um þau í lok
tamningar og eitthvað um ætt
þeirra."
Kynbótahesturinn
Urauinur of lítið notaður
- Þú hefur yerið talsvért með
sýningarhross, meðal annars
stóðhestinn Draum 926.
„Draumur var sýndur með
öðrum afkvæmum Hrafns frá
Holtsmúla, á Vindheimamelum
1978, þá fjögurra vetra. Hann
fékk þá einkunnina 7,74 sem ein-
staklingur.
Ég tók við honum eftir að
Hrossaræktarsamband A.-Hún.
keypti hann. Ég sýndi hestinn í
Húnaveri 1980 og þá hækkaði
hann í einkunn í 7,88.
Búnaðarfélag íslands gefur út
töflu yfir einkunnir sýndra stóð-
hesta og þar var Draumur alltaf
með þá einkunn sem hann hlaut á
Vindheimamelum. Ég veit ekki
hvernig á því stóð að hærri ein-
kunnin hans kom aldrei fram.
Ég hef tamið yfir 20 trippi und-
an Draumi, að sjálfsögðu undan
misjöfnum mæðrum. Þrátt fyrir
það hafa þau komið þokkalega
út.
Ég held að það hefði átt að
nota hestinn mun meira en gert
var, áður en hann var seldur úr
landi."
Það er mikið til af
góðum hryssum í héraðinu
- Ert þú ekki sjálfur á kafi í
hrossaræktinni?
„Ég á orðið átta ættbókarfærð-
ar hryssur. Tvær þeirra eru
ótamdar og komust í ættbók út á
afkvæmi og þrjár af hryssunum
eru dætur Draums 926.
Ég hef reynt að nota bestu
stóðhestana sem hafa verið hér á
boðstólum hverju sinni. Það eru
flestar mínar merar að verða
tamdar, það þýðir ekki að taka
inn í ræktun hross sem ekki er
vitað hvað býr í. Það er ekki
regla að góður hestur og góð
hryssa skili góðum afkvæmum.
Yfirleitt hafa hross einhverja
galla og það þarf að forðast að
sami galli leynist í báðum foreldr-
um hrossa sem nota á í ræktun-
inni.
Á komandi sumri reikna ég
með því að sýna eina hryssu sem
ég á með afkvæmum og þrjár til
fjórar hryssur sem einstaklinga
fyrir aðra.“
- Þú varst fyrir skömmu kjör-
inn formaður Hrossaræktarsam-
bands A.-Hún. Eru uppi ein-
hverjar stórar hugmyndir í sam-
bandi við það starf?
„Þetta er svo nýkomið til að
lítið hefur enn fæðst af nýjum
hugmyndum. Það fyrsta verður
auðvitað undirbúningur hinnar
árlegu héraðssýningar á kynbóta-
hrossum, sem haldin verður í
júní. Ég hef vissan áhuga á að
koma á fót haustsýningum fyrir
kynbótahross. Margt af þeim
unghryssum sem fara fyrir sýn-
ingardóm á vorin eru það
skammt komnar í tamningu að
þær komast ekki í ættbók, þó að
þær komist auðveldlega þar inn
eftir áframhaldandi tamningu yfir
sumarið. Eins er talsvert af hryss-
um sem hafa einhvern tfma verið
tamdar en ekki hlotið dóm fyrir
hæfileika. Þær mætti slípa upp
yfir sumarið, þegar þær eru geld-
ar og fá þær dæmdar að hausti.
Það þarf að temja mun meira af
hryssum en gert hefur verið á
undanförnum árum.
Menn ná ekki árangri með því
að leiða undir kynbótahestana
ótamdar hryssur sem ekki er vit-
að hvað býr í. Það er mikið til af
góðum hryssum í héraðinu, sem
þarf að temja og taka þær lakari
út úr ræktuninni.
Héraðssýningarnar sem liafa
verið fastur liður í starfi hrossa-
ræktarsambandsins, frá árinu
1980, hafa orðið mönnum hvatn-
ing til að temja hryssurnar.
Ég hef áhuga á því að hrossa-
ræktarsambandið gefi út frétta-
bréf, með greinargóðri lýsingu á
kynbótahestum sem verða á boð-
stólum hverju sinni, í hvaða hólf-
um þeir verða og á hvaða tíma.“
- Hvaða kynbótahesta á
hrossaræktarsambandið í dag?
„Við keyptum kynbótahestinn
Höð 954, að hálfu, á síðasta ári
og þar að auki eigum við hlut í
fjórum öðrum kynbótahestum.
Við erum nú að leita eftir stórætt-
uðu og efnilegu hestfolaldi, eða
unghesti, sem mundi hafa veru-
legt kynbótagildi. Það hefur sína
kosti að eiga fleiri kynbótahesta,
og þá með öðrum, það eykur
fjölbreytnina.
Það sem háir hrossarækjtinni í
dag er fjármagnsskortur. Afkom-
an hefur byggst á ræktunarfram-
lögum frá ríkinu, sem mér skilst
að Jón Baldvin sé nú að reyta af
okkur,“ sagði Ægir að lokum. fh