Dagur - 30.06.1988, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 30. júní 1988
Sláturhús KEA
á Akureyri:
Sumar-
slátrun
hefst í
ágúst
„Við reiknum með að í fyrstu
viku ágústmánaðar verði byrj-
að að slátra,“ segir Óli Valdi-
marsson sláturhússtjóri KEA á
Akureyri aðspurður um hvort
einhver sumarslátrun verði hjá
sláturhúsinu að þessu sinni.
í fyrra var gerð tilraun með
sumarslátrun og tókst hún mjög
vel. Kjötiö var selt í verslanir á
Akureyri og „rann út“. Alls var
slátrað um 120 dilkum í sumar-
slátruninni í fyrra og gerir Óli ráð
fyrir svipuðum fjölda í ár. Dilk-
arnir komu úr næsta nágrenni við
Akureyri og eru margir bændur
áhugasamir um þessa tilraun,
enda margir dilkar orðnir nokk-
uð vænir á þessum tíma og lausir
við fitu.
„Það var mjög skemmtileg vigt
á þessum skrokkum í fyrra, þetta
voru skrokkar eins og fólk vill
hafa þá. Ég reikna með að lfkt og
í fyrra verði þetta kjöt selt í mat-
.vöruverslunum á Akureyri enda
tekur það okkur nokkurn tíma að
venja fólk við og koma því á
bragðið," segir Óli. JÓH
Vespubú á Akureyri
Óskar Erlendsson á Akureyri fann vespubú á dögunum. Búið var undir sólpalli í u.þ.b. 50 sentimetra hæð yfir
jörðu, við hús í Rauðumýri. Óskar sagði að vespan hefði verið fjarverandi þegar búið var tekið en vespan var
komin vel á veg við að hreiðra um sig þarna. Óskar sagði að vespur væru nú mun fieiri í bænum en fyrir nokkr-
um árum og sömuleiðis væri mikið af hunangsflugum, stundum tugum saman, í görðum við heimahús. Þær geta
stungið en ráðast aldrci á fólk nema þær séu áreittar. Mynd: tlv
Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri:
Félagið kært vegna verk-
fallsaðgerða á ílugvellinum
Kona búsett í Reyjavík hefur
kært Félag verslunar- og skrif-
stofufólks á Akureyri, vegna
atviks sem gerðist á Akureyrar-
flugvelli þann 1. maí síðastlið-
inn, í verkfalli félagsins. Kon-
unni var þá meinaður aðgang-
ur að flugvél Flugleiða á leið til
Reykjavíkur af fjölmennu liði
verkfallsvarða frá félaginu og
varð hún frá að hverfa, eftir
stympingar og orðaskak.
Konan krefst bóta vegna
kostnaðar við gistingu og ferða
með leigubíl, vinnutaps og þeirra
óþæginda sem hún telur sig hafa
orðið fyrir umræddan dag, sam-
tals að upphæð tæplega 110.000.-
krónur, auk málskostnaðar. Mynd
af atvikinu birtist í Degi daginn
Þekkt nöfn á
Melgerðismelum
- á „Big Country“-hátíðinni í sumar
„Ég vil ekkert segja um hvaða
skemmtikraftar koma að utan
en það verða þekkt nöfn,“
sagði Ómar Pétursson, þegar
hann var spurður um „Big
Country“ hátíðina sem á að
halda á Melgerðismelum í
sumar.
Ómar Pétursson ' sagði að
samningar við erlenda skemmti-
krafta væru tilbúnir til undirrit-
unar og ekki ætti eftir að gera
annað en að skrifa undir þá.
Hann væri í stöðugu sambandi
við umboðsmenn skemmtikrafta
gegnum telex og á annan hátt, en
fyrir skömmu voru einhverjir
endar ennþá lausir í þessum
samningaviðræðum.
„Við viljum sem minnst segja
meðan þetta er ekki komið á
hreint og ekki búið að undirrita
samninga. Það er búið að ganga
frá samningum við alla innlenda
skemmtikrafta og þetta lítur
mjög vel út. Núna erum við í við-
ræðum við bæjarfógeta um lög-
gæslu á svæðinu og annað og þetta
er allt á fullu,“ sagði Ómar.
í samtalinu við Ómar Péturs-
son kom fram að gestir munu
greiða fyrir aðgang að allri dag-
skránni inn á svæðið. Hann var
spurður að því hvort rétt væri að
aðgangur að svæðinu myndi
kosta 5-7000 krónur en Ómar
kvað slíkar tölur vera langt frá
lagi. EHB
eftir að það gerðist og er sú mynd
m.a. notuð sem gagn í málinu,
sem rekið er fyrir hönd konunnar
af Óskari Magnússyni hæstarétt-
arlögmanni í Reykjavík.
Að sögn Óskars, keypti konan
farmiða í Reykjavík sem gilti
fram og til baka og þar sem hún
var ekki með neinn farangur,
taldi hún sig ekki þurfa á af-
greiðslu að halda frá félagsmanni
Félags verslunar- og skrifstofu-
fólks og því getað gengið beint
urn borð í vélina. Hefði hún hins
vegar þurft á afgreiðslu að halda,
hafi Gunnar Oddur umdæmis-
stjóri Flugleiða haft rétt til að
sinna því starfi.
„Petta verður bara að hafa sinn
gang og dómstólarnir verða að
skera úr um málið. Þessi kæra
kom mér á óvart, þó svo að kon-
an hafi hótað því að kæra félagið
er atvikið átti sér stað á sínum
tíma,“ sagði Jóna Steinbergsdótt-
ir formaður Félags verslunar- og
skrifstofufólks í samtali við Dag.
„Við teljum konuna ekki hafa
verið beitta órétti og klst. áður en
vél Flugleiða fór í loftið, fór vél
frá FN til Reykjavíkur og miði
konunnar gilti í þá vél. Hún hefði
því getað komist suður hafi hún
ætlað sér það og virkilega legið
á," sagði Jóna ennfremur.
Þar sem nú verður gert réttar-
hlé næstu tvo mánuðina, verður
málið ekki tekið upp fyrr en í
haust og síðan mun taka ein-
hverja mánuði til viðbótar að fá
dóm, ef að líkum lætur. -KK
Bændur
skiptast á
framleiðslu-
rétti
- samþykki búnaðar-
sambands þarf ef flytja
á kvóta milli jarða
„Það er varla hægt að segja að
við höfum dæmi um að menn
hafí selt hluta fullvirðisréttar
jarða, þeir hafa þá selt hann
allan ef þeir hafa verið að
hætta,“ sagði Guðmundur
Steindórsson, ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Eyjafjarð-
ar, þegar hann var spurður að
því hvort fyrir kæmi að bænd-
ur seldu framleiðslurétt af
jörðum sínum.
Samkvæmt reglugerð stendur
bóndi, sem vill selja framleiðslu-
rétt jarðar sinnar, t.d. ef hann er
að hætta búskap, frammi fyrir
tveimur valkostum. í fyrsta lagi
getur hann selt eða leigt Fram-
leiðnisjóði fullvirðisrétt jarðar-
innar. í öðru lagi getur hann selt
öðrum bónda þennan rétt, en í
því tilviki verður að leita sam-
þykkis viðkomandi búnaðar-
sambands ef flytja á framleiðslu-
rétt milli jarða. Gildir hér sama
regla hvort sem um er að ræða
mjólkurframleiðslu eða sauðfjár-
búskap.
Hjá búnaðarsamböndum
Eyjafjarðar og Skagfirðinga
fengust þær upplýsingar að nokk-
uð væri um að menn seldu hvor
öðrum framleiðslurétt. í Eyja-
firði er aðallega um að ræða
mjólkurkvóta en í Skagafirði
einnig framleiðslurétt sauðfjár-
afurða. Þar kemur einnig fyrir að
menn skipta á framleiðslurétti í
mjólk og sauðfé.
Ef flytja á fullvirðisrétt af
bújörð yfir á aðra jörð sem hefur
engan kvóta þurfa búnaðarsam-
böndin að meta hvort húsakost-
ur, landstærð og jarðnæði henta
fyrirhuguðum búskap. Kemur þá
til greina hvort viðkomandi ætli
að sitja jörðina eða ekki, og einn-
ig þarf jörðin að vera á skrá land-
búnaðarráðuneytis yfir lögbýli.
í samtölum við ráðunauta bún-
aðarsambandanna kom fram að
búum hefur fækkað á undanförn-
um árum norðanlands. Kvóti
þeirra sem hætta búskap fer þá
stundum til annarra, oft til fleiri
aðila, eða er seldur Framleiðni-
sjóði. EHB
DAGUR
Húsavík
8 9641585
Norðlenskt dagblað
Norðurland vestra:
Upprekstur sauðljár
hefst um mánaðamót
„Gróður er heldur seinna á
ferðinni nú en í fyrra, að okkar
mati,“ sagði Sveinn Runólfs-
son, landgræðslustjóri, en
hann ferðaðist um heiðar á
Norðurlandi vestra í síðustu
viku til að kanna ástand
gróðurs.
Landgráeðslustjóri og gróður-
eftirlitsmenn fara á hverju ári í
rannsóknaíeiðangra um heiðar
og afréttarlönd ásamt gróður-
verndarnefndunt á hverjum stað.
Venjan er að fara slíkar ferðir
áður en leyfi er gefið til upp-
rekstrar sauðfjár á afréttar, og að
sögn Sveins var fullt samkomulag
um að leyfa upprekstur þegar um
næstu mánaðamót.
„Þetta lítur ekki illa út, það var
orðið dálítið þurrt en nú hefur
rignt víðast hvar og útlit með
sprettu er ekki slæmt. Gróður er
ívið seinni til en á sama tíma í
fyrra og upprekstur sauðfjár
hefst víðast hvar um mánaðamót-
in. Ég hef farið á nokkrar heiðar
með gróðurverndarnefndum og
það er fullt samkomulag um upp-
rekstrartímann," sagði land-
græðslustjóri. EHB