Dagur - 30.06.1988, Síða 9
8-DAGUR-30. júní 1988
30. júní 1988 - DAGUR - 9
Hótel Edda Hrafnagili:
- spjallað við Hauk Pálsson hótelstjóra
„Mig iangaði að breyta til og
sótti því um komast að á eitt-
hvert hótel hjá Ferðaskrifstofu
ríkisins og fékk þetta. Mér líst
mjög vel á mig hérna,“ sagði
Haukur Pálsson hótelstjóri á
Hótel Eddu við Hrafnagil.
Hótelið var opnað nú fyrir
skömmu, en það starfar nú
fjórða sumarið í röð. Haukur
sagði útlitið gott varðandi
bókanir í sumar og var því
bjartsýnn.
Gestum hótelsins í sumar gefst
kostur á eins konar málverkasýn-
ingu, því Haukur samdi við fjóra
unga Akureyringa sem nám
stunda í Myndlistarskólanum um
lán á málverkum. Petta eru þau
Gunnlaug Sigurðardóttir, Seíma
Sverrisdóttir, Erika ísaksen og
Þórarinn Blöndal. Um er að ræða
átta verk sem prýða veggi hótels-
ins og sagði Haukur það lífga
mjög upp á umhverfið.
Hvað bókanir varðar, sagði
Haukur að júní væri nokkuð
góður, von var á ólympíulands-
liði fatlaðra í sundi en lið-
ið ætlaði að dvelja í æfinga-
búðum að Hrafnagili og fara í
sund þrisvar á dag. Þá var von á
tveimur stórum hópum aldraðra,
frá Keflavík annars vegar og
Akranesi hins vegar og eru þeir
væntanlegir næstu daga. Fastir
hópar erlendra ferðamanna
koma að Hrafnagili þrisvar í viku
í allt sumar. Einnig er talsvert um
að fólk komi án þess að eiga
pantað fyrirfram. „Það er eitt-
hvað um afföll á pöntunum, en
ekki það mikið að það geti talist
óeðlilegt,“ sagði Haukur.
Bókanir í júlí eru einnig ágæt-
ar, sem og í fyrstu viku ágúst-
mánaðar, en upp úr því fer að
hægjast um. Hótelinu verður síð-
an lokað þann 22. ágúst.
Á Edduhótelinu að Hrafnagili
eru 35 herbergi, 22 tveggja
manna, 10 fjögurra manna og tvö
herbergjanna eru ætluð einum
manni. „Þetta er mjög viðráðan-
leg stærð á hóteli,“ sagði Hauk-
ur, sem undanfarin fimm sumur
hefur starfað í gestamóttöku á
Hótel Valhöll á Þingvöllum.
Haukur er annars menntaður
kennari og starfar sem slíkúr í
Búðardal að vetrinum, sem og
einnig kona hans Una Björg
Bjarnadóttir. Hún starfar einnig á
Hrafnagili í sumar og eru þau hér
ásamt þriggja ára gömlum syni
sínum.
„Þetta er mjög friðsæll staður
og gott að dvelja hérna. Hingað
kemur mikið af fjölskyldufólki og
það hefur nóg við að vera. Sund-
laugin er prýðileg og hentar
börnum vel þar sem hún er frekar
grunn. Þá er leikvöllur hér fyrir
utan og við erum með svokallað
kubbahorn hérna inni þar sem
börnin geta dundað sér,“ sagði
Haukur.
Að Hrafnagili er matsala fyrir
gesti og gangandi, en salurinn
tekur á milli 80-90 manns í sæti.
Á sunnudögum er boðið upp á
kaffihlaðborð, þar sem kökur af
ýmsu tagi sveigja borðin og fyrir
yngstu gestina er á boðstólum þar
til gerð „nammiterta“. Kokkur-
inn er sérlega góður,“ sagði hót-
elstjórinn og gaf honum háa
einkunn. Kokkurinn heitir Jó-
hann Sigurðsson og er frá
Blönduósi, hvar hann lærði list-
ina á hóteli staðarins. „Við
leggjum aðaláhersluna á svína-
kjötið, en við bjóðum upp á fjöl-
breyttan matseðil,“ sagði Jóhann
kokkur, sem einnig er leikinn í
að matreiða silung og segist hafa
steikt nokkur tonn af honum.
Húsgögn í setustofu og matsal
voru endurnýjuð fyrir tveimur
árum og sagði Haukur það mikil-
vægt að bjóða upp á góða
aðstöðu fyrir gesti. „Við erum
bjartsýn á sumarið. Það er gott
að vera hérna,“ sagði hótelstjór-
inn að lokum. mþþ
Hótelstjórinn Haukur Pálsson, sem á veturna er kennari í Búðardal, Hjördis
Valgeirsdóttir starfsstúlka og nýrakaður og strokinn stjörnukokkur frá
Blönduósi, Jóhann Sigurðsson. Mynd: mþþ
Allt í útileguna
Hústjöld 4ra manna
Tjöld 2ja-5 manna
Svefnpokar
Kælitöskur 24 og 32 I
Matarsett fyrir 4 og 6
Pottasett
Aukasúlur í 3ja og 5 manna tjöld
Tjaldhælar og fleira og fleira
VISA
Opið laugardaga kl. 9-12.
EYFJÖRÐ
Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275
li
E
Nú ætlar þú líka að vinna!
I
í Fjarkanum
nýju skafmiðahappdrætti - geturþú unnið
bgótal
Ford Escort
utanlandsferðir
margt
f'jarkinn er nýtt og spennandi hraðhappdrætti
Handknattleikssambands íslands og Skáksam-
bands íslands og í því áttu von á vænum vinningi.
í Fjarkanum eru 54.844 vinningar í boði og
bíða eftir að þú skafir ofan af þeim. Vertu með
og skafðu til vinnings því í Fjarkanum hefuralltaf
einhver heppnina með sér.
Vinningslíkur eru með ólíkindum. Pín bíður
vinningurað jafnaði í fjórða hverjum Fjarka og
vinningshlutfall er 51 %.
Fjarkinn býður þér tvo skemmtilega og spennandi
leiki.
ÞÚ GETUR UNNIÐ FORD ESCORT
í FJARKA-HAPPDRÆTTI
ú skefur afskákreitunum og efþú færð fjórar
r myndir eins hlýturðu vinning. Fjórir handbolt-
ar gefa gullfallegan Ford Escort að verðmæti
kr. 580.000. Nýjan glæsivagn - hvorki meira
né minna.
Fjórir kóngar gefa þér Accord skáktölvu að verð-
mæti kr. 10.000; fjórir hrókar gefa Goal hand-
bolta að verðmæti kr. 2.000 og fjórir riddarar
Adidas Miami íþróttatösku að verðmæti kr. 500.
annað
Fyrir vinning í Fjarka-happdrætti að verðmæti kr. 10.000,
kr. 2.000 og kr. 500 færðu VISA-vöruúttektarseðil,
sem þú getur framvísað í verslunum og hjá þjónustu-
aðilum VISA um land allt. Möguleikarnir í Fjarkanum
eru óteljandi.
FJARKINN BÝÐUR BÓNUS
- UTANLANDSFERÐ MEÐ
FLUGLEIÐUM
/\llir safna einhverju, hvort sem það eru
servíettur, frímerki eða myndir af
frægum kvikmyndaleikurum? En hefurðu
safnað liði?
I Fjarkanum skefur þú af handboltavellin-
um og þá kemur í Ijós nafn stórmeistara í
skák eða landsliðsmanns í handknattleik.
Safnaðu Fjörkum með nöfnum sex stór-
meistara í skák eða nöfnum sjö lands-
liðsmanna í handknattleik og þú ert
lukkunnar pamfíll - þú hefur. unnið utan-
landsferð að eigin vali með Flugleiðum.
Það vinna fleiri í Fjarkanum - fjórði hver
Fjarki ber að jafnaði vinning. Fáðu þér fjóra
Fjarka í einu.