Dagur - 29.11.1988, Blaðsíða 1
r
71. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 29. nóvember 1988
227. tölublað
Smóking
Kjólföt M
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Fækkun á vinnumarkaði
á Húsavík um 122 heil störf:
„Skattkerfisbreyt-
ingamar hafa
veruleg áhrif‘
- segir Bjarni Þór Einarsson bæjarstjóri
Samkvæmt atvinnumálakönn-
un sem gerð var á Húsavík og
sýnir stöðu fyrirtækja 1. okt.
sl. hefur fækkað um 122 heil
störf í bænum á síöasta ári, og
Húsavík:
Fjárhagsáætlun
endurskoðuð
- heildarijárvöntun
16 milljónir
Endurskoðun fjárhagsáætlun-
ar bæjarsjóðs Húsavíkur fyrir
árið 1988, ásamt endurskoðun
á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs,
hitaveitu, rafveitu og vatns-
veitu, liggur fyrir til afgreiðslu
á fundi bæjarstjórnar Húsavík-
ur sem hefst kl. 14 í dag í Fé-
lagsheimili Húsavíkur.
Upphafleg endurskoðun á fjár-
hagsáætlun var lögð fram í sept-
ember en ákvarðanatöku frestað
þar til upplýsingar um stað-
greiðslu útsvara lægju fyrir.
Samkvæmt hinni endurskoðuðu
áætlun er heildarfjárvöntun tæp-
lega 16 milljónir króna. Sú hug-
mynd er lögð fyrir bæjarstjórn að
verkefni verði skorin niður um
tæplega 7,7 milljónir og síðan
verði bilið brúað með skammtíma-
lántöku að upphæð tæplega 8,3
milljónum króna. IM
atvinnurekendum hefur fækk-
að um 14. Við þjónustustörf
vinna 53,96% Húsvíkinga en
46,04% við framleiðslu- og
úrvinnslustörf.
Heildarstarfsmannafjöldi 1.
okt. var 999, en var 1121 fyrir ári
síðan og hefur því fækkað um
122 heil störf. Atvinnurekendum
hefur fækkað um 14, þeir eru 161
en voru 175 fyrir ári síðan.
„Fækkunin virðist aðallega
verða í frumvinnslugreinum og
þjónustan vex því hlutfallslega,
um 4% af heildinni. Eðlilegt er
að menn spyrji hverju þessi fækk-
un sætir þar sem atvinnu-
leysisdagar fyrstu níu mánuði
ársins eru 319 færri en sömu mán-
uði í fyrra,“ sagði Bjarni Þór Ein-
arsson bæjarstjóri, aðspurður um
líklegar orsakir fyrir þessunt
niðurstöðum.
„Sá mikli samdráttur sem hér
kemur fram, og þær ótryggu
horfur sem lesa má út úr þessari
samantekt, á rætur sínar að rekja
til óhagstæðra ytri skilyrða
atvinnulífsins. Þar sem skráð
atvinnuleysi hefur ekki aukist
fyrstu níu mánuði ársins, er eðli-
legt að draga þá ályktun að þær
breytingar á skattkerfinu sem
urðu urn síðustu áramót hafi hér
veruleg áhrif.“
Þann 1. desember 1987 voru
2502 íbúar á Húsavík en 1. okt.
sl. voru þeir 2482, aðeins 20 færri
en árið áður. 1M
Það var heldur betur fjör hjá börnunum á barnahcimilinu Flúðum á Akureyri sl. föstudag. Þá var slegið þar upp
villtu náttfataballi. Gleðin skcin úr hverju andliti. enda slík uppákoma ekki daglegur viðburður. Náttfataballið var
góð upphitun fyrir komandi vikur, en nú fer að verða tímabært að hefja undirbúning jólanna. Mynd. tlv
Amsterdam eða Illugastaðir um jólin?
StórQölskyldan fer
til Kanarí uni jólin
Þeir eru til sem kjósa að leggj-
ast í ferðalög yfir jólin, en eftir
líflegt haust í utanferðum
landsmanna virðist sem nokk-
ur ró sé að færast yfir mann-
skapinn og margir ætli sér að
eida heima þessi jólin. Talsvert
af fólki verður þó á faraldsfæti
og ber mönnum saman um að
Kanaríeyjar fari fremstar meðal
jafninga hvað vinsældir
snertir.
Gísli Jónsson hjá Ferðaskrif-
stofu Akureyrar segir fólk sækja
mikið í sólina og sé ásókn í hana
svipuö og undanfarin ár. Þá segir
hann að lengri ferálr séu cinnig á
dagskránni hjá fólki og eitthvað
sé um að fólk leggi iand undir fót
og fari alla leið til Austurlanda
fjær. Hefðbundnar ferðir til vina
og ættingja á erlendri grundu séu
einnig á döfinni hjá hópi fólks.
Kanaríeyjarferðirnar eru vinsæl-
astar og er á þær komin ákveðin
hefð. Einkum er það fjölskyldu-
fólk sem sækir eyjarnar heim yfir
7,23% samdráttur í innveginni mjólk fyrstu tvo mánuði verðlagsársins:
Ástæða til að hafa áhyggjur
af birgðastöðu næsta haust
segir Gísli Karlsson, framkvæmdastjóri Framleiðsluráðs landbúnaðarins
Á fyrstu mánuðum yfirstand-
andi verðlagsárs, september
og október, varð veraiegur
samdráttur í innveginni mjólk
miðað við sömu mánuði verð-
lagsárið 1987-1988. Á ÖUu
landinu nemur samdrátturinn
7,23%. Þessar tölur koina
nokkuð á óvart og hafa menn
áhyggjur af of litlum birgðum
mjólkurvara, einkum smjörs,
í upphatl næsta verðlagsárs.
Samdráttur í innveginni
mjólk er mismikil! í mjólkur-
samlögunum. Hjá Mjólkursam-
lagi KEA var 6,39% minna
magn mjólkur lagt inn í sept-
ember og október miðað viö
sömu mánuði í fyrra. Samdrátt-
urinn var 1,74% á Húsavík,
8,09% á Blönduösi, 8,95% í
Borgarnesi, 7,09% á Selfossi og
11,37% á Sauðárkróki.
Gtsli Karlsson, framkvæmda-
stjóri Framleiðsluráðs landbún-
aðarins segir að þessar tölur
kotni mönnum nokkuð á óvart.
Ekki hafi veriö búist við svo
miklum samdrætti. „Ég hef ekki
tiltækar skýringar á þessu
ennþá,“ segir Gísli.
Viðmælendur Dags nefna
nokkrar hugsanlegar skýringar
á samdrættinum. Nefnd er til-
færsla á burði kúa, minni kjarn-
fóðurgjöf, slæmt tíðarfar og að
bændur rniði framleiðslu í rík-
ara mæli viö það sem er innan
verðábyrgðar samkvæmt bú-
vörusanmingi.
Hvað Eyjafjarðarsvæðið
varðar virðist sú skýring líkleg-
ust að slæmt tíðarfar sl. haust
hafi orsakað verulegan sam-
drátt. September var leiðinleg-
ur mánuður veðurfarslega og
þann mánuð var 9% samdráttur
í innveginni mjólk hjá Mjólk-
ursatnlagi KEA miðað við santa
mánuð í fyrra. Samdrátturinn í
október var hins vegar 3%. Sala
á kjarnfóðri frá fóðurvörudeild
KEA styður þessa veðurfars-
kenningu. f september nam
aukning í kjarnfóðursölu 30%
miðað við september 1987. í
október sl. var 12% minni
kjarnfóðursala hjá KEA en í
sama múnuði í fyrra.
Gísli Karlsson scgir fulla
ástæðu til að hafa áhyggjur af
þessari þróun mála ef fram fer
sem horfir. Hann segir þó ekki
ástæðu til hræðslu við mjólkur-
skort þegar líða taki á veturinn
en ekki sé ósennilegt að þurfi að
miðla neyslumjólk milli lands-
hluta. Til þess hefur ekki þurft
að koma í mörg ár en flutningur
á rjóma frá mjólkurbúum
Norðanlands, t.d. Sauðárkróki
og Akureyri, á höfuðborgar-
svæðið hefur vsrið árviss við-
burður á liðnum árum bæði um
jól og páska. Guðlaugur Björg-
vinsson, forstjóri Mjólkur-
samsölunnar, segir áætlanir
ekki liggja fyrir um þörf höfuð-
borgarsvæðisins á norðlenskum
rjóma um þessi jól, tölur um
það verði væntanicga ljósar á
næstu dögunt.
Guðíaugur Björgvinsson seg-
ir að menn setji spurningamerki
við birgðastöðu mjólkurvara á
næsta hausti. „Óvenju miklar
birgðir af mjólkurdufti hjáipa til
eins og er. Það er notað í hinar
ýmsu vinnsluvörur, eins og
jógúrt og skyr. Með þessu móti
ættu endar að nást satnan í
vetur.“ Gísli Karlsson tekur
undir orð Guölaugs um ötta við
birgðastöðu við upphat' næsta
verðlagsárs. „Við erum ekki
með það miklar birgðir að við
getum staðið þetta af okkur ef
neyslan samsvarar 102 milljón-
um lítra eins og reiknað er með.
Það er t.d. full ástæða til þess að
óttast aö ekki verði nægilegar
birgðir af smjöri næsta haust.“
óþh
hátíðina og töluvert er um það að
stórfjölskyldan; með afa, ömmu
og öllum hinum, fari árlega til
Kanarí.
„Það verður ekki mikið um
jólaferðir hjá okkur,“ segir Ásdís
Árnadóttir hjá Samvinnuferðum-
Landsýn á Akureyri. Flogið
veröur til Kanaríeyja og Flórida
auk þess sem boðið verður upp á
svokallaða borgarpakka. Uppselt
er í ferðina til Kanaríeyja og öll
sæti full í Flórídaferð. „Fólk er
fariö að róast mikiðr“ segir Ásdís
og vísar til liressilegs hausts hvað
utanferðirnar varðar. Hún segir
að hátt á fjórða hundrað manns
hafi siglt utan lil borga í Evrópu í
haust og trónir Amsterdam þar
efst á vinsældarlistanum.
Af innlendum vettvangi segir
Hákon Hákonarson formaður
stjórnar orlofshúsanna á Illuga-
stöðum staðinn eiga vaxandi vin-
sældum að fagna yfir vetrarmán-
uðina og talsverður hópur fólks
hafi dvalið þar á milli jóla og
nýárs í fyrra. Enn er fólk ekki
farið að panta afnot af orlofshús-
unum um þessi jól, en þau standa
mönnum til boða. mþþ
Lögreglan:
Róleg helgi
Liðin helgi var fremur tíðinda-
laus á Akureyri og í nágranna-
byggðum. Hjá lögreglunni á
Akureyri fengust þær upplýsing-
ar að ökumenn hafi sýnt var-
kárni um helgina og því aðeins
orðið minniháttar umferðar-
óhöpp. Tveir ökumenn voru
teknir um helgina grunaðir um
ölvunarakstur
í Suður-Þingeyjarsýslu voru
fjórar útafkeyrslur aðfaranótt
laugardags og á laugardag. Öku-
tækin skemmdust töluvert en
ekki urðu slys á fólki. óþh