Dagur - 29.11.1988, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 29. nóvember 1988
Ráðherra ræðst gegn sauðfjárbændum:
Rödd úr fflabeinstumi
skrifstofumennskimnar
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Norðurlands:
Áform uppi um að sam-
tökin fái starfsmann
ólakirkju verður endurvígð á sunnudaginn kemur, en gagngerar endurbæt
' hafa verið gerðar á kirkjunni.
með þátttöku Byggðastofnunar
Aðalfundur Ferðamálasam-
taka Norðurlands var haldinn
á Hótel Mælifelli á Sauðár-
króki sl. fimmtudagskvöld.
Þrátt fyrir dræma mætingu
fóru fram miklar umræður um
málefni ferðamála á Norður-
landi og fluttar voru margar
ræður. Það sem helst brann á
vörum fundarmanna var starfs-
svið samtakanna og markmið,
auk bæklinga- og auglýsinga-
mála. Þá eru uppi áform um að
starfsmaður verði ráðinn í
hlutastarf hjá samtökunum,
með þátttöku Byggðastofnun-
ar.
Fundurinn hófst með borð-
haldi í boði Sauðárkróksbæjar og
Ferðamálasamtakanna. Að því
loknu fluttu framsögu Snorri
Björn Sigurðsson bæjarstjóri
Sauðárkróks, Valtýr Sigurbjarnar-
son forstöðumaður Byggða-
stofnunar á Akureyri og Reynir
Adolfsson ferðamálafulltrúi. Er
þeir höfðu lokið máli sínu fóru
fram aðalfundarstörf, skýrsla for-
manns og fluttir ársreikningar. í
ræðu formanns, Guðmundar Sig-
urðssonar frá Akureyri, kom
fram að helsta verkefni samtak-
anna, sem þau hefðu tekið þátt í
sl. ár, var stofnun upplýsinga-
miðstöðva fyrir ferðamenn á
Akureyri og í Reykjavík. En
áform eru uppi um að koma upp
7-8 slíkum upplýsingamiðstöðv-
um um land allt, og yrðu þá 3 á
Norðurlandi. Á fundinum var
mikið rætt um hvernig fjármagna
ætti rekstur slíkra miðstöðva og
hvar ferðamálasamtök á landinu
ættu að koma þar inn í.
Ný stjórn var kosin og við for-
mennsku samtakanna af Guð-
mundi tók Jón Pétur Líndal úr
Mývatnssveit. Varaformaður var
kjörinn Jón Gauti Jónsson Sauð-
árkróki og Þorleifur P. Jónsson
Akureyri verður áfram gjaldkeri.
Nánar verður sagt frá fundinum í
máli og myndum síðar í blaðinu.
-bjb
- segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson
vegna ummæla Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra
„Eg held að það hljóti að vera
einsdæmi að ráðherra í ríkis-
stjórn ráðist með slíkum hætti
á eina stétt manna, þ.e.
bændastéttina,“ sagði Jóhannes
Geir Sigurgeirsson á Önguls-
stöðum, en Jón Sigurðsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra
lét þau ummæli falla í síðustu
viku að neytendur þyrftu lík-
lega að grípa til þess ráðs að
hætta að kaupa dilkakjöt.
Þannig væri hægt áð neyða
bændur til að minnka ofbeit.
Jóhannes Geir sagði að þetta
væri þeim mun alvarlegra þar
sem hann efaðist um að nokkur
stétt á landinu hefði gert eins
mikið til að aðlaga sig breytt-
um aðstæðum eins og bændur,
sérstaklega sauðfjárbændur, þar
sem kindakjötsframleiðslan hef-
ur verið minnkuð um þriðjung á
einum áratug. „Bændur hafa lát-
ið þetta ganga yfir sig möglunar-
lítið og ails staðar orðið við
ábendingum um að minnka beit
þar sem á það hefur verið bent að
beitarþol væri lélegt. Ég tel að
ummæli ráðherrans um sauðfjár-
ræktina komi frá manni sem hef-
ur setið í fílabeinsturni skrifstofu-
mennskunnar.
Almennt tel ég að fólk geri sér
grein fyrir því átaki sem sauðfjár-
bændur hafa gert. Ef fleiri þjóð-
félagshópar hefðu tekið eins vel á
sínum málum og bændur væri
margt öðruvísi en það er í dag.
Ég vil beina því til Jóns Sigurðs-
sonar hvort honum væri ekki nær
að líta til fjármagnsmarkaðarins
og athuga hvort ekki væri um
„ofbeit“ að ræða þar. Hann ætti
að líta sér nær ef hann vil hreinsa
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Hátíðarmessa
Sunnudaginn 4. desember nk.
verður mikið um að vera að
Hólum í Hjaltadal. Þá verður
haldin hátíðarmessa í kirkj-
unni að Hólum, í tilefni af því
að gagngerum endurbótum á
þessari elstu kirkju landsins er
nú lokið.
Hátíðarmessan hefst kl. 13.30
og mun biskup íslands, herra
Pétur Sigurgeirsson, prédika.
Séra Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup á Hólum, þjónar
fyrir altari. Að lokinni messu
verður sérstök dagskrá í kirkj-
unni og mun Porsteinn Gunnars-
son, arkitekt og leikari, flytja
aðalræðuna. Þá mun kirkjumála-
ráðherra, Halldór Ásgrímsson,
flytja ávarp.
Áð lokinni dagskrá er boðið í
veislukaffi í skólahúsinu. Norð-
lendingar eru hvattir til að mæta
og sýna þannig þessari sögufrægu
kirkju virðingu í verki. BB.
til í þjóðfélaginu. Petta svokall-
aða frelsi á fjármagnsmarkaðinum
hefur höggvið að rótum atvinnu-
veganna og ekki síður heimilanna.
Umfjöllun um landbúnað og
sauðfjárrækt hefur þróast í þá
veru að verða jákvæðari undan-
farin ár og því er rödd ráðherra
ennþá meira hjáróma en ella. Þá
við ég benda á tvískinnung sem
hefur ítrekað komið fram hjá
krötum: Þeir hafa hvað eftir ann-
að ýtt á eyðingu gróðurlendis á
hálendinu vegna virkjanafram-
kvæmda en þá hefur aldrei heyrst
hósti né stuna í „landverndar-
mönnum“ í Alþýðuflokknum.
Þeir eru því ekki sjálfum sér sam-
kvæmir í þessum málum,“ sagði
Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
EHB
Það getur ýmislegt rekið á fjörur manns. Þetta rússneska hlustunardufl rak
á fjörurnar á Þingeyrasandi. Svipuð dufl hafa fundist í Kelduhverfi. Mynd: fh
Landhelgisgæslan
/
Síöastliðinn miðvikudag kom
þyrla frá varnarliöinu á Kefla-
víkurvelli á flugvöllinn á
Blönduósi og hafði meðferðis
hlustunardufl sem rekið hafði
á fjöru á Þingeyrasand.
Duflið ya.r .skilið eftir á flug:
vellinum en tekið þaðan að
á Þingeyrasandi og í Kelduhverfi
kvöldi sama’dags. Þetta er ekki í
fyrstá skipti sem dufl hefur rekið
á Þingeyrasandinn. Þáð mun hafa
verið 1979 sem dufl rak þát síðast
á land. Það var rannsakað á
staðnum af starfsmönnum Land-
helgisgæslunnar en síðan skilið
eftir á stáðnum'. Það er nú áð
Bjór er líka áfengi
Umferðarráð hefur skorað á
stjórnvöld að á bjórumbúðum
verði viðvörun sem segi að eft-
ir neyslu áfengs öls sé akstur
bannaður. I ályktun frá fundi
ráðsins segir að í tilefni af því
að 1. mars 1989 verði leyft að
selja áfengt öl hér á landi þá sé
nauðsynlegt að gera almenn-
ingi grein fyrir því að eftir
neyslu áfengs öls skerðist
hæfni manna til að stjórna vél-
knúnum ökutækjum.
„Ráðið óttast að ef áfengt öl
veður þess valdandi að neysla
vínanda aukist muni, þegar til
lengri tíma er litið, útgjöld ríkis-
ins á ýmsum öðrum sviðum auk-
ast verulega. Með tilliti til þessa
skorar Umferðarráð á stjórnvöld
að merkja umbúðir áfengs öls
með viðvörun þess efnis að eftir
neyslu þess sé akstur varhuga-
verður og bannaður," segir í
ályktun Umferðarráðs.
Ályktun Umferðarráðs hefur
verið send ráðherrum dómsmála,
fjármála og heilbrigðis- og trygg-
ingamála svo og til nefndar um
átak í áfengismálum. JÓH
méstu horfið þar í sand.
Að Sögn Gylfa Geirssohar,
spréngjusérfræðings Landhelgis-
gæslunnar var tilkynnt um þetta
dufl til gæslunnar fyrir einum sex
vikum. Hann sagði að þetta væri
eitt af þessum rússnesku hlustun-
arduflom sem oft væru að reka
hér á land og væru með öllu
hættulaus. Gylfi sagði að menn
frá gæslunni hefðu farið á mið-
vikudaginn í hreinsunarferð og
tekið þetta dufl og annað sams
konar sem rekið hafði á land í
Kelduhverfi. Þeir hefðu tekið
duflið sem skilið var eftir við
flugvöllinn á Blönduósi með sér
suður þegar þeir komu úr Keldu-
hverfinu á miðvikudagskvöldið.
Við verkefni sem þessi er sam-
vinna á milli varnarliðsins og
Landhelgisgæslunnar og þyrlur
varnarliðsins þá gjarnan notaðar
vegna meiri flutningsgetu og eins
það að þyrla Landhelgisgæslunn-
ar- er fyrst og fremst ætluð til leit-
ar og björgunarstarfa og því ekki
æskilegt að binda hana yfir öðr-
um verkefnum. fh