Dagur - 29.11.1988, Síða 8
8S6f .istímoYÖn -- flUí'Aö — 9
29. nóvember 1988 - DAGUR - 7
Sigurganga KA heldur áfram
Fei á fleygiferð í leiknum gegn HK,
KA heldur áfram sigurgöngu
sinni í blakinu og aö þessu
sinni voru það HK-drengirnir
úr Kópavogi sem urðu fyrir
barðinu á hinu fríska KA-liði.
Leikurinn var einn sá fjörug-
asti sem hefur verið hér á
Akureyri og unnu KA-menn
örugglega 3:0.
KA-menn höfðu sagt fyrir leik-
inn að HK væri það lið sem þeir
væru hvað hræddastir við og þessi
hræðsla virtist sitja í þeim í fyrstu
hrinunni. HK komst því í 4:0 og
8:4.
En þá fór KA-vélin í gang og
munaði þar mestu um stórlcik
Stefáns Jóhannessonar. Hann
skoraði fimm stig með stórkost-
legum smössum sem glumdu í
fjölum Glerárskóla. Petta gaf
hinum leikmönnum liðsins tón-
inn og eftir þetta átti HK ekki
möguleika gegn hinu kraftmikla
KA-liði.
KA saxaði á forskot HK jafnt
og þétt og áttu Kópavogspiltarnir
ekkert svar við sterkum varnar-
leik heimamanna. Hrinunni lauk
því nteð öruggum sigri KA 15:10.
Önnur hrinan var einstefna af
hálfu KA-liðsins. Hávörnin var
mjög góð hjá þeint og virtist þessi
sterki varnarleikur koma HK-lið-
inu í opna skjöldu. Einfaldar
uppgjafir mistókust hjá þeim og
uppspilið var ekki nógu gott.
Hrinunni lauk því með sigri KA
15:7.
Þriðja hrinan virtist ætla að
verða enn auðveldari fyrir þá gul-
klæddu. Þeir komust í 11:3 og
stefndi allt í stórsigur liðsins. En
gestirnir voru ekki á því að gefast
upp og smá kæruleysi grcip um
sig í KA-liðinu.
HK náði því að saxa á forskot
KA án þess þó að ógna því að
einhverju ráði. KA innbyrti
sigurinn með góðum smössum frá
Fei og Gunnari Garðarssyni og
þar með hafði KA unnið lcikinn
3:0.
í liöi KA átti Stefán Jóhannes-
son stórleik og voru smössin hjá
honum sannkölluð augnayndi. í
þessum leik voru Gunnar Garð-
arsson, Haukur Valtýsson og
þjálfarinn Fei einniggóðir, í ann-
ars mjög jöfnu KA-liði.
í lið KA vantaði Einar
Ásgeirsson og munar um minna.
Þeir Vignir Hlöðversson og Geir
Hlöðversson áttu bestan leik HK
að þessu sinni.
Með þessum sigri er KA enn
eitt á toppnum í 1. deildinni í
blaki. Liðiö leikur næst við ÍS um
aðra helgi hér á Akureyri og má
þar búast við hörkuviðureign því
ÍS er núverandi íslandsmeistari.
Tap hjá stúlkunum
Stúlkurnar í KA liðinu riðu ekki
feitum hesti frá viðureign sinni
um helgina. Á föstudaginn tapaði
liðið fyrir hinu sterka liði Víkinga
3:0.
Það gekk örlítið betur á laug-
ardag er liðið lék gegn HK-stúlk-
unum. Þá unnu KA-stelpurnar
fyrstu hrinuna 15:12.
Sú hrina var mjög jöfn og mátti
sjá tölurnar 5:5, 8:8 og 10:10. Aö
lokum tókst KA að innbyrða
sigurinn 15:12.
1 annarri hrinunni gekk ekkert
upp hjá Akureyrardömunum og
á sama tíma gekk allt upp hjá
HK. HK sigraði því auðveldlega
15:5.
Þriðja hrinan var nokkuð
spennandi en HK hafði frum-
kvæðið allan tímann. KA-liðið
barðist vel í leiknunt en hafði
ckki erindi sem erfiði. HK sigraði
því aftur 15:5.
I seinustu hrinunni börðust
KA stelpurnar ágætlega en HK
liðið var hreinlega betra. Hrinan
endaði því 15:9 og þar með vann
HK leikinn 3:1.
Á eftir meistaraflokksleiknum
léku sömu lið í 2. flokki kvenna,
en uppistaðan í báðum liðum
voru sömu stúlkurnar. Skemmst er
frá því að segja að HK sigraði
örugglega 2:0.
Að vanda voru Hrefna
Brynjólfsdóttir og Karitas Jóns-
dóttir sterkustu leikmenn meist-
arflokksliðs KA. Þær áttu marga
ágæta skelli í leiknum og spiluðu
þær stöllur sínar í liðinu oft vel
upp. Hins vegar vantar þær til-
finnalega aðstoö frá hinum í lið-
inu og ekki vinnur liðið leiki á
tveimur manneskjum.
Handknattleikur yngri flokkar:
Þór sigraði í 1. deild
- í 4. flokki - KA vann sig upp um deild
Þórsarar gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu í 1. deildinni í 4. flokki
núna um helgina. Riðillinn var
spilaður í Höllinni og var sigur
Þórsstrákanna fyllilega verð-
skuldaður.
Þór gaf tóninn strax á föstu-
dagskvöldið með því að leggja
FH auðveldlega að velli 24:16.
Sigurganga Þórsara hélt áfram á
laugardaginn með góðum sigr-
um á Haukunt, Stjörnunni og
Víkingi.
Á sunnudag var síðan mikil
spenna í herbúðum Þórsara því
þá mættu þeir bestu liðununt
Fram og KR. En fyrst lögðu
strákarnir Fram og síðan tryggðu
þeir sér sigur í deildinni með því
að gera jafntefli við KR.
Úrslit í leikjum Þórs:
Þór-FH 24:16
Þór-Haukar 23:17
Þór-Stjarnan 30:15
Þór-Víkingur 28:19
Þór-Fram 24:22
Þór-KR 21:21
Lokastaðan:
1. Þór
2. Fram
3. KR
4. Haukar
5. Víkingur
6. FH
7. Stjarnan
Páll Pálsson skoraði fallcg mörk úr
horninu fyrir Þór. Mynd: tlv
KA vann sig upp í 2. deild
KA-strákarnir í 4. flokki stóðu
sig einnig vel um helgina. Þeir
léku í 3. deild á Seltjarnarnesi og
sigruðu örugglega í þeim riðli og
færast því upp í 2. deild.
Völsungarnir frá Húsavík léku
í söniu deild en náðu ekki að
vinna sig upp, eins og nágrannar
þeirra frá Akureyri.
Urslit í leikjum KA og Völsungs:
KA-UMFN 21:5
KA-Grótta 22:7
KA-Völsungur 14:10
KA-UMFA 23:14
KA-Hveragerði 17:8
KA-ÍBK 21:13
Völsungur-UMFN 19:21
Völsungur-ÍBK 20:15
Völsungur-UMFA 15:16
Völsungur-Grótta 28:10
Völsungur-UFHÖ 27:16
Lokastaðan 13. dcild:
1. KA
2. UMFA
3. UMFN
4. Völsungur
5. Grótta
6. ÍBK
7. Hveragerði
Vegna þrengsla í blaðinu munum
við birta úrslit hjá öðrum yngri
flokkum sem spiluðu um helgina
síðar í vikunni.
Guömundur Benediktsson var atkvæðamestur Þórsara um helgina. Hér sést
hann skora í leik gegn Haukum sem Þór vann 23:17. Mynd: tlv