Dagur - 29.11.1988, Page 13
Akureyri:
Aðventutónleikar
Passíukórsins
□ HULD 598811307 w/v H.v.
Jóhannes Jóhannesson fyrrum
bóndi á Neðri-Vindheimum nú til
heimilis að Hlíðargötu 7, Akureyri
verður 80 ára í dag 29. nóvember.
Hann og kona hans taka á móti gest-
um að Hótel KEA frá kl. 14.00.
Aðventutónleikar Passíukórsins
verða haldnir fimmtudaginn 1.
desember kl. 20.30 í Akureyrar-
kirkju. Verkin sem flutt verða á
tónleikunum eru: Messe de
minuit (Miðnæturmessa) eftir
M.A. Charpentier og Meine
Seele erhebt den Herrn (önd mín
lofar Drottin) eftir G.P. Tele-
mann. Miðnæturmessan er byggð
á gömlum frönskum jólalögum
sem mörg eru sungin enn þann
dag í dag í Frakklandi. Textinn
er hefðbundinn messutexti.
Meine Seele erhebt den Herrn er
Magnificat eða lofsöngur og er
textinn Lofsöngur Maríu úr Lúk-
asarguðspjalli er hefst á orðunum
Önd mín lofar Drottin.
Passíukórinn fær marga hæfa
tónlistarmenn til liðs við sig á
tónleikunum. Fimm einsöngvar-
ar taka þátt í flutningnum, en
þeir eru: Margrét Bóasdóttir
sópran, Liza Lillicrap sópran,
Þuríður Baldursdóttir alt, Micha-
el Jón Clarke tenór, og Kristinn
Sigmundsson bassi. Björn Stein-
ar Sólbergsson leikur á nýja org-
elið í Akureyrarkirkju, og aðrir
hljóðfæraleikarar eru félagar úr
Kammersveitinni á Akureyri.
Stjórnandi er Roar Kvant.
Aðstandendur tónleikanna
vænta þess að Akureyringar
komi og njóti fallegrar tónlistar í
kirkjunni nú í upphafi aðvent-
unnar.
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti
81.
Sýningarsalurinn er lokaður í des-
ember.
Opnað fyrir hópa eftir samkomu-
lagi í síma 22983 eða 27395.
Minningarspjöld minningarsjóðs
Jakobs Jakobssonar fást í Bókabúð
Jónasar og í Bókvali.
Borgarbíó
Alltaf nýjar
myndir
Símsvari 23500
Skautasvellið á Akureyri:
Sértímar fyrir
16 ára og eldri
Nú hefur vélfrysta svæðið við
Krókeyri verið starfrækt í rúmar
tvær vikur. Aðsókn skautafólks
hefur verið mjög góð, enda veður
verið frekar hagstætt þennan
tíma, þó að hitastig hafi einstöku
sinnum farið upp í allt að 10-12
gráður. Sem betur fer virðist nú
búið að komast fyrir flest þau
vandkvæði varðandi frystibúnað-
inn sem trufluðu starfsemina
seinni part sl. vetrar. Það er að
vísu ljóst, og var raunar vitað, að
opið svæði er og verður alltaf háð
veðri, þannig að ef t.d. er mikill
vindur í hlýindum, þá hefur fryst-
ingin ekki undan. Einnig verður
ísinn alltaf viðkvæmur fyrir
mikilli sólbráð. En engu að síður
virðist okkur það þegar augljóst,
að þessi búnaður gerir það mögu-
legt að viðhalda skautasvelli
nokkuð óslitið mánuðina frá okt-
óber-nóvember og fram í mars.
Stjórn skautafélagsins leggur
megin áherslu á að reyna að
halda uppi á svæðinu góðum ís
fyrir almenning í bænum og hefur
því verið reynt að hafa opið fyrir
almenning á bestu tímunum á
hverjum degi. Skautaferðir hafa
ætíð verið ein af vinsælli almenn-
ingsíþróttum hér í bæ og verður
vélfrysta svæðið vonandi til að
Atvinnurekendur ath.
Óska eftir framtíðarstarfi á Akureyri.
Er menntaður véla- og iðnrekstrarfræðingur.
Hef margþætta reynslu af málmiðnaði og er vanur
að vinna sjálfstætt.
Upplýsingar í síma 91-13119.
Sjúkrahúsið
í Húsavík
Velkomin í heimsókn
Sjúkrahúsið í Húsavík óskar eftir deiidarstjóra á
almenna sjúkradeild frá 1. febrúar 1989.
Hvernig væri að skreppa í heimsókn og kanna
aðstæður?
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-
41333.
viðhalda þeirri hefð. En þar sem
nú er verið að þreifa sig áfram
með heppilegasta fyrirkomulagið
á rekstri svæðisins, þá eru allar
ábendingar þar að lútandi vel
þegnar. Við gerum okkur grein
fyrir að búningsaðstaða o.fl. er
takmörkuð og verður það enn
um sinn, því að skautafélagið
þarf að einbeita sér að ná niður
skuldum vegna vélfrystingarinn-
ar, áður en hægt er að fara út í
viðbótar fjárfestingar, til að bæta
aðstöðuna. Þó verður lögð
áhersla á að græða upp umhverf-
ið eins hratt og unnt er.
Það er ljóst að börn og ungl-
ingar hafa verið iðnastir við að
nýta sér aðstöðuna nú á haust-
dögum og verður lögð áhersla á
að sinna þeim. En ýmsir fullorðn-
ir hafa spurst fyrir um hvort ekki
verði boðið upp á sérstaka tíma,
sem eingöngu yrðu ætlaðir full-
orðnum, þar sem margir af eldri
kynslóðunum treysti sér tæpast á
svellið innan um barnafjöldann á
fullri ferð. Nú hefur verið ákveð-
ið að gera tilraun með slíka sér-
tíma fyrir 16 ára og eldri og verð-
ur það í fyrsta skipti fimmtudag-
inn 1. desember á tímabilinu
20.15-22.15. Verður þá einnig
reynt að hafa tónlist við hæfi! Við
vonum að „skautastjörnurnar“ af
Pollinum hér á árum áður hreinsi
þá ryðið af skautunum sínum og
reyni þá á vélfrysta svæðinu. Ef
ryðið er orðið mjög fast er einnig
hægt áð fá leigða skauta á svæð-
inu!
Rétt er að minna á, að daglega
verður lesið inn á símsvara í
27740 hver dagskráin verður
þann daginn á svellinu. Þar kem-
ur þá einnig fram ef veðrið setur
strik í reikninginn.
-4) a veginn!
Blindhœð íramundan. Við vitum ekki hvað
leynist handan við hana. Ökum eins langt
til hægri og kostur er og drögum úr hraða.
Tökum aldrei áhættu!
UUMFEROAR
RÁD
2á/nóvember 1988- DAGUR - 13
Ferðamannabærinn
Akureyri
Atvinnumálanefnd Akureyrar gengst fyrir
opnum fundi um framtíðarhorfur í ferða-
málum á Akureyri og nágrenni.
Hefur þú skoðun á því hvert hlutverk bæjarfélags
á að vera í:
★ Gistihúsarekstri
★ Ferðamannaverslun
★ Uppbyggingu tjaldstæða
★ Rekstri safna
★ Skipulagi samgangna
★ Öðrum þáttum í ferðaþjónustu
Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA kl.
14.00 laugardaginn 3. desember.
Allir áhugaaðilar um ferðamál hvattir til að
mæta og hafa þannig áhrif á mótun ferða-
málastefnu Akureyrarbæjar.
NYJAR
BÆKUR
Fást í bóka-
búðum og
blaðsölum
um allt land
SNORRAHÚS
Strandgötu 31 • Akureyri
Sími 96-24222
Indíánaprinsessan
Líkið stjórnar leiknum
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Gránufélagsgötu 35, Akureyri,
þingl. eigandi Ingimar Harðarson
o.fl., föstudaginn 2. des. ’88 kl.
15.45.
Uppboðsbeiðandi er Trygginga-
stofnun ríkisins.
Grundargötu 9, Dalvík, þingl. eig-
andi Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
föstudaginn 2. des. '88 kl. 16.00.
Uppboðsbeiðandi er Björn Ólafur
Hailgrfmsson hdl.
Hafnargötu 17, Grímsey, þingl. eig-
andi Gunnar Hjelm, föstudaginn 2.
des. kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka íslands.
Kambsmýri 8, Akureyri, þingl. eig-
andi Magnús Stefánsson, föstudag-
inn 2. des. ’88 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru innheimtu-
maður ríkissjóðs og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Strandgötu 51, Akureyri, þingl. eig-
andi Blikkvirki sf. föstudag 2. des.
’88 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er Iðnlánasjóður.
Tjarnarlundi 3e, Akureyri, þingl. eig-
andi Agnes Sverrisdóttir, föstudag-
inn 2. des. ’88 kl. 15.45.
Uppboðsbeiðandi er Ólafur
Gústafsson hrl.
Öldugötu 1, Árskógssandi, þingl.
eigandi Anton Harðarson, föstudag-
inn 2. des. kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er Trygginga-
stofnun ríkisins.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.