Dagur - 10.02.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 10. febrúar 1989
Iðnþróunarfélagið/Iðntæknistofnun:
17konurviljafræðast
um fyrirtækjarekstur
- námskeiðið hefst kl. 18 í dag í Galtalæk
„Stofnun og rekstur fyrirtækja
fyrir konur“ er yfirskrift nám-
skeiðs á vegum Iðnþróunarfé-
lags Eyjafjarðar og Iðntækni-
stofnunar sem hefst í Galtalæk
á Akureyri kl. 18 í dag. í gær
höfðu 17 konur skráð sig á
námskeiðið, sem verður í dag,
Aðaldalur:
Gjöftabyggða-
safnsíns
Lionsklúbburinn Náttfari
hefur fært Byggðasafni Suð-
ur-Þingeyinga að Grenjað-
arstað gjöf í tilefni af 30 ára
afmæli safnsins á síðasta ári.
Margrét Bóasdóttir, umsjón-
armaður safnsins, sagðist í sam-
tali við Dag vera ákaflega þakk-
lát fyrir gjöfina og kæmi hún í
góðar þarfir. Gjöfin er 50 þús-
und krónur og fylgir sú uppá-
stunga að henni verði varið til
að auka og bæta merkingar á
munum í safninu.
Félagar Lionsklúbbsins Nátt-
fara eru úr Aðaldal og Reykja-
dal og er formaður klúbbsins
Sverrir Haraldsson. IM
Athugasemd
við verð-
könnun NAN
í verðkönnun Neytendafélags
Akureyrar og nágrennis, sem
birt var í blaðinu í gær, kom
m.a. fram að í Matvörumarkað-
inum í Kaupangi hefði verð á
kornflögum (cornflakes) hækk-
að úr kr. 132,80 í kr. 194.50 frá
sambærilegri könnun í sept-
ember.
Starfsmaður NAN hafði sam-
band við blaðið og vildi koma
því á framfæri að mistök hefðu
átt sér stað í vinnslu könnunar-
innar hjá félaginu og tölur rugl-
ast á þann veg að í stað 149,50
hefði útkoman orðið 194,50.
Rétt verð á kornflögum í Mat-
vörumarkaðinum er því 149,50
krónur. Þarna munar 45
krónum. Kornflögurnar hafa
því í þessu tilfelli hækkað um
16,70 krónur, sem er rúmlega
12% hækkun.
á morgun og helgina 17.-18.
febrúar nk.
Að sögn Jóhanns G. Jóhanns-
sonar, hjá Iðnþróunarfélaginu,
eru þær 17 konur, sem hafa til-
kynnt þátttöku á námskeiðið, frá
Akureyri og úr nágrannabyggð-
arlögum. Hann segir að konurnar
hafi ýmist kynnst rekstri fyrir-
tækja eða séu honum ókunnar.
í vetur hafa tvö slík námskeið
verið haldin á landsbyggðinni, á
ísafirði og Selfossi. Þátttaka hef-
ur verið með ágætum og almenn
ánægja með námskeiðin.
í stuttu máli sagt er þetta
námskeið ætlað konum sem reka
fyrirtæki, taka þátt í rekstri fyrir-
tækja, hyggjast stofna fyrirtæki
eða hafa áhuga á og vilja fræðast
um rekstur fyrirækja. óþh
Bókamarkaður POB
Að undanförnu hefur verið opinn bókamarkaður hjá Prentverki Odds Björnssonar við Tryggvabraut. Þegar Dagur leit þar við
í vikunni var ekki margt um manninn, enda margir eflaust gleymt markaðnum í ófærðinni. En þeir ætla að hafa opið eitthvað
áfram og er hægt að gera þar mjög góð kaup því bækurnar kosta niður í 100 krónur stykkið. Það er Gunnar Þórsson sem lítur
í væna bók á myndinni. Mynd: tlv
Fulltrúar í Dýraverndarnefnd vilja endurskoða lög um dýravernd strax:
„Þxirfiim að vera á undan öfga-
öflunum og setja eðlilegar reglur
„Því miður hafa viðbrögð við
dýraverndunarmálum hérlend-
is oft einkennst af tómlæti.
Þetta eru ósjaldan viðkvæm
mál, sem ficstum þykir betra
að þurfa ekki að skipta sér af.
Tómlætið hefur einkennt
afskipti almennings, stjórn-
valda, bænda og jafnvel þeirra
sem löguin samkvæmt eiga að
hafa afskipti af dýraverndunar-
málum,“ segja þeir Sigurður
Sigurðarson dýralæknir og
Sigurður H. Richter sníkju-
dýrafræðingur, fulltrúar í
Dýraverndarnefnd, í erindi á
Ráðunautafundinum 1989.
Dýraverndunarmál eru meðal
þeirra mála sem rædd eru á
fundinum í Bændahöllinni í
þessari viku.
Þeir félagar telja skynsamlegt
að huga að því hvað gerst hafi í
öðrum löndum þar sem umræðan
Hafnarstjórn Sauðárkróks:
Sendir alþingismömmm
harðorða ályktun
vegna Qárveitingar til Sauðárkrókshafnar
Hafnarstjórn Sauðárkróks kvæmda 12,5 milljónum króna.
samþykkti á fundi sínum fyrir Telur hafnarstjórnin að þessi
skömmu, harðorðaða ályktun fjárveiting dugi aðeins til að
til alþingismanna Norðurlands
vestra og formanns fjárveit-
inganefndar Alþingis. Tilefni
ályktunarinnar er fjárveiting til
Sauðárkrókshafnar á fjárlög-
um 1989, sem hafnarstjórn tel-
ur naumt skammtaða. Sauðár-
krókshöfn fær af fjárlögum 4,5
milljónir en hafnarstjórn hafði
gert ráð fyrir til lágmarksfram-
gera upp framkvæmdir ársins
1988.
Á fundi Bæjarstjórnar Sauðár-
króks sl. þriðjudag urðu nokkrar
umræður um ályktun hafnar-
stjórnar og í máli forseta bæjar-
stjórnar, Þorbjarnar Árnasonar,
kom fram að hann lagði til að
bæjarstjórn myndi ekki leggja
blessun sína yfir ályktunina, hún
yrði algjörlega á ábyrgð hafnar-
Álafoss hf. og Hilda hf.:
Sameina markaðsfyrirtæki
sín í Bandaríkjunum
Nú hafa forsvarsmenn Alafoss
hf. og Hildu hf. ákveðið að
vinna að því að sameina í eitt
fyrirtæki þau tvö markaðsfyrir-
tæki sem fyrirtækin eiga nú í
Bandaríkjunum. Hingað til
hefur Álafoss hf. rekið sölu- og
dreifingarfyrirtæki í New York
og m.a. selt vörur um net um-
boðsmannakerfis. Hilda hf.
rekur fyrirtæki í Pittsburgh
sem selur og dreifir ullarvörum
til verslana, sumra í eigu Hildu
hf.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna
eru sannfærðir um að íslensk
ullarvara eigi framtíð fyrir sér a
Bandaríkjamarkaði, þrátt fyrir
ýmsa erfiðleika undanfarið við
útflutning framleiðslunnar til
Bandaríkjanna.
í fréttatilkynningu frá iðnaðar-
ráðuneytinu segir, að „við harðn-
andi markaðsaðstæður er þeim
aðilum, sem eiga samleið, nauð-
syn að snúa bökum saman og
treysta starfsemi hvers annars
með sameiginlegum aðgerðum.
Með því að sameina umrædd
markaðsfyriitæki í eigu Álafoss
hf. og Hildu hf. gefst betra tæki-
færi til þess að framkvæma sam-
eiginlegt markaðsátak fyrir
íslenskar ullarvörur á Banda-
ríkjamarkaði. Betri möguleikar
verða til dreifingar á útflutnings-
vörum fyrirtækjanna, sem seldar
verða gegnum núverandi dreifi-
leiðir beggja fyrirtækjanna. Sam-
einingin mun leiða til sparnaðar í
yfirstjórnun beggja fyrirtækj-
anna. Álafoss hf. og Hilda hf.
munu starfa eftir sem áður sem
sjálfstæð og aðskilin fyrirtæki á
íslandi.“
Það er iðnaðarráðherra, Jón
Sigurðsson, sem haft hefur for-
göngu um viðræðurnar sem hald-
ið verður áfram á vegum ráðu-
neytisins.
stjórnar. Magnús Sigurjónsson
(B) kom í pontu og sagði m.a. að
ályktun hafnarstjórnar væri best
skilin eftir heima, þar sem hún
var samin, og harmaði Magnús
vinnubrögð hafnarstjórnar í
þessu máli.
Þessi umdeilda ályktun hafnar-
stjórnar hljóðar svo: „Hafnar-
stjórn harmar að fjárveitingar
ríkisins til hafnarinnar voru ekki
veittar fyrir árið 1989 til þeirra
lágmarksframkvæmda, sem gert
var ráð fyrir. Fjárveiting ársins,
4,5 millj.kr., er aðeins til að gera
upp framkvæmdir ársins 1988.
Hafnastjórn bendir á, að
Bæjarstjórn Sauðárkróks gerði
ráð fyrir að önnur helsta fram-
kvæmd bæjarins á árinu 1989 yrði
við hafnarframkvæmdir. Fyrir
liggur, að alþingismönnum
Norðurlands vestra var gerð ítar-
leg grein fyrir áformum við hafn-
arframkvæmdirnar, sömuleiðis
forráðamönnum Hafnamála-
stofnunar.
Hafnarstjórn lítur svo á, að
alþingismenn kjördæmisins hafi
brugðist því hlutverki sínu að
tryggja annarri stærstu höfn kjör-
dæmisins það fjármagn, sem
nauðsynlegt er til að halda áfram
eðlilegum framkvæmdum við
Sauðárkrókshöfn.
Tafir á bráðnauðsynlegum
framkvæmdum og afleiðingar
þess fyrir notendur hafnarinnar
eru því fyrst og fremst á ábyrgð
alþingismanna kjördæmisins og
fjárveitinganefndar Álþingis."
-bjb
hafi farið út í öfgar og spillt sam-
bandinu á milli framleiðenda og
almennings.
„Skemmdarverk öfgahópa
hafa stundum valdið stórtjóni.
Ekkert mælir á móti því að svip-
uð umræða og aðgerðir geti hafist
hér á landi fyrr en varir. Endur-
skoðun dýraverndunarlaganna er
tímabær. Búskaparhættir hafa
breyst mjög síðan lögin voru sett
1957. Verksmiðjubúskapur er að
ryðja sér til rúms, bilin milli hús-
dýrs og hirðis, milli sveitar og
þéttbýlis breikka. Betra er að
vera á undan öfgaöflunum og
bæta það áður en illa fer og setja
eðlilegar reglur í tæka tíð. Við
þurfum að breyta viðhorfi al-
mennings og ýta hressilega við
samvisku þeirra sem ekki standa
sig nógu vel,“ segir í ábendingum
þeirra til ráðunautanna. JÓH
Rarmsóknarlög-
reglan á Akureyri:
Lýsir eftir
yitnum að
ákeyrslum
Rannsóknarlögreglan á
Akureyri lýsir eftir vitnum að
tveimur ákeyrslum á kyrr-
stæðar bifreiðar í fyrradag.
Einhvern tíma fyrir hádegi á
miðvikudaginn var ekið á
A-9246 sem er blá Ford Sierra
fólksbifreið. Hún stóð uppi í
Vallargerði og skemmdist á
vinstra framhorni.
Á tímabilinu frá kl. 9.30 og
fram til kl. 13.30 á mikvikudag-
inn, var ekið á A-465 sem er
hvít Lada sport. Atburðurinn
átti sér stað annað hvort á bíla-
stæðinu við Hagkaup, eða við
afleggjarann að Veigastöðum í
Svalbarðsstrandarhreppi. Bif-
reiðin er talsvert skemmd, bæði
á hægra frambretti og hægri
hurð.
Rannsóknarlögreglan vill
hvetja þá sem geta gefið ein-
hverjar upplýsingar um þessar
ákeyrslur að hafa samband, svo
eigendur viðkomandi bíla geti
fengið tjón sitt bætt.