Dagur - 10.02.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 10.02.1989, Blaðsíða 9
10. febrúar 1989 - DAGUR - 9 Tafla 4 Afkoma bæjarsjóðs 1988 (þús. kr.) Tekjur Áætlun Rauntölur Reinaðartekjur 912.963 932.453 þarafóinnheimt31/12 ( 8.675) Vaxtatekjur 16.800 52.795 þarafóinnheimt31/12 ( 27.742) Vélasjóður 4.000 5.340 Innheimtar tekjuralls: Gjöld 933.763 954.171 Áætlun Rauntölur Rekstur 739.551 ca.758.000 Gjaldfærður stofnkostnaður 45.500 39.614 Fastafjármunir 49.905 55.909 Vaxtagjöld 40.900 24.080 Gjöld alls: Niðurstaða 875.856 877.603 Tekjurumfram áætlun 20.408 Gjöld umfram áætlun 1.747 Nettó afkoma: 18.661 1) Þessi tafla er ekki sambærileg við töflu 7 því hér er rekstrartap dvalarheimila og rekstur SVA ekki tekinn með, aðeins framlög til þeirra úr bæjarsjóði. Tafla 7 Rekstur aö meötöldum fjármagnskostnaöi Samanburöur milli 1988 og 1989 \ Áætlun Bráðabirgða- Áætlun Hækkun Hækkun 1988 rauntölur 1989 frá áætl. frá raun- 1988 1988 tölum '88 (D (2) (3) (3) / (1) (3)/(2) Yfirstjórn bæjarins 43.150 41.589 52.883 22,6% 27,2% Félagsmál og almannatr. 242.100 265.447" 307.716 27,1% 15,9% Heilbrigðismál 40.043 44.559 49.009 22,4% 10,0% Fræðslumál 124.574 127.783 139.805 12,2% 9,4% Menningarmál 35.939 35.632 44.029 22,5% 24,5% Umhverfismál 51.745 51.200 58.088 12,3% 13,5% fþrótta- og æskulýðsmál 34.735 31.601 38.723 11,5% 22,5% Eldvarnir og öryggismál 27.715 26.551 31.391 13,3% 18,2% Hreinlætismál 35.000 37.609 45.354 29,6% 20,6% Skipulags- og byggingamál 28.090 26.817 34.223 21,8% 27,6% Götur og holræsi 42.070 46.222 55.996 33,1% 21,1% Fasteignir 7.884 7.517 12.889 63,5% 71,5% Atvinnumál 1.000 1.000 2.000 100,0% 100,0% Fjármagnskostnaður 40.900 24.080 32.966 19,4%) 36,9% Ýmis útgjöld 15.295 15.431 21.342 39,5% 38,3% Strætisvagnar 10.211 10.327” 11.673 14,5% 13,2% Samtals: 780.451 793.365 938.087 20,2% 18,2% Óbókfærðir reikningar ca 7.000 Gjaldf. stofnkostn. 45.500 39.614 64.990 Alls: 825.951 ca.840.000 1.003.077 21,4% 19,4% 1) Meðtalin framlög til dvalarheimila 1988, halli á rekstri þeirra 1988 (15.772) og vinnumiðlun, alls 38.316 þús. kr. 2) Áætlað skv. breytingu á viöskiptareikn. við bæjarsjóð. 2) Vaxtatekjur urðu hærri og vaxtagjöld lægri en áætlað hafði verið sem nemur 25 millj. kr. 3) Greiðsluafgangur á rekstri bæjar- sjóðs að upphæð 19 millj. kr. og 4) Ný langtímalán reyndust 24 millj. kr. hærri en afborganir langtímalána. Þegar borin er saman bráða- birgðaniðurstaða ársuppgjörs og fjárhagsáætlunar 1988 varðandi lántökur getur sá samanburður aldrei orðið skilmerkilegur vegna þess að í áætlun um lántökur í fjárhagsáætlun er blandað saman langtímalánum og skammtíma- lánum. Langtímaskuldir bæjar- sjóðs voru samkvæmt ársreikn- ingi í árslok 1987 308 millj. kr. en þar af var áætlað að 56 millj. kr. kæmu til greiðslu á árinu 1988 og ber því að líta svo á að langtíma- skuldir bæjarsjóðs hafi verið 252 millj. kr. í ársbyrjun 1988. Lar sem hreint veltufé var þá nei- kvætt um 12 millj. kr. voru heild- arskuldir bæjarsjóðs 264 millj. kr. í ársbyrjun 1989 voru lang- tímaskuldir bæjarsjóðs 403 millj. kr. en að frádregnum 75 millj. kr. í næsta árs afborganir 328 millj. kr. Þar sem hreint veltufé var jákvætt um 87 millj. kr. voru heildarskuldir bæjarsjóðs 241 millj. kr. Sé 264 millj. kr. skuld í árslok 1987 framreiknuð til ársloka 1988 með lánskjaravísitölu verða það 318 milij. kr. Skuldir bæjarsjóðs lækkuðu því að raungildi um 77 millj. kr. á árinu. Þegar rætt er um skuldir bæjar- sjóðs er rétt að geta þess að dval- arheimilin skulduðu í lánum til lengri tíma um 57 millj. kr. nú um áramót og lendir sjálfsagt á bæjarsjóði að yfirtaka þau lán á árinu 1989. Forsendur tekjuhliðar fjárhagsáætlunar 1989 - Útsvar Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 6. desember sl. að útsvar ársins 1989 skyldi vera 7,2%. Var það vandasöm ákvörðun, einkum vegna samanburðar við önnur sveitarfélög. Akureyri hefur for- ystuhlutverki að gegna á Norðurlandi og þar sem nær öll þéttbýlissveitarfélög hér í fjórð- ungnum ákváðu 7,5% útsvar var erfitt fyrir Akureyri að skera sig á áberandi hátt úr þeim hópi. Á hinn bóginn voru sveitarfélögin á Höfuðborgarsvæðinu yfirleitt með 6,7% og því erfitt fyrir bæjarstjórn að ákveða útsvar á Akureyri langt ofan þeirra marka vegna sífellds samanburðar fólks við Höfuðborgarsvæðið hvað lífs- kjör áhrærir. Útsvarsstofn ársins 1988 var um 8,2 milljarðar króna. Gert er ráð fyrir í áætluninni að laun hækki á milli áranna 1988 og 1989 að meðaltali um 12% og að um 2% samdrátt í vinnumagni verði að ræða milli ára. Útsvarsstofn ársins 1989 er því áætlaður 9 milljarðar króna og gera 7,2% af þeirri upphæð 648 milljónir kr. Almennt er því spáð að verð- lagsbreytingar á milli áranna 1988 og 1989 verði 20%, að rýrn- un kaupmáttar verði 8%, auk 2% samdráttar í vinnumagni. Samanburður tekna milli ára í fjárhagsáætlun síðasta árs voru tekjur bæjarsjóðs áætlaðar 937.763 þús. kr. og að lokinni 13 millj. kr. lækkun á framlagi til Jöfnunarsjóðs og 9 millj. kr. hækkun útsvars 933.763 þús. kr. Hér er um að ræða reiknaðar eða álagðar tekjur nema vaxtatekjur sem eru áætlaðar sem greiddar tekjur. Miðað við þessar forsend- ur eins og sýnt er í töflu 6 hækka tekjur bæjarsjóðs um 24% á milli áætlana en sé miðað við rauntöl- ur síðasta árs um 15,4%. Rekstur og gjaldfærður stofnkostnaður 1989 Gert er ráð fyrir að rekstrar- kostnaður bæjarsjóðs verði 938 millj. kr. og gjaldfærður stofn- kostnaður 65 millj. kr. á árinu 1989. Sú breyting hefur orðið á rekstraráætluninni frá fyrra ári að öldrunarþjónusta og SVA eru nú inni í áætluninni eins og hver annar málaflokkur en áður var litið á þessar tvær deildir með sjálfstæðan fjárhag og aðeins áætluð framlög til þeirra. Rekstr- artap hjá dvalarheimilunum hrúgaðist síðan upp sem skuld við bæjarsjóð og var það upp- safnað orðið 46 millj. kr. um síð- ustu áramót og auðvitað enginn annar en bæjarsjóður til að greiða þetta tap. Breyting þessi er gerð samkvæmt tillögum lög- giltra endurskoðenda bæjarins. Til þess að meta þær breyting- ar sem hafa orðið á rekstraráætl- uninni frá síðasta ári var þess freistað að breyta niðurstöðutöl- um ársins í fyrra þannig að raun- verulegar rekstrartölur dvalar- heimilanna og SVA voru settar inn í stað framlaga frá fjárhags- áætlun. Með þeirri aðferð verða bráðabirgða rauntölur ársins 1988 rúmlega 793 millj. kr. og eru þá eftir óbókfærðir reikning- ar fyrir 6-7 millj. kr. og er því raunhæft að miða við 800 millj. kr. rekstrarkostnað bæjarsjóðs á sl. ári og gjaldfærðan stofn- kostnað að upphæð 40 millj. kr., eða alls 840 millj. kr. Meðalhækkun milli ára á rekstrarkostnaði og gjaldfærðum stofnkostnaði er því nálægt 19,4%. Sú tala er í nokkuð góðu samræmi við þær forsendur sem unnið var eftir, þ.e. að meðal- laun ársins 1989 yrðu 12% hærri en meðallaun ársins 1988 og að almennar verðlagsbreytingar yrðu 20% á milli ára. í grófum dráttum má segja að laun og tengd gjöld séu um helmingur af útgjöldum bæjarsjóðs og því eðli- legt að meta meðalhækkun upp á u.þ.b. 16-17% milli ára sem eðli- lega verðlagshækkun. Áætlunin felur því í sér magn- aukningu upp á 2-3% frá rauntöl- um í fyrra og vega þar þyngst aukin framlög til Sjúkrasamlags og félagslegra íbúða. Á nokkrum stöðum í áætluninni er um að ræða nýmæli eða auknar fjárveit- ingar en á öðrum stöðum er þá sparað á móti. Tilkyiuiing frá Hótel Varóborg I.O.G.T. á Akureyri hefur selt hótelid aöilum á Akureyri. Á þessum tímamótum vill I.O.G.T. þakka hinum Jjölmörgu gestum hótelsins ánagulegar stundir á lidnum árum. Hlutafélagid Hótel Nordurland hf. hefur yfirtekið rekstur Hótels Vardborgar og verbur þab lokab fyrst um sinn vegna gagngerra breytinga. Stefnt er ab opnun Hótels Norburlands i lok aprílmánabar og bjóbum vib alla gesti hjartanlega velkomna. Vinsamlegast athugib, ab Ferbaskrifstofa Akureyrar, Rábhústorgi 3, mun annast bókanir fyrir hótelib meban á lokun stendur og er síminn 96-25000 og 96-22600. Hótel Varbborg. Hótel Norburland. '. ■" v -■ rr Dans- og söngskemmtunin „Gæjar og glanspíur“ föstudags- og laugardagskvöld Plötusnúðurinn NONNI STUÐ ásamt frábærum söngvurum og dönsurum skemmta gestum Sjallans í stórskemmtilegri sýningu sem sýnd er fyrir fullu húsi í Hollywood. Fegurðarsamkeppni íslands kynnir kjör fegurðardrottningar Norðurlands 1989 í Sjallanum fimmtudaginn 2. mars. Nánari upplýsingar í Sjallanum daglega í síma 22970. Miða- og borðapantanir daglega í símum 22970 og 22770 Kjallarínn opinn öll kvöld

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.