Dagur


Dagur - 11.03.1989, Qupperneq 9

Dagur - 11.03.1989, Qupperneq 9
8 - DAGUR - Laugardagur 11. rnars 1989 Laugardagur 11. mars 1989 - DAGUR - 9 ; - v; 0 - R&fölifí -- LÆisooríjKW.tr 11. mars '<0KC* Barna Samstarfshópur stéttarfélaga: - og unglingavika - Hvers vegna og fyrir hverja? Vikan 12.-19. mars ber hér á landi yfírskriftina Barna- og unglingavika og verður þess minnst með margvíslegum hætti. Á Akureyri hefst vikan reyndar í dag, laugardaginn 11. mars, með fundi í Dyn- heimum um samskipti foreldra og bama og tómstundir barna og unglinga. Hér er ætlunin að kynna þessa viku og ræða við nokkra aðila sem hlut eiga að máli, en málefni barna- og unglinga munu verða áberandi í blaðinu umrædda viku. í upphafi er vert að minnast á aðdragandann að þessari Barna- og unglingaviku og líta á það hvernig útfærsla hennar er hugsuð. Upphafið má rekja til þess að á 4. fulltrúaþingi Kenn- arasambands íslands árið 1987 var samþykkt víðtæk ályktun um uppeldis- og skólamál og þar var komið inn á málefni barna á svo- hljóðandi hátt: „4. fulltrúaþing KÍ hvetur stjórn og fulltrúaráð KÍ til að beita sér fyrir, í samráði við önn- ur samtök launafólks, að efnt verði til ráðstefnu um málefni barna.“ í ályktun um skólamál segir m.a. þetta: „Kennararog samtök þeirra hafa ítrekað reynt að vekja athygli ráðamanna og almennings á því hve mjög skort- ir á að skólum sé gert kleift að sinna uppeldi og kennslu með viðhlítandi aðbúnaði hvað varðar námsgögn, aðstöðu og tíma.“ Um breytta þjóðfélagshætti segir fulltrúaráðið: „Pað fer ekki á milli mála að örlagaríkar breyt- ingar sem hafa valdið rótleysi og upplausn á mörgum sviðum hafa gerst í íslensku þjóðfélagi á síð- ustu áratugum. Fjöldi foreldra er stunda atvinnu utan heimilis fer sívaxandi, lág daglaun sem kalla á meiri eftir- og aukavinnu valda aðskilnaði foreldra og barna úr hófi fram, börn á viðkvæmu þroskaskeiði verða að sjá sér farborða daginn langan.“ Og loks um framboð á fjöl- miðlaefni: „Hvað varðar sjón- varp eru áhrif þess miðils svo sterk að nauðsynlegt er að gera til hans strangar gæðakröfur, sér- staklega varðandi barnaefni . . . Að mati þingsins er brýnt að kenna börnum notkun fjölmiðla, einkum myndlestur, svo þau geti á gagnrýninn hátt unnið úr því flóði af myndrænu áreiti sem nú er hluti daglegs lífs okkar.“ Vekja athygli á kjörum barna og unglinga Eftir þetta þing var ákveðið að stefna að ráðstefnu um málefni barna og unglinga og vorið 1988 voru send bréf til annarra stéttar- félaga og boðað til fundar um málið. Undirbúningsnefnd var stofnuð. Á fyrsta fundi hennar kom fram mikill áhugi á samstarfi og jafnframt voru allir sammála um að hefðbundin ráðstefna væri ekki rétta leiðin til að ná fram settum markmiðum, sem eru fyrst og fremst þau að vekja athygli og umræðu á kjörum barna og unglinga á íslandi í dag. Ennfremur að vekja athygli á þeirri aðstöðu sem foreldrar hafa í þjóðfélaginu til að að rækja uppeldisskyldur sínar. Undirbúningsnefndin ákvað að setja upp sex dagskrár í Barna- og unglingavikunni, sem fluttar yrðu á mismunandi stöðum. Inni- hald dagskránna yrði eftirfar- andi: 1. Áhrif fjölmiðla - fjölmiðla- neysla. 2. Neysla - þarfir - vinna barna og unglinga. 3. Samvera fjölskyldunnar - vinnutími foreldra 4. Jafnrétti til náms - fá allir tækifæri - hvað verður um þá sem ekki fá að njóta sín? 5. Dagvistun - uppeldi eða geymsla - fyrir hverja? 6. Tómstundir - hvemig eyða börn og unglingar frítíma sínum? Leitað hefur verið eftir sam- starfi við fjölmiðla umrædda viku og er stefnt að því að sjónvarpað verði frá lokadegi vikunnar í Háskólabíói. Barna- og unglingavikan verð- ur væntanlega mest áberandi í Reykjavík, svo og á Akureyri. Ragnhildur Skjaldardóttir kenn- ari er fulltrúi í undirbúnings- nefndinni og hefur hún séð um að hleypa af stokkunum starfsemi i kringum Barna- og unglingavik- una á Akureyri og jafnvel víðar á Iandsbyggðinni. Barnfjandsamlegt þjóðfélag Ég ræddi stuttlega við Ragnhildi um Barna- og unglingavikuna og einnig Ármann Helgason frá Iðju, Huldu Harðardóttur fóstru og Úlfhildi Rögnvaldsdóttur bæjarfulltrúa. í tali þeirra kom fram að víða er ekki nægilega vel búið að börnum og unglingum í þjóðfélagi okkar og sjálfsagt að vekja athygli á ýmsum atriðum, sem foreldrar hafa jafnvel ekki komið auga á. En hvað segir Ragnhildur almennt um aðbúnað barna og unglinga og markmið þessarar viku? „Markmiðið er að vekja athygli stjórnvalda og almenn- ings á ástandi þessara mála. Okk- ur finnst þetta þjóðfélag að sumu leyti barnfjandsamlegt. Við erum að drepast úr lífsgæðakapphlaupi en börnin og unglingarnir verða gjarnan útundan. Dagvistarmál eru í ólestri og skólamálin einnig. Skóladagurinn er sundurtættur hjá börnunum og þau eru send út og suður. Hjá Iitlu börnunum er skóladagurinn mjög stuttur og oft enginn til að gæta þeirra eftir skóla. Foreldrarnir eru á kafi í vinnu og það er þjóðfélagsins að breyta þessu. Það eru þessi mál sem við viljum vekja athygli á og þess vegna er þetta á stéttar- félagslegum grunni sem við erum að vinna að þessu,“ sagði Ragn- hildur. Hún sagði að Barna- og ungl- ingavikan tæki til barna allt frá dagvistaraldri og upp í unglinga í framhaldsskólum. Ekki væri hægt að taka ákveðinn aldurshóp út úr og segja að ástandið væri verst þar því brotalamir væru mjög víða í kerfinu. „í sambandi við unglingana þá finnst mörgum að þeirra málum hafi lítið verið sinnt. Fólk hefur æpt úlfur, úlfur, allir á fylleríi, en kannski hefur of lítið verið gert til þess að bjóða þeim upp á eitthvað annað, eða kenna þeim öðruvísi félagsstörf en þau sem tilheyra áfengi,“ sagði Ragnhild- ur. Krakkar á vinnumarkaði réttlausir í máli viðmælenda minna kom fram að unglingar á vinnumark- aði eru oft réttlausir. Stéttarfélög gefa út taxta fyrir þá en þeir eru samt ekki í neinu stéttarfélagi og enginn sem gætir hagsmuna þeirra ef á þeim er brotið. Atvinnurekendur fara oft með þessa krakka eins og þeim sýnist. „Yfirleitt er ekki gert ráð fyrir að þessir krakkar séu á vinnu- markaðinum, a.m.k. ekki f almennum störfum eða fram- leiðslustörfum. Vinnulöggjöfin gerir ekki ráð fyrir því og ekki vinnuverndarlögin heldur," sagði Ármann. - Eru börn við vinnu í ein- hverjum sérstökum greinum? Er nokkuð hægt að tala um barna- þrælkun? „Það er kannski ekki hægt að tala ym slíkt en vinna barna þekkist í flestum greinum. Besta dæmið er auðvitað „pokadýrin" í 100 gr. af léttmjólk innihalda aðeins 46 hitaeiningar. Ogþaðeru verðmætar hitaeiningar, því aðþeim fylgja mörg mikilvægustu næríngarefnin. Efþú vilt grennast, þá erbetra að draga úrþýðingarminni hitaeiningum. Mjólkgetur dregið úr tannskemmdum víð eðlilegar aðstæður. Hið háa hlutfall kalks, fosfórsogmagníum veitirtönnum vemd. Eftirneyslu sætinda eða sykurríkrar máltíðarert.d. gottaðskola munninn með mjóik. Beinin þroskast og styrkjast fram að fertugsaldr og þess vegna er mikilvægtað þau fái nægjanlegt kalk allan þann tíma tilþess að standa vel að vígi þegar úrkölkun hefst um miðjanaldur. Eftirfertugsaldurinn ernægjanlegt kalk úr fæðunni nauðsynlegt til þess að hamla gegn beingisnun. Tvöglös afmjólk á dag ergóð regla. Þeir sem hreyfa sig mikið virðast nýta kalkið úr fæðunni betur og hafa því meirí beinmassa á efrí árum en þeirsem hreyfa sig lítið. MjólkerauðugafB vítamínum sem erumikilvæg til þess að t.d. húð, hár, neglur, taugakerfi og sjón séu í góðu lagi. GóÖ töká málunum Til þess að ná góðum tökum á líkamsþyngd og ummáli er ein leið best: Að tileinka sér rétt mataræði og losna við ómæld óþægindi og jafnvel heilsubrestaf völdum megrunarkúra. Mjóik og mjólkurvörur eru mikilvægur hlekkur í fæðuhringnum. Konur ættu að gæta þess sérstaklega, að það er erfitt að fullnægja kalkþörfinni án mjólkur eða mjólkurmatar, auk þess sem þar er á ferð einn fjölhæfasti bætiefnagjafi sem völ er á. Auðvelt er að velja mjólk og mjólkurvörur með mismunandi fitumagni og fá þannig bæði hollustuna og hitaeiningasnautt fæði. verslununum svo og blaðburðar- börn, krakkar í afgreiðslustörfum í sjoppum og unglingar í þjón- ustustörfum á veitingahúsum, þar sem þeir afgreiða áfengi án þess að hafa aldur til að vera inni á slíkum húsum,“ sagði Ármann. „Það er reyndar ansi mikið vinnuálag á sumum krökkum sem eru á fullu í skóla og fara síð- an beint úr skólanum í vinnu, t.d. börnin sem afgreiða poka í Hag- kaupum. Þar leggja þau inn stundaskrárnar sínar og þar er fiskað út hvenær þau eru ekki í skóla og á þeim tímum mæta þau í vinnu. Hjá sumum er þetta býsna langur vinnudagur þegar á heildina er litið, lengri en við mynduin kæra okkur um,“ sagði Ragnhildur. Óhófleg vinna skólabarna - Eru börn og unglingar farin að vinna meira með skóla en áður? Ragnhildur: „Greinilega miklu meira, bæði í grunn- og fram- haldsskóla. Þetta þekktist varla í grunnskóla hér áður fyrr nema í blaðaútburði. En hvernig stendur á þessu? Er þetta fátækt eða hvaða þarfir eru þau að upp- fylla?“ Úlfhildur: „Þetta er ekki fátækt. Þeir krakkar sem eru harðastir við vinnuna eru stelpur sem þurfa alltaf að kaupa sér ný föt, o.s.frv. Þetta er bara spegil- mynd af þjóðfélaginu. Fullorðna fólki skapar þennan „standard" og börnin snúast eftir honum. Það er keppni á milli barnanna alveg eins og hjá foreldrunum, sem vilja eiga fínni bíl, stærra hús og nýrra sófasett. En það er mjög alvarlegt í sambandi við vinnu barna að þau fá ekki inngöngu í verkalýðsfélög fyrr en þau eru orðin 16 ára og hafa engar trygg- ingar í rauninni fyrr en þá.“ - Hvað áhrif hefur þessi langi vinnudagur á börnin? Ragnhildur: „Okkur í skólan- um finnst þessir krakkar alveg óskaplega þreyttir. Það liggur við að þeir gráti þegar þeim eru sett fyrir heimaverkefni. Þetta er svo óskaplega erfitt og það liggur við að þeir sofni í tímum. Þá heyrum við það úr framhaldsskólunum að þar flosna nemendur upp í stór- um stíl og margir vilja kenna þessari vinnu um.“ Hulda: „Og nú ganga þessir krakkar um atvinnulausir því þeir'fá ekki heilsdagsvinnu." Ármann: „Kerfið reiknar held- ur ekki með þeim og skólakrakk- ar fá ekki atvinnuleysisbætur, nema einhverja smáaura, því bæturnar miðast við fjölda vinnu- stunda síðustu 12 mánuði. Menn þurfa að ná a.m.k. 400 vinnustundum á þessum tíma til að fá einhverjar bætur og auðvit- að verður viðkomandi að vera í verkalýðsfélagi og hafa náð 16 ára aldri." Börn blóta á ensku Við ræddum líka um fjölmiðla og áhrif þeirra. Fram kom að mál- tilfinningu barna hefur hrakað. Nú blóta þau á ensku en ekki á íslensku. Þau horfa á ofbeldis- myndir, hryllingsmyndir og jafn- vel klámmyndir á Stöð 2 og á myndböndum. Foreldrarnir fylgjast ekki með því hvað börnin eru að horfa á. Kennarar heyra oft á tali barna hvernig kvik- myndir þau hafa séð og áhrif mynda sem alls ekki eru við hæfi barna geta vægast sagt verið óæskileg. En um þetta verður nánar rætt í Barna- og unglingavikunni. Rétt er að minna á fundinn í Dynheimum í dag kl. 14, sem samstarfshópur stéttarfélaga á Akureyri boðar til. Húsið er opn- að kl. 13.40 og verða myndir, rit- gerðir, Ijóð o.fl. eftir börn og unglinga til sýnis á 1. hæð. Á fundinum verður rætt um áhrif vinnuálags á samskipti for- eldra og barna, félagsmiðstöðvar og skóla og nemendur skýra frá sínum skoðunum. Þá verða pall- borðsumræður með þátttöku kennara, nemenda, foreldra, bæjarfulltrúa, félagsmálastjóra og formanns æskulýðsráðs. Á milli liða verður flutt tónlist og skemmtiatriði að loknum umræð- um. Sjálfsagt er að hvetja, börn, unglinga, foreldra og alla sem áhuga hafa á málefnum. barna og unglinga til þess að mæta á fund- inn og gefa Barna- og unglinga- vikunni gaum. SS íþróttir Körfuknattleikur/Úrvalsdeild: Haukamir sluppu fyrir hom - sigruðu Tindastól 90:83 Það var hart barist þegar Tindastóll og Haukar mættust í fyrrakvöld í síðasta leik Úrvalsdcildarinnar í körfu- knattleik á þessuin vetri. Haukar léku vel í fyrri hálfleik og náðu 18 stiga forskoti þegar mest var. Síðustu 10 mínútur leiksins voru þó Tindastóls- manna, sérstaklega þeirra Eyjólfs Sverrissonar og Har- aldar Leifssonar. Jafnt og þétt söxuðu Tindastólsmenn á for- skot Haukanna en náðu þó ekki að jafna. Sjö stig skildu liðin þegar leikurinn var flautaður af og Haukar sigruðu því 90:83. Framan af fyrri hálfleik virtist vörn Tindastólsmanna ekki smella saman. Þeim gekk illa að ráða við stórstirni Haukanna, sérstaklega Pálmar Sigurðsson sem gerði 5 þriggja stiga körfur í fyrri hálfleik. Að sama skapi voru Tindastólsmenn óheppnir með skot sín í fyrri hálfleik og því var útlitið orðið harla dökkt þegar fyrri hálfleikurinn var liðinn. Hálfleikstölur 51:34. Þegar um 8 mínútur voru liðn- ar af síðari hálfleik var staðan orðin 68:46 fyrir Hauka en þá kom að vendipunkti leiksins. Heldur lifnaði yfir Tindastóls- vörninni og hvað eftir annað stálu þeir boltanum af Haukum. Valur og Haraldur sáu um að hirða fráköstin og á næstu mínút- um sýndi Tindastólsliðið hvað í því býr. Haraldur og Eyjólfur skiptust á um að skora þriggja stiga körfur og því minnkaði for- skot Haukanna óðfluga. Eyjólfur skoraði 26 stig í hálfleiknum og alls 39 stig í leiknum. En enda- spretturinn kom of seint, forskot Haukanna var orðið of mikið til að hægt væri að vinna það upp á fáurn mínútum. Tíminn vann með Haukum og sjö stig skildu þegar leiknum lauk. Stig Hauka: Pálmar 23, ívar Ásgr. 19, Henning Hennings. 18, Jón Ingvars. 10, Haraldur Sigm. 6, Tryggvi Jónss. 6, Eyþór Árnas. 2, Reynir Kristj. 2. Stig UMFT: Eyjólfur 39, Haraldur Leifs. 22, Valur Ingim. 17, Björn Sigtryggs. 2 Ágúst Kárason 2, Kári Marísson 2. ’ jóu

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.