Dagur - 23.03.1989, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Fimmtudagur 23. mars 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Páskahátíð
Páskar fara í hönd. Þeir eins og allar hátíðir
kirkjunnar eru friðarhátíð. Páskarnir eru í
senn hátíð sorgar og gleði. Sorgar vegna
ranglætisins sem náði hámarki með kross-
festingu frelsarans og gleði vegna sigurs
ljóssins og lífsins yfir myrkri og dauða.
Sérhverjum manni er hollt að hugleiða
boðskap páskanna. Þótt langt sé um liðið
frá því Kristur var krossfestur er föstudag-
urinn langi síður en svo liðin tíð í mann-
kynssögunni. Grimmdin, múgsefjunin og
hið hróplega ranglæti sem dagurinn stend-
ur fyrir heyrir alls ekki sögunni til. Daglega
berast okkur fréttir af hliðstæðri grimmd
og ranglæti utan úr heimi. Hryðjuverka-
menn fremja hrottalegustu glæpi og láta
tilganginn helga meðalið. Þjóðir, þjóðar-
brot og ýmsir minnihlutahópar sæta kúgun
og ofbeldi af ýmsu tagi og tugþúsundir
láta lífið árlega í í staðbundnum stríðum
sem háð eru af fullkomnu miskunnarleysi.
Aukin menntun og siðvæðing meðal þjóða
heims hefur ekki dregið úr þeirri tilhneig-
ingu mannsins að deila og drottna og svíf-
ast einskis til að ná settu marki. Boðskapur
Krists á því ekki síður erindi til okkar í dag
en áður. Boðskapur páskanna er sígildur
og honum megum við aldrei gleyma.
Fyrir flesta er páskahátíðin tími hvíldar
og afþreyingar. Þá gefst kærkomið tækifæri
til að slappa af frá annríki hversdagsins í
faðmi fjölskyldunnar. Páskarnir eru einnig
stór stund í huga hinna fjölmörgu ferming-
arbarna sem fá þar með staðfestingu kirkj-
unnar á skírn sinni. Um það bil fjögur þús-
und ungmenni fermast á þessu ári og þar
af langstærstur hluti í páskavikunni. Það
hefur löngum tíðkast að fagna þeim merka
áfanga og halda fjölskyldu og vinum ferm-
ingarbarnsins veislu. Það er sjálfsögð og
ágæt venja en þó er ástæða til að að brýna
fyrir aðstandendum fermingarbarna, nú
sem fyrr, að gæta þess að umgjörðin
skyggi ekki á athöfnina sjálfa. Fermingar-
veislur og það tilstand sem þeim fylgir
hafa á stundum gengið úr hófi fram í okkar
neysluþjóðfélagi. Veislan og gjafirnar sem
fermingunni fylgja eru einungis hismið í
kringum kjarnann.
Dagur óskar fermingarbörnum og
aðstandendum þeirra svo og landsmönn-
um öllum gleðilegra páska. BB.
Kristinn G. Jóhannsson skrifar
Bakþankar
Minning frá Póllandi
Þaö var komið fram í ágúst síö-
ast liðið sumar, komið var kvöld
og við höfðum fariö út að borða
kvöldskattinn en vorum nú á
heimleið á hóteliö. Þetta var í
Varsjá. Hún er fyrir austan.
Þarna í miðborginni voru breið-
ar götur en ekki mikið notaðar.
Á annatímum fóru þó þama um
Skodabílar öðru hverju, sumir
með sóllúgur og sportfelgur,
líka pólski Fíat og Lada.
Umferðin var því furðu hávær
miðað við fjölda bíla. Nú var
umferðin hins vegar farin að
róast enda klukkan farin aö
ganga tíu. Strætin nánast auð.
Hins vegar er fyrirhyggjan svo
mikil hjá borgaryfirvöldum, eða
áætlanagerðin vitlaus, að það
voru undirgöng undir þessar
götur. Þetta eru myndarleg jarð-
göng og hýsa dálítið mannlíf.
Og nú komum við þarna að
breiðgötu, Ólafsfirðingar, á leið
á vinabæjarmót í Danmörku
og þurfum þess vegna yfir göt-
una. Að visu voru bílar ekki í
augsýn þá stundina en þó töld-
um við vissara að fara neðan-
jarðar yfir götuna til að valda
ekki röskun í umferðinni ofan-
jarðar. Sem við erum nú komin
nokkra metra niður í Pólland og
höfðum fundið réttan rangala til
að komast upp aftur, helst hinu
megin við auða götuna, verða
fyrir okkur biómasölukonur.
Þær eiga í fórum sínum undur
faileg blóm og bjóða til sölu fyrir
peninga, helst bandaríska pen-
inga en aðrir peningar eru lítils
virði hér um slóðir. - Nú stóð
þannig á að okkur hjónunum
hafði hlotnast aldeilis afleitt her-
bergi á þriggja stjörnu hótelinu
sem við gistum á meðan sumir
aðrir höfðu fengiö þrjú herbergi
og eldhús eða eins konar svítur
ætlaðar sovjeskum miðstjórn-
armönnum og pólskum hers-
höfðingjum. Af þessu var ég
öfundsjúkur. Maðurinn sem tók
á móti mér í afgreiðslunni hefur
vafalaust haldið að ég væri
ótraustur framsóknarmaður
þegar hann sá mig og þess
vegna úthlutað mér þessari
óskaplegu vistarveru. Ég mátti
samt ekki kvarta þar sem hægt
var þó að loka þessu herbergi
innan frá sem var meiri munað-
ur en sumir aðrir gestir á þessu
luxushóteli áttu að fagna. Einn (
hópnum fékk til dæmis herbergi
sem hurð var að vísu fyrir en
hvorki húnn né skrá. Þessi hafði
kosið íhaidið síðast. Vinafólk
okkar hafði boöið okkur í kvöld-
kaffi og með því er heim kæmi
á hóteliö. Þeim hafði hlotnast
herforingjasvíta með tveim
baönerbergjum og býtibúri
ásamt mubleruðum stofum
tveim, samiiggjandi og mörgum
svefnherbergjum, þar var líka
vatn I krönum. Þessi hjón hafa
ekki á sér framsóknarsvip né
yfirbragð. En á leið okkar í
veisluna verða samsagt fyrir
okkur þessar blómsölukonur.
Þær eru dálítið uppblásnar í
framan og öræfalegar en upplit-
ið samt borubratt þegar þær sjá
þessa dollaralegu ferðalanga
koma aðvífandi. Sem yfirbót
fyrir öfund mína afréð ég nú að
færa svítufrúnni, vinkpnu minni,
dálítinn blómvönd. Ég fæ nú
blómstrin ( hendumar og vegna
þess að ég var í þess konar
skapi greiddi ég blómseljunni
dollara fyrir og tók hún fegin viö.
Og þar sem ég var þá stundina
„skáldlega upplyftur í öllu kven-
fólki“ þá kyssti ég hana á kinn-
ina að auki. Hún var sandblásin
og hrjóstrug. Þetta hefði ég þar
aö auki betur látið ógert vegna
þess að í þann mund sem ég
hyggst halda áfram göngunni á
vit veislunnar kemur hún
skrækjandi á eftir mér konan og
heimtar fleiri dali, fyrir kossinn
nefnilega. Til þess að valda
ekki frekari óspektum í þessu
hrjáða landi reiddi ég fram féð
og skundaði áleiðis að yfirborði
jarðar með blómvöndinn dýra.
Þetta dálitla atvik kemur mér
æ oftar í huga upp á síðkastið
enda getur sagan um það hæg-
lega verið eins konar dæmi-
saga fyrir okkur framsóknar-
menn að draga lærdóm af.
Sannleikurinn er nefnilega sá
að eftir því sem frá líður eru
farnir að fyrnast andlitsdrættir
þessarar aðgangshörðu kaup-
konu undir Varsjá en þegar ég
sé hana fyrir mér nú finnst mér
alltaf að hún sé eins og ríkis-
stjórnin okkar í framan einkum
til augnanna. Við vorum nefni-
lega, framsóknarmenn, undur
ánægðir með stjórnina þegar
hún var stofnuð og tilbúnir til
þess aö reiða fram það sem
þyrfti til þess að hún gæti nú
komið fram öllum þeim þjóðþrif-
um sem hún sagðist hafa tiltæk
okkur öllum til hagsbóta. Við
guldum því glaðir okkar og
sögðum meira að segja „skítt
með það“ þegar skattarnir
hækkuðu og ráðin reyndust
dýrari en í fyrstu var ætlað. En
nú er svo komið fyrir mér a.m.k.
að í hvert sinn sem nýjar hækk-
anir verða fyrir frumkvæði
stjórnarinnar okkar finnst mér
ég heyra skrækina í blómakon-
unni forðum sem lætur ekki
laust né fast fyrr en ég hefi
greitt henni sérstaklega fyrir
það eitt að vilja vera elskuleg-
ur við hana og gera henni lífs-
baráttuna bærilegri. Eg er
hreint ekkert viss um að ég sé
tilbúinn til þess að kaupa öllu
fleiri blómvendi, hef bara engin
efni á því, og allra síst að sýna
þeim vinarhót sem bjóða þessi
ósköp. Mig langar einna helst
að koma mér upp á yfirborðið
aftur og burt frá þeim sem
verða þeim mun óbilgjarnari í
kröfum sínum sem þeir fá
meira. Ríkistjórnarblómsölu-
andlitið er orðið fyrir mér ein-
hvern veginn svoleiðis að það
er eins og mig langi ekki einu
sinni til að klappa á kinnina
hvaö þá meira, enda afleiðingar
þesskonar lauslætis dýrkeyptar
eins og dæmin sanna.
Ég veit auðvitað að það er
ekki fallegt að hugsa svona og
allra síst í þessu veðri og með
páskahátíð á næstu grösum.
en það verður þá bara að hafa
það.
Gleðilega páska.
Páskahelgin í Hlíðarfjalli:
Flugleiöatriimn og
skíðamót alla helgina
- leiðbeinandi við göngubrautina
Það verður mikið um að vera í
Hlíðarfjalli um páskana og
verða allar lyftur og göngu-
brautir opnar hátíöisdagana.
Flugleiðatrimmið á gönguskíð-
um fer fram á páskadag, sam-
hliðasvig Flugleiða fer fram
um helgina, parakeppni fyrir
12 ára og yngri fer fram á
skírdag, þrautabraut verður
fyrir yngstu kynsióðina og á
páskadag messar séra Pálmi
Matthíasson við Skíðastaði
kl. 13.00.
Flugleiðatrimmið fer fram á
Páskadag. Brautin verður opnuð
kl. 10.00 og verður opin til kl.
16.00. Klukkan 14.00 fer fram
tímataka í karla- og kvenna-
flokkum fyrir þá sem vilja. Boðið
verður upp á tvær vegalengdir, 4
km og 8 km. Allir þátttakendur
fá númer og viðurkenningu. Síð-
an verður dregið úr pottinum
helgarferð á vegum Flugleiða og
svo stóri vinningurinn flugferð til
Luxemborgar.
Samhliðasvig Flugleiða fer fram
á laugardag og svo úrslitakeppnin
á annan í páskum. í úrslita-
keppnina komast þeir sem hlotið
hafa rétt til að keppa í fullorðins-
flokki á vegum SKÍ, auk þeirra
sem unnið hafa sér rétt úr for-
keppninni. Verðlaun eru flug-
ferðir til Luxemborgar, bæði í
karla- og kvennaflokki. Skráning
þarf að hafa borist fyrir laugar-
dag í síma 21766.
I Hlíðarfjalli verður boðið upp
á þrautabraut alla daga fyrir
yngstu kynslóðina. Leiðbeinandi
verður við göngubrautina föstu-
daginn langa milli 11.00-15.00 og
mun hann aðstoð fólk að bera
rétt undir skíðin.