Dagur - 23.03.1989, Síða 5
Fimmtudagur 23. mars 1989 - DAGUR - 5
Tilkynningaþjónusta fyrir ferðamenn opin allan sólarhringinn í Reykjavík:
Fólk notar þessa þjónustu í tengslum við páskaferðalögin
- segir Ragnheiður Hauksdóttir
„Við fylgdumst með á þriðja
tug ferðahópa yfir páskahátíð-
ina í fyrra og þetta voru allt frá
dagsferðum upp í 10-14 daga
ferðir. Þessi þjónusta hefur
verið starfrækt síðustu árin og
það er áberandi hversu vel hún
er notuð í kringum páskana,“
segir Ragnheiður Hauksdóttir
á vaktinni í tilkynningaþjón-
ustu Securitas, Landssambands
hjálparsveita skáta og Lands-
sambands flugbjörgunarsveita.
Ragnheiður segir að ferðalang-
ar víðs vegar á landinu tilkynni
um ferðaáælun sína á vaktina í
Reykjavík. „Fólk tilkynnir okkur
hvert það ætlar, í hvers konar
ferð, á hvernig farartæki það
ætlar, hvar á að gista, hvenær lagt
er af stað og hvenær ætlunin er að
koma á áfangastað. Fólk gefur
okkur upplýsingar um búnað sinn
og auk þess ýmsar persónulegar
upplýsingar um ferðalangana.
Síðan ræður fólk því hvort það
lætur okkur vita af sér á leiðinni
en annars miðast okkar aðgerðir
við komutíma fólks á áfanga-
stað,“ segir Ragnheiður.
Ragnheiður segir að síðustu
dagar hafi verið frekar rólegir en
þess megi vænta að heldur lifni
yfir í dag. Hún telur að minna
geti orðið um ferðalög yfir páska-
hátíðina í ár en í fyrra vegna þess
hve veður hefur verið ótryggt á
síðustu vikum og þess hve páskar
séu snemma á ferðinni í ár og því
Braut í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri:
Bóklegt nám hefst um áramót
„Þarna hefur verið stigið mjög
stórt skref og við fögnum því
sérstaklega að um þetta mál
hafí verið gerð samþykkt á
ríkisstjórnarfundi. Nú verður
ekki aftur snúið með sjávar-
útvegsbrautina,“ segir Harald-
ur Bessason, rektor Háskólans
á Akureyri, en í síðustu viku
ákvað ríkisstjórn á fundi sínum
að nám í sjávarútvegsfræðum
skuli hafíð við skólann um
næstu áramót.
Með þessari samþykkt er Ijóst
að bóklegt nám í sjávarútvegs-
Leiðrétting
í grein sem birtist í Degi 9. mars
um skaðsemi áfengisnotkunar
mæðra fyrir fóstur misritaðist
nafn Árna Einarssonar og var
hann sagður Sigurðsson. Þetta
leiðréttist hér með. EHB
fræðum hefst um áramót og má
búast við að á fyrsta ári verði
skráðir á bilinu 15-20 nemendur.
Haraldur Bessason háskólarektor.
Áhugi virðist gífurlegur á þessu
námi, ef mið er tekið af fjölda
fyrirspurna um það.
Að sögn Haraldar Bessasonar
verður leitað til manna í atvinnu-
lífinu á svæðinu um stunda-
kennslu við sjávarútvegsbrautina
en síðan verða auglýstar fastar
stöður kennara við brautina.
Ekki liggur fyrir hvenær auglýs-
ingar um þær verða birtar.
Stofnun sjávarútvegsbrautar
kallar á aukið kennslurými Há-
skólans og segist Haraldur binda
vonir við að úr því rætist. Á
næsta skólaári lætur VMA fjórar
kennslustofur af hendi í Iðnskóla-
húsinu og á árinu 1990 er gert ráð
fyrir að allt rými þess húss, nema
e.t.v. smíðastofa, verði nýtt af
Háskólanum. Þá eru hugmyndir
uppi um byggingu einingarhúsa á
lóð lðnskólahússins við Þórunn-
arstræti þar sem komið verði upp
nauðsynlegri rannsóknaraðstöðu
fyrir nám í sjávarútvegsfræðum.
óþh
Fjárhagsmál Hofsóshrepps:
Greiðslustöðvun framlengd
- áætlun á lokastigi hjá prhaldsstjóm
Fjárhaldsstjórn Hofsóshrepps
er nú á lokasprettinum við að
vinna 2ja til 3ja ára fram-
kvæmda- og fjárhagsáætlun
fyrir sveitarfélagið og verður
hún kynnt fyrir sveitastjórn-
armönnum hreppsins ein-
hverja næstu daga. Að sögn
Húnboga Þorsteinssonar for-
manns tjárhaldsstjórnarinnar
átti að kynna áætlunina í þess-
ari viku en sökum veðurs tókst
það ekki. Þá hefur fjárhalds-
stjórnin verið í viðræðum við
lánardrottna Hofsóshrepps og
að sögn Húnboga hafa þær
viðræður gengið með eðlileg-
um hætti og unnið er að því að
koma þeim málum á hreint.
Greiðslustöðvun á Hofsós-
hrepp, sem var sett á til 3ja mán-
aða, átti að renna út fyrir
skömmu, en fjárhaldsstjórnin
fékk hana framlengda um 2 mán-
uði, eða til 19. maí. „Fram að
þeim tíma munum við fyrst og
fremst reyna að ljúka málinu.
Áætlanirnar eru á lokastigi og
hitt er í fullri vinnslu,“ sagði
Húnbogi að lokum í samtali við
Dag. -bjb
bílor
allra veðra von.
Þeir sem hyggja á ferðalög um
páskana geta hringt í síma 91-
686068 í Reykjavík og tilkynnt
um ferðir sínar, sér að kostnaðar-
lausu. JÓH
Akureyri:
Ekið á kyrrstæða bfla
Síðastliðinn mánudag var ekið
á tvo kyrrstæða bíla á Akur-
eyri og stungu tjónvaldarnir af
í báðum tilvikum. Rannsókn-
arlögreglan á Akureyri lýsir
eftir vitnum að þessum
ákeyrslum en tjón eigendanna
er mikið því bílarnir eru tölu-
vert skemmdir.
Ekið var á bifreiðina A-2267
sem er Volkswagen bjalla,
drapplituð, á tímahilinu 15.30-
16.30 á bílastæði við Geislagötu
10. Bifreiðin skemmdist mjög
mikið að aftan.
Þá var ekið á bifreiðina Þ-1135
sem er Subaru station, drapplit-
uð, á tímabilinu frá kl. 12-16 á
mánudag á bílastæði við Slátur-
hús KEA. Vinstra framhorn bif-
reiðarinnar skemmdist nokkuð.
Þeir sem geta gefið einhverjar
upplýsingar um þessar ákeyrslur
eru vinsamlegast beðnir um að
láta rannsóknarlögregluna vita,
ella er hætt við að eigendur bíl-
anna sitji sjálfir uppi með tjónið.
Gunnar Jóhannsson rannsókn-
arlögreglumaður sagði aö
ákeyrslur á kyrrstæða bíla virtust
hafa færst í vöxt að undanförnu
og það heyrði nú til undantekn-
inga ef tjónvaldurinn léti við-
komandi bifreiðareiganda vita af
óhappinu. SS
Húsnæði óskast
Félagasamtök á Akureyri óska eftir íbúðar- eöa iðn-
aöarhúsnæöi til leigu undir starfsemi sína.
Æskileg stærð 220 frn og stór og góð lóð.
Húsnæðið má þarfnast lagfæringar.
Skilvtsar greiðslur.
Upplýsingar í síma 22285.
Ferliþjónustan
Ekið verður hjá Ferliþjónustunni um páskana.
Akstur þarf að panta í síma 24929, fimmtudaginn
23. mars kl. 9.30-10.30 og 17.00-18.00. Föstu-
daginn langa kl. 9.30-10.30 og 17.00-18.00.
Akstur fyrir laugardag og sunnudag skal panta á
föstudag.
Mánudagur, annar í páskum, kl. 9.30-10.30 og
17.00-18.00.
Forstöðumaður.
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Akureyri:
Subaru bflasýning
Subaru 1800 GL 4WD. Helgi Ingvarsson stcndur á bakvið bílinn. Mynd: ehb
Um síðustu helgi var haldin sýn-
ing á Subaru og Nissan bifreiðum
hjá Bifreiðaverkstæði Sigurðar
Valdimarssonar á Akureyri, en
Sigurður er með söluumboð fyrir
Ingvar Helgason hf.
Sérstök áhersla er lögð á að
kynna Subaru 1800 GL fjórhjóla-
drifs-skutbílinn hjá Ingvari Helga-
syni því sá bíll er langsamlega
söluhæsti Subaruinn, að sögn
Helga Ingvarssonar, sölu- og
markaðsstjóra fyrirtækisins, en
hann kom til Akureyrar í tilefni
af bílasýningunni.
Svo virðist sem fjórhjóladrifs-
bílar séu sífellt að verða vinsælli
hér á landi, ekki síst meðal fólks
sem býr í „dreifbýli,“ ef rnenn
vilja kalla alla byggð utan
Reykjavíkur því nafni. Subaru
GL skutbíllinn er rúmgóður og
nýtískulegur með vandaða inn-
réttingu og hæfir vel sem alhliða
fjölskyldubíll. Fjórhjóladrifið
kemur að góðurn notum þegar
ekið er í erfiðum aðstæðum, t.d.
upp brattar brekkur.
GL-bíllinn er með rafmagns-
speglum, hægt er að fá hann með
rafknúnum rúðum og „central"
læsingum á hurðum, velti- og
vökvastýri, snúningshraðamæli
og mörgum aukahlutum, t.d. ál-
felgum fyrir „low-profile“- dekk.
Tæknilegar upplýsingar unt
vél: Borun x slaglengd 92x60
mm, 4 cyl. OHV. Þrjár gerðir
véla eru framleiddar í skutbílinn
eftir gerðum, 1600 cc (DL), 1800
cc eða 1800 cc turbo. Þjöppun,
1800 GL 9:1, turbo 7,7:1, afl
1800 vélarinnar DIN er 90 kw á
5600 snúningum, tork (DIN)
137(14.0, 101) á 3600 snún.
Hámarkshraði 165 km/klst.,
bensíntankur tekur 60 lítra.
Bensíneyðsla er gefin upp sem
10,4 lítrar á 100 km í þéttbýli en
6,7 lítar í þjóðvegaakstri. Raf-
geyinir er 40 amperstundir. Hægt
er að fá btlana beinskipta með
fimrn gíra kassa eða sjálfskipta
með þriggja þrepa skiptingu.
Hjólbarðar eru af stærðinni 175/
70-13. EHB