Dagur - 23.03.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 23. mars 1989 - DAGUR - 7
Hvað er að gerast
Húnvetnskur hestadagur
- á Réttarvatni nk. laugardag
Hestaíþróttadeild A.-Húnvetn-
inga gengst fyrir húnvetnskum
hestadegi laugardaginn 25. mars
nk. á Réttarvatni við Vatnahverfi
og hefst dagskráin kl. 14.00.
Keppt verður í ístölti, kappreið-
um, bæjakeppni og ef til vill ein-
hverju fleira. í yfirlýsingu frá
Hestaíþróttadeildinni kemur
fram að tilefni þessa húnvetnska
hestadags sé þörf stjórnar til að
láta bera á sér og sínum!
Bæjakeppnin líkist hefðbund-
inni firmakeppni hestamanna og
fer þannig fram að einstakir bæir
kaupa sér þátttökurétt. Hending
ræður fyrir hvaða bæi efstu knap-
arnir keppa. Verðlaun eru eign-
arbikar fyrir efsta bæ og verð-
launapeningar fyrir 3 efstu
knapa. Þá verða einnig veitt veg-
leg verðlaun í ístöltinu og kapp-
reiðunum.
Það verður því líf og fjör á
Réttarvatni nk. laugardag og
Húnvetningar hvattir til að koma
og sjá fjörlega hesta og knapa.
Skíðalandsmótið hefst í dag
Keppni á Skíðalandsmótinu á
Siglufirði hefst í dag með
keppni í svigi kvenna og stór-
svigi karla. Eftir hádegið verð-
ur síðan keppt í göngu karla,
kvenna og pilta.
Keppnin í alpagreinum fer
fram á hinu nýja skíðasvæði Sigl-
Glerárkirkja:
Kyrrðarkvöld á
föstudagmn langa
Á föstudaginn langa kl. 20.30
verður kyrrðarkvöld í Glerár-
kirkju. Verður þar minnst písl-
argöngu Krists með lestri og
söng. Sóknarpresturinn sr. Pálmi
Matthíasson mun lesa m.a. úr
píslarsögunni og Passíusálmum
sr. Hallgríms Péturssonar og
kirkjukórinn undir stjórn
Jóhanns Baldvinssonar söng-
stjóra og organista leiðir söng. Er
vonandi að sem flestir sjái sér
fært að koma og eiga kyrrláta
stund í Glerárkirkju á föstudag-
inn langa.
Á páskadagsmorgun verður
síðan hátíðarguðsþjónusta í
Glerárkirkju kl. 8.00. Á eftir
þeirri athöfn verður sameiginleg-
ur morgunverður kirkjugesta.
Borið verður fram kakó en
kirkjugestir eru beðnir að hafa
með sér meðlæti.
Jón sýnir í Gamla Lundi
Föstudaginn langa 24. mars kl. 16
opnar Jón Laxdal Halldórsson
sýningu á upplímingum í Gamla
Lundi.
Jón Laxdal er Akureyringur
fæddur 1950. Fyrsta einkasýning
hans var í Rauða húsinu 1983,
Virginía Woolf:
Síðustu sýningar
Leikfélag Akureyrar sýnir leikrit-
ið Hver er hræddur við Virginíu
Woolf? fimmtudaginn 23. mars,
laugardaginn 25. mars og mánu-
daginn annan í páskum kl. 20.30.
Þetta eru síðustu sýningar á
leikritinu.
Leikarar í þessu rómaða verki
eru þau Helga Bachmann, Helgi
Skúlason, Ragnheiður Tryggva-
dóttir og Ellert A. Ingimundar-
son.
Leikfélag Dalvíkur:
Dysin sýnd í Ungó
Næstkomandi Iaugardag kl. 21
sýnir Leikfélag Dalvíkur Dysin
- úr aldaannál eftir Böðvar
Guðmundsson. Verkið var
frumsýnt í Ungó þann 10. mars
sl. og óhætt er að segja að það
hafi hlotið frábæra dóma, jafnt
áhorfenda sem gagnrýnenda.
Dysin er rammíslenskt leik-
verk, sem tekur mið af sannsögu-
legum atburðum í Múlaþingi á
öldinni átjándu. Fólk varð illa úti
í kjölfar Móðuharðindanna og
það fengu m.a. þrír menn að
reyna, Gunnsteinn, Eiríkur og
Jón (sem reyndar heitir Sveinn í
Dysinni). Ósætti kom upp milli
þeirra félaga sem lauk með því
að Eiríkur tunguskar Svein. Mál-
ið fór fyrir réttvísina. Upp úr
þessu öllu spinnur Böðvar
Guðmundsson hina athyglisverð-
ustu fléttu sem allir sem vettlingi
geta valdið eru hvattir til að sjá.
Að sögn formanns Leikfélags
Dalvíkur er stefnt að nokkrum
sýningum á Dysinni í næstu viku.
óþh
firðinga í Skarðsdal, en þar hafa í
haust og vetur staðið yfir miklar
framkvæmdir við að setja upp
tvær skíðalyftur, alls tæpir 2000
m. Svæði þetta er sérlega glæsi-
legt og brekkur við allra hæfi frá
náttúrunnar hendi.
Keppni í göngu og stökki fer
fram við íþróttamiðstöðina að
Hóli.
Búist er við tæplega áttatíu
keppendum og koma þeir frá
eftirtöldum skíðahéruðum:
Reykjavík, ísafirði, Dalvík,
Ólafsfirði, Fljótum og Siglufirði.
Kristján Möller er mótsstjóri,
Freyr Sigurðsson leikstjóri í alpa-
greinum, Magnús Eiríksson leik-
stjóri í göngu og Sigurjón
Erlendsson leikstjóri í stökki.
næst í Nýlistasafninu 1987 auk
samsýninga á Akureyri. Á þess-
ari sýningu eru aðallega smá-
myndir frá síðustu sex árum.
Sýningin stendur aðeins til
mánudagsins 27. mars og er opin
daglega frá kl. 16 til 21.
Næsta verkefni Leikfélags
Akureyrar er Sólarferð eftir
Guðmund Steinsson og er frum-
sýning áætluð 7. apríl.
EG HELD
ÉG GANGI HEIM
Gamlal
I fullu gi
BOKAMARKAÐUR FÉLAGS ÍSLENSKRA
BÓKAÚTGEFENDA
GLERÁRGÖTU 36 - AKUREYRI - SÍMI: 27699
Þúsundir bókatitla
Allt að 90% verðlækkun
Meðalverð Zll.-krónur
Bókapakkar - tilboð
Greiðslukortaþjónusta
SA GAMLI
, EINI SAN
OPNUNARTlMI:
Miðvikud. 22. mars . kl. 13-19 Miðvikud. 29. mars . kl. 13-19
Fimmtud. (skirdag) 23. mars . kl. 13-19 Fimmtud. 30. mars . kl. 13-19
Laugard. 25. mars .. kl. 13-19 Föstud. 31. mars .... kl. 13-19
Mánud. (annar í páskum) 27. mars . kl. 13-19 Laugard. 1. apríl .... kl. 13-19
Þriðjud. 28. mars .. kl. 13-19 Sunnud. 2. apríl . kl. 13-19
Margar sjaldgæfar bækur
Bækur frá öllum helstu bókaútgefendum