Dagur - 23.03.1989, Page 20
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF
Q)j
FJARMAL ÞIN - SÉKGREIN OKKAR
Akureyri, fímmtudagur 23. mars 1989
^FJÁRFESriNGARFÉLACD
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Neytendasamtökin harðlega gagnrýnd af kjötiðnaðarmönnum, matvörukaupmönnum og eigendum matvöruverslana:
Gæðakönnun á farsi og hakki ekki mark-
tæk vegna ófagmannlegra vinnubragða
„fáránlegar blekkingar um sóðaskap í verslunum4
Neytendasamtökin eru gagn-
rýnd harðlega í ályktunum sem
félög matvörukaupmanna,
kjötverslana og kjötiðnaðar-
manna hafa sent frá sér vegna
gæðakönnunar á kjötfarsi og
nautahakki sem Neytenda-
samtökin birtu þann 16. mars
sl. Fullyrðingum formanns
samtakanna um að viðhafður
hafi verið sóðaskapur í við-
komandi vcrslunum vísa þessi
félög algerlega á bug sem fárán-
iegum blekkingum.
Félag kjötverslana og Félag
matvörukaupmanna telja að Neyt-
endasamtökin hafi í þessu máli
tekið sér undarlegt vald til sak-
fellingar. „Minna vinnubrögð
sem þessi mjög á aðferðir græn-
friðunga, þar sem tilgangurinn
helgar meðalið, bersýnilega gert í
því skyni að auglýsa upp samtök-
in. Er það ekki í fyrsta skipti sem
það er gert og verður ekki hjá því
komist að átelja þessi vinnubrögð
samtakanna," segir m.a. í sam-
eiginlegri ályktun félaganna.
Fyrrnefnd félög gera öll
athugasemdir við framkvæmd
könnunarinnar og segja að þar
hafi verið viðhöfð ófagmannleg
vinnubrögð. „Félögin vilja taka
skýrt fram að gæðakönnunin er
ekki marktæk vegna ófagmann-
legra vinnubragða,“ segir í álykt-
uninnni. Fjögur atriði telja félög-
in ámælisverð. í fyrsta lagi hafi
hvorki sýnatökudagur né sá dag-
ur sem sýnið var rannsakað kom-
ið fram í könnuninni. í öðru lagi
hafi sýnatökumenn ekki haft
löggildingu. í þriðja lagi hafi
framleiðandi sýna ekki komið
fram í könnuninni heldur ein-
göngu söluaðili og í fjórða lagi
hafi lokaniðurstaða Neytenda-
samtakanna verið mjög ósann-
gjörn í garð þessara verslana. í
máli samtakanna hafi komið
skýrt fram að verslununum sé
einum um að kenna.
Matvörukaupmenn segja utan-
aðkomandi mengun af völdum
gerla geta átt sér stað á öllu ferli
fyrsta vinnslustigs, þ.e. áður en
Getraunir/Lottó nk. laugardag:
20 milljónir í fyrsta vimiing!
Þaö má gera ráö fyrir að lukku-
pottarnir verði heldur betur
digrir nk. laugardag. Lottó-
Páskaveðrið:
Norðanátt og
éljagangur
Ekki er útlit fyrir hagstætt
páskaveður á Norðurlandi en
reyndar ekki ýkja óhagstætt
heldur. Veðurstofa Islands
gerir ráð fyrir norðanátt allt
fram á páskadag með élja-
gangi.
„Veðurspáin fyrir skírdag,
föstudaginn langa, laugardag og
páskadag er norðanátt, 4-6
vindstig, él og hægt vaxandi frost.
Gjörðu svo vel,“ sagði Bragi
Jónsson veðurfræðingur.
Þessi spá gildir fyrir allt
Norðurland, eða allt frá Vest-
fjörðum til Austfjarða. Bragi
sagðist ekki búast við neinu stór-
viðri heldur væri hér um hina
hefðbundnu norðanátt að ræða
sem Norðlendingar ættu að kann-
ast við. SS
potturinn verður þrefaldur og
pottur Islenskra getrauna
verður fjórfaldur. Ekki er
óeðlilegt að ætla að til samans
verði fyrsti vinningur beggja
lukkupottanna hátt í-20 millj-
ónir króna.
Getraunaunnendur bíða örugg-
lega spenntir eftir úrslitum í
enska sparkinu nk. laugardag.
Rcyndar full ástæða til, fjórfald-
ur pottur í boði. Það vill segja að
fyrsti vinningur hefur ekki gengið
út síðustu þrjár leikvikur og því
bætist þrefaldur vinningur við
getraunapott þessarar viku.
Starfsmenn íslenskra getrauna
áætla að fyrsti vinningur á laugar-
daginn verði hátt í 10 milljónir
króna. Þeir benda á að þann 17.
desember sl. hafi potturinn verið
fjórfaldur og fyrsti vinningur ver-
ið 8,1 milljón króna. Þá fluttist
mun minni þrefaldur pottur yfir á
fjórðu leikviku og í ljósi þeirrar
staðreyndar telja menn ekki
óeðlilegt að ætla að fjórfaldur
vinningur verði nokkuð hærri nú.
Lottópotturinn hefur ekki
gengið út síðustu tvær vikurnar.
Fyrsti vinningur var rúmar 5
milljónir síðast og samkvæmt spá
íslenskrar getspár mun hann tvö-
faldast nk. laugardag.
Það verður því ekki annað séð
en að allir landsins fjárhættuspil-
arar hafi í nógu að snúast á laug-
ardaginn. Vonandi fá einhverjir
þeirra milljónir í páskagjöf! óþh
kjötið komi til vinnslu í verslun-
inni. Þess vegna geti hvorki Neyt-
endasamtökin, né nokkur annar
aðili, dæmt þessar verslanir, sem
aðeins fari með lokastig ferilsins.
sekar. JÓH
/ fjötrum fannfergis.
Mynd: TLV
Alexander Stefánssyni svarað:
Lykilatriði að hús-
bréfin verða á gengi
segir aðstoðarmaður félagsmálaráðherra
„Einn stærsti þátturinn í hús-
bréfakerfinu snýr einmitt að
landsbyggðinni. Gert er ráð
fyrir að fólk þar geti farið með
húsbréfaviðskipti í gegnum
sinn banka. Fólk á landsbyggð-
inni er alls ekki bundið af því í
hvaða viðskiptum fólk á
höfuðborgarsvæðinu er. Því
get ég ekki skilið þessi orð
þingmannsins,“ segir Rann-
veig Guðmundsdóttir, aðstoð-
armaður félagsmálaráðherra,
varðandi ummæli Alexanders
Stefánssonar um
bréfakerfið í Degi
húsnæðis-
gær.
Ljót aðkoma að hænsnakofa á Sauðárkróki:
Slitinn hausinn af 20 hænuungum, 4 hænur
fótbrotnar og einn hani lemstraður
ijót
Ar-
Það var vægast sagt
aðkoman hjá hænsnabúi
manns Kristjánssonar á Sauð-
árkróki sl. sunnudagsmorg-
un. 20 ungar hænur, 9 mán-
aða, lágu dauðar og búið að
snúa þær úr hálsliðnum, og af
sumum slitinn hausinn, 4
gamlar hænur voru fótbrotn-
ar og illa leiknar og einn hani
var allur lemstraður. í kofa
rétt hjá hænsnakofanum var
„Þetta er ekki heilbrigt“ segir eigandi kofans
gamall hestur, barnahestur,
og hann var eins og hengdur
upp á þráð, mjög órólegur,
en þetta er hestur sem hreyfir
sig mjög Jítið. Þegar komið
var að þessu voru hurðirnar
að báðum kofunum opnar og
rúða í hænsnakofanum var
brotin.
„Ég er mjög sár yfir þessu,
ekki að skaðinn sé svo mikill,
heldur að svona nokkuð geti
gerst. Ég held því fram að
þarna geti ekki verið um mink
að ræöa. Hann gengur mjög
hreint til verks, hann sýgur úr
hænunum blóöið og staflar
þeim síðan. Ég veit þetta, því
það var einu sinni áður ráðist á
hænsn hjá mér, og það var
greinilega eftir mink, því þeim
var öllum staflað. Ég hef fengið
menn til að skoða þetta, sem
hafa meira vit á þessu en ég, og
þeir segja að hér geti ekki verið
um mink að ræða,“ sagði Ár-
mann í samtali við Dag.
Málið er í rannsókn hjá lög-
reglunni. „Það er engin ástæða
til að þegja yfir þessu. Það er
nauðsynlegt að þetta upplýsist.
Þetta er alltaf að koma fyrir,
víöar heldur en hér á Sauðár-
króki, og þetta mál þarf að upp-
lýsast, þetta er ekki heilbrigt,“
sagði Ármann að lokum. -bjb
Alexender hefur hvað harðast
gagnrýnt frumvarp Jóhönnu Sig-
urðardóttur, félagsmálaráðherra,
um húsbréfakerfið og lýst því yfir
að hann greiði atkvæði á móti því
við afgreiðslu þess í Alþingi.
Hann benti á það í Degi í gær að
í sinni núverandi mynd skapaði
húsbréfakerfið nýja þenslu á
höfuðborgarsvæðinu en lands-
byggðin sæti eftir með sárt ennið.
Þá hafði Alexander uppi efa-
semdir um vexti á húsbréfunum.
Aðstoðarmaður félagsmálaráð-
herrra segir þessar efasemdir
byggðar á veikum grunni. „Það
verða fastir vextir á bréfunum og
þau verða alltaf á gengi. Það er í
raun lykilatriðið í húsbréfakerf-
inu. Seðlabanki og Húsnæðis-
stofnun verða viðskiptavakar í
kerfinu og fylgjast með daglegu
gengi húsbréfanna.“ Að sögn
Rannveigar þýðir þetta að sá sem
gerir viðskipti með húsbréf fær
uppgefið gengi á þeim degi sem
viðskiptin fara fram og fær sam-
kvæmt genginu nákvæmlega það
sem um var samið fyrir bréfið.
óþh